NT - 18.07.1984, Síða 25
Vestur-Þýskaland:
Lögreglan gómaði smygl-
ara og 32 kg af heróíni
Munchen-Reuter.
■ Lögreglan í Bæjaralandi gerði
upptæk 32 kíló af heróíni í gær.
Söluvirði þess er um 60 milljónir
marka (660 millj. ísl. kr.). Þetta er
mesta magn sem lögreglan í
Bæjaralandi hefur náð í og þriðja
mesta magn heróíns, sem lagt
hefur verið hald á í einu í Vestur-
Þýskalandi.
Heróínið fannst í tyrkneskum
vörubíl, sem var að kóma frá
Tyrklandi og var á leið til Amster-
dam. Tveir menn voru handteknir
með hluta farmsins í fanginu.
Þegar lögregluna bar að var
vörubíllinn miðs vegar milli
Munchen og Frankfurt, stóð utan
vegar með brotinn öxul. Eitrið var
í 38 plastpokum sem faldir voru í
bílgrindinni. Smyglararnir reyndu
tvívegis að bjarga farmi sínum.
Fyrst eftir að öxullinn brotnaði
undan bíl þeirra reyndu þeir að fá
dráttarbíl, en það tókst ekki þar
sem pappírar þeirra voru ekki í
lagi. Þegar lögreglan kom á vett-
vang voru eiturlygjasmyglararnir
að taka heróínið úr felustaðnum
og bera það í bíl sem þeir höfðu
stöðvað á þjóðveginum.
Lögreglan fékk upplýsingar frá
ónefndum, útlendum uppljóstr-
ara. Hann sagði að 10 kg af
heróíni væru á leiðinni um Þýska-
land til Amsterdam, en sending-
unni hefði seinkað vegna þess að
bíllinn, sem hún var í, hefði bilað
í Bæjaralaridi.
Flokksþing demókrata:
Demókratar fær-
ast inn á miðjuna
Haukur Ingibergsson skrífar fyrir NT frá
flokksþingi demókrata í San Francisco
þríðjudaginn 17. júlí.
■ „Sameinaðir demókrat-
ar. 1 ár kepptu 8 demókratar
um útnefningu sem forseta-
frambjóðandi flokks okkar.
Hver og einn þeirra væri
hæfari forseti en sá maður
sem gegnir því embætti nú.“
Þetta voru upphafsorðin í
ræðu Jimmys Carter fyrrver-
andi forseta á flokicsþingi
Demókrataflokksins í gær,
mánudag. Þessi orð endur-
spegla vel anda flokksþings-
ins, þá áherslu sem menn
leggja á samstöðu demókrata
og komandi baráttu gegn
sameiginlegum andstæðingi,
repúblikönum og Ronald
Reagan.
En þrátt fyrir samstöðu-
vilja og sameiginlegan fund
frambjóðendanna þriggja,
Mondales, Harts og Jacksons
í gærkvöldi var barátta Harts
og Mondales um útnefning-
una augljós þennan fyrsta
þingdag. Allir frambjóðend-
urnir hafa yfir að ráða full-
komnu fjarskiptakerfi með
tölvum, símum og labb-rabb
tækjum þannig að þeir geta
á hverjum tíma vitað hvað
um er að vera meðal þingfull-
trúa og komið skilaboðum til
sinna manna á augabragði.
Og allir hafa frambjóðend-
urnir tugi áróðurs- og
tengslamanna í fundarsaln-
um auk fulltrúa sinna í sendi-
nefndum hvers ríkis, og hver
frambjóðandi um sig reynir
að næla í fylgismenn úr her-
búðum andstæðinganna.
Fylgismenn Harts sneru á
fylgismenn Mondales í gær
erþeirhéldu til þingsins með
sfor rauð plastplaköt á tré
þannig að tvær fyrstu klukku-
stundir þingsins var ekki ann-
að hægt að ráða af plakötun-
um en að Hart væri aðalfram-
bjóðandinn. En er líða tók á
daginn fór dökkbláu Mond-
ale-spjöldunum fjölgandi, en
þau eru ekki eins áberandi
og Hart-spjöldin og því lítur
svo út ef litið er yfir salinn
sem Hart eigi sér marga fylg-
ismenn.
Það er á morgun, miðviku-
dag, sem forsetaframbjóð-
andi flokksins verður kosinn
og Mondale fyllyrðir að hann
verði kosinn í fyrstu umferð.
Hart telur sig þó enn eiga
möguleika á sigri á öllum
vígstöðvum. Hann leggur
áherslu á tvennt: Að veikja
Mondale með því að fá
samþykkta tillögu sína um
setningu ákveðinna reglna
um hernaðaríhlutun Banda-
ríkjanna á erlendri grund og
að Mondale nái ekki kosn-
ingu í fyrstu umferð. Hart
lagði ekki aðeins til plakat-
baráttunnar í ráðstefnuhöll-
inni í gær heldur er hann
einnig talinn hafa gott fjar-
skiptanet. Hann segist munu
velja Geraldine Ferraro sem
varaforsetaefni sitt, hann
hefur verið mikið í fjölmiðl-
unum síðustu sólarhringana,
hann notfærir sér misheppn-
aða tilraun Mondales til að
skipta um flokksformann
með því að vekja efasemdir
um pólitíska dómgreind
Mondales. En mestir mögu-
leikar Harts liggja þó í því ef
spænskættaðir Bandaríkja-
menn (hispanics) gera alvöru
úr þeirri hótun sinni að sitja
hjá við fyrstu umferð at-
kvæðagreiðslunnar til að
mótmæla kraftlítilli afstöðu
Mondales til nýrra laga um
innflytjendur. Auk þessa
leggur Hart áherslu á að
skoðanakannanir sýni að
hann sé líklegri en Mondale
til að sigra Reagan í komandi
kosningum og flokkurinn
verði að velja þann fram-
bjóðandann sem h'klegastur
sé til sigurs. Auk þess minnir
Hart þingfulltrúa á að nú í
fyrsta sinn séu þeir ekki laga-
lega skyldugir til að fylgja
þeim frambjóðanda sem þeir
voru kosnir til að fylgja.
Enginn reiknar þó með því
að Hart takist að veikja
Mondale svo að hann nái
ekki kjöri í fyrstu umferð en
óvissan liggur þó í loftinu.
í dag, þriðjudag, hefur
Geraldine Ferraro framsögu
fyrir stefnuskrá Demókrata-
flokksins. Þetta er mikil
stefnuskrá, 35.000 orð, og
samin af fulltrúum frambjóð-
endanna þriggja undir verk-
stjórn Ferraros. Stefnuskráin
er ekki eins frjálsleg og
stefnuskrá demókrata var
árið 1980 og með henni færir
Demókrataflokkurinn sig inn
á miðju bandarískra stjórn-
mála, minnugur þess að Rea-
gan vann kosningarnar 1980
á atkvæðum þess fólks sem
telur sig tilheyra miðjunni.
Vegna þess hvernig stefnu-
skráin er til orðin er ekki gert
ráð fyrir miklum deilum um
hana utan hvað fulltrúar
Jesses Jackson flytja breyt-
ingartillögu um 4 mál:
Bandaríkin beiti aldrei
kjarnorkuvopnum að fyrra
bragði, dregið verði úr út-
gjöldum til hermála, réttur
minnihlutahópa verði
tryggður og breytingar verði
gerðar á kosningalögum
flokksins. Fulltrúar Harts
flytja breytingartillögu um
hernaðaríhlutun á erlendri
grund. Umræður geta orðið
um allar þessar tillögur en
einkum þó um tillögu Harts,
þar sem vitað er að fylgis-
menn Jacksons og einhverjir
fylgismenn Mondales fylgja
henni þannig að ef til vill er
meirihluti fyrir tillögunni á
þinginu.
En þrátt fyrir málefna-
ágreining má að fyrsta fund-
ardeginum loknum ætla að
demókratar muni ganga sam-
einaðir til næstu kosninga
undir merkjum lýðræðis,
framfara, sjálfsvirðingar og
réttinda einstaklingsins til
lífs, merintunar, vinnu og
þjóðfélagslegs öryggis. Eða
eins og Mario Cuamo ríkis-
stjóri í New York sagði í gær
í áhrifamikilli ræðu: „Herra
forseti. Á þessu kjörtímabili
hefur þeim bandarísku
mæðrum fjölgað sem ekki
geta satt hungur barna sinna
vegna þess að þú skarst niður
fjárframlög til félagslegrar
aðstoðar til þess að geta veitt
milljónamæringum skattaí-
vilnun.“
Miðvikudagur 18. júlí 1984 25
Teknir með
rúmt tonn af
hreinu heróini
%
Teheran-Reutcr.
■ íranskir landamæra-
verðir lentu í átökum við
eiturlyfjasmyglara í suðaust-
urhluta landsins í fyrradag.
Komu smyglararnir frá Pak-
istan. Landamæraverðirnir
lögðu hald á eitt tonn og 55
kg af hreinu heróíni.
íranska fréttastofan sagði
frá þessu í gær, og sagði að
þar að auki hafi landamæra-
verðirnir náði í 344 kg af
olíum og tekið tvær byssur
af smyglurunum og einnig
voru gerðir upptækir tveir
bílar sem þeir voru í. Tveir
smyglaranna særðust í
átökunum.
Hef ur bodskap erki-
biskups að engu
Detroit-Reuter.
■ Kaþólskur aðstoðarprestur
í prestakalli í einu af úthverfum
Detroit hefur lent í útistöðum
við erkibiskup borarinnar vegna
flokksþings demókrata. Hefur
presturinn , Robert Williams,
verið leystur frá kirkjulegum
störfum, þar sem hann neitar að
verða við skipun yfirboðara síns
urn að hafa ekki afskipti af
flokkspólitískum málefnum.
Williams er einn af fulltrúum
Michicanfylkis og kjörmaður
Garý Harts á flokksþinginu.
Hann er 29 ára að aldri og hefur
erkibiskup átt með honum
nokkra fundi til að fá hann til að
hætta við að sitja flokksþingið,
en Williams neitar. Honurn hef-
ur nú verið bannað að prédika,
syngja messu eða veita sakra-
menti vegna óhlýðni við kirkj-
una og jafnframt veitt lausn frá
prestakalli sínu.
Lögfræðingar kaþólsku kirkj-
unnar í Michigan bentu erki-
biskupi á að þátttaka Williams
á flokksþinginu bryti í bága
við tilskipun frá Vatikaninu í
nóvember s.l. um að starfandi
prestar mættu ekki taka þátt í
flokkspólitísku starfi án leyfis.
Sumarferð framsóknarmanna
í Reykjavík 21. júlí 1984
Að þessu sinni er ferðinni heitið í Fljótshlíð með viðkomu
á Hvolsvelli og síðan að Seljalandsfossi, Skógarfossi og
síðan til Víkur í Mýrdal. Þar verða Reynisdrangar skoðaðir
en síðan verður farið út á Dyrhólaey og að Sólheimajökli.
Þaðan verður svo ekið til Reykjavíkur um Landeyjar og
Bergþórshvol.
Lagt verður af stað frá Rauðarárstíg 18, kl. 8.00 að morgni og
gert ráð fyrir að komið verði til baka kl. 20.00-21.00 að kveldi.
Miðar kosta kr. 550 fyrir fullorðna en kr. 300 fyrir börn. Fólk hafi
með sér nesti.
Pantið miða að Rauðarárstíg 18 eða í síma 24480 þar sem
nánari upplýsingar eru veittar.
Framsóknarfólk! Fjölmennið í þessa ferð og takið vini
ykkar með.
Eigum ánægjudag saman í faðmi íslenskrar náttúru
Ferðanefndin
Blaðberar
óskast
fyrir eftirtaldar
götur
Skólavörðustíg
Bjargarstíg
Kárastíg
Spítalastíg
Borgartún
Bergþórugötu
Skúlagötu
Tjarnargötu
Bergstaðastræti
Þingholtsstræti
Skólastræti
úla 15 sími: 686300