NT - 13.08.1984, Page 16
Mánudagur 13. ágúst 1984 16
Útvarpíkvöld kl. 21.10:
Ljúfir tónar
frá Shanghai
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld
kynnir kínverska nútímatónlist.
■ „Ég verö með kínverska
nútímatónlist frá Shanghai",
sagði Þorkell Sigurbjörnsson
tónskáld, sem er með þáttinn
„Nútímatóniist“ klukkan
21.10 í kvöld. „Þetta þykir
kannski ekkert sérstaklega
nýtískuleg tónlist á okkar
mælikvarða, en þetta er það
sem er nýjast af nálinni þar.
■ „Skondin músík og róm-
antísk" segir Þorkell Sigur-
björnsson sem kynnir kín-
verska nútímatónlist í útvarp-
inu klukkan 21.10 í kvöld.
Og kannski svolítið forvitni-
legt. Þetta er ekkert sem fólk
kannast við, bæði höfundar og
flytjendur sem voru eitthvað
að fást við tónlist undir vest-
rænum áhrifum voru settir í
bann í Menningarbyltingunni.
Sinfóníuhljómsveitin í Shang-
hai var meira að segja leyst
upp og þetta fólk var rekið á
afréttir, sett til þess að grafa
skurði eða gera eitthvað allt
annað en spila músík. En þeir
virðast vera að taka við sér
aftur, reyna að taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfið.
Það er hægt að segja að
þetta sé undir vestrænum á-
hrifum, að vísu þá áhrifum frá
vestrænni músík eins og hún
var á fyrri hluta þessarar aldar.
Þetta er nokkuð skondin
músík. Þeir hafa mikið gaman
af hermitónlist, „prógram-
músík“ er það kallað á lélegri
íslensku. Finnst alltaf að tón-
verkin verði að segja einhverja
sögu, lýsa einhverjum atburð-
um eða umhverfi. Svo eru þeir
töluvert rómantískari en við
eigum að venjast svona
almennt, þetta eru oftast nær
ljúfir tónar."
Á Islandsmiðum
Ólafur Þórðarson úðar léttum
Islandsskífum yfir hlustendur
■ Ólafur Þórðarson verður
með þáttinn „Á fslandsmið-
■ Haukur Morthens, einn
„gömlu söngvaranna“ sem
verða með „á íslandsmiðum“
í dag.
um“ á Rás 2 klukkan 15.00 í
dag.
„Þetta er eins og verið
hefur“ sagði Ólafur „þessi
þáttur hefur verið svona af og
til. Þetta er nú bara innskot
þennan dag. Ég veit ekki hvort
hann verður neitt áfram, hann
er svona stöku sinnum, á
dagskrá rásar 2 og þá eru
eingöngu leiknar íslenskar
hljómplötur og aðallega þá
íslensk lög. Þetta er nú
blandað, ég spila einhverjar af
þessum nýju plötum sem hafa
komið út að undanförnu, og
renni svo inní gamalli syrpu,
með gömlu söngvurunum. Það -
eru til dæmis Ragnar Bjarna-
son, Haukur Morthens, Sigrún
Jónsdóttir og Guðbergur Auð-
unsson. Og hver veit nema ég
hafi eina harmoniku með
svona í gamni.“
Sjónvarp í kvöld kl. 20.35:
■ Elisa og Mabel hafa komið sér upp ákveðnu lífsformi og gæla við drauminn, þangað til Bull blómakaupmaður kemur og raskar
hlutföllunum í lífl þeirra.
Miði til draumalandsins
Norskt sjónvarpsleikrit eftir Björg Vik. Leikstjóri: Kirsten Sörlie
■ í kvöld klukkan 20.35 er
norskt sjónvarpsleikrit á
dagskrá sjónvarpsins, „Miði til
draumalandsins" („Fribillett
til Soria Moria“)
Höfundurinn Björg Vik
varð þekkt fyrir 10 árum þegar
hún skrifaði sitt fyrsta leikrit,
og hefur nú tvisvar verið verð-
launuð í Noregi fyrir skrif sín.
„Miði til draumalandsins" seg-
ir frá heimi tveggja kvenna um
fertugt, þær heita Elisa og
Mabel, vinna í kvikmyndahúsi
og leigja íbúð saman. Þær eru
ólikar um margt, Mabel er
löngu skilin, á uppkominn son
og sækir ákaft á skemmtistaði
og í nýja lífsreynslu. Elisa
hefur aldrei gift sig og lifir
hljóðlátu lífi; heimakær tón-
listarunnandi. Saman eiga þær
drauminn um betra líf og betri
daga. Þegar Bull blómakaup-
maður kemur til sögunnar
komast hlutirnir á hreyfingu
og ýmislegt kemur á daginn...
Leikstjóri er Kirsten Sörlie,
og aðalhutverk leika Marit Sy-
versen, Kirsten Hofseth, Knut
M. Hansson og Johannes
Joner.
Skúli Helgason fjallar um tónlist'^
hátíðina í Torhaut í Hollandi
■ „Þetta var tónleikahátíð
sem stóð yfir í heilan dag,“
sagði Skúli Helgason sem sér
um þáttinn. „Hún var þann
sjöunda júlí, byrjaði klukkan
ellefu um morguninn og var til
um eitt um nóttina. Þessi hátíð
var í Torhaut í Hollandi og var
haldin í fyrsta sinn árið 1977,
þá komu 2.000 manns þangað.
Nú er hátíðin orðin mjög þekkt
■ Hljómsveitin „Simple
Minds“, ein besta hljómsveitin
á hátíðinni treður upp.
og í ár voru
manns. Það voru til dæmis
hópferðir frá Englandi, en þar
hafa sumar hljómsveitirnar
fasta áhorfendur sem alltaf
fara með þeim í tónleikaferðir.
Þarna voru frægir menn eins
og Joe Jackson og Lou Reed.
Svo var „Simple Minds“. Þeir
eru ein besta enska nýbylgju-
hljómsveitin núna. „Alarmer“
var líka þarna og Nona Hend-
rix blökkusöngkona, svo mað-
ur nefni nokkra. Ég ætla að
taka fyrir þessa tónlistarmenn
sem voru þarna, og svo segja
frá andanum á svæðinu og
reyna að gefa innsýn í hvernig
er að mæta á svona tónleika.
Það er alveg sérstakur mórall.“
Rás2kl. 16.
Trallað á Torhaut
Mánudagur
13. ágúst
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. landsmálabl. (útdr.). Tón-
leikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Reykjavík bernsku minnar
Endurtekinn þáttur Guðjóns Frið-
rikssonar frá sunnudagskvöldi.
(Rætt við Atla Ólafsson).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Elvis Costello, Bruce Spring-
steen og Elton John syngja af
nýjustu plötum sinum.
14.00 „Við bíðum“ eftir J.M. Coetz-
ee Sigurlina Daviðsdóttir les þýð-
ingu sína (4).
14.30 Miðdegistónleikar Hollenska
blásarasveitin leikur marsa eftir
Ludwig van Beethoven og Carl
Philipp Emanuel Bach.
14.45 Popphólflð - Sigurður Krist-
insson (RÚVAK).
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar: Óperu-
tónlist a. Marilyn Horne syngur
tvær ariur úr óperunni „Werther"
eftir Jules Massenet. Óperuhljóm-
sveitin í Vinarborg leikur; Henry
Lewis stj. b. José Carreras syngur
ariur eftir Gomes, Leoncavallo'og
Ciléa með Sinfóniuhljómsveit
Lundúna; Jesús López Cobos stj.
c. National Arts Centre hljómsveit-
in leikur ballettsvítu úr „The Red
Ear of Corn“ eftir John Weinzweig;
Mario Bernardi stj.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Sfðdegisútvarp - Sigrún
Björnsdóttir, Sverrir Gauti Diego
og Einar B.Kristjánsson. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Eiríkur Rögn-
valdsson talar.
19.40 Um daginn og veginn Guðm-
undur Þórðarson talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Á mölinni Július
Einarsson les erindi eftir sr. Sigurð
Einarsson í Holti. b. Stjáni blái
Elín Guðjónsdóttir les Ijóð eftir Örn
Arnarson. Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Vindur, vind-
ur vinur minn“ eftir Guðlaug
Arason Höfundur les (13).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kammertónlist: Tríó fyrir fiðlu,
horn og fagott í F-dúr op. 24 eftir
Franz Danzi. Taras Gabora, Ge-
orge Zukerman og Barry Tuckwell
leika.
23.00 Leikrit: „Jacob von Thyboe“
eftir Ludvig Holberg Upptaka
danska útvarpsins frá 1951. Leik-
stjóri: Edvin Tiemroth. I helstu
hlutverkum: Paul Reumert, Albert
Luther, Holger Gabrielsen, Elith
Foss, Palle Huld o.fl. Kynnir: Jón
Viðar Jónsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
13. ágúst
10.00-12.00 Morgunþáttur Mánu-
dagsdrunginn kveðinn burt með
hressilegri músík. Stjórnandi Jón
Ólafsson
14.00-15.00 Dægurflugur Nýjustu
dægurlögin. Stjórnandi: Leopold
Sveinsson.
15.00-16.00 Á íslandsmiðum Létt-
um Islandsskífum úðað yfir hlust-
endur. Stjórnandi: Ólafur Þórðar-
son
16.00-17.00 Trallað á Torhaut
Fjallað um tónlistarhátíðina í Tor-
haut í Hollandi. Stjórnandi: Skúli
Helgason.
17.00-18.00 Asatími Ferðaþáttur.
Stjórnandi: Júlíus Einarsson.
Mánudagur
13. ágúst
18.00 Ólympíuleikarnir í Los
Angeles. (þnóttafréttir frá Ólympíu-
leikum 1984. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson. (Evróvision-ABC
og Danska sjónvarpið)
19.35 Tommi og Jenni. Banda-
rísk teiknimynd
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Miði til draumalandsins
(Fribillett til Soria Moria) Norskt
sjónvarpsleíkrit eftir Björg Vik.
Leikstjóri Kirsten Sörlie. Aðalhlut-
verk: Marit Syversen, Kristen
Hofseth, Knut M. Hansson og
Johannes Joner. Tvær ólíkar kon-
ur um fertugt, sem vinna i kvik-
myndahúsi, leigja íbúð saman.
Önnur hefur aldrei gifst en hin er
löngu skilin við eiginmanninn. Elise
er heimakær og ann tónlist en
Mabel sækir óspart skemmtanir.
Þótt þær greini á um margt eiga
þær þó sameiginlegan draum um
betra lif.
22.05 Ólympíuleikarnir í Los Ang-
eles Iþróttafréttir frá Ólympiu-
leikum 1984. Umsjónamaður
Bjarni Felixson. (Evróvision-ABC
og Danska sjónvarpiö.)
23.20 Fréttir í dagskrárlok.