NT - 13.08.1984, Page 8
Mánudagur 13. ágúst 1984
Ráðið gegn
sunnlenska
rosanum
■ „Aukinogbætt vot-
heysverkun er eitt ör-
uggasta varnarráð gegn
sunnlenska rosanum
um sláttinn. Fagnar
tundurinn því að vax-
andi áhugi er í héraðinu
á byggingu votheys-
geymslna," segir m.a. í
einróma samþykkt
aðalíundar Búnaðar-
sambands Suðurlands
sern haldinn var á Kirkju-
bæjarklaustri áður en
mesti rosinn skall yfir í
sumar. Má því ætla að
enn hafi þessi áhugi
aukist við margra vikna
sunnlenskan rosa.
Búnaðarsambandið
heitir á þingmenn
, Suðurlands og landbún-
aðarráöuneytið að
vinna að því að styrkur
til tækjabúnaðar í vot-
heysgeymslum verði
ekki minni en nú er
veittur út á súgþurrk-
unartæki í þurrheys-
hlöðum. Jafnframt vill
Búnaðarsambandið fá
tolla og önnur gjöld af
slíkum tækjabúnaði
njður fellda.
Samband vestfirskra kvenna:
Vill leiðréttingu á órétt-
látri skattlagningu hjóna
■ „Að loka bæklunardeildum sjúkrahúsa í sparnaðar-
skyni á sama tíma og felldur er niður skattur af
ferðamannagjaldeyri vegna skemmtiferða erlendis, telur
fundurinn ekki rökréttar sparnaðarráðstafanir“, segir í
samþykkt aðalfundar Sambands vestfirskra kvenna,
sem haldinn var á Flateyri nú nýlega. Jafnframt
mótmæltu konurnar eindregið þeirri hækkun á iæknis-
og lyfjakostnaði sem gekk í gildi 1. júní s.l.
bent er á að samgöngumál
séu undirstaða varanlegs
jafnréttis íbúanna, efna-
hagslega og menningar-
lega, hvar sem fólk sé bú-
sett á landinu.
„Það er lítilsvirðing við
stöðu húsfreyjunnar í þjóð-
félaginu að störf hennar
séu einskis metin í fjármál-
um hjóna til skattlagningar
- þvert á móti eru lagðar
þyngri byrðar á fyrirvinnu
heimilis þegar um einn er
að ræða heldur en ef tveir
afla teknanna", segir í sam-
þykkt aðalfundarins. Skora
vestfirskar konur á stjórn-
völd að leiðrétta það órétt-
læti sem nú viðgengst við
skattlagningu hjóna.
I samþykkt fundarins er
lýst ánægju með þá kennslu
í heimilisfræðum og hand-
mennt fyrir fólk á öllum
aldri sem haldið er uppi í
Húsmæðraskólanum Osk
á Isafirði. Telja konurnar
það ekki koma til greina að
ráðstafa húsnæði skólans án
samráðs við samtök kven-
félaga á Vestfjörðum.
„Samgöngumál eru
mannréttindamál" segir í
ályktun fundarins, þar sem
Seglbrettamót
á Laugarvatni
Frá Ingólfi Kjartanssyni frcltaritara NT á
Laugarvatni.
■ Um síðustu helgi var
haldið seglbrettamöt á
Laugarvatni, hið fyrsta
sinnar tegundar sem haldið
er þar. Keppendur voru 20.
Mótið stóð yfir í tvo daga
tvisvar báða
og var siglt
dagana. Siglingasamband
íslands stóð fyrir mótinu.
Sigurvegari var Jóhannes
Örn Ævarsson úr siglinga-
klúbbnum í Garðabæ. Torfi
Rúnar Kristinsson frá
Laugarvatni var annar og
Magnús Arnason var sá
þriðji.
Reiðnámskeið á Brjánslæk:
Knapar læra
nýjar listir
Aukinn áhugi á votheysverkun á Suðurlandi:
Plastturnarnir að
rísa hver af öðrum
■ Reiðnámskeið fyrir
börn og fulloröna hefur
undanfarna viku staðið yfir
á Brjánslæk á vegum Barða-
strandardeildar Hesta-
mannafélagsins Storrns.
Hugmyndin með því er
m.a. að æfa nýja knapa
fyrir hestamót Storms sem
haldið verður á Þingeyri nú
um helgina, jafnframt því
að glæða áhuga ungra sem
þeirra eldri á hestaíþrótt-
um.
Þjálfarinn Helgi H. Jóns-
son kvaðst hafa orðið var
við gífurlegan áhuga á
hestamennskunni meðal
þeirra 30-40 sem námskeið-
ið sóttu, ekki síst hjá börn-
um og unglingum. Hann
hafði hins vegar á orði að
fremur lítil hestaeign
manna á Barðaströnd hefði
komið sér nokkuð á óvart.
■ í Dalbæ í Gaulverja-
bæjarhreppi er nú risinn
fyrsti trefjaplastsvotheys-
turninn frá Fossplasti h.f. á
Selfossi, sem sagt var frá í
NT nýlega. Byggingarfélag-
ið Bær í Villingaholtshreppi
sá um að steypa plötu og
setja turninn upp, en það er
gcrt á þann nýstárlega hátt
að byrjað er á þakinu og
■ Fyrsti trefjaplaststurninn frá Fossplasti risinn í Dalbæ í Gaulverjabæjarhreppi við hliðina á nýju fjósi sem þar er einnig
verið að byggja í stað annars áratugagamals. NT-m>nd: st.ias.
síðan bætt neðan á það
hring eftir hring. Turninn í
Dalbæ er 6 metrar í þver-
mál og 10 metra hár, en
möguleiki er að hafa þessa
turna allt upp í 12 metra
háa. Stærðin er um 280-300
rúmmetrar. Ekki er talið
neitt því til fyrirstöðu að
hægt sé að koma við sjálf-
virkum losunarbúnaði í
trefjaplaststurnum þessum.
Már Ólafsson bóndi í
Dalbæ telur aukið geymslu-
rými fyrir vothey mjög
nauðsynlegt og nefndi sem
dæmi að allt það hey, sem
hann hirti í fyrra í turninn
sem hann á fyrir, hefði ella
orðið ónothæfuróþverri úti
Annar turninn frá
Fossplasti verður settur upp
að Tóftum í Stokkseyrar-
hreppi næstu daga og er það
þriðji turninn sem Bjarkar
bóndi á Tóftum byggir á búi
sínu. Meginhlutinn af hey-
feng hans í sumar verður
verkaður í vothey.
Þriðji Fossplaststurninn
verður síðan reistur við
nýja tilraunafjósið á Stóra- ■ Jafnvægislistin var meðal þess sem menn æfðu á námskeiðinu
Ármóti. á Brjánslæk. NT-m.vnd Finnbogi