NT - 02.08.1984, Blaðsíða 1

NT - 02.08.1984, Blaðsíða 1
Brjóstbirta um verslunarmannahelgina • Norðurleið: Hrísey - Blönduós • Tyrkneskt bað § París • Timburmenn óþarfir • Minnislisti ferðalangsins • Hott hott á hesti • Ferðabækur í farangrinum • Getur þú lýst ánægjunni • 3. tölublað l.árgangur Fimmtudagur 2. ágúst 1984 Umsjón: ívarJónsson Kristín Ólafsdóttir Verslunarmannahelgin ■ Fyrsta helgin í ágúst á ári hverju boðar frídag verslunarmanna, sem er frídagur alls vinnandi fólks. í samfélagi þar sem frídagar eru sjaldséðir gestir er þessari helgi ætíð tekið með opnum örmum og koma hennar er gjarnan vel undirbúin. NT hefur með aukablaði sínu að þessu sinni reynt að leggja þessum undirbúningi nokkurt lið og útlistar ýmsa möguleika til dægrastyttingar um helgina sem er í vændum. Með það fyrir augum höfum við haft í huga bæði þarfir þeirra sem heima sitja og þeirra sem fýsir að leggja land undir fót. Fyrir fyrrnefnda hópinn höfum við m.a. komið með tillögu um ýmsa litríka drykki sem gætu lífgað upp á tilveruna auk þess að minna fólk á þá ánægju sem hægt er að hafa af ýmis konar tómstundagamni, en í landi þar sem vinnan er mesta dyggðin vill slíkt gjarnan gleymast. Fyrir síðar-nefnda hópinn höfum við hins vegar bent á hina fjölbreytilegustu ferðamöguleika og höfum þá haft í huga bæði skipulagðar samkomur helgarinnar og ferðir fyrir þá sem ætla sér að eiga rólega og notalega helgi, ýmist inn á milli fjalla eða á afskekktum eyjum. Auk þess höfum við tekið tillit til þeirra sem eru svo vel efnaðir að geta skotist út fyrir landsteinana og komum með tillögu um ævintýralega helgi í París. NT óskar öllu verslunarfólki og öllum lesendum sínum ánægjulegrar helgar, en munið nú að fara gætilega og varast slysin.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.