NT - 10.06.1984, Qupperneq 15
Sunnudagur 10. júní 1984 15
M Hér höfum við þrjá „hesta“. Þeir eru sá
góðkunni frétta- og sjónvarpsmaður, Páii
Magnússon, Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra og Matthías Johann-
essen, ritstjóri Morgunblaðsins. „Hestinn“í
fariþeirra biðjum við lesendurað finna. Það
ætti ekki að verða erfitt.
skiptamál og starf. En hvað
um það. Senn er hann tekinn
til við eitthvað nýtt af sama
kraftinum og áður, - og árang-
urinn verður ekki síðri! Hon-
um gengur vel í hvaða starfi
sem er, svo fremi að það
krefjist ekki einveru eða
mikillar og djúprar hugsunar.
Hann er opinn persónuleiki og
þarf á fólki að halda í kring um
sig sem dáir hann og hrósar
honum.
í samskiptum við andstæða
kynið er „hesturinn“ samt
máttvana. Hann leggur allt í
sölurnar fyrir ástina. Pegar
„hesturinn“ er ástfanginn, er
eins og ekkert annað skipti
máli í heiminum. Þetta er
ástæða þess hve oft hann verð-
ur að sætta sig við lítinn hlut í
lífinu þrátt fyrir allt. En ef
hann getur losað sig við þenn-
an veikleika og látið metnað-
inn hafa yfirhöndina mun hon-
um vel farnast.
„Hestinum" mun vegna vel
með „geitinni“ þar sem þau
eru bæði vel með á nótunum
mun þeim veitast létt að sneiða
hjá gildrunum í tilverunni.
Háðsglósur þær sem geitinni
er tamt að grípa til og öll
uppátæki hennar mun hrynja
sem fis af brynju „hestsins" og
hvorugt þeirra mun verða vart
við nokkra erfiðleika af þeim
sökum.
Aðrar orsakir ráða því að
„hesturinn" mun lifa í góðu
vinfengi við „tígurinn" og við
„hundinn.“ Þar sem báðir
þessara eiga nóg með að leysa
eigin sálfræðiflækjur munu
þeir ekki láta sér mjög bregða
við rómantískan óstöðugleika
„hestsins." Hann getur farið
sínu fram í næði án þeirra.
En undir engum kringum-
stæðum má „hesturinn“ ganga
í hjónaband með „rottu“. Sér-
staklega þó ef „hesturinn" er
fæddur undir hinu fágæta
teikni „eld-hestsins“. (Merkj-
unum er nefnilega skipt niður
eftir höfuðöflunum, eldi,
Ef „hesturinn“ er,
Stcingeit...
Abyrgðarfullur „hestur". Hann er nokk-
uð sérstakur þessi.
Vatnsberi...
Kappreiðahesturinn. Vonandi gleymir
hann ekki knapanum alveg.
Fiskur...
Þessi „hestur" leggur nú hugann í bleyti.
Þótt honum hugkvæmist margt á hann til
að láta nægja að hugsa um hvað hann
mundi'geta gert.
Hrútur...
Nóg „hestöfl" undir vélarhlífinni hér.
Ákafur, geðvondur, eldibrandur. Bara
að hann gæti haft eirð í sér til þess að
koma einhverri af hugdettum sínum í
framkvæmd!
Naut...
Kerru-„hestur". Sá sjálfselskuminnsti í
stóðinu. Kann að gefa eftir öðru hverju.
Tvíburi...
Hreinræktaður. Getur ekki staðið kyrr.
Klárar aldrei neitt sem, hann byrjar á.
Krabbi...
Tréhesturinn. Allt of tilfinninganæmur.
Snýst hvern hringinn eftir annan. Mun
aldrei lifa lífinu eins og hann hefði viljað.
Ljónið...
Hálfur hestur/hálfur maður. Ekkert er
honum ómögulegt. Hugsar aðeins urn
sjálfan sig.
Meyjan...
Dráttarhestur. Það gengur undan honum,
- en þó! Heldur er hann óraunsær. Hin
smámunalega hagsýni gæti orðið til
bjargar.
Vogin...
Sirkus-hesturinn. Hann dansar með
skrautbeisli og með fjaðrir á kollinum, -
en gerir þó aldrei annað en honum
sjálfum sýnist.
Sporðdreki...
Villihesturinn. Sá æðisgengnasti, - og
ástríðufyllsti.
Bogamaður...
Landbúnaðardýr. Seiglast áfram setta
stefnu,-en eftir korti eigin óstöðugleika.
vatni, jörð, málmi, tré o.s.frv.
en út í þá sálma höfum við ekki
farið hér). Öll tengsl milli „eld-
hestsins" og „rottu“ mundu
enda með eftirminnilegum
ósköpum.
Ganga mun á ýmsu í æfi
„hestsins“ á fyrsta og á öðru
skeiði æfi hans. Hann mun
ungur fara að heiman og því
munu fylgja margvísleg von-
brigði. Ekki munu ástamál
hans ganga árekstralaust. En
á þriðja æfiskeiðinu mun hann
njóta friðsældar.
Á sextíu ára fresti kemur
„eld-hesturinn“ fram á sjónar-
sviðið. Þannig var þetta sér-
stæða fyrirbæri í austrænu
spáfræðinni á ferðinni 1846,
1906, 1966 - og verður 1026.
Þessi ár eru slæm fyrir
„hestinn" sjálfan og þær fjöl-
skyldur þar sem „hestur“ er í
húsinu. Þá má vænta veikinda,
slysa og margskonar ands-
treymis.
Þeir menn og þær konur sem
fædd eru undir merki „eld-
hestsins" hafa sömu einkenni
og hver annar vanalegur
„hestur“, en þau munu öll
verða mjög ýkt. „Eld-hestur-
inn“ mun vera enn duglegri,
enn kænni,enn sjálfstæðari og
enn hæfileikaríkari en hinir -
og enn sjálfselskari. Vegna
ofsafengis eðlis hans mun hann
reiðubúinn að yfirstíga öll
mörk þegar að ástamálum
kemur.
Stundum er sagt að „eld-
hesturinn" geti haft góð áhrif
innan fjölskyldu sinnar, en út-
breiddari er sú trú að hann
verði sínu eigin æskuheimili til
jafn lítilla happa og því heimili
sem hann sjálfur kann að búa
sér.
Það sem víst er mun það að
„eld-hesturinn“ mun eiga sér
feril sem verður margbreyti-
legri, sérstæðari og áhugaverð-
ari en gerist hjá vanalegum
hestum. Hann mun að öllum
líkindum verða frægur, - eða
að minnsta kosti alræmdur.
DAVID BROWN
Eigendur
Nú þegar höfum við yfirtekið
varahlutalager og þjónustu á
þeim David Brown dráttarvél-
um, sem til eru í landinu.
[5J23 Dráttarvélar
Þær eru komnar
Þeir sem hafa unnið með C5EH gröfum
þekkja gæðin- og þeir sem eiga
eða hafa átt DAVID BROWN
dráttarvél hitta hér gamlan kunningjá.
Eftirtaldar stærðir eru boðnar:
1194 - 49 hestöfl
1294 - 62 hestöfl
1394-77 hestöfl
1494 - 85 hestöfl
KH3
imz
izm
Kynnið ykkur verð og greiðslukjör
ÞÉR TEKST ÞAÐ MEÐ [ÍIÍJ
□ £7
0 0
o
Járnhálsi 2
110 Reykjavík
Sími 83266.
1594 - 97 hestöfl
Allar þessar vélar er hægt að fá með framdrifi.
Dæmi um verð:
62 ha. án framdrifs kr. 371.000.-
77 ha. með framdrifi kr. 460.000.-
Vélarnar koma allar með besta útbúnaði. Hús og
aðstaða stjórnanda er frábær.