NT - 02.08.1984, Blaðsíða 3
-II
LU'
ÁBÓT
Á HESTI...
- á Vindheimamelum um
verslunarmannahelgina
■ Hestamennska hefur
löngum verið stunduð á ís-
landi. Fyrir utan það að hafa
verið nytjadýr hið mesta hefur
hesturinn frá alda öðli þjónað
mikilvægu hlutverki í frístunda-
gamni íslendinga. Þar er auð-
vitað fyrst að nefna útreiðatúr-
ana sem stytt hafa svo mörgum
stundir en þar að auki sam-
komur þær sem myndast hafa
í kringum hestakúnstir ýmiss
konar. Fram á 13. öld átti
hestaat miklum vinsældum að
fagna en á síðari tímum hafa
kappreiða og gæðingakeppnir
ásamt hestaíþróttum laðað
margan manninn og konuna
að. Það mun væntanlega vera
reyndin á Vindheimamelum
um verslunarmannahelgina en
þar hefur verið skipulagt hið
árlega hestamót Skagfirðinga
sem er að þessu sinni slegið
saman við íslandsmótið í hesta-
íþróttum. í tilefni af þessum
stóratburði fór NT-fólk á fund
Ingimars Ingimarssonar tamn-
ingamanns á Hólum í Hjalta-
dal og einn af skipuleggjend-
um mótsins og spurðist fyrír
um hestamennsku á íslandi og
mótið sem er í vændum.
„Áhugi fyrir hestamennsku
og hestamennska sem frí-
stundagaman hefur færst
geysilega í vöxt á síðustu
árum. Þó held ég að síðustu
tvö þrjú árin, kreppuárin, þá
hafi margir þurft að losa sig út
úr þessu tómstundagamni
vegna kostnaðar sem fylgir
því. En áhuginn er samt sem
áður mikill og hafa fleiri at-
vinnu af því að halda nám-
skeið en nokkru sinni fyrr.
Þannig að það er mikið líf í
hestamennskunni. En Lands-
samband hestamanna telur
nú um 7-8000 meðlimi.
Nú, mótið hér á Vindheima-
melum í ár er frábrugðið þeim
fyrri að því leyti, að að þessu
sinni er slegið saman hinu
hefðbundna hestamóti Skag-
firðinga og fslandsmótinu í
hestaíþróttum sem á undan-
förnum árum hefur verið hald-
ið fyrir sunnan. Hestaíþróttin
snýst um vald knapans yfir
hestinum og byggist á því að
sýna af mikilli nákvæmni fjöl-
hæfni íslenska hestsins. Upp-
tökin að hestaíþróttinni er að
leita til Evrópu en þar er
annað hvert ár haldið mót sem
er einskorðað við íslenska
hestinn. En eins og kunnugt
er, er íslenski hesturinn eina
hestategundin sem býr yfir
öllum gangtegundunum
þ.e.a.s. feti, brokki, tölti,
stökki og skeiði. Því miður þá
hefur hestaíþróttin ekki fengið
sömu viðurkenningu og aðrar
íþróttir sem sést kannski best
á því að okkur hefur fram að
þessu verið meinaður inn-
gangur að íþróttasambandi
Islands. Þetta háir okkur að
því leyti að umfjöllun um
þessa íþrótt í fjölmiðlum hefur
verið takmörkuð á þeim rök-
um að við höfum ekki aðild að
íþróttasambandinu og svo háir
þetta okkur auðvitað líka fjár-
hagslega en öll mót í hesta-
mennskunni eru byggð á sjálf-
boðaliðsvinnu. Reyndar er
hestaíþróttadeildin hjá Fáki
ný komin inní íþróttasam-
bandið og á það vonandi eftir
að draga dilk á eftir sér.
Varðandi mótið, þá stendur
það yfir í þrjá daga, byrjar á
föstudagsmorgni og lýkur á
sunnudagskvöld. Á föstudeg-
inum er forkeppni íþrótta-
greina - á laugardeginum
gæðingakeppni, undanrásir
kappreiða og fleira og á sunnu-
deginum er öllu því besta
safnað saman þ.e.a.s. úrslitin
í keppnisgreinunum. Við bú-
umst við ágætri aðsókn á
mótið en auðvitað veltur allt á
veðri eins og venjulega. Ann-
ars erum við ekkert mjög
smeykir við veðrið því reynsl-
an hefur sýnt að hestamenn
eru ótrúlega nægjusamir með
veður.“
Fimmtudagur 2. ágúst 1984 3
Veitingahúsið Brekka
Brekka nýtt veitingahús í Hrísey
Úrval sjávarrétta, og galloway nautasteikur
alltaf á boöstólnum
Opið frá 9-23.30
Velkomin fil Hríseyjar
Borðapantanir í síma 96-61751
I BORGAR SIG
* Jm AÐ VERZLA í
Odýrustu grillkolin í bænum
Vörumarkaðurinn ht. ármúla ia eðistorgi 11
Pressuð
kol - 3 kg á
s. 686111
s. 29366.