NT


NT - 10.06.1984, Síða 17

NT - 10.06.1984, Síða 17
Sunnudaaur 10. júní 1984 17 (th ]áström Heaglund skrítið.“ Það var Hegglund sem sagði þetta. Eiturlyf? „Það er alit of mikið af kókaini í Svíþjóð. Það er líka allt of mikið af heróíni. En svo er iíka heilsubylgja í menn Svíþjóð, stunda áróður gegn reykingum, menn eru hreinir, kristnir, svo að við reynum að vera eins vondir og slæmir strák- ar og við getum. Við reynum að setja svolítið It'f og liti inn í líf fólks. Fólkið sem stjórnar landinu reynir að gera hlutina gráa og leiðin- lega, en fólkið sjálft, almenn- ingur er ekki þannig. Fólk er líka orðið hundleitt á stjórn- málum, það hefur nákvæm- Sv/'þjóð sefur ■ Hljómsveitin Imperiet er ein þeirra hljómsveita sem spilaði í Norrokkinu í Laug- ardalshöll um síðustu helgi. Norrænar hljómsveitir hafa ekki spilað hér á landi síðan norska hljómsveitin The Cut kom hingað árið 1981, svo að það hlýtur að teljast tölu- verður viðburður að fá fjórar i einu. Þess vegna var ákveðið að fá viðtai við élna þelrra, og Imperiet varð fyrir valinu, ekki af neinni sér- stakri ástæðu, kannski af því að þeir eru sænskir, og Svíþjóð er ju fjölmennast Norðurlandanna. Imperiet bjó meðan á dvöl- inni hér stóð á hóteli við Skiphoit sem ég vissi ekki að væri til, Hótel Staður. Þar hittum við þá daginn eftir hljómleikána. Fyrst hittum við Pár Hegglund hljóm- borðsleikara hljómsveitar- innar, sem var eins rólyndur þarna eins og hann hafði verið brjálaður á sviði kvöld- ið áður. Er nokkuð var á við- talið iiðið bættist Táström söngvari og gítarleikari við. Ég byrjaði á því að spyrja Hegglund hvernig honum hefði líkað að spila kvöldið áður. „Það er mjög gaman að vera í Reykjavík,“ sagði hann diplómatiskur „en það var mjög sérstakt að spila í Höllinni. Það var undarlegt skulum við segja að spiia t þessu sándi. Þetta er reynd- ar alitaf vandamálið þegar við höfum ekki okkar eigin græjur til að spila í gegnum. Eg vona að þetta fari betur í kvöld þegar við spilum í Bro- adway. Við förum á föstu- dagsmorgun." Imperiet var stofnuð upp úr Ebba Grön, frægustu ný- bylgjuhljómsveit Svia var það ekki? „Það eru tveir okkar úr Ebbu Grön, trommuleikar- inn og söngvarinn. Einn enn kom úr Ebba Grön en hann er hættur. Bassaleikarinn er úr hljómsveit sem kallast Madhouse, en ég var saxa- fónleikari með ýmsum grúppum, t.d. Reperbahn, sem spiiaði nútímatónlist.“ Eruð þið bornir saman við Ebba Grön, eruð þið arftakar hennar? „Við höfum reynt að Se9laþeir Pár Hegglund og Tá- ström úr Imperiet í viðtali við ■ Út er komin ný hljómplata sem ber nafnið Firring. Hún hefur að geyma sjö sjálfstæð verk sem eru afrakstur tilrauna með hljóð, hljómfall og útsetningar fyrir hljóðritun, eða svo segir í fréttatiikynningu sem barst með plötunni inn á NT. Og síðan segir: Hér er um að ræðá tónlistarlegar þreifingar sem þóttu þess virði að út yrðu gefnar á hljómplötu í von um að fleiri tækifæri bjóðist til frekari tilrauna og þróunar á þessu sviði. Aðstandendur viija láta hlustendum sínum eftir að skynja og skilgreina innihald plötunnar þar sem ekki er um hefðbundna tónlistarstefnu að ræða. Aðstandendur eru: Jón Þorl., Kristrún Sæva.Tryggvi Herberts og Björg Ólafs. Upptökur fóru fram i Mjöt h/f. Útgefandi er Firring en dreifingu annast Grammið. kynna þetta sem nýja hljóm- sveit. Fólk hefur spurt mikið um þetta atriði, en við viljum sýna að þetta sé ný hljóm- sveit, og nú hefur fólki loks skilist að þetta er allt önnur hljómsveit. Þetta er önnur tegund af tónlist.“ Um þetta leyti bættist Tás- tröm söngvari og gítarleikari við. Ég spurði hvort einhver tónlistarbyltíng hefði orðið í Sviþjóð eins og hér. „Það voru fleiri sænskar hljómsveitir fyrir fimm árum. Allt þjóðfélagið var þá öðru- vísi. Þetta kemur í bylgjum. Það var mikið að gerast þá, ekki aðeins í tónlist reyndar fremur á öðrum sviðum en í tónlist. En núna er þetta eins og „The Big Sleep“ (svefn- inn mikli). Eigið þið fylgi á öðrum Norðurlöndum en Sviþjóð? „Við vorum í Finnlandí í eina viku og spiluðum. Nei, við eigum mest fylgi í Sviþjóð. Við syngjum jú á sænsku.“ Er einhver sameiginlegur norrænn tónlistarmarkað- ur? „Það er aðallega hvert land útaf fyrir sig. Flestir Svíar hlusta aldrei á norskar hljómsveítir og öfugt. Þó er það til að sænskar hljóm- sveitir verði vinsælar í Nor- egi og Finnlandi, ef þær spila mikið þar.“ Hve vinsælir eruð þið í Svíþjóð? „Við fáum nóg að gera, nóg að spila. En ef plötusal- an er borin saman þá eru margar hljómsveitír stærri en við. Það eru þó ekki rokkhljómsveitir, það eru fáar aðrar raunverulegar ' rokkhljómsveitir þarna. Það er töluvert um kópíeríngar- bönd sem syngja á ensku. Neðanjarðartónlistin er í lægð núna, það var töluvert um neðanjarðarbönd fyrir nokkrum árum. Það helsta sem hægt er að tala um núna er hljómsveitir sem stæla Johnny Thunders. Hann er mjög vinsæll í Sviþjóð, hefur oft komið og spilað þar.“ Þið semjið róttæka texta? „Já, auðvitað. Ég held að ég geti ekki útskýrt þá. Þetta er okkur bara eðlilegt. Við erum róttækir.“ Var öflug pönkhreyfing i Svíþjóð? „Já, hún var það, en ekki núna. Hún var róttæk að því leyti að fólk gerði það sem því fannst. Það voru anark- ískir undirtónar í henni. Það er erfitt að segja af hverju hún fjaraði út, kannski af þvi að það voru engin mörk, ekkert málgagn. Þetta var mjög sjálfsprottið“. Heldurðu að betri skipu- lagning hefði haldið hreyf- ingunni betur við? „Nei, ég held ekki að eigi að skipuleggja hlutina of mikið. Ég held að aðrar ástæður séu fyrir því að þetta dó út.“ „Mér finnst svolítið skrítið að labba hér um Reykjavík, það er eins og að labba hvar sem er, unga fólkið er klætt í nýjustu tisku frá London og New York, og fjöllin í baksýn. Þetta er alveg eins í Svíþjóð, en þetta er samt lega ekkí neitt alit á stjóm- málamönnum,“ Hvað tekur svo við hjá hljómsveitinni? Táström svarar: „Ég fer í fangelsi í ágúst fyrir að neita aðgegna herskyldu. Þangað til ætlum við að spila um alla Svíþjóð, í félagsheimilum sem kratarnir byggðu á fjórðaáratugnum. Fólk kem- ur þangað og er fullt og stónd. Síðan verð ég í fang- elsi í fjóra mánuði.“ Það er eins gott að maður er ekki Svíi, hugsaði ég um leið og við kvöddum hljóm- sveitina og þökkuðum fyrir viðtalið. Fjórir mánuðir í fangelsi fyrir að neita að gegna herþjónustu! Úháöi winsa&ídstiistinn ■ Enn er allt óbreytt á toppnum, og veðrið hefur enn batnað síðan síðast. Tvær nýjar plötur eru á LP-listan- um plöturnar með Cure og King Crimson, reyndar hefur sú síðarnefnda gist listann áður. En a 12 tommu listanum eru fjórar nýjar plötur, með Linton Kwesi, New Order, Siouxsie & The Banshees og The Cry. Þar eru yfirleitt örari breytingar en á LP-listanum. Og þá höfum við það. LP-listinn 1. (1) Rás 5-20 2. (2) The Boys From Chicago . Þorlákur Kristinsson 3. (-) The Top The Cure 4. (4) Legend 5. (7) Out Of Step 6. (3) The Pros & Cons Of Hitchhiking ... Roger Waters 7. (5) Power, Corruption & Lies New Order 8. (9) Blackbreakers Ýmsir 9. (6) The Smiths 10. (-) Three Of A Perfect Pair KingCrimson 45 snún. listinn 1 (1) Thieves Like Us 2. (2) No Sell Out 3. (6) Chasing For Ttíe Breeze 4. (-) Di Eagle Am’Di Bear Linton Kwesi Johnson 5. (4) Welcome To Rock Imperial Bros 6. (7) Divine Sounds Dollar Bill 7. (3) All Naafiysh 8. (-) Confusion New Order 9. (-) Dazzle Siouxsie & The Banshees 10. (-) Before Tne Boat Goes Down The Cry

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.