NT - 13.08.1984, Síða 12
ÍM' Mánudagur 13. ágúst 1984 12
LlL Vettvangur
Ályktanir 22. þings Sjálfsbjargar:
Niðurskurði á Framkvæmda-
sjóði er harðlega mótmælt
■ 22. þing Sjálfsbjargar I.
s.f. var haldið í Sjálfsbjargar-
húsinu, dagana 8.-10. júní s.l.
Þingsetning var venju frem-
ur hátíðleg þar sem minnst var
25 ára afmæiis samtakanna er
stofnuð voru 4. júní 1959. Af
því tilefni tók forseti Islands,
Vigdís Finnbogadóttir, á móti
þingfulltrúum að Bessa-
stöðum.
Aðalumræðuefni þingsins
var lífeyris- og tryggingamál
og höfðu þeir Ingólfur Ingólfs-
son, félagsfræðingur og Hrafn
Magnússon, framkvæmda-
stjóri almennra lífeyrissjóða,
þar framsögu. Mörg önnur
hagsmunamál fatlaðra voru
einnig á dagskrá og fylgja hér
helstu ályktanir:
22. þing Sjálfsbjargar l.s.f.
mótmælir harðlega þeim
niðurskurði á Framkvæmda-
sjóði fatlaðra, sem nemur
meira en helmingi lögboðinnar
greiðslu úrsjóðnum. Samtökin
höfðu vænst mikils af hinum
nýju lögum um málefni fatl-
aðra, og harma því mjög þessa
skerðingu sjóðsins þegar á
fyrsta ári eftir gildistöku lag-
anna.
Þetta hefur ekki aðeins í för
með sér mikinn drátt á þeim
framkvæmdum sem þegar eru
hafnar heldur kemur algjör-
lega í veg fyrir möguleika á
nauðsynlegum nýframkvæmd-
urn.
Þingið harmar afgreiðslu Al-
þingis á „Búsetamálinu“, þar
sem þar hefðu opnast góðar
leiðir fyrir fatlaða í húsnæðis-
málum.
Jafnframt beinir þingið því
til landssambandsstjórnar að
hún fylgist náið með framvindu
„Búseta“ og taki jafnvel upp
viðræður við forsvarsmenn
„Búseta" um hvort og hvernig
hægt sé að tryggja fötluðum
húsnæði á sem viðráðanlegust-
um kjörum.
Þingið beinir þeim tilmælum
til svæðisstjórna, að þær hvetji
sveitarfélög og atvinnurekend-
ur til að stofna til nýiðnaðar
sem tæki mið af vaxandi þörf-
um fyrir ný atvinnutækifæri
handa fólki með skerta starfs-
orku.
Þingið bendir á þá leið í
þessu sambandi að sveitar-
félög veiti atvinnurekendum
fyrirgreiðslu hvað lóðamál og
aðra þjónustu á vegum sveitar-
félagsins varðar, gegn því að
stofnandi fyrirtækisins skuld-
bindi sig til að veita ákveðnu
hlutfalli af fötluðu fólki at-
vinnu í fyrirtækinu. Þessi fyrir-
tæki yrðu að öðru leyti óvernd-
uð og í þeim ynnu saman
jöfnum höndum fatlaðir og
ófatlaðir. Þingið bendir á þá
tilraun í þessa veru sem Or-
yrkjadeild ráðningarskrifstofu
Reykjavíkurborgar, Vinnu-
miðlun Kópavogs og fleiri aðil-
ar eru að gera í þessa átt á
Reykj avíkursvæðinu.
Ferlimál
fatlaðra:
1. Þingið beinir því til allra
þeirra nefnda og aðila er
vinna að ferlimálum fatl-
aðra, að þeir hafi skipulega
samvinnu og samræmi
vinnubrögð sín, svo árang-
ur verði sem bestur af starf-
inu.
2. Komið verði á fót þjónustu-
miðstöð ferlimála fatlaðra.
Hún hafi m.a. eftirfarandi
starfssvið: Gagnaöflun,
ráðgjafarþjónustu, teikni-
þjónustu, eftirlit og úttekt
bygginga, kynningar- og út-
gáfustarfsemi.
3. Nefndin beinir því til Sam-
starfsnefndar Félagsmála-
ráðuneytisins um ferlimál
fatlaðra, að hún hlutist til
um að sveitarfélög setji sér
skammtímaáætlun um lag-
færingar á óhentugu þjón-
ustuhúsnæði innan síns
sveitarfélags. Til þessara
framkvæmda verði gjört
ráð fyrir sérstöku framlagi
á fjárhagsáætlun sveitarfé-
lagsins.
4. Félagsmálaráðherra láti
endurskoða byggingar-
reglugerð nr. 292/1979 og
reglugerð um skipulagsmál
nr. 217/1966 með tilliti til
aðgengis fatlaðra. Sjálfs-
björg fái fulltrúa í þessari
endurskoðunarnefnd, en
fyrir hendi eru þegar marg-
ar beinar tillögur til breyt-
inga, t.d. má þar nefna
ákvæði um aðgengi á vinnu-
stöðum og ytra skipulag
umhverfis.
5. Unnið verði skipulega að
breytingum gatnakerfis
sveitar- og bæjarfélaga.
Haldin verði námskeið í
hönnun mannvirkjagerðar
er henta fötluðum, fyrir þá
sem hafa yfirumsjón með
gatnagerð og útivistarsvæð-
um bæjar-og sveitarfélaga.
6. Þingið þakkarRannsóknar-
stofnun byggingariðnaðar-
ins fyrir ágætt framlag til
bætts umhverfis með útgáfu
Rb. blaða um aðgengilegt
húsnæði fyrir fatlaða og
hvetur jafnframt til áfram-
haldandi útgáfu þeirra og
endurskoðunar, með tilliti
til breytinga.
7. Unnið verði af dugnaði við
að ná til ríkis, bæjar- og
sveitarfélaga, Vinnuveit-
endasambands íslands og
atvinnurekenda í þeim til-
gangi að gera atvinnuhús-
næði aðgengilegt fötluðum.
8. Unnið verði að því að ná
fram breytingum á aimenn-
ingsvögnum og öðrum sam-
göngutækjum, hótelum og
ferðamiðstöðvum til að
auðvelda fötluðum ferða-
lög.
9. Þingið leggur ríka áherslu
á það við Samstarfsnefnd
Félagsmálaráðuneytisins
um ferlimál fatlaðra og
ferlinefnda sveitarfélaga,
að þær fylgist náið með því
að ákvæðum skipulags- og
byggingarlaga sé fylgt hvað
varðar fatlaða. Jafnframt
verði þau ákvæði í skipu-
lags- og byggingarreglugerð
er varða aðgengi fatlaðra
markvisst kynnt bygging-
arfulltrúum og byggingar-
nefndum.
10. Þingiðbeinirþvítilsvæðis-
stjórna að þær fylgist náið
með framvindu umhverfis-
skipulags með tilliti til fatl-
aðra.
11. Þingið beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til allra
Sj álfsbj a rgarfélaga að þeir
séu vakandi gagnvart að-
gengi fatlaðra á sínu
félagssvæði og komi
ábendingum til nauðsyn-
legra breytinga á framfæri
við ferlinefndir sveitarfé-
laganna.
Atvinnumál:
1. Þingið skorar á stjórnir
fyrirtækja og opinberra að-
ila að beina til öryrkja og
vinnustöðva þeirra verkefn-
um við þeirra hæfi.
2. Þingið beinir því til fram-
kvæmdastjórnar lands-
sambandsins að hún stuðli
að námskeiðum í tölvu-
tækni þar sem tölvuvæðing-
in býður upp á margvíslega
atvinnumöguleika fyrir fatl-
aða. Landssambandið og
félagsdeildir styrki fólk til
þátttöku.
3. Þingið leggur ríka áherslu
á að fatlað fólk starfi á
almennum vinnumarkaði
eftir því sem kostur er á, en
bendir jafnframt á að þeir
sem ekki eiga þess kost
sökum fötlunar hafi mögu-
leika á starfi á vernduðum
vinnustöðum.
4. Þingið lýsir ánægju sinni
með starfsemi Oryrkja-
deildar Ráðningaskrifstofu
Reykjavíkurborgar og
væntir góðs af samstarfi við
hana.
5. Þingið beinir því til stjórna
aðildarfélaga Sjálfsbjargar
að þau hafi samband við
bæjaryfirvöld, hver á sínum
stað, um atvinnu- og um-
hverfismál.
6. Þingið hvetur félagsdeild-
irnar til aukinnar samvinnu
við félög og styrktarfélög
fatlaðra um atvinnumál.
7. Þingið hvetur aðildarfélög
Sjálfsbjargar til að hafa
samvinnu við félagasamtök
og sveitarstjórnir á félags-
svæðinu um stofnun vernd-
aðra vinnustaða.
Menntamál
1. Þar sem nú er þröngt í búi
á ríkisheimilinu og sparn-
aðarhnífurinn á lofti, skor-
ar 22. þing Sjálfsbjargar á
menntamálaráðuneytið, að
sjá til þess að sparnaður í
menntakerfinu verði ekki
látinn bitna á þeim er síst
skyldi þ.e. þeim nemend-
um, sem þurfa á stuðnings-
og sérkennslu að halda.
Þingið hvetur ráðuneytið til
að vinna áfram að því, að
sem flestir fatlaðir nemend-
ur eigi þess kost að sækja
sína heimaskóla með þeim
sérkennslutímum, sem þeir
eiga rétt á skv. sérkennslu-
reglugerð.
2. Þingið skorar á hið háa
Alþingi að samþykkja lög
um framhaldsskóía og full-
orðinsfræðslu þegar á næsta
ári, en láta þetta frumvarp
ekki velkjast lengur óaf-
greitt í þingsölum.
Með setningu þessara
laga verði fötluðu fólki
tryggður aðgangur að
menntun, sem það áður
hefur farið á mis við vegna
fötlunar sinnar.
3. Þingið lýsir yfir ánægju
sinni með velheppnaðan
söng Sjálfsbjargarkórsins
við þingsetningu og hvetur
félagsdeildir til að efla söng-
líf heima í héraði minnugar
þess, að menn sameinast í
söng.
Þá hvetur þingið til þess,
að erindreka lands-
sambandsins verði falið að
skipuleggja og koma á
námskeiðum í félagsmál-
um, leikrænni tjáningu og
framsögn í öllum félags-
deildum.
4. Þingið skorar á fræðsluyfir-
völd í Reykjavík að fella
svonefndan „skóla fatl-
aðra“ undir Iðnskólann í
Reykjavík eða einhverja
sambærilega skólastofnun.
Farartækjamál:
1. Þingið lýsir yfir ánægju
sinni með breytingu á
lögum nr. 120/1976 um
tollskrá og fleira, þar sem
segir: „Þó skal heimilt að
fella niður að fullu tolla og
aðflutningsgjöld af allt að
40 bifreiðum árlega fyrir þá
sem mestir eru öryrkjar en
geta þó ekið sjálfir sérstak-
lega útbúinni bifreið.“
■ Sjálsbjargarkórinn tekur lagið við þingsetninguna