NT - 18.07.1984, Síða 26
111
Steve Cram
síðastur
■ Brcski hlauparinn
Steve Cram wlli löndum
sínum vonbrigöum, með
því aö koma síðastur í
mark í lOOOm hlaupi á
frjálsíþróttamóti í
London á laugardag.
Cram sem varð fyrir
meiðslum fyrir nokkru
sagðist hafa misst mikið
af æfingum úr vegna
meiðslanna og þess vegna
hefði árangur hans ekki
verið betri en raun bar
vitni. Landi Crams, Steve
Crabb sigraði í lOOOm
hlaupinu á 2:18.13 mín.
Á sunnudag keppti
Cram síðan í 1500m
hlaupi og varð fyrstur í
mark á 3:44.70 mín. „Ef
ég hefði ekki unnið í dag
þá væri ég í alvarlegum
vandræðum" sagði Cram
eftir hlaupið.
Hann mun taka þátt í
míluhlaupi í Osló um
næstu helgi.
Góður tími
hjá Wells
■ Breski spretthlaupar-
inn Allan Wells hljóp á
föstudagskvöld lOOm á
10.48 sek. á frjálsíþrótta-
móti í London. Wells
leiddi hlaupið allan tím-
ann og kom fyrstur í
mark. Tími hans verður
að teljast góður, þar sem
hlaupið var gegn tölu-
verðum mótvindi. Bretar
gera sér vonir um það að
Wells nái að standa uppí
hárinu á Carl Lewis á
Ólympíuleikunum í Los
Angeles.
Budd með
mettíma
■ Zola Budd hljóp á
föstudagskvöld 2000m
hlaup á betri tíma en
áður hefur náðst í þessari
vegalengd. Tími hennar
var 5:33.15 mín. Besti
tími í heiminum fram að
hlaupi Zolu Budd í gær
var 5:33.5 mín. Það var
rúmenska stúlkan Mar-
cica Puica sem þeim tíma
náði árið 1979. Opinbert
heimsmet er ekki til á
þessari vegalengd. Zola
Budd mun keppa fyrir
Bretlands hönd í 3000m
hlaupi á Ólympíuleikun-
um í Los Ángeles, sem
hefjast síðar í þessum
mánuði.
Toyota-
keppnin
í golfi
■ Toyotakeppnin í golfi
verður um næstu helgi
hjá Golfklúbbnum Keili
í Hafnarfirði. Opna Toy-
otagolfkeppnin er flokka-
keppni, og keppt í 6
flokkum, meistara, 1. 11.,
2., 3., Öldungaflokki og
Kvennaflokki.
Ræst verður út frá
klukkan 8.30 á laugardag
og sunnudag frá Golf-
skálanum. Skráning er í
Golfskálanum fyrir
klukkan 21 n.k. föstudag.
Miðvikudagur 18. júlí 1984 26
■ Unnar Vilhjálmsson náði sér ekki á strik í hástökkskeppninni í gærkvöld. Hér sést hann fara yfir 2.03m, en sú hæð nægði honum í fjórða sæti í keppninni.
NT mynd: Árni Bjarr
„Þarf að hvíla mig“
segir Unnar Vilhjálmsson hástökkvari
byggja mig upp og næsta sumar
ætti ég að geta komist í þokka-
■ „Ég er allur svo stífur
ennþá eftir landsmótið að ég
gat ekkert stokkið að ráði í
kvöld“ sagði Unnar Vilhjálms-
son hástökkvari í gærkvöld í
samtali við NT. Unnar setti
eins og kunnugt er, Islandsmet
í hástökki á landsmóti UMFI
um síðustu helgi, er hann stökk
2.12m.
„Ég er búinn að keppa mjög
mikið uppá síðkastið, mót við
mót, þannig að ég er orðinn
þreyttur. Hástökkið hef ég lítið
sem ekkert haft tíma til að æfa,
þannig að árangurinn er svona
upp og ofan.“
„Það sem ég þarf núna það
er hvíld og síðan gæti ég farið
að bæta mig. Ég reikna þó ekki
með því að ég bæti metið í
sumar. Veturinn nota ég til að
legt form í þessu.“
„Á þessum mótum sem mað-
ur hefur verið að keppa á eins
og landsmótinu og sumarhátíð
UÍA, þá hefur maður verið að
keppa í allt of mörgum grein-
um. Ég keppi líka í spjótkasti
og ég tók þátt í boðhlaupi á
landsmótinu. Maður reynir að
hala inn stig fyrir sitt félag“
sagði Unnar Vilhjálmsson.
í hástökkskeppninni á Kalott
mótinu í gær kom greinilega í
ljós að Unnar er ekki að koma
úr afslöppun. Hann náði sér
ekki á strik og hafnaði í fjórða
sæti í hástökkinu, stökk 2.03m.
Sá sem sigraði var Svíi að nafni
Peter Lindmark. Hann stökk
2.07m. Annar í keppninni var
Norðmaður, Lars E. Drev-
vatne sem stökk 2.05m. í þriðja
sæti varð Finninn Jari Haavisto
sem stökk 2.03m eins og
Unnar, en notaði færri tilraun-
ir.
Þessa keppnisgrein vann ís-
land í síðustu Kalott keppni,
en þá sigraði Kristján Hreins-
son meðþví að stökkva 2.1 lm
sem var Islandsmet þar til um
síðustu helgi að Unnar stökk
2.12m. Kristján var ekki meðal
keppenda á Kalott mótinu.
Hann hefur ekki náð sér á strik
í sumar, eftir meiðslin sem
hann hlaut í fyrra.
Ulfar Keilismeistari
Þórdís Geirsdóttir sigraði í kvennaflokki
■ Hinn nýbakaði unglinga-
meistari, Úlfar Jónsson, sigraði
með glæsibrag á meistaramóti
golfklúbbsins Keilis um síðustu
helgi. Úlfar lék 72 holur á 290
höggum, 122 höggum á undan
næsta manni, sem var Tryggvi
Traustason. Hann lék á 302
höggum og Sveinn Sigurbergs-
son lék á 308 höggum og varð
þriðji.
í kvennaflokki án forgjafar
sigraði Þórdís Geirsdóttir á 341
höggi, Kristín Þorvaldsdóttir
varð önnur á 361 höggi og Lóa
Sigurbjörnsdóttir þriðja á 362.
Með forgjöf sigraði Guðbjörg
Sigurðardóttir á 272, Björk
Ingvarsdóttir var á 280 og Krist-
ín Pétursdóttir varð þriðja á
289.
Sigurður Héðinsson sigraði í
1. flokki á 303 höggum, Jón V.
Karlsson sigraði í öðrum tlokki
á 332 höggum, Sigurður Aðal-
steinsson í þriðja flokki á 340
og Finnbogi Aðalsteinsson í
fjörða á 187 höggum (36 holur).
Sigurberg H.Elentínusson sigr-
aði í öldungaflokki á 122 högg-
um (36 holur með forgjöf), og
Björn Knútsson í drengjaflokki
á 164 höggum (36 holur).
■ Verðlaunahafar á meistaramóti Keilis.
■ Sænska tennisstjarnan
Björn Borg er byrjaður að
keppa aftur á alþjóðlegum
mótum eftir að liafa hætt
keppni í 16 mánuði. Hann
tekur þátt í alþjóðlegu móti í
Stuttgart í V-Þýskalandi í þess-
ari viku.
Borg sem er 28 ára og marg-
faldur milljónamæringur vann
Wimbledonkeppnina 5 sinnum
og franska Opna Meistaramót-
ið 6 sinnum auk fjölda annarra
móta áður en hann tók ákvörð-
un um að hætta að keppa á
mótum og spila eingöngu sýn-
ingarleiki.
Borg er mjög vinsæll hjá
tennisáhugamönnum bæði
vegna hæfileika sinna og góðrar
framkomu jafnt utan vallar sem
í keppni.Mikill áhugi var fyrir
mótinu í Stuttgart og búið að
selja fleiri miða en aðstandend-
ur mótsins þorðu að vona.
En Björn Borg er ekki lengur
nr. 1 í heiminum, því hann
tapaði strax í fyrsta leik fyrir
Frakkanum Henri Leconte, en
það var einmitt hann sem vann
Borg í síðasta leik Svíans áður
en hann hætti keppni. Leconte,
sem nú nýverið sigraði Ivan
Lendl, er í 26.sæti yfir bestu
tennisleikara heims og hann
vann leikinn gegn Borg með
yfirburðum, 6-3 og 6-1 á aðeins
49 mínútum.
■ Björn Borg, tapaði strax
fyrir sama tennisleikara og
síðast.
Lendl sá besti
■ Ivan Lendl er besti tennis-
leikari í heimi, að því er segir í
tölvuútreikningi sem samtök
atvinnumanna í tennis standa
að. Þrátt fyrir að John McEnr-
oe ynni sigur á Wimbledon
mótinu fyrir skömmu þá er
hann kominn í annað sætið.
Tölvan hefur gefið tennisköpp-
unum stig samkvæmt ákveðinni
aðferð og ná útreiknigar henn-
ar eitt ár aftur í tímann.
10 bestu tennisleikarar heims
samkvæmt útreikningi tölvunar
eru:
6. Andreas Gomez Ekvador.
7. Yannick Noah Fakklandi.
8. Johan Kriek Bandaríkjunum.
9. Henrik Sundström Svíþjóö.
10. Anreas Jarrvd Svíþjóð.
1. Ivan Lendl Tékkóslóvakíu.
2. John McEnroe Bandaríkjunum.
3. Jimmy Connors Bandaríkjunum.
4. Mats Wilander Svíþjóð.
5. Jimmy Arias Bandaríkjunum.
■ Ivan Lendl sá besti.