NT - 13.08.1984, Page 26
cc
Mánudagur 13. ágúst 1984 26
Iþróttir
Hástökk á ÓL:
JianauaZhu
varð þriðji
- Dietmar Mögenburg sigraði
■ Það var V-Pjóðverjinn Di-
etmar Mögenburg sem sigraði
í hástökki karla á ÖL og kom
það nokkuð á óvart. Fyrirfram
var talið líklegt að Kínverjinn
háfleygi Jianaua Zhu yrði hlut-
skarpastur en svo fór þó ekki.
Mögenburg stökk 2,35 m og
var aðeins sterkari en Svíinn
Patrik Sjöberg sem hafnaði í
öðru sæti með 2,33. Zhu varð
svo í þriðja sæti með 2,31.
Fjórði varð svo gamla kempan
frá Bandaríkjunum, Dwight
Stones. Hann stökk sömu hæð
og Kínverjinn en notaði fleiri
tilraunir. Það munaði því ekki
miklu að kínverski heimsmeist-
arinn kæmist ekki á verð-
launapall.
4x400 m hlaup
Öruggur
sigur
Bandaríkja-
manna
■ Bandaríska karla-
sveitin í 4X400 m boð-
hlaupi sigraði nokkuð
auðveldlega í hlaupinu og
tryggði þar með einokun
Bandaríkjamanna í
spretthlaupunum.
Það voru þeir Sunder
Nix, Ray Armstead, Al-
onzo Babers og Antonio
Mc Kay sem skipuðu
sveit Bandaríkjanna og
hlupu þeir félagar á
2:57,91. í öðru sæti var
svo sveit Bretlands og
hljóp hún á 2:49,13.
Þriðja sætið féll svo í hlut
Nígcríumanna og urðu
þcir mjög glaðir. Nígeríu-
menn hlupu á 2:59,32.
I undanrásunuin þá
mötmæltu V-Þjóðverjar
og töldu að Bandaríkja-
menn hefðu farið út af
braut sinni. Kæran var
ckki tekin til greina.
Hástökkvarinn Zhu frá Kína
varð að láta sér lynda þriðja
sætið á OL þrátt fyrir að vera
heimsmethafí. SímDmynd: Polfolo
Sebastian Coe
vann aftur gull
- Endurtók afrekid frá Moskvu -Owett borinn afvelii -Cruz veikur-Cram annar
■ „Þetta er eins og þegar
draumar rætast. Fyrir ári síðan
var ég nykominn út af sjúkra-
húsi og þetta er því ákaflega
ánægjulegt,“ sagði Bretinn Se-
bastian Coe, eftir að hann hafði
sigrað í 1500 m hlaupi karla á
Olympíuleikunum. Nokkuð
sem fáir höfðu búist við að
hann gæti, eftir að hafa þurft
að bíta í það súra epli að hafna
í öðru sæti í 800 m hlaupinu
nokkrum dögum áður.
Coe varð þar með fyrsti
hlauparinn til að sigraí 1500m
hlaupi á ÓL tvisvar í röð, hann
sigraði einnig í hlaupinu í
Moskvu fyrir fjórum árum. Þá
varð hann einnig í öðru sæti í
800 m hlaupinu.
Tími Coe var 3:32,53 mín.,
töluvert frá heimsmeti landa
2. deild:
I rá Eiríki Hermannssyni á Suðurnesjum
■ Víðismenn unnu góðan
sigur á slöku liði ÍBV á Garðs-
velli er liðin mættust þar í 2.
deildarkeppninni á laugardag-
inn. í vestan stinningskalda og
rigningu fengu Eyjamenn rass-
skell sem þeir munu seint
gleyma. Frískir leikmenn Víðis
yfirspiluðu lið ÍBV sem sá
aldrei til sólar á sviði fótboltans
eða öðrum sviðum.
Með vindinn í bakið sóttu
Víðismenn látlaust og tókst að
skora tvö mörk og fengu lirúgu
at færum. Grétar Einarsson
skoraði það fyrra á 6. mín. af
stuttu færi en bróðir hans Vil-
hjálmur skallaði inn horn-
spyrnu Guðjóns fyrirliða Víðis
á 25. mín. Þrátt íyrir samfellda
pressu Víðis urðu mörkin ekki
fleiri í hálfleiknum.
Eftir hlé reyndu Vestmanna-
eyingar að klóra í bakkann og
fengu eitt ágætt færi strax í
upphafi hálfleiksins en eftir það
tóku Víöismenn til sinna ráða
og spiluðu af mikilli skynsemi,
tóku boltann niður og létu
hann vinna og Eyjapeyjana
hlaupa. Grétar skoraði þriðja
markið á 79, mín. og Vilberg
Þorsteins það fjórða á 81. mín.,
gott skot Stöngin inn.
Víðisliðið átti mjög góðan
dag að þessu sinni, vörnin var
sannfærandi með Martein og
Ingimund sem bestu menn.
Daníel og Guðjón voru góðir á
miðjunni og Vilberg og Grétar
baneitraðir uppvið markið.
ÍBV er annarrardeildarlið
verður það um sinn.
hans Steve Ovett, sem er
3:30,77 mín. í öðru sæti varð
heimsmeistarinn Steve Cram,
einnig frá Bretlandi, á 3:33,40
mín. og Brasilíumaðurinn Jose
Abascal varð þriðji á 3:34,30
mín.
Það voru Súdanbúinn Kha-
lifa Omar og Kenýamaðurinn
Joseph Chesire sem tóku for-
ystuna í hlaupinu í upphafi og
leiddu það fyrsta hringinn. Þá
tók Bandaríkjamaðurinn Jim
Spivey við forystuhlutverkinu
og var fremstur í flokki allt
fram í síðasta hring. Abascal
náði forystunni um tíma, og
svo Cram, en lokaspretturinn
var í eigu Coe. Hann hafði
hlaupið mjög taktískt, aldrei
sleppt fremsta manninum langt
frá sér og er kom fram í síðustu
beygjuna, tætti hann hrein-
lega af stað, hljóp Cram af: sér
á beinu brautinni og kom nærri
sekúndu á undan Cram í
markið.
Heimsmethafinn Steve
Ovett, sem þurfti að fara á
sjúkrahús í meðferð eftir 800
m hlaupið í síðustu viku, gafst
hreinlega upp og var borinn af
leikvanginum. Hann átti eftir
um 350 metra í markið er hann
hné niður og seinna var sagt að
hann hefði oft aftur átt við
sömu öndunarerfiðleikana að
etja og f 800 m hlaupinu.
Þá setti það einnig svip á
hlaupið að Brasilíumaðurinn
Joaquim Cruz, sem sigraði í
800 m hlaupinu, varð að hætta
við keppni vegna flensu.
Blak á ÓL:
Gullið
til USA
■ Bandaríkjamenn
náðu að hefna tapsins
gegn Brasilíumönnum í
undankeppni blaks karla
á Ólympíuleikunum er
þeir unnu þá í úrslitaleik
á laugardag 3-0. Þetta
var í fyrsta skipti sem
Bandaríkjamenn náðu að
vinna til verðlauna í blaki
karla og í fyrsta sinn síðan
1968 sem Bandaríkja-
menn taka þátt í blak-
keppninni.
Segja má að Brasilíu-
menn hafí fært þcim
sigurinn á silfurfati því
þeim urðu á aragrúi mis-
taka í leiknum. Hvað eftir
annað mistókust uppgjaf-
ir hjá þeim, auk þess sem
margir skella þeirra
höfnuðu aftan við enda-
línu. Að auki voru flestir
leikmanna Brasilíu mun
lágvaxnari en þeir banda-
rísku og gekk þeim því
erfíðlega að eiga við þá
upp við netið.
og
Kúluvarp
■ ítalinn Alessandro
Andrei sigraði óvænt í
kúluvarpi karla á Olym-
píuleikunum um helgina.
Hann þeytti kúlunni
21,26 m 15 sentímetrum
lengra en næsti niaður,
Michael Carter, Banda-
ríkjunum. í þriðja sæti
varð annar Bandaríkja-
maður, Dave Laut, kast-
aði 20,97 m.
5000 m hlaup á OL:
Marokkóbúinn vann
Said Aouita frá Marokkó,
sem hefur náð næst bestum
tíma í 5000 hlaupi í heiminum,
sigraði næsta léttilega í því
hlaupi á Ólympíuleikunum.
Hann kom í mark á tímanum
13:05,59 mín. og setti nýtt ÓL-
met. Gamla metið átti Bretinn
Brendan Foster og var það
13:20,34 sett í Montréal árið
1976.
Svo miklir voru yfirburðir
Aouita að hann gat leyft sér að
blása fingurkossum til áhorf-
enda er hann kom hlaupandi
lokasprettinn á bcinu braut-
inni. 1 öðru sæti varð Svisslend-
ingurinn Markus Ryffel á
13:07.54 og Portúgalinn Ant-
onio Leitao náði í bronsið, ,
hljóp á tímanum 13:09,20 mín.
Verðlaunahafarnir hlupu því
allir á tíma innan við gamla
ÓL-metið og slíkt hið sama
gerðu einnig næstu þrír hlaup-
arar. lim Hutchings, Bret-
landi, sem varð fjórði, hljóp á
13:11,50, Paul Kipkoech, Ken-
ya, hljóp á 13:14,40 og Charles
Cheruiyot, Kenýa, fékk tímann
13:18,41 mín.
Breski heimsmethafinn
Dave Moorcroft átti við meiðsli
stríða í hlaupinu og dróst
fljótlega aftur úr forystusauð-
unum. Met hans er 13:00,42
mín.
11 -Jy-YVfrJ*'*
■ Sebastian Coe sigraði í 1500 m hlaupi og varð rétt á undan Steve
myndinni. Coe varði þar með titil sinn frá því í Moskvu fyrir Ijórum árum.
og ekki keppt neitt nokkru fyrir leikana en er nú kominn á stjá aftur og
með sigur sinn.
Cram sem einnig sést á
Hann hafði verið veikur
var að vonum ánægður