NT - 13.08.1984, Side 2
_________________________ Mánudagur 13. ágúst 1984 2
Fróttir
*
Alþýðubankinn hækkar tékkavexti mest:
„Erum einu sinni
banki launþega,,
- segir Stefán M. Gunnarsson, bankastjóri
■ „Þessir reikningar eru fyrst
og fremst launþegareikningar,
og við viljum gera vel við launþega
með því að hækka þessa vexti
verulega. Við erum nú einu
sinni launþegabanki," sagði
Stefán M. Gunnarsson, banka-
stjóri Alþýðubankans í samtali
við NT í gær, en Alþýðubankinn
sker sig úr með nýju banka-
vaxtaákvarðanirnar, sem taka
gildi í dag með því að þrefalda
vexti á ávísanareikningum, upp
í 15%.
I Búnaðarbankanum verða
Áramótareglan í barnabótum:
„Allt pólitísk
matsatriði“
- segir Árni Kolbeinsson deildar-
stjóri í f jármálaráðuneytinu
■ „Túlkunin á þessu ákvæði
eru engum vafa undiropin í
mínum huga, þ.e. eins og lögin
eru orðuð verða þau varla
skilin öðruvísi en svo, að barna-
bótarétturinn velti á heilum
árum. Hvort það er hins vegar
hið endanlega réttlæti vil ég
ekkert fullyrða um, frekar en
hvort bæturnareru nákvæmlega
hæfilega háar, hvort þær eigi
endilega að hætta við 16 ára
aldur, hvort réttlætanlegt sé að
skipta þeim við 7 ára aldur og
hvort tekjumörkin í tenging-
unni við barnabótaaukann séu
rétt. Þetta eru allt pólitísk mats-
atriði, sem hver verður að svara
fyrir sig, en til að breyta þeim
þyrfti tvímælalaust lagabreyt-
ingu," sagði Árni Kolbeinsson,
deildarstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, spurður um túlkun
ákvæðisins um barnabætur. En
þar segir: „Með hverju barni
innan 16 ára á tckjuárinu skal
greiða...“ og svo framvegis,
eins og sagt var trá í NT fyrir
helgi.
Árni kvað rétt, að barnabæt-
ur hafa vegið misjafnlega mikið
milli ára, þ.e. hversu mikið
peningaspursmál þær eru fyrir
móttakendur þeirra hverju
sinni. „Og með því að setja
láglaunabæturnar í barnabóta-
auka þetta árið, þá vegur þetta
auðvitað þyngra en oft áður,"
sagði Árni. Hann benti þó á að
það ákvæði gildir aðeins nú í ár
nema að það vcrði framlengt
með nýjum lögum.
Barnabæturnar sagði Árni
eiginlega sambland af tvennu.
Annars vegar fjölskyldubótum
frá Tryggingastofnun, sem áður
giltu og miðuðust við fæðingar-
mánuð, og hins vegar persónu-
afsláttarívilnun vegna barna,
sem var í gömlu skattalögunum,
sem miðaðist við árið. Þetta
hafi svo vcrið sameinað í barna-
bótakerfinu frá 1974.
Heykaup NT
■ Umsvif hins nýja blaðs
NT aukast dag frá degi þrátt
fyrir hrakspár samkeppnis-
aðila. Það er því starfs-
mönnum blaðsins jafnt
dropahöfundi sem öðrum
ánægjuefni að heyra hversu
mikla trú allur þorri almenn-
ings hefur á fyrirtækinu. En
allt er best í hófi segir þó
máltækið og rifjaðist það upp
nú á dögunum.
Tíðindamanni á fréttavakt
varð það á að hringja í
ónefnt skipafélag hér í borg
og spyrjast fyrir um verð á
heyflutningum milli Reykja-
víkur og höfuðstaðar Norður-
lands. I vinnslu var að skrifa
um markaðsverð á heyi og
því byrjaði símtalið á þessari
sömu klisju og öll hin, „Þetta
er á NT, NN blaðamað-
ur...“ Síðan spurði sá liinn
sami um flutningsgjaldið á
heyinu. „Já, er það mikið
magn sem þú ert að hugsa
um“. „Ja, bara hvað kostar
almennt að flytja kílóið af
heyi". „Já, já er þetta fyrir
blaðið sem ykkur vantar
þetta," svaraði sölumaður-
inn og hefur vafalítið búið
sig undir að skrifa niður
pöntun vegna heyflutninga
fyrir NT norðan af landi.
Blaðamaður bíður þess
nú bara hvað skeður næst
þegar hann hringir í Slökkvi-
liðið til þess að afla frétta...
Söfnuðu glerjum
upp í skattana
■ Eftir að dagblöð fóru að
hnýsast í skattana hjá fólki,
og skattskráin fór að „liggja
'frammi," hefur áhugi Frón-
búans fyrir því hvað náung-
inn greiðir í opinber gjöld
farið hraðvaxandi. Opinber
gjöld flestra kaupenda Stiga-
hlíðarlóðanna margum-
ræddu vöktu þannig hneyksl-
un og heilaga reiði margra
þeirra sem ekki höfðu efni á
síku braski, og víðar hcfur
soðið upp úr.
í Vestmannaeyjum hafa
allmargir iðnaðarmenn sem
starfa sjálfstætt fengið að
„heyra það“ síðan skattskráin
tékkavextir óbreyttir, 5%, en í
Útvegsbankanum og Samvinnu-
bankanum hækka þeir í 7%, í
Landsbankanum hækka vext-
irnir í 9% og í Verslunarbank-
anum og Iðnaðarbankanum
verða þeir 12%.
Hugmynda-
samkeppni
um tjald-
svæðabúnað
■ Ferðamálaráð hef-
ur ákveðið að efna til
hugmyndasamkeppni
um búnað á tjáldsvæð-
um. Tilgangurinn með
keppninni er að fá til-
lögur um ýmiskonar
búnað sem nota má
á tjaldsvæðum
og útivistarsvæðum
víðs vegar um landið.
Alls verður 205 þús.
krónum varið til verð-
launa.
Keppnisgögn verða
afhent í byrjun ágúst en
frestur til að skila til-
lögum rennur út í lok
október.
Trúnaðarmaður
dómnefndar er Þórhall-
ur Þórhallsson, starfs-
maður Arkitektafélags-
ins, Freyjugötu 41,
sími: 11465.
kom út. Þeir sem hér um
ræðir hafa 0 krónur í skatta,
eða fá greitt til baka, en hafa
þó flestir haft nóg að gera.
Iðnaðarmenn þessir fengu
þó mest að heyra á þjóðhá-
tíðinni, eftir að kunningjarn-
ir höfðu vætt aðeins kverk-
arnar. Gekk hátíðin síðan
með glósum, en tók þó tapp-
ann úr er trésmiður úr títt-
nefndum hópi gekk um Dal-
inn eina nóttina með poka af
tómum glerjum. Varð það
fljótt altalað að kappinn væri
að safna glerjum til að hafa
upp í skattana...
■ SlökkvUiðsmenn þurftu að rífa nokkrar þakplötur af bflaverkstæði B.M. Vallár til að ráða niðurlögum
elds, sem kom þar upp í gær. Slökkvistaríið tók ekki nema um tíu mínútur.
NT-mynd: Sverrir
Eldur hjá B.M. Vallá:
Bifreiðaverkstæðið
skemmdist lítillega
■ Bifreiðaverkstæði steypu-
stöðvarinnar B.M. Vallá
skemmdist lítillega í eldsvoða
um hádegi í gær. Einnig urðu
nokkrar skemmdir á bílum, sem
voru þar inni. Einn maður var að
störfum, þegar eldurinn kvikn-
aði, en hann sakaði ekki. Talið
er að logsuðutæki hafi valdið
brunanum.
Þegar slökkviliðsmenn komu
á vettvang, var verkstæðið fullt af
reyk. Eldur var í bíl og plastein-
angrun í lofti, og einnig komst
eldur í þak yfir skrifstofu-
húsnæði. Þurftu slökkviliðsmenn
að rífa nokkrar þakplötur af til
að ráða niðurlögum eldsins, en
það verk tók ekki nema tíu
mínútur.
Slökkviliðið sendi 4 bíla á
staðinn og kallaði út aukavakt.
Einn af brest-
unum í kerfinu
segir Jóhanna Kristjónsdóttir, form. FEF
■ „Þetta er einn af þessum
brestum í kerfinu sem ekki
hefur tekist að fá lagfærða",
sagði Jóhanna Kristjónsdóttir,
formaður Félags einstæðra for-
eldra spurð hvort það komi ekki
illa við marga einstæða foreldra
að fá ekki barnabætur með
börnum þeirra sem voru aðeins
15 ára kannski nær allt s.l. ár.
og munað getur viðkomandi
jafnvel hátt í 30 þús. krónumí
formi barnabóta og skattfrá-
dráttar, eins og fram kom í NT
fyrir helgi.
„Auðvitað er þetta afskap-
lega fáránlegt. En það eru alltaf
að koma upp einhver göt sem
skapa ákveðið misrétti, t.d. með
börn látinna foreldra sem ekki
er hægt að sækja um framlengt
meðlag fyrir, vegna þess að það
er enginn til að samþykkja það
- viðkomandi er hjá Guði og
hann hefur engan umboðs-
mann hér", sagði Jóhanna.
„Það er búið að viðurkenna
að þetta sé rangt - en hins vegar
hefur engin leiðrétting fengist á
því. Jafnvel þótt það skipti litlu
sem engu máli fyrir ríkiskassann
þá gengur óskaplega seint að fá
lagfæringar á ýmsum fráleitum
og ranglátum lagakrókum, sem
hlýtur að stafa af linku þeirra
sem sjá um lagasetninguna".
Egilsstaðir:
Úppfinningamaður
með verksmiðju
■ Jóhannes Pálsson uppfinn-
ingamaður í Danmörku hefur
nú komið heim með nokkrar
uppfinningar sínar og austur á
Egilsstöðum er þegar hafin
framleiðsla á tveimur þeirra.
Annars vegar er um að ræða
sallasafnara, lítinn gúmmíhólk,
sem settur er framan á bora.
Ryksallinn safnast þar saman í
stað þess að detta á gólfið.
Þegar hólkurinn er svo orðinn
fullur, er hann tekinn af og hellt
úr honum.
Hin vörutegundin er sérstök
tegund aurhlífa, sem hentar
öllum tegundum bifreiða. Og
vilji menn hafa aurhlífina
merkta tegundarheiti bílsins, er
auðvelt að renna bókstöfum inn
í þar til gerðar raufar á aurhlíf-
inni.
í næsta mánuði verður svo
hafin framleiðsla á gúmmímott-
um fyrir frystihús og einnig er
áformað að framleiða hvíta
gúmmíhringi til að setja á hjól-
barða bifreiða.
Tveir menn starfa í verk-
smiðjunni eins og er, en þeim
mun væntanlega fjölga, þegar
framleiðsla verður komin í full-
an gang.
Slippurinn:
Bruni í
togara
■ Eldur kom upp í
togaranum Gylli ÍS,
þegar verið var að
skipta um járnplötu í
sfðu hans í slipp í
Reykjavík á laugar-
dagsmorgun. Kviknaði
í einangrun, en
skemmdir urðu litlar.
Engan sakaði.