NT - 18.07.1984, Blaðsíða 4

NT - 18.07.1984, Blaðsíða 4
Kvótinn búinn: Beiti lagt - 10sagtupp Frá Svanfríði Waage fréttaritara NT í Norðfirði: ■ Nótaskipið Beitir í Nes- kaupstað hefur nú klárað bol- fiskKvótann sinn og því verið lagt fram að loðnuvertíð. Par með er öllum undirmönnum, 10 tals- ins sagt upp störfum. Er ekki hægt að segja annað en að þetta sé mjög bagalegt fyrir mann- skapinn í ekki stærra plássi þar sem þeim er ekki útveguð önnur vinna af fyrirtækinu. Jafngildir þetta því að um að bil 500 manns misstu vinnuna í Reykja- vík. Beitir sem er um 730 tonn er eitt fullkomnasta fiskiskip á landinu og hafa veiðar á honum gengið mjög vel. Beitir er í raun gamall síðutogari og hét upp- haflega Þormóður goði, síðan Óli Öskar og þá var honum breytt í nótaskip. síðan kemur hann til Neskaupstaðar vorið 1981 og var þá breytt í skut- togara, þó þannig að líka var hægt að nota hann sem nóta- skip. Fyrst var hann notaður á veiðar fyrir saltfiskverkun og gafst það ágætlega. Nú hefur hann verið á togveiðum og loðnuvertíð síðastliðinn vctur og hefur veitt þolanlega vel. Hann fékk mjög lítinn þorsk- veiðikvóta þar sem hann er nótaskip og er meirihluti kvót- ans loðnukvóti. Birtingur sem í raun kemur inn í staðinn fvrir Beiti hefur verið í vélarskiptum á Akranesi síðan einhverntíma í mars, apríl á þessu ári og á eftir um 1600, tonn af sínum kvóta. Ekki er búist við að neinir af skipverjum Beitis fái skipsrúm á Birtingi en áhöfnin af honum hefur verið við ýmis konar vinnu undanfar- ið. A Norðfirði eru gerðir út þrír togarar og þrjú nótaskip sem að undanskildu einu nótaskipinu eru öll í eigu síldarvinnslunnar. Síðan eru nokkrir smábátar og trillur sem aðallega eru gerð út á sumrin. Skyrið í Borgarnesi er framleitt með gamla laginu ■ í Mjólkursamlagi K.B. í Borgarnesi eru menn ekkert á því að henda öllum gömlum og góðum aðferðum fyrir róða þótt aðrar tæknilegri séu upp fundnar. Þetta á m.a. við skyrgerðina. í Borgarnesi er skyr ennþá hkypt og pokasíað á gamla mátann. Heilbrigðiseftirlitið lagði raunar fyrir nokkrum árum blátt bann við því að skyrið yrði áfram selt í lausri vigt, þ.e. vigtað og pakkað í smjörpappír upp úr plastkeröldum í búðunum, svo Borgnesingar pakka því nú sjálfir í litla plastpoka. Ur þessu gamla góða skyri kemur einnig eina mysan sem hægt er að nota til að sýra slátur og annan súrmat. Mjólkursamlag K.B. er nú að láta hanna nýjar og fallegri eins lítra umbúðir, með upplýsingum um næringarefnainnihald, utan um mysuna sem þeir setja á markað, í stað hinna gömlu litlausu sem hún hefur verið seld í til þessa. Þar mun m.a. koma fram að mysa er hin mesta hollustufæða. NT-mynd Heiður. Fréttablað í Borgarnesi Frá fréttaritara NT í Borgarncsi ■ í Borgarnesi er nú hafin útgáfa fréttablaðs er nefnist Borgarblaðið. Útgefendur eru: Ástþór Ragnarsson sálfræð- ingur og Sigurjón Gunnarsson fulltrúi. Að því er fram kemur í blaðinu stefna þeir að því að blaðið komi út hálfsmánaðar- lega „og að þannig verði tryggt að fréttir verði aldrei of gamlar þegar þær líta dagsins ljós,“ eins og þar segir. í leiðara blaðsins segir að stefnt sé að því að Borgarblaðið verði óháð öllum flokkum og fiokksbrotum. í því verði fjallað um málefni byggðarlagsins og öllum sem áhuga hafa gefinn kostur á að koma skoðunum sínum á framfæri. Borgnesingar fagna útgáfu þessa blaðs pg óska því langra lífdaga. Hestaþing á Murneyrum ■ Hestaþing Sleipnis og Smára verður haldið á Murneyrum, dag- ana 21. og 22. júlí n.k. og hefst kl. 10.00. Keppt verður í A og B fiokki gæðinga og sömuleiðis verður keppt í unglingaflokkum, 13-15 ára og 12 ára og yngri. Keppt verður í 150 og 200 m. skeiði, einnig fer fram keppni í 250 m., 350 og 800 m. stökki. ■ Einkar vel fór á með þeim Elíasi bónda á Sveinservi ou Birni bónda í Hattardal. sem báðir starfa sem byssumenn á haustin í sláturhúsunum á Þingeyri og ísafirði. í eyranu hefur Elías álmerki sömu tegundar og hann merkir kindurnar sínar með. Emma á Felli og Jóhannes í Skáleyjum líða hér um í Ijúfum valsi. NT-myndir Finnbogi. Hitamálin riðuveikin og Reykhólaféð Frá fréttaritara NT á Þingeyri ■ Riðumálin og málefni til- raunastöðvarinnar á Reykhól- um bar hæst í umræðunni á aðalfundi Búnaðarsambands Vestfjarða sem haldinn var á Núpi nýlega, enda alvörumál þegar skera þarf niður í heilum sveitum. Þar voru mættir full- trúar frá flestum búnaðarfé- lögum á svæðinu auk stjórnar og gesta. Þegar alvörumálin höfðu ver- ið rædd snéru menn sér að gamanmálunum og efndu til kvöldvöku þar sem saman kom fólk af öllu sambandssvæðinu og skemmti sér hið besta. Guðmundur Ingi, skáld á Kirkju- bóli og Elías bóndi á Sveins- eyri fluttu þar frumort ljóð, Björgvin Þórðarson söng ein- söng og karlakór Þingeyrar tók lagið. Kristján bóndi á Brekku stjórnaði fjörinu og fjöldasöng og einnig söng kvennakór konu hans, fjögurra dætra og dóttur- dóttur. Jóhannes á Brekku kitl- aði hláturtaugar gesta með röddum og látbragði pólitíkusa og annarra frægðarmanna þjóð- arinnar.Að lokum var svo stig- inn dans fram eftir nóttu. Brunabótafélag íslands: Opnar í Hveragerði ■ Um helgina opnaði Bruna- Sambands sunnlenskra sveitar- bótafélag íslands nýja umboðs- félaga, kvenfélagsforystunni og skrifstofu í Hveragerði í eigin fleirum. Umboðsskrifstofan húsnæði að Reykjamörk 1. Var verður opin frá kl. 16 til 18 alla opnunin við hátíðlega athöfn virka daga nema miðvikudaga þar sem boðið var helstu framá- og síminn 415^, mönnum sveitarfélagsins og • ■ Kvennfélag Kirkjubæjarhrepps bauð eldri íbúum hreppsins í skemmtiferð um síðustu helgi, m.a. í Byggðarsafnið í Skógum þar sem hópurinn naut höfðinglegrar móttöku Þórðar 1 ómassonar satnvarðar. Þessi mynd er tekin fyrir utan gamla sýslumannshúsið frá Holti á Síðu, sem hefur verið endurreist á Byggðarsafninu í Skógum. NT-mynd Hörður Davíðsson.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.