NT - 18.07.1984, Page 2

NT - 18.07.1984, Page 2
 Miðvikudagur 18. júlí 1984 Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu | ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Arnarfell: Copenhagen .... 20/7 Dock............. 23-25/7 Dísarfell: Goole .............. 23/7 Rotterdam...... 24/7 Antwerpen .......... 25/7 Hamburg........ 27/7 Reykjavík...... 31/7- 1/8 Goole ............... 6/8 Hamburg........ 8/8 Rotterdam...... 9/8 Antwerpen .......... 10/8 Helgafell: Coastal Ports ... 23/7 Ivigtut ........... 27-29/7 Cophenhagen ... 7-9/8 Hvassafell: Stettin..... 20/7 Helsinki. 23-24/7 Leningrad........ 25-26/7 Reykjavík....... 1 -3/8 Coastal Ports ... 6-10/8 Jökulfell: Costal Ports Cloucester . Halifax.... Mælifell: Copenhagen Skaftafell: Gloucester .. Reykjavík ... Coastal Ports 20/7 3-4/8 5/8 25-27/7 21-23/7 30/7 31/7-8/8 Jan: Svendborg ........... 19/7 Áarhus .............. 20/7 Reykjavík...... 24-25/7 Larvík............... 30/7 Gothenburg..... 31/7 Copenhagen .... 1/8 Svendborg ............ 2/8 Áarhus ............... 3/8 Reykjavik...... 6-7/8 U SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 BORNIN Bornin eiga auövitaö aö vera i belt- um eöa barnabílstólum i aftursæt- inu og barnaöryggislæsingar á huröum. ^É|JMFERÐAR Sandur í dollurnar: „Klárum um versl- unarmannahelgina" - segir Ágúst Guðmundsson leikstjóri ■ „Við lukum við útiatriðin fyrir austan þann 15. júlí og eigum eftir inni og útiatriði í Reykjavík og nágrenni. við miðum að því að klára um verslunarmannahelgina.“ Þetta sagði Ágúst Guð- mundsson kvikmyndaleikstjóri, þegar NT leitaði frétta af gangi mála við tökur myndarinnar Sands, sem hafa farið fram við Kirkjubæjarklaustur. Ágúst og félagar hófust handa þann 19. júní og linntu ekki látunum fyrr en síðastliðinn sunnudag, tóku sér aðeins tvo frídaga á þessum tæpa mánuði. „Þetta gekk ágætlega og allar áætlanir stóðust," sagði Agúst, en bætti því þó við, að ekki hefði það nú verið alveg áfalla- laust. Veðrið setti sitt strik í reikninginn einum tvisvar sinnum. Atirði, sem byrjað var að mynda kvöld nokkurt í rign- ingu, þurfti að endurtaka alveg og kvikmyndun flugeldasýning- ar tókst í fimmtu tilraun. Aðalhlutverkin í Sandi eru leikin af Pálma Gestssyni, Eddu Björgvinsdóttur og Arnari Jóns- syni. Kvikmyndatökumaður er Sigurður Sverrir Pálsson. Frum- sýning verður á 2. í jólum. Framfærsluvísitalan: Hækkar um 0.9% ■ Framfærsluvísitalan hækk- aði um tæplega einn af hundr- aði, 0,93%, í síðasta mánuði, samkvæmt útreikningum kaup- lagsnefndar. Um þriðjungur- inn, 0,3%, af hækkuninni stafar af verðhækkunum á kjötvörum og annar þriðjungur af verð- hækkunum á annarri matvöru; nýjum fiski, sælgæti, öli og gosdrykkjum. Nokkrar vöru- tegundir lækkuðu í verði, en ýmsir aðrir liðir vísitölugrunns- ins hækkuðu. Vísitalan sem sett var á 100 í febrúarbyrjun s.l. - fyrir 5 mánuðum - hefur nú hækkað í 106,82 stig. Undirskriftirnar með ákveðnum greini ■ Pessu stelum við úr ís- lendingi á Akureyri. í stuttri forsíðufrétt er Jón Arnþórs- son inntur eftir hvernig gangi með undirskriftalistana. „Pað vilja allir taka á með okkur í þessu máli. Pað hefur verið settur mikill kraftur í þetta. Nú er verið að ganga í hverfi. Jón sagði að fljótlega yrði sleginn botninn í þetta. Hann hvatti alla, sem áhuga hefðu á að skrifa nöfn sín á lista hið bráðasta." Dropa- teljari þykist þess reyndar næsta viss að umrædd undir- skriftasöfnun fari fram á Ak- ureyri, að minnsta kosti fremur en í Reykjavík, það hefði þá verið tekið fram. En undir hvað menn eru að skrifa er lesandi íslendings jafnnær, - sjálfsagt er það leyndarmál. Pað að Jón hvetji menn til þess að skrifa nöfn sín á lista hið bráðasta svo fremi þeir hafi á því áhuga gefur raunar vísbendingu um að mark- miðið sé það eitt að menn hripi nafn sitt. Bara á ein- hvern lista, einhversstaðar. Þúsund kall fyrir hvert ár ■ Sú var tíðin að þegar fólk eltist. og starfsafköst minnk- uðu, þá lækkaði kaupið að sama skapi, og þeir yngri höfðu það yfirleitt betra. Það er liðin tíð á síðustu tímum, eftir að verðbótavísitala á laun var bönnuð með lögum. En íslendingar geta ekki verið án einhverrar mæli- stiku. Dropar heyrðu nýver- ið að sú þumalputtaregla gilti hjá Hagvangi þegar ráðið væri í stöður, aðeinn þúsund kall fengist í mánaðarlaun fyrir hvert ár sem væntan- legur starfsmaður hefði lifað. Þannig fá tvítug ungmenni 20 þús. kr. í laun, en þrítugt fólk 30 þús. kr. o.s.frv. Sjálf- sagt ntá vænta þess að þetta launakerfi veki mikla at- hygli, bæði hérlendis og er- lendis, ekki síst fyrir þær sakir að það þykir vera til þess fallið að launþegar segi rétt til aldurs síns, a.m.k. skrökva þeir ekki niðilr á við. Svartamarkaður með humarinn ■ Áhugi íslendinga á hum- ar til neyslu fer vaxandi, ekki síst nú síðustu vikurnar eftir að farið var að selja hann á svörtum markaði á niður- settu verði. Er það nú orðið á færi jafnvel láglaunamanna að neyta þessarar úrvals- fæðu. Eins og kunnugt er gildir ákveðinn kvóti við humar- veiðar, en nú heyra Dropar að sá humar, sem er á svörtum markaði, sé tekinn utan kvóta, og komi því ekki til með að skerða kvótann á neinn hátt, hvernig svo sem farið er að því að lauma humrinum framhjá. ■ Sand-arar að vinnu austur við Kirkjubæjar- klaustur um helgina. Inni í jeppanum er aðalleikarinn Pálmi Gestsson. Ágúst Guðmundsson leikstjóri hallar sér fram á vélarhlíf- ina. NT-mynd:Hörður Davíðsson. Skattskráin: Lögð fram þann 25. ■ Þá fer að styttast í „glaðninginn" því skattskráin fyrir árið í ár verður væntanlega lögð fram yfir allt land- ið þann 25. júlf. Að sögn Ævars ísberg, vararíkisskattstjóra, er gagnavinnslu nú að mestu lokið og verða skattstjórum í hverju umdæmi sendar skrárn- ar nú á næstu dögum. Einstaklingar og fyrir- tæki munu svo væntan- lega fá álagningaseðla sína f póstinum upp úr næstu helgi. Skrárnar munu samkvæmt venju liggja frammi í tvær vik- ur og geta þegnar lands- ins þá skoðað skatta meðbræðra sinna. Lax kominn í öll Svínadalsvötnin ■ Eyrarvatn, Þórisstaða- vatn og Geitabergsvatn voru opnuð 1. júní og hefur veiðin hingað til verið ágæt. Lax er kominn í öll vötnin og fyrir nokkru veiddist einn í Geita- bergsvatni, sem er frekar óvenjulegt því yfirleitt veið- ist ekki lax þar fyrr en í ágúst, en Geitabergsvatn er fremst vatnanna. Aðallaxveiðin er í Eyrar- vatni og þar hefur fengist talsvert. Falleg á rennur á milli vatnanna þriggja og oft hefur verið ágætis laxveiði í henni. Þó hefur ekki fengist lax í henni ennþá í sumar því að laxinn virðist ekkert stoppa í henni heldur ganga beinustu leið í vötnin. Silungsveiði hefur verið mjög góð í vötnunum. Til dæmis fóru tveir strákar um helgina í Geitabergsvatn og höfðu fjörutíu sæmilega sil- unga upp úr krafsinu. Veiðileyfi eru seld á Fer- stiklu og í Glæsibæ og eru einhver leyfi laus. Mikið af laxi I Meðalfellsvatni Meðalfellsvatn í Kjós hef- ur verið opið frá 1. apríl og mun veiðitíminn standa til 20. september. Veiðin hefur verið mjög góð í vatninu undanfarið og eru þegar komnir einir 40 laxar á land og óhemja af silungi. Einn skrapp til dæmis í vatnið um daginn og fékk 60 silunga á nokkrum tímum. Hann hafði farið tvisvar áður og fengið 40 silunga í hvort skipti. Laxinn tekur aðallega maðk og spón en silungurinn vill hins vegar flugu frekar en maðkinn og spóninn. Nýlega var settur laxatelj- ari við útfall Bugðu og voru í gær morgun komnir einir 50 laxar í gegn, þar af gengu 17 þá um morguninn. Teljarinn segir hins vegar ekki alla söguna því að hann var settur upp nokkru eftir að lax fór að ganga í vatnið. Laxarnir í kistunni eru állir merktir með bláu merki og eru þeir sem fá merkta laxa í vatninu beðnir að láta vita um þá annaðhvort hjá Veiði- Umsjón: Skafti Jónsson málastofnun eða á Meðal- felli. Stærsti laxinn sem fengist hefur í vatninu var 12 pund. Laxinn sem er að ganga um þessar mundir er smár. Sil- ungurinn í vatninu er aftur á móti nokkuð vænn, mun vænni en í fyrra. Það þakka menn flugunni, sem mikið hefur verið af við Meðalfells- vatn í sumar. Veiðileyfin eru seld á Meðalfelli og kostar hálfur dagur 210 krónur. Nóg af silungi á vatnasævði Lísu Vatnasvæði Lísu var opn- að 1. júlí en áður en svæðið var formlegá opnað hafði fengist lax, sem er mjög óvenjulegt svo snemma sumars. Veiðin það sem af er hefur verið dágóð og hafa menn fengið tvo og upp í fimm fiska á dag. Nákvæmar veiðitölur eru enn ekki fyrir- liggjandi. Gífurleg silungsveiði er á svæðinu. Til dæmis fékk einn veiðimaður 20 gullfalléga sjóbirtinga á fimmtudaginn var. Sjóbleikja er í torfum um allt svæðið. „Hún tekur svo grimmt að það liggur við að hún sé til vandræða. Spurn- ingin er bara hvað þú endist til að landa henni. Hún tekur í hverju kasti,“ sagði viðmæl- andi Veiðihornsins, sem var við veiðar á vatnasvæði Lísu ekki alls fyrir löngu. Veitt er á níu stangir á vatnasvæðinu og eru veiði- leyfi enn laus um mánaða- mótin júlí/ágúst og kosta þau þúsund krónur. Góð tjald- stæði eru á svæðinu og einnig er hægt að gista í félags- heimilinu. Rúmlega 300 laxar veidd- ust á svæðinu í fyrrasumar.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.