NT - 02.08.1984, Side 10
ABOT
Fimmtudagur 2. ágúst 1984 10
mannahelgina
■ Um verslunarniannahelg-
ina fara margir art hugsa sér til
hreyfings og þá helst út á
íslenska landsbyggð. En fyrir
þá sem eru svo vel efnum búnir
að geta brugðið sér út fyrir
landsteinana er París kjörin
borg til að upplifa ævintýralega
helgi. En það er margt annað
hægt að sjá en Effelturninn og
Louvre-safnið, eins og Oddný
Sen kvikmyndagerðarnemi í
París leiðir í Ijós í eftirfarandi
dagskrá um verslunarmanna-
helgi.
A föstudeginum er agætt að
byrja helgina á hinum frábæru
tyrknesku böðum í Moskunni,
sem er viö jurtagarðinn fræga
í 5. hverfi (Metro Place Monge
eða Jussieu). Byrjað er á að fá
sér myntute í forgarði bað-
anna, til upphitunar og til að
koma sér í stemmningu, og
síðan er stigið inn fyrir þykkt
fortjald. Þátekurviðsérstakur
búningasalur með pálmatrjám
og gosbrunni, þar sem er af-
klæðst og gengið inn í aðalböð-
in. Þau samanstanda af nokkr-
um misheitum sölum í fornum
kvennabúrsstíl, með marmara-
pöllum og súlum þar sem hægt
er að liggja tímunum saman,
snurfusa sig og laía nudda sig.
Að afloknum böðunum er leg-
ið í svalandi búningasalnum,
þar sem hægt er að láta færa
sér myntute, og upplagt er að
hafa með sér ávexti til að narta
í. Tekið skal þó fram að í
Moskunni eru aðskildir tímar
fyrir konur og karla, en hægt
er að fara í annað baðhús
(Metro Belleville), þar sem
eru tímar fyrir bæði kynin,
saman.
Þar sem fólk verður oft
þreytt eftir slík böð, er ágætt
að taka kvöldinu með ró og
bregða sér á rússneskan veit-
ingastað í grennd við Mont-
parnasse, sem heitir „Domen-
ique“ og er á rue Vavin (Metro
Vavin). Mæli ég þá sérstaklega
með hinni frábæru rússnesku
súpu í forrétt, Boeuf Stroga-
noff í aðalrétt og svartri trá-
berkjaköku í eftirrétt. Eftir
matinn er hægt að reika á milli
bara í nágrenninu og fá sér
Ijúffenga kokteila og líkjöra.
Laugardagurinn felur í sér
hápúnkt helgarinnar, og er
nauðsynlegt að vera vel út-
hvíldur fyrir kvöldið. Um
daginn, ef fólk vill endilega
vera á ferli, er hægt að sitja á
kaffihúsum eða nota tækifærið
til að sjá eitthvað af því geysi-
mikla úrvali kvikmynda sem
boðið er upp á í París. Fyrir
kynhverfa eru kaffihús t.d. í
LeMarais-hverfinu. Kvöldið
byrjar á stórum og glæsilegum
veitingastað sem heitir „Term-
inus Nord“, og er beint á móti
Gare du Nordj sem er ein af
aðalbrautarstöðvum P'arísar.
Staðurinn er að sjálfsögðu þak-
inn speglum og pálmum, og er
byggður í Art Nouveau-stíl,
að ég held. Þar er hægt að fá
góða fiskrétti og mæli ég sér-
staklega með gratineruðum
kræklingum, en best er að
mæta snemma, annars þarf að
standa í biðröð. Á eftir hinum
dásamlega mat er farið yfir á
aðra brautarstöð, Gare Saint-
Tyrkneskböð
og næturdúr
í París um
verslunar-
Lazare, en í nágrenni hennar
er staðurinn þar sem nóttinni
verður eytt. Gengið er upp
skuggalegan brunastiga og
hurð opnuð, sem engum dytti
í hug að væri inngangur að
einum furðulegasta næturstað
Parísar. Gengið er inn í þykk-
an reykjarmökk, þar sem glitt-
ir í undarlega klædda veislu-
gesti, sem reika um eða dansa
með alla vega lituð kokkteils-
glös í höndum. En það sem
einkennilegast er við þennan
stað eru næturdýr sem geymd
eru í glerbúrum sem notuð eru
í stað borða, uglur, leður-
blökur og sjávardýr, ásamt
eyðimerkur- og murmeldýr-
um. Þarf enginn að efast um
lystisemdir þessa staðar.
Sunnudagurinn er oft dagur
þunglyndis, og verður því að
Ieggja sérstaka rækt við hann.
Þá er best að reika um garðana
við Signu (Tuileries-garðana),
þó persónulega sé ég þó hrifn-
ust af Luxembourargarðinum
við Boulevard Saint-Michel.
Síðan er hægt að bregða sér
yfir íbúðar- og kaffihúsahverf-
ið á milli Les Halles og Centre
Pompidou og líta í fataverslan-
ir, sem oft eru opnar á sunnu-
dögum. Síðan er best að setjast
á einhvern barinn og fá sér
aperitíf, áður en haldið er inn
í eitt af skuggahverfum Parísar
til að fá sér að borða exótískan
mat. En það er á „Le Poéte
ivre“ sem er veitingahús á rue
Léopold Bellan í Saint-Denis-
hverfi, sem er einmitt til hliðar
við hverfið sem við vorum í
(Métro Strasbouro Saint
Denis): Á þessum stað er hægt
að fá einhvern þann besta
thailenska mat sem um getur,
og exótíska drykki áður en
flogið er brott um miðnættið.
Ferðabækur
Góður
í farangrinum
■ . .—- --n ■ Ferðabækur í far-
angrinum geta gert
ferðalagið mun
ánægjulegra en ella.
Þar er gjarnan ýmis-
legt athyglisvert að
finna.
NT tók því saman
stuttan lista yfir ferða-
bækur sem gætu kom-
ið að gagni fyrir þá
sem hafa áhuga á.
Vegahandbókin
Ársrit Útivistar
Vötn og Veiði
Veiðimaðurinn
Ársrit ferðafélaganna
Útivistar og Ferðafé-
lags íslands, Tímarit-
ið Áfangar
Einnig er bók
Snorra Grímssonar
um Gönguleiðir á
Hornströndum og
Jökulfjörðum nauð-
synleg ef ferðinni er
haldiðáþessarslóðir.
■ Hluti af því úrvali ferða-
bóka sem á boðstólum er í
bókabúðum
kostur
Ferðist áhyggjulaust um Island.
Við bjóðum eftirtaldar ferðir í sumar:
Askja - Sprengisandur 12 daga tjaldferð. Verð kr. 12.000.
Brottför mánudagana 6.13. og 20. ágúst.
Öræfi - Kverkfjöll - Sprengisandur, 12 daga tjaldferð.
Verð kr. 12.500.
Brottför mánudaginn 6. ágúst.
Töfrar Suðurlands, 7 daga hótelferð. Verð kr. 9.500.
Brottför á fimmtudögum frá 9. ágúst til 13. september.
í öllum ferðunum er innifalið: Gisting, fuilt fæði og
leiðsögn.
Reykjavík - Sprengisandur - Mývatn
Alla miðvikudaga og laugardaga í ágúst.
Mývatn - Sprengisandur - Reykjavík.
Alla fimmtudaga og sunnudaga í ágúst.
í Mývatnsferðunum er nestispakki innifalinn.
Bókið tímaniega.
Allar nánari
upplýsingar veitir:
Ferdaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar
Borgartuni 34. 105 Reykjavik. simi 83222