NT


NT - 07.06.1984, Side 24

NT - 07.06.1984, Side 24
Indland: Helgidómar vanvirtir - Barist í hofum í Punjab Fimmtudagur 7. júní 1984 24 Nýja-Delhi - Reuter ■ Helgistaðir sikha, hindúa og múhameðstrúarmanna í Punj- abfylki eru blóði drifnir eftir hörð átök milli stjórnarhersins á Indlandi og öfgasinna og þjóð- ernissinna sem höfðu hreiðrað um sig í hofum, musterum og moskum. Fyrir nokkrum dögum setti herinn upp vegatálma á mörg- um stöðum í Punjabfylki og rauf allt fréttasamband milli fylkisins og umheimsins. Síðar sögðu talsmenn hersins frá því að allir helstu helgistaðir hefðu verið umkringdir í Punjab þar sem aðskilnaðarsinnar og aðrir öfgasinnar hefðust við á þessum' stöðum. Fram til þessa hafði herinn ekki þorað að rjúfa frið- helgi hofanna og annarra helgi- staða af ótta við að slíkt myndi auka enn á andstöðu sikha við stjórnvöld í Nýju-Delhi. Indverskur herforingi skýrði svo frá því í gær að herinn hefði ráðist í 39 sikha-hof, fimm hind- úamusteri ogeina mosku. Fjöldi manns hefði fallið á báða bóga og herinn hefði fundið mikið magn vopna sem öfgasinnar hefðu geymt í helgistöðunum. Hörðustu bardagarnir urðu ■ Harchand Singh Longowal, einn helsti stjórnmálaleiðtogi sikha. Hann mun hafa gefist upp fyrir indverska hernum við Gullna hofið í Amritsar skömmu áður en herinn lagði þar til atlögu. Símamynd-POLFOTO við Gullna hofið í Amritsar sem er helgast allra hofa sikha. Þar féllu næstum því 300 manns og margir særðust. Hermenn not- uðu sprengjuvörpur, brynvarða bíla og vélbyssur í bardögunum og þeir segja að í Gullna hofinu hafi þeir m.a. lagt hald á 40 vélbyssur. Síðast þegar fréttist hélt lítill hópur sikha enn uppi vörnum í kjallara hofsins undir forystu Bhindrawale sem stjórnvöld segja að sé leiðtogi hörðustu aðskilnaðarsinnanna. En áður en bardagarnir hóf- ust fyrir alvöru höfðu nokkrir helstu leiðtogar sikha, sem höfðu aðsetur í Gullna hofinu, gefist upp. Harchand Singh Longowal,1 leiðtogi stærsta flokks sikha, Akali Dal- flokksins, var meðal þeirra sem gafst upp en hann hefur löngum verið talinn til hófsamari leið- toga sikha. Samt lýsti Longowal þessi yfir heilögu stríði á hendur stjórninni í Nýju Delhi í ágúst árið 1982 til þess að „bjarga Punjab frá vanhelgum áformum höfðingjanna í Delhi", eins og hann orðaði það. Síðan hafa vopnuð átök og hermdarað- gerðir stöðugt aukist í Punjab. Mondale lýsir sigri St.Paul-Kcutcr ■ Walter Mondale lýsti því yfir í gær að hann hefði tryggt sér 2008 kjörmenn, meira en nóg til að öðlast útncfningu Demó- krataflokksins sem forsetaefni. Síðustu forkosningarnar fóru fram í fyrradag. Gary Hart og Jessy Jackson neituðu hinsvegar báðir að viðurkenna ósigur og ætla að bcrjast fyrir útnefningunni fram á síðustu stund. Flokksleiðtogar hafa nú áhyggjur af afstöðu Harts. Þeir vilja reyna að sameina flokkinn fyrir forsetakosningar og halda fram að hin harða forkosning- abarátta Demókrata hafi aðeins. aukið sigurlíkur Reagans. Fáveðféð 14 falt ■ Hesturinn Secreto vann óvæntan sigur á veðreiðunum í Epson í Englandi í gær. Þeir sem veðjuðu á Secreto fyrir hlaupið fengu upphæð sína fjórtánfalda til baka. Þjálfari Secreto heitir David O’Brian en faðir hans þjálfaði hestinn sem varð í öðru sæti. Faðirinn var þrátt fyrir allt hinn ánægðasti og lýsti því yfir eftir hlaupiðaðþettaværi stórstund fyrir fjölskylduna. TTurk ■ Saudi-Arabar skjóta niður tvær íranskar orr- ustuflugvélar. iran rAFGH .Persian]_S KGulf V SAUDP ARABiA IRAQ KHARG ISLAND KUWAIT ■ Al-Arabiya (Saudi-arabísk eyja) SAUDI ARABIA Persian Guif BAHRAIN Gulf of Oman QATAR OMAN ■ Saudi-Arabar hafa nú dregist inn í átökin við Persaflóa. Orustuflugvélar frá Saudi-Arabíu skutu tvær íranskar flugvélar niður í fyrradag í saudi-arabískri lofthelgi. símamynd - roiroio Ekkert bólar á stórsókn írana Bahrain - Rcuter ■ Þrátt fyrir mikinn undir- búning írana að undanförnu og liðssafnað þeirra á landa- mærum íraka bólar enn ekk- ert á þeirri stórsókn sem búist var við að þeir myndu hefja í dag. íranir og írakar hafa að vísu skipst á skotum við víg- stöðvarnar og íranskt stór- skotalið skaut í gær skeytum sínum á fjórar borgir í írak. En íranir höfðu samt enn ekki beitt herstyrk sínum af fullum þunga við nýja innrás í írak seint í gærkvöldi. Hættan á því að stríðið breiðist út til annarra landa virðist stöðugt vera að aukast og í fyrradag skutu flugvélar frá Saudi-Arabíu niður tvær íranskar orustuþotur sem höfðu rofið lofthelgi Saudi- Araba. ■ Reagan Bandaríkjaforseti heilsar gömlum hermönnum að hermannasið við minningarathöfn við Pointe du Hoc á strönd Normandí í gær. POLFOTO-Símamynd Normandí: Þjóðhöfðingjar minnast D-dags Utah Beach-Reuter ■ Vestrænirþjóðhöfðingjartókuígærþáttí hátíðahöld- um í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá D-degi innrásarinnar í Normandí. Reagan Bandaríkjaforseti, Mitterand Frakk- iandsforseti og Elísabet Bretadrottning voru meðal þeirra sem tóku þátt í hátíðahöldunum og notuðu þjóðhöfðingj- arnir tækifærið til að leggja áherslu á að sættir næðust milli austurs og vesturs. Reagan ávarpaði bandaríska uppgjafahermenn og sagði þá m.a. að hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar undir- strikuðu nauðsyn þess að Bandaríkjunum og Sovétríkj- unum tækist að ná sáttum. Mitterand tók í sama streng og lagði einnig áherslu á að óvinur bandamanna í styrjöldinni hefði ekki verið Þýskaland, heldur aflið og hugmyndafræðin sem náð hafði völdum þar. Látið var að þvf liggja að þessi ummæli hefðu verið til að draga úr óánægju Vestur-Þjóðverja með að vera ekki boðnir til hátíða- haldanna en Vestur-Þjóðverjar eru nú nánustu bandamenn Frakka. Bæði Reagan og Mitterand minntust sérstaklega á það mikla mannfall sem Sovétmenn urðu fyrir í síðari heimsstyrjöld- inni. Sovétmenn hafa hins vegar gagnrýnt hátíðahöldin í Nor- mandí. Sovéskur hershöfðingi sagði í gær í sjónvarpsræðu að Vesturveldin væru að snúa sög- unni við og Reagan að nota tækifærið til atkvæðasmölunar. Hershöfðinginn sagði að þegar innrásin var gerð hefðu Sovét- ríkin verið í aðstöðu til að vinna stríðið án aðstoðar banda- manna. Því hefur raunar verið haldið fram af sagnfræðingum að inn- rásin hafi ekki aðeins verið til þess ætluð að koma Sovét- mönnum til hjálpar með því að mynda nýjar vesturvígstöðvar, heldur einnig til að koma í veg fyrir að Sovétmenn yrðu allsráð- andi í Evrópu eftir stríðið. Lét sóknarbörnin hneigja sig 300 sinnum til jarðar Moskva-Reuter ■ Kröfur presta til sóknar- barna eru misstrangar. Flestir gera sig ánægða með að kirkju- sóknin sé þokkalega góð en prestur nokkur í Sovétríkjun- um, Nikolai Temirbayev, sókn- arprestur í Krasnovodsk-borg í Turkmeniu gerði sig ekki ánægðan með það eitt að fólk kæmi til kirkju. Sovéskt dagblað sagði frá því í gær að séra Nikolai hafi látið kirkjugesti beygja sig 300 sinn- um til jarðar til merkis um iðrun vegna drýgðra synda. Sam- kvæmt frétt dagblaðsins leið yfir mörg eldri sóknarbörnin við þá áreynslu sem þessu fylgdi. Presturinn var þess vegna handtekinn og ákærður fyrir ofbeldi enda var sagt að hann berði einnig eiginkonu sína. Endir málsins var sá að prest- urinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna „glæpa sinna“. Dagbækur CheGuevara Ekki frá Kúbustjórn Havana-Rcuter ■ „Þessi hægri blöð eru eins lágkúruleg og morðingjar, þjóf- ar og okrarar“, sagði Daly Gramma, opinbert málgagn kommúnistaflokksins á Kúbu, um þær spekúlasjónir ýmissa dagblaða að Kúbustjórn stæði á bak við það að dagbækur Che Guevara verða boðnar upp hjá Sotheby's í júlí. Dagbækur Guevara, sem hjálpaði Fidel Castro til að ná völdum á Kúbu fyrir 25 árum, voru gefnar út í Havana stuttu eftir að Guevara lést árið 1967. Þá voru notuð Ijósrit af dagbók- ununt sem voru geymdar hjá bólivíska hernum. Nokkur dagblöð gerðu því skóna að Kúbustjórn hefði síðan kom- ist yfir dagbækurnar og stæði á bak við uppboð þeirra til að afla gjaldeyris. Stjórn bólivíska hersins sagði að dagbækurnar hefðu horfið þegar lýðræðisstjórn tók við í Bólivíu fyrir rúmu ári. Sothesby’s hefur aðeins lýst því yfir að fyrirtækið muni bjóða upp dagbækurnar fyrir hönd eiganda þeirra sem ekki sé breskur.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.