NT - 10.06.1984, Blaðsíða 7

NT - 10.06.1984, Blaðsíða 7
Sunnudagur 10. júní 1984' 7 Arnþór Helgason deildarstjóri námsbókadeildar Þarfir einstak- lingsins Deildarstjóri námsbóka- deildar Blindrabókasafnsins er Arnþór Helgason. Við báðum hann að segja okkur frá starf- semi deildarinnar. „Allt sem unnið er í náms- bókadeild, hvort sem um er að ræða útgáfu námsefnis á blindraletri, segulböndum eða með stækkuðu letri er fyrst og fremst unnið með þarfir ein- staklingsins í huga. Ekki er hægt að hugsa til fjöldaþarfa því þeir sem nota blindraletur eru fáir og framhaldsnám er orðið fjölbreytt. Ekki er hægt að beina öllum sem af ein- hverjum ástæðum geta ekki lesið í einn farveg. Oft er því einn blindur á námsbraut. Hér á landi er jafnrétti til náms og fatlaðir eiga kröfu á framhaldsnámi til jafns við aðra. Starfssvið deildarinnar er að útvega þessu fólki náms- efni, ýmist með því að panta námsefni erlendis frá eða með framleiðslu innanlands, og sjáum við starfsmenn deildar- innar um það að hluta. Við skrifum kennslubækur á blindraletri ogsamstarfsmaður minn Steinunn Stefánsdóttir les kennslubækur inná segul- band ásamt kennurum og sjálf- boðaliðum. Nýlega frétti ég þauánægjulegutíðindi að Há- skólinn hafí samþykkt að greiða námsbókagerð fyrir blindan nemanda þar, og fögnum við þeim áfanga. Hitt er. annað mál að náms- bókagerðin ein og sér er ekki nægjanleg. Þessum nemendum verður að tryggja námsaðstoð. Seinlegt er að vinna bækur á blindraletri og eru þær bækur efnismiklar og þungar í vöfum. Nær útilokað er að búa blindum uppflettirit og orða- bækur í hendur. Nám hins blinda getur verið þannig að ættingjar hans geti alls ekki veitt þá aðstoð sem nauðsynleg er og oft eru heimilisaðstæður þannig að námsaðstoð er eins nauðsynleg fyrir þann blinda og einkaritari er fyrir forstjóra. “ Nú er námsbókadeildin staðsett hér í Reykjavík, en framhaldsskólar eru víðar. Hvernig er t.d. fyrir blindan nemanda að stunda nám á Egilsstöðum eða á ísafirði? „Ég er sjálfur á móti því að rífa fólk úr sínum heimahögum og stefna öllum á einn stað. Við förum því á þá staði sem blindir nemendur eru og höld- um fundi með kennurum þar sem námsefnið er undirbúið í samráði við þá. Þannig reynum við að gera öllum jafnt undir höfði og oft leiðbeinum við kennurum örlítið. Kennarar sem hafa einn blindan nem- anda í tuttugu manna bekk þurfa oft að gerbreyta kennslu- aðferðum sínum. í því sam- bandi nægir að nefna smáatriði eins og það að kennari lesi allt upphátt sem hann skrifar á töfluna." Gísli tæknimaður hemur takkana Allur lestur er unninn í sjálf- boða- vinnu Gísli Helgason tvíburabróð- ir Arnþórs stjórnar tæknideild- inni. Um starfsemi deildarinn- ar sagði Gísli: „Starfssvið tæknideildarinn- ar er að sjá um framleiðslu og viðhald hljóðbóka og í fram- tíðinni bóka á blindraletri og bóka með stækkuðu letri fyrir sjónskerta. Framleiðslan er ennþá nær eingöngu bundin við hljóðbækur. Bókaverðirnir hér velja oft bækurnar sem eru lesnar, en oft fáum við beiðnir frá notendum safnsins. Síðan höfum við samband við fólk sem les bækurnar inná segul- band.“ Hvernig er með lesara safnsins, er þetta einhver ákveðinn hópur úrvalsmanna, eða getur hver sem er komið og lesið? „Allur lestur hjá okkur er unninn í sjálfboðavinnu. Við prófum fólk og reynum að leiðbeina því eftir bestu getu. Ef fólk getur þetta ekki þá áttar það sig oftast sjálft á því. Það besta væri nú ef við gætum greitt laun fyrir lesturinn, þá gætum við gert meiri kröfur og lesturinn yrði vandaðri." Hvernig verður hljóðbók til? „Lesturinn er tekinn upp á segulbandsspólu og fjölfaldað- ur á kassettur. Að því loknu höfum við þrjú eintök af hljóð- bókinni.“ Þrjú eintök, fullnægir það eftirspurninni? „Nei það er nú ekki svo, við greiðum ekki höfundarlaun en við höfum samið við rithöf- undasambandið um þessi þrjú eintök, einnig fáum við efni úr útvarpinu. En það er mjög slæmt að stofnun eins og þessi skuli ekki geta greitt höfunda- laun og laun til lesara.“ Steinunn Stefáns- dóttir mynda- bókahönnuður Ótrúlegt en satt, mynda- bók fyrir blinda Hvor bókin er læsilegri Hér sjáið þið litlu, bláu könnuna. Hún stendur uppi á hillu. Henni leiddist og langaði niður. Á labbi okkar um safnið sáum við myndabók fyrir blinda og trúi nú hver sem trúa vill. Steinunn Stefánsdóttir gerði bókina og hún fannst eftir stutta leit. „Jú, það er rétt, ég gerði myndabók ætlaða blindum börnum. Þetta er sagan um litlu bláu könnuna, sem mörg börn kannast við.“ Er þessi bók þín hönnun? „Nei, ekki algjörlega. Ég frétti af því að þetta hefði verið gert og mig langaði að prófa hvort ég gæti ekki gert þetta. Bókin er einföld í fram- leiðslu, ég klippi út mynd í sandpappír og lími hana á pappa með blindraletri, síðan bræði ég allt saman í plast.“ Þú notar sandpappír, er þá einungis hægt að gera myndir úr einum fleti? „Nei, nei. Það er hægt að nota misgrófan sandpappír til að ná mismunandi áferð. Auk þess get ég notað filt, snæri, garn og reyndar allt sem þolir hitann sem notaður er við fjölföldunina." Hvað er bókin gerð í stóru upplagi? „Börnin eru það fá að upp- lagið er ekki nema þrjár bækur. En þegar ég er búin með frumritið þá er nánast hægt að gera eins mörg eintök og hver vill, en einungis er hægt að þrykkja eina blaðsíðu í einu þannig að þetta er sein- legt.“ Vinnur þú eingöngu að gerð myndabóka fyrir blinda? „Nei, ekki er nú svo. Ég er starfsmaður námsbókadeildar þannig að námsbókagerðin sit- ur fyrir. Myndabókina vann ég í hjáverkum, en ég vona að þetta sé bara byrjunin."

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.