NT - 13.08.1984, Page 5
Ásgarður í höndum Grímsnesinga:
Ennverá15
milljónirnar
- lögerfingjar eða erfingjar jarðarinnar?
■ „f>etta fellur annaðhvort til
Skógræktar, Hjartaverndar og
Reykjavíkurborgar eða þá til
lögerfingja," sagði skiptaráð-
andi í dánarbúi Sigurliða Krist-
jánssonar og Helgu Jo'nsdóttur
aðspurður um hvert þær 15
milljónir sem nú hafa verið
greiddar fyrir jörðina Ásgarð
muni renna. Að öðru leyti viidi,
hann ekki tjá sig um skiptin á,
fénu en flestir viðmælendur
blaðsins töldu að hér væri
dómsmál í uppsiglingu.
Að erfðaskrá Sigurliða (Silla
í Silla og Valda) og konu hans
átti jörðin að renna til þriggja
fyrrnefndra aðila en áður en
Helga lést voru samþykkt lög
sem heimiluðu hreppsnefndum
forkaupsréttum að öllum jörð-
um þar sem eignabreyting yrði.
Eins og sagt var frá í NT í gær
hefur Grímsneshreppur nú nýtt
sér þessa heimild eftir 5 ára
málaferli um verð jarðarinnar.
Nú þegar þannig hefur verið
komið í veg fyrir að gjafabréf
jarðarinnar gangi eftir er í lausu
lofti hver hreppir þær 15 mill-
jónir sem hreppurinn var dæmd-
ur til að greiða. NT snéri sér til
nokkurra „erfingja" í þesu rnáli
en ekki tókst að ná í Sigurð
Blöndal skógræktarstjóra sem
hefur haft með þessi mál að
gera fyrir Skógræktina.
Forsendur erfða
skrár brostnar
- sagði einn lögerfingja sem NT ræddi við
■ „Pað er á valdi skiptaráð-
enda en forsendur erfðaskrár-
innar fyrir þessum höfðinglegu
gjöfum, eru náttúrlega
brostnar", sagði annar tveggja
fulltrúa lögerfingja Sigurliða
sem blaðið ræddi við. „Urn það
veit maður ekkert hvort þetta
verður dómsmál", sagði sami
maður sem ekki vildi láta nafns
síns getið í þessu sambandi.
„Við hefðum náttúrlega viljað
að hugur þeirra hjóna Sigurliða
og Helgu hefði gengið eftir en
það eru allar forsendur fyrir því
brostnar".
Þá hafði blaðið samband við
Sigurð Guðmundsson endur-
skoðanda sem einnig er erfingi
Sigurliða en hann kvaðst ekkert
hafa hugleitt neina kröfugerð
eða hvort forsendur erfðaskrár
séu brostnar enda kaupin alveg
nýfrágengin.
Ekki tókst að ná í neina af
lögerfingjum Helgu Jónsdóttur
en þau hjón eiga enga afkom-
endur á lífi.
Hjartavernd:
Verður
mál?
■ „Það hefur legið í loft-
inu að þetta verði
dómsmál, en hinsvegar er
það fyrst í liöndum skipta-
ráðenda að úthluta þessu
fé í samræmi við erfða-
skrána. Ef þeir telja að
okkur beri eitthvað af
þessu fé þá munum við að
sjálfsögðu taka við því“,
sagði Stefán Júlíusson
framkvæmdastjóri Hjarta-
verndar aðspurður um það
hvert hann teldi að um-
ræddar 15 milljónir eigi og
muni renna. „Þó svo að í
fljótu bragði finnist öllum
að þetta fé eigi að renna til
þeirra aðila sem annars
áttu að fá jörðina til skipta
er líklegast að það verði
dómsmál og þá munum
við láta okkar lögfræðing
í það mál.“
Aðspurður urn þau
málalok að hreppurinn
keypti jörðina sagði Stef-
án að þau málalok kæmu
sér ekki á óvart þar eð
ekki hefði verið erfitt að
fá kaup að jafn dýrmætri
jörð fjármögnuð. „Það er
hins vegar hart að þessi
síðasta ósk Sigurliða skuli
ekki ganga eftir en annars
þýðir ekkert að deila við
lögin og við viljum eiga
frið við alla menn."
f—.-fi •
Mánudagur 13. ágúst 1984 5
Átjánda með-
lagsárið dýr-
ara en önnur
fæst ekki dregið frá skatti
■ Hjá þeim sem sjá um
framfærslu barna sinna með
meðlagsgreiðslum með þeim
er 18. aldursárið nú mun
dýrara en önnur ár. Með-
lagsaldur barna var á síðasta
ári hækkaður úr 17 í 18 ár,
samkvæmt upplýsingum
Tryggingastofnunar ríkisins.
Sú regla í skattalögunum að
hálft meðlagið fáist sem frá-
dráttur frá skattskyldum
tekjum meðlagsgreiðenda
gildir hins vegar aðeins um
meðlag með börnum undir
17 ára aldri.
Af tekjuskattstofni yfir
340 þús. kr. á síðasta ári fara
nú 45% í skattinn. Hvort
meðlagsgreiðslur eru frá-
dráttarbærar eða ekki getur
því skipt þó nokkrum þús-
undum í tekjuskatti með-
lagsgreiðenda.
Reykjavíkurborg:
Ekkert ákveðið
- Getur orkað tvímælis, segir
Davíð Oddsson borgarstjóri
■ „Við erum ekkert farnir að um. Átti að sjá svo til að borgin
ræða þessi mál og því get ég kæmi upp einhvers konar
ekkert sagt um þau“, sagði drengjaheimili á jörðinni og
Davíð Oddsson en í erfðaskrá sagði Davíð að það gæti orkað
Sigurliða var borginni ætlaður tvímælis að gera kröfu í féð þar
ákveðinn hluti Ásgarðstjarnar- eð gjöfin hefði verið skilyrt í
innar en með ákveðnum skilyrð- erfðaskránni.
■ Framvarðarsveit IOGT. Frá vinstri: Trond Aasland frá Noregi, Ólafur H.
Árnason, Arvid J. Johnsen forseti IOGT, Helge J. Kolstad frkstj. IOGT og Dag
Endal æskulýðsfulltrúi IOGT, allir frá Noregi. Á endanum situr Hilmar Jónsson
stórtemplari.
Templarar með
menningarmót
■ Alþjóðlegri menningarráðstefnu
Góðtemplarareglunnar lauk hér á landi
fyrir helgi og voru forsvarsmenn hreyf-
ingarinnar mjög ánægðir með fram-
kvæmd hennar og þátttöku en um 200
manns frá 16 löndum munu hafa tekið
þátt í henni.
Á blaðamannafundi sem boðað var
til af forsvarsmönnum IOGT kom fram
að barátta þeirra beinist að þeim félags-
legu vandamálum sem áfengi og önnur
fíknilyf skapa í auknari mæli en verið
hefur. Reynt er að skapa samfélag sem
ekki þarfnast neinna vímugjafa en erfitt
mun vera að fylgja því starfi eftir í raun.
Það voru um 10 fjölþjóðahringir sem |
stjórnuðu allri áfengissölu í heiminum
og næmi upphæð þeirra fjármuna sem
þeir eyddu í auglýsingar á ári þreföldum
íslensku fjárlögunum.
Templarar hafa einnig verið virkir í
friðarhreyfingunni og telja sig elstu
friðarsamtök í heimi. Berjist þeir fyrir
friði og skilningi á milli allra þjóða
heimsins og þar sem þeir starfi bæði
austan járntjalds og vestan geti þeir
einir samtaka komið á samskiptum þar
á milli. Að sögn Hilmars Jónssonar
stórtemplara mun íslenska stórstúkan
stefna að því að taka þátt í friðar
starfi í ríkari mæli á næstunni.
Hvolfþök
Blómaskálar, garðstof-
ur, sumarbústaðir,
íbúðarhús og stærri hús
til hvers konar nota.
Gerum tilboð.
Hringið og fáið sendar
upplýsingar: 91-28033
virka daga 17.00-19.00
, s®
SPACE
FLOWER
Tilraunastofa Burðarforma
D.0. Box 62 121 Reykjavík
á vörubílahiólbörðum
NANG KANG frá Taiwan
900 x 20 -12 pl. framdekk .... Kr. 7.424,-
1000 x 20-14 pl. framdekk ..... Kr. 8.667,-
1000 x 20 -14 pl. afturdekk... Kr. 8.667,-
YOKOHAMA frá Japan
900 x 20 -14 pl. afturdekk.. Kr. 11.312,-
1000x20-12pl.framdekk ....... Kr. 12.998,- .
1000 x 20 -14 pl. framdekk .. Kr. 14.166,-
1000 x 20 -14 pl. framdekk .. Kr. 14.720,-
NOKIA frá Finnlandi
11R20-16 pl. framdekk ....... Kr. 17.281,-
11 R20-16 pl. afturdekk...... Kr. 18.328,-
Frábær greiðslukjör.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa.
Bestu kveðjur,
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5IMI 687300