NT - 18.07.1984, Blaðsíða 24
Miðvikudagur 18. júlí 1984 24
Saudi-Arabar:
Bjóða Rafsanjani í
opinbera heimsókn
Bahrain-Reuter
■ Að sögn Irna, hinnar opin-
beru irönsku fréttastofu, hafa
Saudi-Arabar boðið Rafsanjani
þingforseta í heimsókn. En
fréttastofan bar til baka þá frétt
dagblaðs í Teheran að þingfor-
setinn hafi þegið boðið, en ekki
er fyrir það tekið að hann muni
fara til Saudi-Árabiu. Rafsanj-
ani er talinn valdamesti maður í
Iran á eftir Khomeni erkiklerki.
Þetta er í fyrsta sinn sem til
orða kemur að ríki á Arabíu-
skaga bjóði fulltrúa klerkaveld-
isins í heimsókn, en kalt hefur
verið á milli Irana og íhalds-
sömu arabaríkjanna allt frá því
að trúarbylting klerkanna var
gerð 1979. Saudi-Arabar bjóða
þingforsetanum að koma í píla-
grímsför til helgu staðanna
Mekka og Medina.
Heimildir í Kuwait segja að
70% með áfengisdrykkju í Nýja-Sjálandi
Wellington-Rcuter
■ Nær 70 af hundraði Nýsjálend-
inga greiddu atkvæði gegn áfengis-
hanni s.l. laugardag, en þjóðrat-
kvæði um áfengisbann fór fram
meðfram þingkosningunum, og
hefur sá háttur verið hafður á í
hverjum kosningum allt frá alda-
mótum.
Að þessu sinni varð útkoman sú
að 1.18 milljónir kjósenda eru á
móti áfengisbanni, sem er 6%
meira en í kosningunum 1981. 314
þúsund kjösendurgreiddu atkvæði
með áfengisbanni, en 158 þúsund
eru því meðmæltir að setja hinn
görótta drykk undir ríkiscftirlit.
Iranar vilji meira en gjarnan
bæta sambúðina við Saudi-Ar-
aba, sem hefur versnað um
allan helming eftir að hinir fyrr-
nefndu hófu að gera árásir á
skip sem koma frá höfnum vest-,
an Persaflóa.
í Saudi-Arabíu hefur ekki
verið skýrt opinberlega frá því
að Rafsanjani hafi verið boðið í
heimsókn, en þar eins og annars
staðar í þessum heimshluta er
því fagnað ef tekst að slaka á
þeirri spennu sem þar ríkir.
í Teheran eru uppi efasemdir
um að þingforsetinn muni
þekkjast boðið, en þó hljóti að
vera freistandi fyrir hann að fá
tækifæri til að ávarpa þjóðina
og útskýra málstað írana. Þá
þykir þögn Saudi-Araba um
boðið benda til að þeir séu ekki
vissir um að það verði þegið.
Sviss:
Neita að viðurkenna
níu tonna farm
sem stjórnarpóst
Rafsjanani þingforseti.
Genf-Reuter.
■ Sovéskur flutningabíll með
níu tonna farm hefur staðið á
lóð sovéska sendiráðsins í Genf
síðan á föstudag og er innsiglað-
ur af svissneskum tollvörðum.
Yfirvöld hafa beðið um lista yfir
varning bílsins, en hafa ekki
fengið. Tollvörðum var meinað
að skoða farminn á landamær-
unum og þá innsigluðu þeir
bílinn og leyfðu að hann fengi
að vera á lóð sendiráðsins, og
var honum fylgt þangað.
Sovétmenn segja að diplóm-
atapóstur sé í bílnum og sam-
kvæmt alþjóðalögum hafi Sviss-
lendingar enga heimild til að
skoða farminn. En svissnesk
yfirvöld telja að þetta gildi að-
eins um sendiráðspóst og far-
angur sendiráðsmanna en ekki
fleiri tonn af varningi. Búist er
■ Á MÁNUDAGINN kem-
ur fara fram þingkosningar í
ísrael. Reglulegar þingkosn-
ingar áttu ekki að fara fram
fyrr en í nóvember 1986, en
Shamir forsætisráðherra
neyddist til að rjúfa þing og
efna til kosninga vegna sundr-
ungar innan stjórnarinnar eða
ósamkomulags hinna mörgu
flokka, sem standa að henni.
Margt þykir benda til þess,
að kosningarnar muni ekki
breyta miklu. Hvorugur hinna
stóru flokka, Verkamanna-
flokkurinn eða Likud-banda-
lagið, muni vinna hreinan
meirihluta og smáflokkarnir
muni því ráða miklu um mynd-
un næstu ríkisstjórnar og
stefnu hennar.
í hinni 36 ára sögu ísraels-
ríkis hefur enginn flokkur
fengið meirihluta í kosningum.
Fyrstu 29 árin fór Verka-
mannaflokkurinn með stjórn-
arforustuna en varð jafnan að
styðjast við stuðning fleiri
flokka. í þingkosningunum
1977 varð Likud-bandalagið
Shimon Peres þykist vera vongóður.
þingkosningum að verða
stærsti þingflokkurinn og hefur
nú 50 þingmenn. Samanlagt
hafa Likud-bandalagið og
Verkamannaflokkurinn 96
þingmenn af 120 alls.
Tuttugu og fjórir þingmenn
skiptast milli margra smá-
flokka, sem vegna eins konar
oddastöðu sinnar hafa haft
mikil áhrif á ísraelsk
stjórnmál. Samkvæmt skoð-
anakönnunum, sem hafa farið
fram að undanförnu, virðast
smáflokkarnir líklegir til að
haldastöðu sinni. Sumirþeirra
gömlu geta þó fallið út, en nýir
komið í staðinn.
Alls bjóða nú fram 24 flokk-
ar og eru 15 þeirra nýir. Alls
ætluðu 27 flokkar að bjóða
fram en þrír fullnægðu ekki
réttum skilyrðum.
Ástæðan til þessarar miklu
flokkamergðar í ísrael er sú,
að landið er eitt kjördæmi og
gilda hlutfallskosningar.
Flokkur þarf því ekki að hafa
ýkja mikið fylgi til að koma
Kosningarnar í Israel ekki
líklegar til að breyta miklu
Kosningafyrirkomulagið útilokar trausta stjórn
stærsti flokkurinn og tókst með
stuðningi hægri sinnaðra smá-
flokka að mynda stjórn undir
forustu Menachems Begin. í
þingkosningum, sem fóru fram
1982, tókst Verkamanna-
flokknum að verða stærsti
flokkurinn á ný, en Likud-
bandalagið hélt þó áfram
stjórnarforustunni, og átti álit
það, sem Begin hafði unnið
sér, mestan þátt í því.
Begin sagði af sér stjórnar-
forustunni á síðastliðnu ári
vegna heilsubrests og hefur
síðan dregið sig alveg í hlé.
Við stjórnarforustunni tók þá
Yitzhak Shamir utanríkisráð-
herra. Hann hefur ekki náð
sömu tökum á hinum sundur-
leitu stjórnarflokkum og Begin
og neyddist því til að efna til
kosninga, eins og áður segir.
Ástæðan til þess, að Verka-
mannaflokkurinn missti for-
ustuna sem stærsti þingflokk- nefnda, og Frjálslyndaflokks- Herut-flokknum og 17 Frjáls-
urinn í kosningunum 1977 var ins, sem er íhaldssamur lynda flokknum.
sú, að Begin tókst þá að koma flokkur. Likud-bandalagið
á bandalagi þjóðernisflokks hélzt áfram og hefur nú 46 VERKAMANNAFLOKK-
síns, Herut-flokksins svo- þingmenn. Af þeim tilheyra 29 URINNnáðiþvíafturísíðustu
■ Hinn herskái Ariel Sharon (t.h.) hyggst taka við forustu Likud-bandalagsins af Shamir, ef
bandalagið tapar.
manni að, en þingmenn eru
alls 120 eins og áður segir.
Eftir síðustu þingkosningar
gekk Begin illa að koma stjórn
saman, því að hann þurfti
minnst að fá stuðning fjögurra
smáflokka til viðbótar við Lik-
ud-bandalagið til að geta hald-
ið stjórnarforustunni áfram.
Peir smáflokkar, sem að lok-
um hétu honum stuðningi
sínum, voru þjóðlegi trúar-
flokkurinn (5 þingmenn), Ag-
udat ísrael-flokkurinn (4
þingmenn), Tami-flokkurinn
(3 þingmenn) og Tehiya-flokk-
urinn (3 þingmenn). Með
stuðningi þessara flokka naut
stjórnin stuðnings 61 þing-
manns eða minnsta hugsanlegs
meirihluta á þingi. Seinna
reyndust þessir fíokkar ó-
stöðugir í stuðningi sínum og
hlupu þá aðrir smáflokkar í
skarðið.
Flestir eru þessir flokkar sér-
við svari í dag um hvort listinn
verður afhentur eða ekki og
eftir það er á valdi tollvarða
hvort þeir skoða farangurinn.
Svisslendingar segja að flutn-
ingabíllinn og farmurinn falli
ekki undir reglur um diplómata-
póst enda sé hann ekki merktur
sem slíkur.
í gær ákváðu Sovétmenn að
bíllinn og farmurinn yrði sendur
aftur heim og verður innsiglið
því ekki brotið fyrr en þetta
dularfulla farteski er aftur kom-
ið á sovéska grund, en Sviss-
lendingum er harðneitað um
leyfi til að líta á farangurinn.
Hafa Sovétmenn beðið Sviss-
lendinga urn að vera sér innan
handar að ganga svo frá pappír-
um, að bíllinn fái að fara óskoð-
aður til síns heima.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
trúarflokkar og hafa því sett
ýms skilyrði fyrir stuðningi
sínum, eins og t.d. með tak-
mörkunum á helgidagavinnu.
Nokkrir litlir vinstri sinnaðir
smáflokkar eiga fulltrúa á
þinginu. Stærstur er Kommún-
istaflokkurinn (4 þingmenn).
SAMKVÆMT síðustu
skoðanakönnunum mun
Verkamannaflokkurinn held-
ur bæta stöðu sína á kostnað
Likud-bandalagsins, en ekki
ná hreinum meirihluta. Það
mun því velta á fleiri eða færri
smáflokkum, hvort honum
tekst að mynda stjórn.
Shamir hefur gert það að
tillögu sinni, að Verkamanna-
flokkurinn og Likud-bandalag-
ið efni til þjóðstjórnar eftir
kosningar. Því hefur Shimon
Peres, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, hafnað.
Ríkisstjórn sú, sem verður
mynduð eftir kosningarnar,
fær meira en erfitt verkefni,
því að efnahagsvandinn er gíf-
urlegur. T.d er verðbólga um
400%.
Sennilega mun það ein-
hverju breyta í utanríkismál-
um, hvort Verkamannaflokk-
urinn eða Likud-bandalagið
hreppir stjórnarforustuna.
T.d. vill Verkamannaflokkur-
inn kalla heim herinn frá Lí-
banon og hætta landnámi Gyð-
inga á vesturbakkanum, en
hvoru tveggja fylgja nú mikil
útgjöld. Að öðru leyti ber
þeim ekki mikið á milli í
utanríkismálum.
Sama gildir um efnahags-
málin, því að þau eru komin í
slíkt öngþveiti, að ekki koma
til greina nema neyðarráðstaf-
anir.
Flest bendir til að næsta
ríkisstjórn fsraels verði veik
stjórn, sem verður tilneydd
vegna kosningafyrirkomulags-
ins að lúta meira eða minna
óeðlilegu valdi smáflokkanna.