NT - 02.08.1984, Page 6

NT - 02.08.1984, Page 6
1959 ÁRA 1984 Veisla fyrir viðskiptavinina í tilefni af 25 ára afmæli verslunarinnar bjóöum við 25% AFSLÁTT AF 25 VÖRUTEGUIMDUM í 25 DAGA KJÖRBÚÐIN VERIÐ ÁVALLT VELKOMIN. öCaugcVuáA MftrAi irkrún 0 Cími 7CC7rt O Q1C7n Norðurbrún 2 - Sími 3S570 & 82570 Söluturninn Norðurbrún 2 - Simi 82571. MEGRUN án mæðu FIRMALOSS GRENNINGARDUFT Útsölustaðir: Reykjavík og nágr. Árbæjarapotek, Borgarapotek. Háaleitisapotek, Reykjavíkurapotek, Vesturbæjarapotek, Lyfjabúðin Iðunn, Ingólfur Óskarsson, Laugavegi 69, Orkubót, Grensásvegi 7, Orkulind. Brautarholti 22, Æfingastöðin, Engihjalla 8, Kóp., Apotek Norðurbæjar, Hafnarfirði, Þrekmiðstöðin, Dalshrauni 4, Hafn., Sólnes, Austurströnd 1, Seltjarnarnesi, Landiði Elva Ólafsdóttir. Brimhólabr.31, Vestm.eyj. Ölfusapotek, Hveragerði, Álfhildur Steinbjörnsd., Reykjabr. 19, Þorlákshöfn, Erlingur Jónsson, Hólagata 15, Sandgerði, Baðstofan Grindavík, Þel Hárhús, Keflavik, Apotek Akranes, Heilsuræktin Borgarnesi. Partreksapotek, Patreksf., Helga Kristinsd., Móholt 2, Ísafirði, Kristín Gunnlaugsd.. Brimnesv. 28, Flateyri, Siglufjarðarapotek. Stjörnuapotek, Akureyri, Apotek Akureyrar, Blönduósapotek, Dalvíkurapotek. Sauðárkróksapotek. Apotek Austurlands. Seyðisfirði, ><rvt«intikktin Dugguvogi 7, sími 35000 PÖNTUNARSÍMI 35000 OKKUR ER ANNT UM HEILSU ÞÍNA Fimmtudagur 2. ágúst 1984 6 LÚSUGIR MÖRLANDAR úr ferðabókum 18. aldar ■ Island er ævintýralegt land í augum margra erlendra ferðamanna. Eldfjöllin, jöklarnir og hverirnir virðast óþrjótandi undrunarefni örþreytts stórborgarbúans. Á 18. og 19. öld var landkönnun og náttúruskoðun vinsælt sport hjá einstaklingum og nýlendusöfnun og heimsvaldastefnu hjá þjóðum. Hingað til íslands komu ýmsir erlendir landkönnuðir og náttúruskoðarar á þessum tíma. Þessir ferðalangar kynntust ekki aðeins náttúruundrum landsins heldur einnig íslending- um sjálfum, háttum þeirra og siðum. í ferðalýsingum þeirra eru íslendingar jafnan sjálfhælnir, hjátrúarfullir einfeldningar og hinir mestu sóðar. Henry Holland læknir var í leiðangri skoska aðalsmannsins Sir George Stewart Mackenzie 1810. Hann segir í bók sinni „Dagbók í íslandsferð 1810“: „Svipur höfuðborgar íslands - því að það er Reykjavík - séð frá sjónum getur á engan hátt orðið staðnum í vil. Hið eina, sem auganu mætir, eru nokkur timburhús í óreglu- legri þyrpingu á sjávarbakkanum, og að baki þeirra er afkáraleg bygging, sem kölluð er dómkirkja.“ Leiðangurs- menn voru kynntir biskupi landsins og átu með honum morgunverð. „Hið fyrsta, sem vekur athygli í útliti hans er, hversu óhemju gildvaxinn hann er. Má segja að hann sé næstum því hnöttóttur í laginu. Biskupinn virtist njóta hins ágæta morgunverðar mjög vel. Hann er holdugur með fádæmum, en jafnframt gæddur óvanalegri gaman- semi oggóðvildarhug. Hr. Fell skýrði honum frá því, að liann hefði Hutt með sér ofurlítið afoblátum til kirkju- legrar þjónustu á íslandi. En biskup svaraði með hjálp túlksins: „Segið þessum heiðursmanni, að íslenska kirkjan hefði einnig getað þegið dálít- ið af víni,“ og hló hjartanlega við.“ Ólafur Stephensen stiftamtmaður bauð þeim til sín, en hann bjó í Viðey. „Ólafur stiftamtmaður tók á móti okkur í húsdyrum sínum. Hann er nú gamall maður, gráhærður og mjög virðulegur í framgöngu. Hann var klæddur einkennisbúningi danskra lífvarðarforingja, með þrí- strendan fjaðurskreyttan hatt, í skarlats- frakka með axlarskrúði og ýmsu öðru skrauti, bláum buxum og stígvélum með silfursprotum. Þetta var embættis- búningur hans...og klæddist hann honum við öll hátíðleg tækifæri, en til þeirra taldi hann heimsókn okkar...það var ekki erfitt verk að kynnast skaphöfn hans. Hégómagirn- in er þar drottnandi eiginleiki, og mundi hún valda þeim, sem umgang- ast hann, mikilli skapraun, ef hún væri ekki miiduð af þeim virðuleika, sem aldur hans, staða og aðrar kring- FRÍDAGUR VERSLUNARMANNA Árni Björnsson cand. mag. útlistar: ■ „Frídagur verslunarmanna kom fyrst til sem nokkurs konar sumarfrí en á þeim tíma tíðkuðust ekki sumar- frí eins og þau gerast í dag. Hann var fyrst haldinn 13. september 1894 og næstu tvö árin í ágúst en þó ekki á neinum ákveðnum degi. Svo árið 1897 var ákveðið að frídagurinn skuli haldinn á föstum mánaðardegi þ.e.a.s. 2. ágúst en það stafar af því að það var gamli þjóðhátíðardagurinn frá 1894. Þannig var þetta fram yfir 1930 en þá kemur sú breyting á að dagurinn er haldinn fyrsta mánudag í águst. í fyrstu var dagurinn haldinn að Ártúni við Elliðaár en síðar var tekið að fara í skemmtiferðir í nágrenni Reykjavíkur. Síðan frá árinu 1935 og fram að síðari heimstyrjöld voru haldnar samkomur á Þingvöllum. Eft- ir þann tíma fór frídagur verslunarm- anna að verða almennur frídagur alls vinnandi fólks.“

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.