NT - 18.07.1984, Page 6

NT - 18.07.1984, Page 6
Miðvikudagur 18. júlí 1984 6 ■ Japanskt „sjálfsvarnarlið“ á hersýningu. 20000 ára gömlum hugsunarhætti stríðsmannanna verður ekki brevtt á 40 árum Japanski herinn eflist ár frá ári I hjarta sínu eru þeir allir ósviknir samuraiar ■ 30 ár eru síðan fyrsti vísir að japönskum her var stofnað- ur eftir heimsstyrjöldina síð- ari. Frá 1954 helur herinn eflst mjög, þótt ekki hafi borið mikiö á því, og er nú best búinn vopnum og tækjum allra herja í Asíu. Herinn er að vísu ekki kallaður annað en varnar- lið, en hann er svo sterkur að ásamt bandaríska herliðinu í Austur-Asíu er varnar - og árásarmátturinn svo mikill að hugsanlegir óvinir hljóta og hugsa sig um tvisvar áður en þeir leggja í að etja kappi við þann styrkleika allan. í mörg ár var ekki viður- kennt af opinberum aðilum að yfirleitt væri um neinn herstyrk að ræða þótt allir vissu um japönsku varnarsveitirnar. Eftir hinn niðurlægjandi ósigur í Kyrrahafsstyrjöldinni var herveldið Japan umskapað sem friðsamt lýðræðisríki og í stjórnarskránni er það nefnt friðarríki. Douglas MacArthur hers- höfðingi, sem í raun stjórnaði Japan fyrstu árin eftir hernám- ið, var fyrstur til að brjóta samkomulagið um að Japan skyldi ekki hervæðast á ný, en hann fyrirskipaði að koma skyldi á fót „varnarsveitum þjóðarlögreglu“. Það varð síð- an að „sjálfsvarnarliði" og upphafið að mótstöðu gegn endurvígbúnaði Japana. Japanska hernum óx smátt og smátt fiskur um hrygg, en ávallt hafa verið uppi mótmæli gegn endurvígbúnaði í land- inu. Fullkomin hergögn Árið 1973 tókst stjórnar- andstöðunni að fá sett bann við því að herflugvélar af gerð- inni F-4, sem flugherinn notaði þá, væru með útbúnað til að taka við eldsneyti á flugi. Bannið var byggt á því að flugvélarnar væru eingöngu til varnar. og þyrftu því ekki að vera langfleygar. F-l5 orustu- þoturnar sem japanski flugher- inn ræður nú yfir er búinn áfyllingartækjum til að taka eldsneyti á flugi. Tegundin sú er ein hin alfullkomnasta sem nú er í notkun og fá ekki aðrir að kaupa slík tæki en góðir vinir og bandamenn Banda- ríkjanna. Það ber aldrei mikið á því þegar japanski herinn tekur ný vopn í notkun en það skeður jafnt og þétt. Auk F-15 orustuþota hefur herinn yfir að ráða P-3C flugvélum sem sérstaklega eru útbúnar til að granda kafbátum og flotinn á fullkomna tundurspilla, sem engum manni í Japan dettur í hug að kalla annað en „leið- söguskip“. Japanir stefna að því að vera sjálfum sér nógir um varnir á sjó, en Banda- ríkjamenn hafa lagt að þeim að leggja meira af mörkum í því skyni. Árlegt framlag Japana til varnarmála, er nú hið sjötta mesta í veröldinni og er herafl- inn á stærð við hinn breska. Ef borið er saman við hin 15 ríki Atlantshafsbandalagsins, rnundi Japan verða þar hið fjórða í röðinni hvað varðar flota herskipa, hið fimmta hvað varðar kafbátaeign, átt- unda hvað varðar herflugvélar og fimmta í röðinni hvað varð- ar stórskotatæki og brynvarin vopn. Japanir eiga þó engin kjarnorkuvopn og harðneita að þeir hyggist koma þeim upp í sínum vopnabúrum. Hins vegar leggja þeir mikla áherslu á fullkomin, hefðbundin vopn og leggja þar meira upp úr gæðum en magni. Tækniþróun japanskra vopna er mjög ör og eru vopna- búr þeirra í sífelldri endurnýj- un. Eru útgjöldin til varnar- mála látin ganga fyrir félags- legum útgjöldum. Fljótir að vígbúast Bandaríkjamenn hafa löngum kvartað yfir því að Japanir hafi Iagt of lítið til varnarmála, en þeir sjálfir orð- ið að bera hita og þunga af vörnum Japans. Þessar raddir eru nú þagnaðar. Nakasone forsætisráðherra hefur auð- sjáanlega áhuga á að meira tillit, verði tekið til Japans sem herveldis en gert hefur verið undangengna áratugi. Bandarískir hernaðarsér- fræðingar telja að ekki sé vert að þröngva Japönum um of til að leggja meira af mörkum til landvarna. Hern- aðarmáttur þeirra sé mátulega styrkur eins og er. Ef öryggi Japans yrði ógnað, til dæmis með því að stöðva olíuflutninga til landsins, eða að Kóreuskagi kæmist allur undir stjórn kommúnista, væru Japanir mjög fljótir að vígbú- ast og færir. um að bíta rösk- lega frá sér. Þeir ráða yfir mikilli tækni og fullkomnum iðnaði .; og fleiri liðsforingjar og yfirmenn, miðað við óbreytta, er í her þeirra en nokkrum her öðrum. Yrði því mjög fljótlega að fjölga mönnum undir vopnum og stórauka vopnaframleiðslu ef með þyrfti. Það sem einkum háir hern- um er skortur á samvinnu milli einstakra deild hans og styrkr' stjórn alls heraflans. Einnig er skortur á herflutningatækjum ef flytja þarf mikinn herafla og búnað um langan.veg. Herbúnaður er að lang- mestu leyti framleiddur í Japan. Jafnvel herflugvélar og önnur stórvirk hernaðartæki eru framleidd þar eftir banda- rískum leyfum. Tækniþekking Japana gerir það að verkum og öll vopn og önnur tól til stríðs- reksturs eru tæknilega full- komin og vel virk. Hernaðarbandalag? Endurvígbúnaður Japana hefur farið svo hljótt að al- menningur þar í landi hefur vart tekið eftir honum. Stjórn- arandstaðan minnir oft á að sam- kvæmt herverndarsamningum við Bandaríkin er aðeins kveð- ið á um að Pentagon hafi leyfi til að liafa herlið á tilteknum herstöðvum, og að Japanir komi ekki upp eigin her, hvorki á landi, í lofti eða á legi. Samkvæmt stjórnarskránni er lagt blátt bann við að Japanir stofni til hernaðarbandalags með annarri þjóð eða þjóðum. Nakasone forsætisráðherra lætur mótmæli stjórnarand- stöðunnar sem vind um eyru þjóta og gengið er út frá því sem vísu að japanski herinn komi Bandaríkjamönnum til aðstoðar í „neyðartilfellum" en þau eru vægast sagt illa skilgreind. Forsætisráðherr- ann hefur til dæmis heitið því að japanski herinn sé reiðubú- inn til að loka nokkrum mikil- vægum sundum á alþjóða sigl- ingaleiðum til að stöðva sigl- ingar sovéskra herskipa og kaf- báta „í neyðartilfelli.“ Það varð mikill gusugangur vegna þessarar yfirlýsingar hans fyrir nokkrum árum. Þetta er álitið miklu öflugri stuðningur við varnarstefnu Bandaríkjanna en það hlut- verk japanska flotans og flug- hersins að halda siglinga- leiðum til landsins opnum. En allavega er hér um sameigin- lega varnarstefnu að ræða, og þótt hún sé ekki kölluð hernað- arbandalag, er hún það eigi að síður. Sagt er að Nakasone vilji mjög gjarnan breyta því ákvæði stjómarskrárinnar, sem kveður á um hlutleysi Japans og að ekki verði myndað hern- aðarbandalag með öðrum ríkjum. 2000 ára stríðshefð Möguleikarnir á hernaðar- samvinnu eru fyrir hendi og það er víst að uppbygging herja beggja landanna er mjög svipuð og sömuleiðis vopna- búnaður þeirra og fjarskiptasam- bönd, sem verða æ mikilvægari í nútíma hernaði. Herir Japans og Bandaríkjanna hafa haldið sameiginlegar heræfingar og yfirleitt verið mikið samband þar á milli allt frá 1978. Friðarsinnar hafa verið öfl- ugir í Japan allt frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar, en minningin um ósigur og niður- læginguna dvínar með tíma- num og ungir leiðtogar í dag telja það nánast merki um lífsþrótt, að afneita ákvæðum friðargjörðarinnarfrá 1947 um að þjóðin vígbúist ekki á ný. Vandamálið um hvað sé löglegt varðandi „sjálfsvarnar- liðið" hefur aldrei komið fyrir dómstóla í Japan, en framtíð hersins er ótvíræð og ljós. Sérfræðingur um hernaðar- málefni sagði um endurvíg- búnað Japana, að 2000 ára gamlar hefðir stríðsmannanna verði ekki umskapaðar á 40 árum. „í hjarta sínu eru þeir allir ósviknir samuraiar." (Byggt á grein eftir R. Whym- ant í The Guardian.)

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.