NT - 07.06.1984, Qupperneq 9
w
Fimmtudagur 7. júní 1984 9
Ábendingar um:
Standandi vinnu
■ í dag hefurjgöngu sína í NT nýr þáttur sem er liður í þjónustu blaðsins
við lesendur. Abendingar iðjuþjálfa um vinnustellingar og vinnutækni.
Hér eru á ferðinni heilræði er varða heilsu fólks. Fyrir voru í blaðinu þættir
þar sem svarað var spurningum um lögfræðileg efni og um sálar- og
geðlæknisfræði. Björk Pálsdóttir iðjuþjálfi mun sjá um þennan nýja þátt,
en starfstellingar og vinnutækni eru einmitt meðal þess sem iðjuþjálfar
fást við. Ætlunin er að þættir Bjarkar birtist vikulega í NT á fimmtudögum.
I fyrsta þættinum gefur hún ábendingar þeim sem standa við vinnu sína.
Síðar verða ábendingar til þeirra sem sitja við vinnu, fjallað um stóla,
vinnuborð, hvOdarstöðu o.s.frv.
Ónóg þekking
Flestir þekkja eitthvað til álagssjúk-
dóma eins og t.d. vöðvabólgu, bakverkja,
brjóskloss, æðahnúta og streitu. Þeir geta
m.a. stafað af:
- ónógri þekkingu okkar á starfsemi
líkamans,
- ónógri þekkingu á starfstellingum,
- viðhorfi okkar til vinnu og vinnuum-
hverfis,
- vinnuaðstæðum.
Það er mikilvægt að við vitum hvernig
beita má líkamanum, þannig að vinnan
verði sem léttust og komið verði í veg
fyrir óþarfa álag og slit.
Með því að beita þessari þekkingu
verðum við hraustari, vinnuhæfni eykst
og veikindadögum fækkar. Þannig getur
þekking á orsökum álagssjúkdóma dregið
úr kostnaði bæði fyrir einstaklinginn og
þjóðfélagið.
Best er ef hægt er að komast hjá því að
vinna standandi, vegna þess að það er
erfiðasta starfstelling okkar. Standandi
vinna getur þó verið nauðsynleg:
- þegar mikilla krafta er þörf,
- þegar þarf að teygja sig yfir stórt svæði,
- þegar þarf að hreyfa sig mikið við
vinnuna,
- þegar vinnan krefst mikils sjónsviðs.
Helstu atriði sem vert er að hafa í huga
við standandi vinnu:
1. Góð líkamsstaða (mynd 1) er undir-
staða réttrar líkamsbeitingar. Hún er
þegar:
- hæfilegt bil er milli fótanna,
- þunginn hvílir jafnt á báðum fótum,
- liðir eru í miðstöðu (ökklar, hné og
mjaðmir). eðlilegar sveigjur hryggjar
haldast og axlir og handleggir eru
slakir,
- lóðlína er gegnum eyra, öxl, mjöðm,
hné og aðeins framanvert við ökklalið.
Þannir ber líkaminn þunga sinn með
minnstu álagi á vöðva. Ef þyngdarpunkt-
ur líkamans fer út fyrir þessa línu þurfum
við að spenna vöðva til að halda jafnvægi.
Þá verða sum liðamót ekki í miðstöðu,
sem veldur auknu álagi á liðbrjósk og
liðbönd.
2. Hreyfivinna felur í sér að slökun og
spenna verður til skiptis í vöðvum og
liðamót hreyfast. Dæmi um hreyfivinnu
er þegar gengið er og höndum er sveiflað
til skiptis fram og aftur, þ.e. stöðug
hreyfing er á fótum og höndum. Hreyfi-
vinnu ættu allir að temja sér. Hún örvar
blóðrás. Við spennu hjálpa vöðvar blóð-
rásinni að dæla út súrefnislausu blóði
með úrgangsefnum frá vöðvunum. Við
slökunina streymir nýtt blóð með næring-
arefnum og súrefni um vöðvana.
Með hreyfivinnu er hægt að vinna
lengur án þess að þreytast, ef unnið er á
skynsamlegum hraða.
Stöðuvinnu er áríðandi að forðast, en
þá er langvarandi spennu haldið í vöðv-
unum og þeir læsa liðamótin í ákveðna
stöðu. Vöðvarnir þreytast og verða aum-
ir, og þetta getur leitt til vöðvabólgu, sem
einkennist af þykkum og aumum hnútum
í vöðvunum (úrgangsefni komast ekki
leiðar sinnar).
Langvarandi stöður auka hættu á
bólgum í fótum, þess vegna er nauðsyn-
síðarnefnda er betur aðlöguð að mannin-
um vegna þess að það þarf ekki að bogra
við hana. Lagfæra má þvottavélina með
hliðarlokinu með því að byggja undir
hana.
Á myndinni eru sýndar borðhæðir við
mismunandi tegundir standandi vinnu.
5. Vinnusvæði má ekki vera svo stórt að
það þurfi að bogra eða teygja sig. Þau
tæki/verkefni sem oftast eru notuð þurfa
að vera sem næst líkamanum, (mynd 4).
Æskilegt er að sökkull í innréttingu/tæki
sé inndreginn svo hægt sé að standa sem
næst viðfangsefninu. Þar sem pláss er
getur verið gott að hafa fótskemil fyrir
framan sig, til að stíga á til skiptis með
hægri og vinstri fæti til að breyta um
stellingu í hnjám og mjöðmum öðru
hvoru.
6. Þægilegur klæðnaður sem ekki hindrar
hreyfingar er heppilegastur. Skór skipta
miklu máli við standandi vinnu. Steingólf
cm karlar 100-
cm konur
95-
Borðhæð miðuð
við olnbogahæð
(mæld í cm
fyrir ofan/
neðan olnboga-
hæð).
Nákvæmis-
vinna
Lett vinna
Erfiðis-
vinna
Mynd 3
■ Myndl
eða leirflísar eru meira þreytandi en gólf
klætt tré, gólfdúk eða teppi. Því eru
þykkir og mjúkir skósólar heppilegir við
standandi vinnu á steingólfi eða leirflís-
um.
7. Taka þarf tillit til annarra atriða í
umhverfinu s.s. hávaða, Ijóss, hitastigs,
titrings o.fl.
8. Munið:
- veljið þá byrjunarstöðu, sem veitir
minnsta álag á liðamót og vöðva.
- vinnið eins nærri þyngdarlínu líkamans
og kostur er.
- notiðeigin líkamsþungaog„sveifluna“
við þunga erfiðisvinnu.
- vinnið, eftir því sem hægt er með
liðamót í miðstöðu.
- vinnið hreyfivinnu eftir því sem hægt
er.
- deilið erfiðri vinnu á fleiri vöðva og
liðamót.
- vinnið taktfast og með jöfnum hraða.
- hvílið oft.
ákhjívg
Ábend-
ingar um
starfstell
ingar og
vinnu-
tækni.
Eftir
Björk
Pálsdótt-
ur iðju-
þjálfa
-W------W— Hliðar-
(j H hreyfing
Breiðstaða
1
OFrara-aftur-
! hreyfing
Gangstaða
■ Mynd 2
legt að hreyfa fæturna svo blóðrásin
starfi.
3. Standa skal ýmist í breið- eða gang-
stöðu, (mynd 2) eftir því hvort vinnan fer
fram í hliðar eða fram-aftur hreyfingum.
Látið þungann hvíla jafnt á báðum fótum
eða flytjið þungann til skiptist á hægri og
vinstri fót í takt við vinnuna í fjaðrandi
hreyfingum.
Sveigjur hryggjar haldast eðlilegar og
varast skal snúning á hrygg, en snúa um
fætur ef snúningur er nauðsynlegur.
Dæmi um vinnu í gangstöðu er t.d. að
ryksuga og saga, og í breiðstöðu, að
strauja og þvo glugga.
4. Hæð vinnuborðs (mynd 3) miðast við
hæð hins vinnandi manns og við tegund
vinnunnar. Mikilvægt er að vinnutæki sé
aðlagað að hverjum starfsmanni. Sem
dæmi má taka þvottavél með hliðarloki
og hins vegar vél með loki að ofan. Sú
Glæsilequr qististaöur
í fiúbæru umhverfi
Nú er Bifröst í Borgarfirði orðin hótel á nýjan leik, sem
búið er öllum þeim þægindum sem ferðamaður vill
njóta á góðum gististað.
• Gisting allt frá einni nótt til margra vikna.
• Allar veitingar; vandaður matur, meðlæti og drykkir í
sérflokki.
Eins, 2ja og 3ja manna herbergi
Útivistarsvæði - knattspyrnuvöllur
Guf ubað - Ljósalampi
Bókasafn
• Einstök náttúrufegurð - óteljandi gönguleiðir
Leitið upplýsinga og gerið pantanir á
Hótel Bifröst og hjá Samvinnuferðum-Landsýn.
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Borgarfirði Sími 93-5000
■ Mynd 4