NT - 07.06.1984, Page 26
■ Liðin sem taka þátt í Evrópukeppninni í knattspyrnu eru nú byrjuð að streyma til Parísar og
hefja lokaundirbúning fyrir keppnina, sem hefst þann 12. júní. Hér eru leikmenn v-þýska
landsliðsins við komuna til Parísar með Karl Heinz Rummenigge í fararbroddi símamvnd polfoto
Meistaramót Islands í frjálsum íþróttum
Bryndís setti
■ Meistaramót íslands í
frjálsum íþróttum fór fram í
Laugardalnum í fyrrakvöld.
Bryndís Hólm setti nýtt ís-
landsmet í sjöþraut, hún hlaut
alls 5200 stig. Fyrra metið átti
Helga Halldórsdóttir KR 5025
stig.
Arangur Bryndísar í ein-
stökum greinum var sem hér
segir: 100 m grindahlaup 15,4
sek. Hástökk 164 m. Kúluvarp
9,36 m. 200 m hlaup 26,2.
Langstökk 5,73 m. Spjótkast
43,00 m. 800 m hlaup 2:30,1
mín.
Önnur í sjöþrautinni varð
Birgitta Guðjónsdóttir HSK
með 4444 stig, sem er nýtt
Skarphéðinsmet. Þriðja varð
Svanhildur Kristjánsdóttir
UBK með 3902 stig, sem er
nýtt Kópavogsmet.
Þá fór fram 10 km hlaup og
sigurvegari í því varð Ágúst
Þorsteinsson UMSB, á 32:37.5
mín. Steinar Friðgeirsson ÍR
varð annar á 33:05.4 mín. og
fyrsti hluti:
met
þriðji varð Garðar Sigurðsson
ÍR á 33:56.8 mín. í hlaupinu
setti Björn Pétursson FH nýtt
piltamet, en hann varð 6. í
hlaupinu á 36:57.2 mín.
í 300 m hlaupi kvenna sigraði
Súsanna Helgadóttir FH á
11:04.1 mín, önnur varð Rakel
Gylfadóttir FH á 11:06 mín.
Á mánudagskvöld fór fram
4x800 m boðhlaup karla. í
fyrsta sæti varð sveit ÍR á
8:12.4 mín, sveit FH varð í
öðru sæti á 8:35.2 mín.
Keppni í tugþraut var háð í
fyrrakvöld. Sigurvegari varð
Gísli Sigurðsson ÍR með 7178
stig, annar varð Þorsteinn Þórs-
son með 6441 stig, þriðji Jón B.
Guðmundsson HSK 5262 stig
og fjórði varð Óðinn Guð-
björnsson með 5145 stig.
Árangur Gísla varð þessi í
einstökum greinum: 100 m
hlaup 11,2 sek. Langstökk 6,83
m. Spjótkast 51,20 m. 1500 m
hlaup 4:53,7 mín. Kúluvarp
12,94 m. Stangarstökk 4,20 m.
Hástökk 1,85 m. 400 m hlaup
51,6 sek. 110 m. grindahlaup
15,00 sek. og kringlukast 41,54
Kvennabolti í
■ f kvöld vcrða fjölmargir lcikir
bæði í fyrstu og annarri dcild
kvcnna og má búast við að víða
verði fjör. Stóri leikurinn í kvöld
er þó viðureign Breiðabliks og
Akraness sem hefst kl. 20:00 á
Kópavogsvelli. Þessi lið hafa
staðið nokkuð uppúr í kvenna-
knattspyrnunni til þessa og viður-
eignir þeirra ávaUt verið all
fjörugar.
Annars verða eftirtaldir leikir í
kvöld:
1. deild A-riðill
Kópavogsv. UBK-ÍA
Valsvöllur Valur-ÍBf
Víkingsv. Víkingur-KR
2. deild A-riðill
Garðsv. Víðir-Fylkir
Grindavíkurv. Grindavík-Fram
Kaplakrikav. FH-Haukar
B-riðiO
Hveragerðisv. Hveragerði-Selfoss
ÍR-völlur (R-Afturelding
Keflavíkurv. fBK-Stjarnan
Allir leikirnir hefjast kl. 20:00
Tjaldvagnar -
Hjólhýsi
Höfum til sýnis og sölu nýja og notaða tjaldvagna
og hjólhýsi ásamt dráttarbeislum fyrir flestar
tegundir bifreiða.
Sýningarsalurinn Orlof
Bíldshöfða 8. Sími 81944
Opið: kl. 13-18
Föstudag kl. 9-19
Laugardag kl. 9-18
Fimmtudagur 7. júní 1984 26
Iþróttir
Auðvitað
Ítalía!
I ■ ftalir segja að framlag
I þeirra til knattspyrnuíþróttar-
innar á undanförnum árum geri
land þeirra að sjálfsögðum stað
til að halda Heimsmeistara-
keppnina 1990.
Fischeráfram
Frá Gísla Á. Gunnlaugssyni
frcttamanni NT í V-Þýskalandi:
■ Nú er talið að Klaus
Fischer, hinn leikreyndi
lcikmaður í FC Köln
muni halda áfram sem
atvinnumaður í knatt-
spyrnu, en Ficher ætlaði
sér að leika í
áhugamannadeildinni á
næsta ári.
Fischer hefur leikið
rúmlega 450 leiki og skor-
að um 230 mörk í Búnd-
eslígunni, enda orðinn 34
ára. Hann mun að likind-
um fara til bochum, eða
Hertha Berlín.
„Deildarkeppnin okkar er
sú erfiðasta í heimi og fyrir
utan Maradona þá eru allir
bestu spilarar í heiminum hér á
Ítalíu“ sagði Enzo Bearzot
þjálfari ítalska landsliðsins.
„Við vinnum heimsmeistara-
titil og Evrópumót og erum
orðnir miðstöð knattspyrnunn-
ar í heiminum" bætti Bearzot
við.
ítalir hafa einu sinni haldið
HM en það var árið 1934 og þá
sigruðu þeir Tékka í úrslitaleik
2-1. ítalireru núverandi heims-
meistarar og þurfa því ekki að
spila í undankeppninni fyrir
HM í Mexikó 1986 og þar sem
þeir halda keppnina 1990 þá
sleppa þeir aftur við undan-
keppni. „Þetta gæti orðið
hættulegt“, sagði formaður ít-
alska knattspyrnusambandsins,
„við munum aðeins spila æf-
ingaleiki auk Evrópukeppninn-
ar 1986.“
Haldin víða
um boraina
Islandsmet
Eðvarð hlaut afreks
mannabikar SSÍ
■ Eðvarð Þ. Eðvarðsson
Njarðvík setti um síðustu
helgi nýtt íslandsmet í
100 metra baksundi, er
hann sigraði í greininni á
Sundmóti Ármanns. Eð-
varð synti á 1:03,09 mín.
og bætti gamla metið,
sem hann átti sjálfur um
tæpa eina og hálfa sek-
úndu.
Eðvarð vann með
þessu afreki besta afrek
mótsins, og hlaut að
launum Afreksbikar
Sundsambands íslands,
sem veittur er fyrir besta
afrek þessa móts. Þetta
sund Eðvarðs gaf 655
stig.
Óskiljanleg
mistök
■ Hreint óskiljanleg
mistök urðu í 1. dcildar-
kynningu NT í gær, þar
sem ruglað var myndum
af þeim Þorsteini Ólafs-
syni þjálfara íþrótta-
félagsins Þórs á Akureyri
og Þórarins Jóhannes-
sonar leikmanns liðsins.
Þeir Þorsteinn og Þór-
arinn eru beðnir afsökun-
ar á þessum hörmulegu
mistökum.
■ íþrótta og leikjanámskeið
fyrir börn á aldrinum 6-12 ára
hófust á vegum Reykjavíkur-
borgar 4. júní og standa til 21.
júní.
Kennsla fyrir 6-9 ára er á
morgnana á eftirtöldum
stöðum: íþróttasvæði KR við
Frostaskjól kl. 9-10.15 Laugar-
dalsvelli kl 9-10.15. Leikvelli
við Árbæjarskóla kl 9-10.15.
Leikvelli við Fellaskóla kl 9-
10.15. Leikvelli við Austurbæj-
arskóla kl. 10.30-11.45. Leik-
velli við Grímsbæ í Fossvogi kl.
10.30-11.45. Leikvelli við
Breiðholtsskóla kl. 10.30-11.45
og leikvelli við Seljaskóla kl.
10.30-11.45.
Kennsla 10-12 ára barna fer
fram á eftirtöldum stöðum:
íþróttasvæði KR við Frosta-
skjól kl 13.30-15. Laugardals-
velli kl 13.30-15. Leikvelli við
Fellaskóla kl 13.30.-15.
íþróttavelli við Fellaskóla kl.
13.30-15. og leikvelli við Öldu-
selsskóla kl 13.30-15.
Átta íþróttakennarar annast
kennsluna og námskeiðsgjald
er 100 kr. Skráning fer fram í
byrjun námskeiðsins á kennslu-
stöðunum.
Allir krakkar eru að sjálf-
sögðu velkomnir á leikjanám-
skeið, en á þ im hafa margir af
okkar bestu íþróttamönnum og
konum stigið sín fyrstu spor á
íþróttabrautinni. Þar hafa þau
kynnst ýmSum íþróttagreinum
og fundið eitthvað sem þau
hafa sérstaklega gaman af að
iðka.
Námskeiðinu lýkur með
íþróttamóti á Laugardalsvelli.
Þar fer fram keppni í ýmsum
greinum og úrslit í knattspyrnu-
keppni, en áður hafa svæðin
keppt innbyrðis.
Á undanförnum árum hafa
þáttakendur í námskeiðunum
verið um og yfir 1000.
Ingi Björn
gerði fjögur
■ í umf jöljun um Bikar-
keppni KSI í blaðinu í
gær var sagt að Ingi Björn
Albertsson hefði gert
þrjú mörk fyrir FH í
leiknum gegn Snæfelli.
Hið rétta er að Ingi gerði
fjögur mörk og er beðist
velvirðingar á þessum
mistökum. í öðrum blöð-
um var Ingi skráður fyrir
fimm mörkum og er hon-
um þar eignað sjálfsmark
Snæfells. Þannig var að
Ingi átti skot í stöng og
þaðan fór knötturin í fæt-
ur Ólafs Sigurðssonar,
miðvarðar Snæfells, og í
markið, sjálfsmark.
■ Frakkinn Alain Prost var úrskurðaður sigurvegari í Grand Prix kappakstrinum sem fram fór í
Monaco um síðustu helgi. Stöðva varð keppnina vegna rigningar. Hér sést Prost á fleygiferð í
bleytunni. Símamynd POLFOTO