NT - 18.07.1984, Qupperneq 27
| H r Miðvikudagur 18. júlí 1984 27
IuJLI íþróttir
Finnarmeð
forystuna
á Kalott
■ Finnland er með forystu
eftir fyrri keppnisdaginn á Ka-
lottmótinu, í frjálsum íþrótt-
um, sem nú fer fram á Laugar-
dalsvelli. í samanlagðri stiga-
keppni þjóðanna hafa Finnar
171 stig, Islendingar eru í öðru
sæti með 163 stig, Svíar eru í
þriðja sæti með 140,5 stig og
Norðmenn reka lestina með
11.5 stig.
Kalott keppnin er keppni
landsliðs íslands og iandsliða
frá norður Noregi, norður Sví-
þjóð og norður Finnlandi.
Veður var þokkalegt í gær á
meðan á keppninni stóð, en
vindur var full mikill.
Keppninni verður framhald-
ið í kvöld og búast má við
harðri keppni í ýmsum grein-
um.
400 grindahlaup kvenna:
1. Helga Halldórsd. íslandi 1.00,50
2. Riitta Manninen, Finnlandi 1.02.40
3. Valdís Hallgrímsd. íslandi 1.02,40
400 metra grindahlaup karla:
1. Aðalsteinn BemharOss. íslandi 52,89
2. Þorvaldur Þórsson íslandi 53,38
3. Ulf Sedlacek Svíþjóð 53,41
200 metra hlaup karla:
1. Jouko Hassi Finnlandi 21.66
2. Marlti Junnonaho Finnlandi 22,03
3. Stefán Utsi Svíþjóð 22.35
4. Egill Eiðsson íslandi 22.41
5. Jóhann Jóhannsson íslandi 22.43
100 metra hlaup kvenna:
1. Oddný Árnadóttir íslandi 11.94
2. Monica Strand Svíþjóð 11.95
3. Svanhildur Kristjánsd. Islandi 12.14
Kúluvarp kvenna
1. Pseivi Ala Frantti Finnlandi 14.17
2. Soffía Gestsdóttir islandi 13,18
3. Kristin Sjövoll Noregi 12.70
4. Helga Unnarsdóttir Íslandil2 68
400 metra hlaup kvenna
1. Monica Strand Svíþjóð 5; .1
2. Oddný Árnadóttir Island 56.1
3. trene Marttila Finnlandi 5c.5
4. Tarja Tapio F'innlandi 57..
5. Unnur Stefánsdóttir islandi 57.5
1500 metra hlaup kvenna:
1. Teija Virkberg Finnlandi 4.34.8
2. Anneli Oravaibnen Finnl. 4.38.0
3. Eva Lundfors Svíþjóð 4.42.5
7. Lilly Viðarsdóttir Isjandi 4.52.0
8. Guðrún Eysteinsd. íslandi 4.56.9
Kringlukast karla:
1. Öystein Björbaek Noregi 57.(81
2. Eggert Bogason islandi 53,88
3. Pertti Valta Finnlandi 51.06
5. Helgi Þ. Helgason islandi 49.50
Langstökk kvenna:
1. Bryndís Hólm íslandi 5.98
2. Marline Thiger Svíþjóð 5.77
3. Kristin Gullhav Noregi 5.76
4. Svanhildur Kristjónsd. Íslandi 5.61
Hálft maraþon:
1. Kurt Anderson Svíþjóð 1:05.17
2. Atlc Joakimsen Noregi 1:05.30
3. Kjdl Áge Gottvassli Norcgi 1:05.33
12. Steinar Friðgeirss. Íslandi 1:10.48
13. Sigfús Jónsson Íslandi 1:12.30
14. Stefán Friðgeirss. íslandi 1:15.56
Spjótkast kvenna:
1. Heiena Uusitalo Finnlandi 52.38
2. Pseivi Ala Frantti Finnlandi 51.96
3. Birgitta Guðjónsd. íslandi 40.64
4. Guðrún Gunnarsd. íslandi 39.66
Langstökk karla:
1. Stefán Þ. Stefánsson Íslandi 7.19
2. Kati Joentakanen Finnlandi 6.96
3. Risto Nieminen Finnlandi 6.87
4. Gísli Sigurðsson Íslandi 6.85
Histökk karla:
1. Peter Svíþjóð 2.07
2. Lars E. Drevvatne Noregi 2.05
3. Jari Haavisto Finnlandi 2.03
4. Unnar Vilhjáimsson íslandi 2.03
7. Gunnlaugur Grettisson íslandi 1.90
4x100 m boðhlaup kvenna:
1. Sveit Íslands 48.51
2. Sveit Svíþjóðar 49.26
3. Sveit Finnlands 49.71
4. Sveit Noregs 49.82
4x100 m boðhlaup karla:
1. Sveit Finnlands 41.62
2. Sveit Íslands 42.09
S00 m hlaup karla:
1. Esko Hutto Finnlandi 1:50.07
2. Mikael Svenson Svíþjóð 1:51.3
3. Guðmundur Skúlason Íslandi 1:52.6
8. Magnús Haraldsson íslandi 1:57.2
Enn frestað í Eyjum
■ Leik Vestmannaeyinga og
Skagamanna í 16 liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ scm leika á í
Eyjum var frestað enn einu
sinni. Þetta er í sjöunda sinn
sem leiknum er frestað vegna
þess að Skagamenn komast
ekki til Eyja vegna þess að
ekkert flug hefur verið þangað
að undanförnu. Ef fer fram
sem horfir að leiknum verði
frestað enn lengur þá er ekki,
gott að segja hvaða áhrif þetta
hefur á leiki þessara féiaga í
deildarkeppninni. Nú þegar
hefur einum leik verið frestað
hjá Eyjamönnum og er það að
sjálfsögðu bagalegt. Er það von
okkar blaðamanna á NT að öll
þjóðin leggist á bæn og biðji
um gott veður hér sunnanlands
svo hægt verði að komast til
Eyja sem fyrst.
Auðvitað er
Reynir efstur
■ Hrakleg viila slæddist inn í
umfjöllun NT á mánudag um 3.
deild A. Þarvarsagt að Víking-
ur Ólafsvík hefði endurheimt
toppsætið í riðlinum, en það
var ekki rétt, hið rétta er að
Reynir Sandgerði tryggði sér
það sæti í síðustu viku er liðið
sigraði VíkingÓlafsvík: Reynir
er því með 24 stig, en Víkingur
22. Fylkir hefur nú einnig 22
stig og betra markahlutfall en
Víkingur. því á mánudags-
kvöld vann Fylkir Snæfell 5-0.
Orsök villunnar var sú að
hinn frækni sigur Reynis á
Víkingi var aldrei skráður inn
á stöðu NT vegna mannlegra
mistaka. Reynismenn eru
beðnir innilega afsökunar á
rangherminu.
Fylkir fór létt með Snæfell,
og skoruðu þeir Jón Bjarni
Guðmundsson 2, Samúel
Grytvik, Óskar Theódórsson
og Brynjar Jóhannesson
mörkin.
Rétt staða er þá þannig:
Reynir S ....... 10 7 3 0 23-7 24
Fylkir . ....... 10 7 1 2 26-12 22
Víkingur....... 10 7 1 2 20-11 22
Stjarnan ....... 10 5 1 4 24-14 16
Selfoss ........ 9 4 2 3 12-10 14
Grindavík .... 10 3 4 3 12-12 13
HV.............. 9 2 1 6 13-20 7
ÍK .............10 1 1 7 8-24 2
Snæfell ........ 10 0 2 8 5-33 2
■ Það var mikið barist í leik
KR og Þórs í 8 liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi
og gekk mikið á. KR-ingar
reyndust þó hafa meiri seiglu
því þeim tókst að merja sigur
2-1. í>að þurfti þó framlengingu
til að fá úr því skorið hvort liðið
kæmist í undanúrslit og í seinni
hluta hennar þá skoraði Gunn-
ar Gíslason hið mikilvæga mark
KR-inga með skalla af stuttu
færi.
Það voru Þórsarar sem byrj-
uðu leikinn heldur betur og
voru sókndjarfir í upphafi.
Leikurinn var þó að mestu í
járnum og töluverð harka strax
í upphafi sem ekki minnkaði
þegar á leikinn leið. Alls þurfti
dómari leiksins að gefa 5 gul
spjöld og hefði að ósekju mátt
veifa því rauða fljótlega í seinni
hálfleik.
Þegar um hálftími var liðinn
af fyrri hálfleik kom fyrsta
markið og var það eign KR-
inga. Gunnar Gíslason, sem
var einn besti maður vallarins
náði þá knettinum við miðlínu
og sendi stórfallega sendingu
inná Björn Rafnsson sent lék
aðeins áfram í átt að vítateig en
lét svo þrumufleyg vaða í átt að
Þórsmarkinu og skoraði í horn-
ið nær. Laglegt mark og þáttur
Gunnars í því mikill, 1-0.
En það tók Þórsara ekki
mjög langan tíma að jafna
metin því um 10 mín. síðar
kom falleg sóknarlota frá þeim
sem endaði með marki Sigurð-
ar Pálssonar. Nói Björnsson
var með boltann og sendi í átt
að marki þar sem Halldór
Áskelsson framlengdi hann
með snyrtilegri hælspyrnu til
Sigurðar sem komst einn í gegn
og skoraði með föstu skoti í
stöngina og inn, 1-1.
Síðan þurfti að framlengja
leikinn þar sem hvorugu liðinu
tókst að skora í síðari hálfleik.
Seinni hálfleikur var frekar
grófur og einkenndist mjög af
gulum spjöldum sem Gísli
dómari sýndi alls fimm sinnum.
Þá meiddist Ottó Guðmunds-
son heldur illa og var borinn af
velli. Þórsarar voru þó betri í
síðari hálfleik og þá sérstaklega
ílokin.
í framlengingunni þá sóttu
liðin til skiptis en þó voru
KR-ingar heldur sterkari og
bjargaði Jónas til dæmis á línu
frá Jóni G. Bjarnasyni, KR-
ing. Það var svo Gunnar Gísla-
son sem gerði sigurmarkið eins
og fyrr sagði. Há sending kom
fyrir markið og þar var Gunnar
á réttum stað og skallaði í
markið af frekar stuttu færi.
Fögnuður KR-inga var mikill
og sungu þeir og dönsuðu. Það
sem eftir lifði vörðust heima-
menn og var marki þeirra ekki
ógnað.
Leikurinn fór fram á góðum
velli KR-inga í vesturbænum.
„Harður leikur“
■ Þetta varharðurleikur
og ekkert gefið eftir“ sagði
Ágúst Már Jónsson við
blaðamann NT eftir leik-
inn. „Við tókum ekki nóg
á í upphafi leiksins og þeir
voru betri þá, en síðan
jafnaðist þetta og sigurinn
gat lent hvoru megin sem
var. Ég er mjög þreyttur
en þetta var þess virði"
bætti Ágúst við en hann
stóð oft í ströngu í barátt-
unni á miðjunni.
Aðspurður um hverja
hann vildi fá sem næstu
mótherja, sagði Ágúst:
„Mér er alveg sama, það
verður örugglega erfiður
leikur hverjir sem mót-
herjarnir verða. Viðstefn-
um allavega ótrauðir í
úrslitaleikinn."
D Gunnar Gíslason nr. 8 fylgist með Ágústi Má félaga sínum
í háloftunum. NT-mynd Árni Bjarna
„Ég er virkilega ánægður"
■ „Ég get ekki sagt annað en
að ég er virkilega ánægður með
að skora og hvað þá með sigur-
inn“ sagði Gunnar Gíslason
við blaðamann NT eftir leik
KR og Þórs. „Þetta var geysi-
lega erfiður leikur og mjög
harður. Ég fékk ansi mikið
spark í kálfann í síðari hálfleik
og slakaði dálítið á en ég er
samt ánægður með minn hlut,
svo maður tali nú ekki um
markið" bætti Gunnar við.
Hann var einn besti maður
KR-liðsins og átti stóran þátt í
fyrra markinu auk þess að gera
hið seinna. Sannarlega vel gert
hjá þessum sterka leikmanni
sem virðist vera að finna sig í
KR-liðinu.
Sverrir vann
á Akureyri
- Inga vann kvennaflokkinn
■ Meistaramót Golfklúbbs
Akureyrar fór fram um helgina
og voru leiknar 72 holur. Sigur-
vegari í meistaraflokki varð
Sverrir Þorvaldsson sem lék á
322 höggum. Hann hafði náð
góðri forystu eftir fyrri dag og
varð ekki ógnað úr því. Annar
varð Sigurður H. Ringsted á
331 og í þriðja til fjórða sæti
urðu Þórhallur Pálsson og
Björn Axelsson á 335.
í meistaraflokki kvenna sigr-
aði Inga Magnúsdóttir á 351
höggi og önnur varð Jónína
Pálsdóttir á 354. Þær stöllur
háðu harða keppni allt til loka
og urðu oft miklar sviftingar
hjá þeim. Þriðja varð Katrín
Frímannsdóttir á 369 höggum.
Önnur úrslit urðu þessi:
Drengjaflokkur:
. Öm Olafsson 328
Kristján Gylfason 353
Sigurður Þorgilsson 362
1. flokkur:
Guðmundur Finnssnn 339
2. flokkur:
Guðjón Sigurðsson 366
3. flokkur:
Kjartan Bragason 367
Á Húsavík varð meistari
Kristján Ö. Hjálmarsson en
hann lék á 306 höggum annar
varð Skúli skúlason og þriðji
Axel Reynisson. í kvenna-
flokki á Húsavík varð Sigríður
Ólafsdóttir fyrst, Arnheiður
Jónsdóttir önnur og Sólveig
Skúladóttir þriðja