NT - 13.08.1984, Page 1
Er gleraugnasala
Hagkaupa hættuleg?
Varnir gegn gláku og sykursýki brostnar
hægfara
na-
en
■ ...„algengi
gláku er svipað og í
grannalöndum okkar
færri ganga með hægfara
gláku hérlendis en þar í
landi sem gleraugnasér-
fræðingar annast gleraugna-
mátun.“ Þannig segir í
niðurlagskafia greinar Guð-
mundar Björnssonar augn-
læknis um gláku í síðasta
hefti Læknablaðsins.
Samkvæmt niðurstöðum
Guðmundar er augnskoðun
Bretar
velta
■ Bresk fimm manna fjöl-
skylda var flutt á sjúkrahúsið á
Hvammstanga síðdegis á
laugardag eftir að Land Rover
jeppi þeirra fór út af veginum
fyrir sunnan bæinn og valt.
Meiðsli fólksins reyndust ekki
teljandi. Aftur á móti brotnaði
framrúða jeppans og hægra
frambretti hans beyglaðist.
Ökumaður jeppans hafði
ekið bifreið sinni út í vegarkant,
þegar hann mætti öðrum bíl.
Kanturinn var mjög blautur eft-
ir rigningarnar undanfarið og
skipti engum togum, að hann
gaf sig og jeppinn valt ofan í
skurð.
hjá augnlækni allra þeirra
sem þurfa á gleraugum að
halda nauðsynleg til þess að
koma í veg fyrir að hægfara
gláka geti leitt til alvarlegra
sjónskemmda og blindu.
Sjúkdómurinn herjar nær
eingöngu á þá sem komnir
eru yfir miðjan aldur og er
talið að 3-4% allra sem
komnir eru yfir fimmtugt fái
gláku. Auk þessa er sykur-
sýki sama marki brennd að
leynast vel og uppgötvast
fyrst við almenna augn-
skoðun vegna algengra
sjóngalla eins og fjarsýni.
Sjá nánar á bls. 9
■ Carl Léwis sannaði það á Ólympíuleikunum í Los
Angeles að hann er einn mesti íþróttamaður sem uppi er
í heiminum. Hann vann það einstaka afrek að vinna fern
gullverðlaun í frjálsum íþróttum og jafnaði þar með met
Jesse Owens, sem hann setti á Ólympíuleikunum í Berlín
1936. POLFOTO-Símamynd
■ Eins og sjá má á þessari mynd, sem Héðinn Helgason á
Húsavík tók fyrir NT í gær, er bifreið Japananna mjög illa farin.
Sjá nánar fréttir, kort og myndir á bls. 4.
Japanarnir sem fórust:
Úrðu viðskila við
íslendinga...
Skömmu áður en sá hörm- anarnir af.
ungaratburður átti sér stað við
upptök Skjálfandafljóts á föstu
dag að þrír Japanar fórust í
Rjúpnabrekkukvísl höfðu þeir
verið í samfloti við aðra ferða-
menn sem fóru á fund kunnugs
manns í skála við Gæsavötn og
fengu þar upplýsingar um að
kvíslin væri með öllu ófær.
Þessum upplýsingum urðu Jap-
Ekki varð vart við atburðinn
fyrr en nærri hálfum sólarhring
síðar en þá hafði einum mann-
anna tekist að komast upp úr
ánni og skríða um 150 metra
leið eftir bakkanum en hefur
látist af vosbúð og áverkum
sem hann fékk í ánni.
Sjá nánar á bls. 4.
Flatey á Breiðafirði:
Kærðir f
ölvunará
Útlendingur drukkn
ar á Suðurlandi
■ Víðtæk leit að rúmlega
tvítugum breskum ferða-
manni, sem féll í Skógá í gær
bar ekki árangur. Leituðu
björgunarsveitir fram í
myrkur í gærkvöldi. Leit
hófst svo aftur kl. 8 í morgun
. og eru skilyrði til leitar að-
eins betri í dag en gær.
Maðurinn var að vaða yfir
Skógá, ásamt unnustu sinni,
þegar slysið varð, en þau
höfðu komið gangandi úr
Þórsmörk yfir Fimmvörðu -
háls.
Stúlkunni tókst að komast
yfir ána, sem þykir með ólík-
indum því áin var mjög
vatnsmikil. Þaðan fylgdi hún
gönguslóða til byggða, þar
sem hún lét vita um slysið.
Sjá nánar á bls. 4.
■ Þau eru af ýmsum toga,
ævintýrin, sem menn lenda í
um verslunarmannahelgina.
Þannig fóru tveir menn, sem
voru að skemmta sér í Flatey
á Breiðafirði í óvænt ferða-
lag til Patreksfjarðar til þess
að gefa skýrslu um grunaða
ölvun við akstur úti í eynni.
Málsatvik voru þau, að
mennirnir tveir, sem báðir
eru gamlir eyjaskeggjar,
ákváðu að gera við bíl, sem
annar átti, á laugardeginum.
Þeim tókst að gangsetja öku-
tækið og fóru í reynsluakstur,
sem stóð til um kl. 22, er
bensínbirgðir voru á þrotum.
Fóru þeir þá að skemmta sér
með öðrum eyjaskeggjum.
Það var svo kl. 04 aðfara-
nótt sunnudagsins, að þrír
lögregluþjónar frá Patreks-
firði birtast og segjast vera
komnir til að færa þá til
skýrslutöku í höfuðstöðvun-
um vegna ölvunaraksturs.
Var siglt til Brjánslækjar og
ekið þaðan til Patreksfjarð-
ar, þar sem skýrslugerð mun
hafa tekið um 4 klukku-
stundir. Að henni lokinni
voru mennirnir fluttir aftur
út í Flatey og komu þangað
undir hádegi á sunnudegin-
um.
Mál mannanna er nú til
meðferðar hjá sýslumanni
Barðstrendinga.
Þoss má geta, að aldrei
hefur nokkur maður verið
tekinn vegna ölvunar undir
stýri í Flatey. Og mennirnir
tveir segja, að þeir hafi ekki
verið með Bakkus f fartesk-
inu í ökuferðinni um eyna.
Þjófur í Grindavík:
15 innbrot á
einum mánuði
- sökudólgurinn
gengur enn laus
■ Innbrotafaraldur
hefur gengið yfir
Grindavík undanfarinn
mánuð og á þeim tíma
hefur verið brotist inn í
fimmtán fyrirtæki og
íbúðarhús. Síðast var
brotist inn aðfaranótt
sunnudagsins 5. ágúst
og fór þjófurinn þá inn
á fimm staði.
Þessi óboðni gestur
hefur haft lítið upp úr
krafsinu, en hann hefur
unnið töluverðar
skemmdir á þeim
stöðum, sem hann hef-
ur farið um. Lögreglan
telur, að þarna sé um
einn og sama manninn
að ræða og er auðséð af
öllu, að hann þekkir vel
til staðhátta. Ekki hefur
enn tekist að hafa hend-
ipr í hári hans.