NT - 18.07.1984, Qupperneq 28
LURIR t>U Á FRÉTT
HRINGDU ÞÁ I SÍIVIA 68-
Vid tökum við ábendingum um fréttir allan sólartiringinn.
Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir
til fréttar i blaðinu og 10.000 krórs*sr syrir ábendingu sem leiðir
til bitastæðustu frétíar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
Allarsemþreyttulokapróf íútsaumi frá KHI:
Fengu 0,0 í einkunn
■ Þær skammast sín ekk-
ert fyrir lokaverkefnin þó
aðallarhafí fengiðeinkunn-
ina 0,0. Frá vinstri Guðrún
Guðmundsdóttir, Agla
Snorradóttir, Þóra Óðins-
dóttir, Valgerður Garðars-
dóttir og Auður Þórhalls-
dóttir.
NT-mynd Árni Bjarna.
■ Það er hætt við að útsaums-
kennslu í grunnskólum landsins
fari stórlega hrakandi á næstu
árum ef niarka má einkunnir
þeirra sjö kvenna sem þreyttu
lokaverkefni í útsaumi frá hann-
yrðadeild Kennaraháskóla ís-
Íands í vor. Þcssir verðandi
handmenntakennarar fengu all-
ir 0,0 fyrir sjálfstætt lokaverk-
efni í faginu.
„Við teljum okkur hvorki
verri né betri í útsaumi en
nemendur sem útskrifast hafa
frá Kennaraháskólanum hingað
til. Við lentum hins vegar í
útistöðum við lektorinn í faginu,
frú Vigdísi Pálsdóttur, í vetur.
Okkur þótti hún koma þannig
fram að við hættum að mæta í
tíma hjá henni. Við mættum þó
í þá tíma sem reglur skólans
krefjast og skiluðum verkefnum
á réttum tíma,“ sögðu fimm
kvennanna, sem litu í heimsókn
á ritstjórnarskrifstofur NT í
gær.
Þær segjast ítrekað hafa leit-
að réttar síns í þessu máli en
skólayfirvöld hafi lítið viljað á
þær hlusta. Þó hefðu lektorar
deildarinnar áður lent í úti-
stöðum við nemendur sína. Til
dæmis hefðu allar þær sem
þreyta áttu lokapróf í vélsaumi
í fyrra neitað að mæta í próf og
fengið 0.
„Okkur hefur verið bent á að
eina leiðin til að ná fram rétti
okkar sé að fara í mál fyrir
dómstólum. En þar sem þessi
einkunn skipti ekki sköpum hjá
neinni okkar, það er að segja
við náðum allar prófi með sóma,
hefur okkur ekki þótt ástæða til
að gera það. En okkur finnst
sjálfsagt að fólk fái að vita um
svona framkomu,“ sögðu
konurnar.
Þær bentu á að Kennarahá-
skólinn væri stofnun sem ætlað
væri að mennta verðandi grunn-
skólakennara. Þegar svona
vinnubrögð væru látin viðgang-
ast væri ekki von á góðu í
skólunum.
Arnarflug hagnast
á hafnarverkfallinu
■ Arnarflug nýtur þessa
dagana góðs af verkfalli
hafnarverkamanna á
Bretlandi, og flýgur þota
þess Boeing 707 nú tvær
og þrjár íerðir á dag með
vörur, aðallega á milli
London og Amsterdam.
Er mikil eftirspurn eftir
þessari þjónustu félagsins,
og segja forráðamenn þess
að þeir geti engan veginn
annað eftirspurninni.
Næstu daga mun Arn-
arflugsþotan fara þrjár
ferðir á dag, með 42 tonn
í hverri ferð, aðallega
grænmeti, ávexti og ýmiss
konar matvæli.
Bílar landsmanna:
Flotinn stækkar
■ Bifrciöafjöldi landsmanna
var kominn upp í 108.254 stykki
um síðustu áramót og hafði
fiölgað um 1795 frá árinu 1982.
A sama tíma voru bifhjól á skrá
804.
Flestar bifreiðar voru á skrá í
Reykjavík, eða 40.520, en
11.793 bifreiðar óku um með
skráningarbókstafinn G. Fæstar
voru þær skráðar á Keflavíkur-
flugvelli, 300 talsins.
Alls skiptu liðlega 35 þúsund
bifreiðar og bifhjól um eigendur
á síðasta ári, en tæplega 5
þúsund létu umskrá ökutæki
sitt. Nýskráningar bifreiða og
bifhjóla á árinu voru 6461,
Bílasalan 54% meiri en á síðasta ári:
Fiat og Lada
eru á toppnum
Innflutningur á nýjum fólks-
bílum varð rúmlega 54% meiri
fyrri helming þessa árs en á
sama tíma í fyrra, þ.e. 4.177
bíiar nú á móti 2.708 í júnílok
1983. Innflutningurinn er nú
orðinn nær jafn mikill og allt árið
1983 þegar fluttir voru inn sam-
tals 4.650 nýir fólksbílar.
Fiat Uno er nú söluhæsti
bíllinn, en af honum hafa verið
flutt inn 313 stykki á þessu hálfa I
ári miðað við 112 allt árið í'
fyrra. Alls höfðu í júnílok verið
fluttir inn 598 Fiatbílar, m.a.
164 Pöndur.
Lada 2107 fylgir fast á hæla
Fiat Uno með 304 selda bíla í
Þjóðaratkvæðagreiðsla
um algjört áfengisbann?
■ Meðal þeirra tillagna sem
fram koma í skýrslu nefndar
um opinbera stefnu í áfengis-
málum er að banna allan inn-
flutning á efnum og tækjum til
ölgerðar og að stöðvaður verði
innllutningur á bjór til ferða-
manna. Sömuleiðis að bjórsala
á Keflavíkurflugvelli verði
aflögð. Þá er tollfrjáisum inn-
flutningi á áfengi mótmælt og
krafist að hann verði allur
afnuminn og teknar til athug-
unar reglur um þá kjarabót
tlugliða og íarmanna að flytja
inn vín tollírjálst. „Að bjóða
áfengissýkingu heim í kjara-
samningum hefði einhvern-
tíma þótt ótækt,“ segir í grein-
argerð um málið.
Þá er þess krafist að sterk-
vínssala fyrir klukkan 18 verði
„undir engum kringumstæðum
heimiluð.“ Hefur dómsmála-
ráðherra sem hefur með þessi
mál að gera lýst því yfir að ekki
muni standa á hans ráðuneyti
að þessar tillögur nái fram að
ganga, þá þegar ríkisstjórnin
hafi mótað áfengisstefnu.
Lokatillaga nefndarinnar er
svo skoðanakönnun uni tak-
markað eða algert áfengisbann
í landinu.
júnílok. Alls hafa verið fluttar
inn 579 Lödur sem er 124%
aukning miðað við sama tíma
1983. Þetta segir okkur að nær
3 af hverjum 10 kaupendum
nýrra bíla í ár hafi valið sér
annað hvort Fiat eða Lödu, eða
rúm 28%.
Þriðja söluhæsta tegundin er
Mazda, 349 bílar sem er sama
tala og 1984. Af 5 tegundum
hafa selst milli 200 og 300 bílar:
Toyota 280 bílar (238), Da-
ihatsu og Subaru með 271 bíl af
hvorri tegund, Ford frá Evrópu
og Brasilíu 266 bílar sem er
aukning úr 39 bílum á sama
tíma í fyrra (munar þar mestu
um 148 Escorta frá Brasilíu) og
Skoda sem 234 hafa valið nú á
móti aðeins 106 í júnílok 1983.
Þeir sem hafa „látið skynsem-
ina ráða“ eru nú 33 sem þýðir
væntanlega að skynsemin hafi
ríflega þrefaldast. Sænsku bíl-
arnir hafa hins vegar orðið að
láta verulega undan síga í sam-
keppninni. Volvóar eru nú 81 á
móti 164 í fyrra og Saabar 60 á
móti 97 á miðju ári 1983.
Breikið er
hættulegt
■ Varið ykkur á breik-
inu. Breikdansinn getur
verið hættulegur.
Fjöldi ungmenna er-
lendis á nú um sárt að
binda vegna meiðsla, sem
þau hafa orðið fyrir í
breikdansi, og þess eru
dæmi, að ungmenni séu
bundin hjólastólum af
þeim sökum. Þeir þættir
breikdansins, sem eru
hættulegri öðrum, eru
höfuðdans og sérstök
stökk, þar sem lent er á
höndum og rúllað niður á
maga. Einnigersnúningur
á baki hættulegur.
Farið því varlega krakk-
ar og æfið ykkur helst
undir leiðsögn kennara.
Hafísinn
kominn
Hafís var kominn á siglingaleið
undan Kálfshamarsvita á Skaga
í gærmorgun. Þéttleiki íssins
var frá 1-3/10 upp í 4-6/10.
Hafís torveldar einnig veiðar
undan norðanverðum Vest-
fjörðum, bæði á miðum togar-
anna og rækjubátanna.