NT - 13.08.1984, Síða 4
Mánudagur 13. ágúst 1984 4
Bílaleigubíllinn úr Reykjavík eins og hann leit út á Húsavík í gærdag. NT-m>nd: Héðinn Heigason ■ Bifreið björgunarsveitarínnar var komin á slysstaö strax á laugardeginum, þar sem Haukur Logason
Slysið við upptök Skjálfanda:
lók þessa mynd fyrir NT.
Einn skreið 150 m
upp f rá bakkanum
NT-mynd: Haukur Logason
Lík Japananna þriggja fundin. Aðstandendur væntanlegir til landsins
■ Með í förínni frá Húsavík var vörubifreið, sem flutti Löduna til
baka. NT-mynd: Haukur Logason.
Breskur ferðamaður féll í Skógá:
Leitin heldur
áf ram í dag
- unnusta hans komst yfir ána
■ Síðdegis í gær fannst lík
þriðja Japanans sem fórst í
Rjúpnabrekkukvísl við Vatna-
jökul þar sem Skjálfandafljót á
upptök sín. Lík hinna tveggja
fundust í gær og hafði öðrum
þeirra tekist að komast upp úr
ánni og skríða 150 metra frá
ánni en hann var eins og félagar
hans mjög lemstraður og meðal
annars lærbeinsbrotinn. Áin
rennur á þessum slóðum á
eggjagrjóti og var bifreið Japan-
anna öll rifin og tætt eftir ótal
■ „Það er umhugsunar vert að
þetta skuli vera merkt sem fær
sumarleið fyrir fjórhjóladrifs-
bíla athugasemdalaust. Þrjá
daga í röð höfum við nú fengið
útkall vegna útlendinga sem álp-
ast á fjöll án leiðsagnar kunnug-
ra,“ sagði Hörður Þórhallsson
formaður Björgunarsveitarinn-
ar Garðars á Húsavík í samtali
við NT. Útköllin.sem um ræðir
eru vegna útlendings sem týnd-
ist í Dimmuborgum á fimmtu-
dag, slyss á þýskri konu í Herðu-
breiðalindum á föstudag og
vegna slyssins í Rjúpnabrekku-
kvísl á laugardag.
„Ekki það að við teljum neitt
eftir okkur að fara af stað vegna
þessa en þegar verða banaslys
þá er ástæða til umhugsunar.
Skálavörður í Nýjadal vissi af
veltur í ánni. Aðstandendur
mannanna eru væntanlegir til
landsins á næstu dögum.
Mennirnir voru á aldrinum 18
til 36 ára og er talið að það hafi
verið lík þess yngsta sem fannst
síðast. Skilríki tveggja þeirra
hafa fundist í farangri sem rak
upp en ekki verða borin örugg
kennsl á líkin fyrr en maður
þeim kunnugur ier norður á
Húsavík í dag. Bifreiðin sem
var af gerðinni Lada sport var
tóm og hafði straumurinn skol-
alls 33 mönnum gangandi þarna
um svæðið meira og minna án
leiðsagnar og þegar við vorum
að leita þarna var einn maður á
gangi með bakpoka." Þá sagðist
Hörður vita til þess að umrædd-
ur vegur yfir Rjúpnabrekku-
kvísl væri heflaður árlega en
aðrar viðgerðir væru ekki gerð-
ar á honum. Ekkert skilti er við
veginn sem varar við ánni en í
ferðahandbókinni er í kafla um
þessa leið varað við vatnavöx-
tum í ánni. Annarsstaðar í
upplýsingum handa ferða-'
mönnum er lítið eða ekkert um
aðvaranir vegna fjallvega og
töldu viðmælendur blaðsins að
ferðaskrifstofur bæði hérlendis
og erlendis og væru illa búnar af
leiðbeiningum til viðskiptavina
sinna og þetta ætti sérstaklega
við um þær erlendu.
að öllu lauslegu innan úr henni.
Miklir vatnavextir voru í ánni
og er talið að hún hafi verið 1,80
metrar á dýpt þegar slysið átti sér
stað en ekki nema 80 sentimetra
djúp þegar leitarmenn hófu
störf á laugardag. Hefur bifreið
þeirra þegar lent í straumnum
og borist stjórnlaust eftir botni
árinnar tæpan kílómetra.
Mennimir höfðu tjaldað í Dreka-
gili aðfaranótt föstudagsins og
síðan verið í samfloti við íslenska
ferðalanga áföstudaginn. Þegar
nærri dró slysstáðnum skildu
þeir við Islendingana. Islend-
ingarnir héldu á fund Davíðs
Sigurðssonar jöklafræðings sem
dvelur í kofa við Gæsavötn og
fengu þar fréttir af því að
Rjúpnabrekkukvísl væri með
öllu ófær. Fullvíst er talið að
Japanarnir hafi ekki verið fleiri
en þrír í bílnum.
Áin liggur mjög nærri
jökulrótum og er hitastig
vatnsins í henni rétt um núll
gráðu heitt að sögn lögreglu og
leitarmanna sem NT ræddi við.
Hefur maðurinn sem komst
uppúr ánni látist af sárum sem
hann fékk í ánni og kulda enda
hvassviðri á þessum slóðum
undanfarna daga.
Leitin að mönnunum gekk
vel og fundust lík tveggja eldri
mannanna strax en upphaf þess
að fréttist af slysinu var að
fólk frá bænum Víðikeri í Bárðar-
dal keyrði fram á lík þess sem
hafði komist upp úr ánni. Lík
hins fannst fljótlega eftir að fólk
frá skálunum í Nýja-Jökuldal og
Gæsavötnum var komið á stað-
inn en líklegt er talið að lík þess
þriðja hafi fest. í botni og rekið
upp í gær eða fyrradagskvöld.
Hlýtt var á þessum slóðum þeg-
ar leit stóð yfir en hvassviðri og
mikið sandrok. Urðu leitar-
menn að hafa sérstök hlífðar-
gleraugu.
Japanarnir voru jarðfræði-
menntaðir og komu til landsins
2. og 3. ágúst, frá Bretlandi einn
þeirra en hinir tveir frá Eng-
landi. Þeir áttu allir bókað flug-
far frá landinu á laugardag en
slysið átti sér stað síðdegis á
föstudegi. Bifreiðina sem þeir
voru á höfðu þeir fengið á
bílaleigu í höfuðborginni. Hún
var á laugardag flutt á vörubíls-
palli norður á Húsavík og er
talin gjörónýt eins og meðfylgj-
andi myndir vitna.
■ Leit hófst að nýju kl. 8 í
morgun að breska ferðamannin-
um, sem féll í Skógá í gærdag,
um 8 kílómetra fyrir ofan Skóga.
Leitarflokkar leituðu mannstns
fram í myrkur í gærkvöldi, án
árangurs. Var leitað með ánni
frá slysstað og niður að sjó.
Skógá var óvenju vatnsmikil og
skítug í gær eftir rigningar síð-
ustu daga og gerði það leitar-
mönnum erfiðara fyrir. Farið
var að sjatna í henni í morgun.
Maðurinn kom gangandi,
ásamt unnustu sinni, frá Þórs-
mörk og yfir Fimmvörðuháls og
ætluðu þau að fara yfir ána á
vaði á Skógaheiði. Þegar þau
voru komin út í vatnið, misstu
þau fótanna. Stúlkunni tókst að
losa sig við bakpoka, sem hún
var með, og komst yfir, og þykir
með ólíkindum, að henni skyldi
hafa tekist það. Gekk hún eftir
merktri gönguleið niður að
Skógum, þar sem hún tilkynnti
slysið.
Leitarflokkar úr báðum Eyja-
fjallahreppum og Vík voru kall-
aðir út og fundu þeir bakpoka
mannsins rekinn upp á eyri, ein-
um kílómetra fyrir neðan slys-
staðinn. Leitarmenn sáu einnig
einhverja flík í gljúfri í ánni.
Ekki var vitað hvort hún til-
heyrði hinum týnda, þar sem
sigmanni tókst ekki að komast
niður að henni. Alls tóku 30-40
manns þátt í leitinni í gær.
■ TF-MYY var á lofti yfir Dimmuborgum í heila klukkustund í
leit að eldri manni sem kom þangað með stórum hóp ferðamanna.
Leitað af ferðamönn-
um þrjá daga í röð
Aðvörunum ábótavant og skipulagsleysi í
ferða mannaiðnaðinum