NT - 13.08.1984, Side 24
Fótbolti á Ól:
Frakkar
sigruðu
Brassa
■ Tvö mörk á átta mín-
útna katla í síðari hálfleik
færðu Frökkum sigur
gegn Brasilíumönnum í
úrslitaleik knattspyrnu-
keppni Ólympíuleik-
anna. Lokatölur 2-0, en
í hálfleik hafði ekkert
mark veriö skorað.
Frakkar eru því bæði
Ólympíu- og Evrópu-
meistarar í knattspyrnu,
síðarnefnda titilinn unnu
þeir í sumar, og sumir leik-
manna liðsins voru í
landsliðshópnum í bæði
skiptin.
Fyrri hálfleikur leiksins
þótti frekar slakur, lítið
um marktækifæri, en í
síðari hálfleik lifnaði
mjög yfir honum. Frakk-
ar gerðu fyrra mark sitt á
55. mín. Jean-Phílippe
Rohr braust þá upp hægri
kantinn og gaf góða send-
ingu inn á vítateiginn þar
sem Francois Brisson
stökk hærra en allir aðrir
og skallaöi knöttinn efst í
vinstra markhornið.
Brasilíumenn skiptu
þegar í stað báðum vara-
mönnunt sínum inn á en
þeir voru varla orðnir
heitir er Frakkar skoruðu
aftur. Bijotat átti þá
hörkuskot að marki, sem
brasilíski markvörðurinn
Gilmar náði að slá út í
teiginn, þar sem Daniel
Xuereb kom aðvífandi og
sendi knöttinn í netið.
Petta var finrmta mark
Xuereb í sex leikjum og
liann varð því markahæst-
ur á Ólympíuleikunum
ásamt Borislav Cvetkovic
og Stjepan Deveric, sem
báðir eru júgóslavncskir.
Brasilíumenn sóttu ák-
aft eftir markið, en náðu
ekki að rjúfa írönsku
vörnina sem var nijög
sterk í leiknum. Þess má
geta að Frakkar hlutu
sérstök vcrðlaun frá
FIFA fyrir að leika
prúðmannlegustu knatt-
spyrnuna á ÖL.
dagiir 13. ágiíst 1984 24
■ Carl I.ewis vann til fernra gullverölauna á Ólympíuleikunum. Annaö eins hefur ekki gerst í frjálsíþróttakeppni leikanna síðan
1936 er Jesse Owcns vann sama afrekið.
Carl Lewis er
sá besti í dag
■ Bandaríkjamaðurinn Carl
Lewis er svo sannarlega maður
Ólympíuleikanna í Los Angeles.
Þessi 23 ára frjálsíþróttamaður
vann alls fern gullverðlaun sem
er aldeilis frábært. Fyrir ÓL þá
höfðu reyndar margir spáð því
að hann myndi vinna til ferna
gullverðlauna og endurtaka þar
með afrek Jesse Owens frá
Ólympíuleikunum í Berlín
1936. Carl Lewis lét sitt ekki
1500 m hlaup kvenna:
ítalskur sigur
Gabriella Dorio frá Italíu
varð Ólympíumeistari í 1500 m
hlaupi kvenna á Ólympíuleik-
unum í Los Angelcs um helg-
ina. Doria Melinte hlaut silfur-
verðlaunin, en rúmenska stúlk-
an Maricica Puica hlaut brons-
verðlaunin. í fjórða sæti varð
Roswitha Gerdes frá V-Þýska-
landi, Christine Benning Bret-
landi varð fimmta, Cristina
Boxer Bretlandi sjötta, Brit
McRoberts Kanada varð sjö-
unda og Ruth Wysocki Banda-
ríkjunum varð í áttunda sæti.
Rúmenska stúlkan Fita Lovin
varð að láta sér níunda sætið
duga, Debbie Scott Kanada
varð tíunda, Lynne MacDoug-
all Bretlandi varð ellefta og
tólfta varð hollenska stúlkan
Elly van Hulst.
eftir liggja og tókst það sem
hann hafði ætlað sér; fern
gullverðlaun á Olymptu-
leikum.
Draumurinn hófst með 100
m hlaupinu og þar sigraði Carl
næsta auðveldlega og setti nýtt
ólympíumet. Fyrsta gullið
komið í höfn. Næst var það
langstökkið og þar þurfti Carl
aðeins eitt stökk til að tryggja
sér gullið og nú voru peningarn-
ir orðnir tveir og útlitið gott.
Pá var konrið að 200 m hlaup-
inu og enn féll ólympíumet og
enn sigraði Carl Lewis. Ótrú-
legt en kappinn var kominn
með þrenn gullverðlaun.
Síðasta greinin sem Carl tók
þátt í varsvo 4x100 m boðlaup
og þar átti bandaríska sveitin
sigurinn vísati og fjórða gull
Carls í augsýn. í undanrásun-
um þá virkaði bandaríska sveit-
in ekki of örugg. Þeir voru að
vísu öskufljótir og græddu mik-
ið á því en skiptingarnar þeirra
voru ekki sem besta-og það gat
hugsanlega eitthvað gerst í úr-
slitahlaupinu. Það þurfti ekki
nema mislukkaða skiptingu til
að allur draumur Carls yrði að
engu. En allt fór þó vel og
bandaríska sveitin gerði sér
lítið fyrir og sigraði auðveld-
lega á nýju heimsmeti.
Það var Sarn Graddy sem
hljóp fyrsta sprettinn fyrir
bandarísku sveitina og hann
fékk gott start eins og venju-
lega. Annan sprett hljóp Ron
Brown og skiptingin á milli
þeirra gekk vel eins og allar
skiptingarnar reyndar gerðu.
Þriðji í röðinni var svo Calvin
Smith, heimsmethafi í 100 m
hlaupi og ekki brást hann. Carl
hljóp síðan síðasta sprettinn og
renndi sér léttilega yfir mark-
línuna og 90 þúsund áhorfend-
ur ærðust af fögnuði. Nýtt
heimsmet var staðreynd og
Carl Lewis \
gullverðlaun.
fjórðu
Lewis sagði í sjónvarpsvið-
tali eftir hlaupið að hann myndi
tileinka ekkju Jesse Owens
einn gullpeninginn en hina
þrjá ætlaði hann að gefa for-,
eldrum sínum.
Hann var spurður hvernig
honum liði eftir að hafa jafnað
met Owens. „Ég lít á það sem
heiður og mér líður vel. Ég
setti mér takmark fyrir þessa
Ólympíuleika sem ég hélt fyrst
að ég gæti ekki staðið við, en
núna eftir að mér hefur tekist
að ná takmarki rnínu þá líður
mér ákaflega vel“. Þá bætti
hann við að hann myndi fagna
þessum áfanga með því að
kasta sér í sundlaugina sína í
öllum fötunum.
Hann ætti svo sem að hafa
ástæðu til að fagna hann Carl
Lewis því fern gullverðlaun í
frjálsíþróttakeppni Ólympíu-
leikanna er svolítið sem ekki
gerist á hverjum Olympíu-
leikum.
4x400 m. hlaup kvenna:
Þriðja gull
Brisco-Hooks
■ Bandaríska hlaupastúlkan
Valerie Brisco-Hooks vann sín
þriðju gullverðlaun á ÓL er
hún hljóp með bandarísku
sveitinni er vann gullið í 4x400
m. boðhlaupi. Brisco-Hooks er
fyrsta bandaríska stúlkan til að
vinna þrenn gullverðlaun á ÓL
síðan Wilma Rudolph gerði
slíkt hið sama árið 1960.
Bandaríska sveitin setti nýtt
Ólympíumet er hún hljóp á
3:18,29 og bætti met sem a-
þýskar stúlkur settu í Moskvu
fyrir fjórum árum. í öðru sæti í
hlaupinu urðu kanadísku stúlk-
urnar á 3:21,21 og í þriðja sæti
urðu v-þýsku stúlkurnar á
3:22,98.
Bandaríska sveitin var
skipuð eftirtöldum stúlkum:
Valerie Brisco-Hooks, Lillie
Leatherwood, Sherri Howard
og Chandra Cheeseborough.
Sveit Jamaica sem var talin
mundu veita bandarísku sveit-
inni keppni varð síðust eftir að
þeim mistóks skipting. Misstu
keflið á brautina.
Tugþraut:
Fótbolti á ÓL:
Júgóslavar
í 3. sætið
■ Mark Stjepan Deveric,
níu mínútum fyrir leiks-
lok, tryggði Júgóslövum
sigur gegn Itölum.
Júgóslavía sigraði ítal-
íu 2-1 í leik um þriðja
ssetið í knattspyrnukeppni
Ólympíuleikanna. í háll-
leik voru ítalir yfir og það
var ekki fyrr en níu
mínútum fyrir leikslok að
Júgóslavar náðu að
tryggja sér sigur í leiknum
með marki Stjepan Dev-
eric.
Leikur liðanna þótti
mjög góður og spenn-
andi, en Júgóslavar réðu
þó lengstum gangi mála á
vellinum. Þvert gegn
gangi leiksins voru það
Italir sem skoruðu fyrsta
mark hans á 28. mín.
Marko Elsner felldi
Franco Braesi inn í víta-
teig Júgóslava og úr víta-
spyrnu skoraði Beniam-
ino Vignola af miklu
öryjggi.
A 58. mín. náðu Júg-
óslavir svo loks að jafna.
Baljic var þá felldur rétt
utan við teig Ítalíumanna
og að sjálfsögðu dæmd
aukaspyrna. Dragan
Stojkovic tók spyrnuna
og sendi knöttinn beint á
kollinn á Baljic sem
hamraði hann í netið.
Það sem eftir lifði leiks-
ins sóttu Júgóslavar mjög
en sigurmarkið lét á sér
standa. Loks á 81. mín.
skoraði Deveric. Hann
lék laglega á ítölsku vam-
armennina og skaut föstu
skoti að markinu, Tan-
credi markvörður náði að
hálfverja knöttinn, sem
hrökk í stöngina og þaðan
í netið.
Áhorfendur
■ Áhorfendur á leik
Frakklands og Brasilíu á
Rose Bowl í Pasadena, út-
hverfi Los Angeles, voru
101.799, eða fleiri en
nokkru sinni fyrr á knatt-
spyrnuleik í Bandaríkjun-
um. Alls horfðu 1,42 mill-
jónir manna á leikina í
knattspyrnukeppni ÓL,
eða að meðaltali rúmlega
44.000 áhorfendur á
hvern leik.
Nýjar reglur
Carl Lewis í sigurstökki sínu í langstökkinu. Símamynd Polfoto
■ Ákveðiö hefur verið af Al-
þjóðafrjálsíþróttasambandinu
að stigakerfinu í tugþraut verði
breytt frá og með 1. apríl n.k.
Sá tugþrautarmaðursem nær
bestum árangri á tímabilinu 1.
apríl 1985 og 31. desember
1985 mun verða álitinn heims-
methafi í tugþraut samkvæmt
nýrri stigatöflu.
Þessi breyting er gerð til þess
að jafna þann mun sem er á
milli einstakra greina í tug-
þrautinni, þar sem t.d. hástökk
gefa óeðlilega mikið af stigum
miðað við aðrar greinar. Að
sögn Alþjóðafrjálsíþróttasam-
bandsins er stigagjöfin alltaf
endurskoðuð við og við til þess
að fylgjast með þeirri þróun
sem á sér stað í íþróttum.
Þessar breytingar voru
ákveðnar á þingi alþjóðafrjáls-
íþróttasambansins í Los
Angeles í síðustu viku.
■ Thompson. Tekst honum að
setja „nýtt“ heimsmet?