NT - 08.09.1984, Blaðsíða 38
BÆNDUR
Athugið 15. september n.k.
rennur út umsóknarfrestur Stofnlánadeildar landbúnaðarins,
vegna lána til byggingaframkvæmda á næsta ári.
Höfum látið hanna votheysturna úr stáli, sem við
bjóðum á föstu verði, fullfrágengnum á byggingarstað.
Verðið miðast við að kaupendur hafi áður steypt upp
grunninn.
Allar nauðsynlegar teikningar til reiðu við pöntun.
Turninn er hannaður með hliðsjón af losunarbúnaði frá
Véladeild SÍS.
Nánari upplýsingar veittar hjá undirrituðum og hjá
Véladeild SÍS.
Gerið verðsamanburð
RAFAFL /STÁLAFL
SÍMl 99-6088
Gnúpverjahreppi.
FRAMLEIDSLU■
SAMVINNUFÉLAG
IDNADARMANNA
Umbúöasamkeppni Féiags ísl. iónrekenda veröur nú haldin í
sjöunda sinn.
Samkeppnin er fyrir allar geröir umbúöa, svo sem flutningsumbúöir,
sýningarumbúöir og neytendaumbúðir. Veröa þær aö vera hannaöar
á íslandi og hafa komiö á markaö hér eöa erlendis. Allir íslenskir
umbúöaframleiöendur og umbúöanotendur geta tekiö þátt í sam-
keppninni, svo og aörir þeir sem hafa meö höndum gerö og hönnun
umbúöa. Einunrgis er leyfilegt aö senda inn umbúöir sem komiö hafa
fram frá því aö umbúðasamkeppnin fór síðast fram, eöa frá miöju ári
1981.
Fimm aöilar skipa dómnefnd og eiga sæti í henni formaður Orri
Vigfússon, fulltrúi Félags ísl. iönrekenda, Guöbergur Auöunsson frá
Félagi ísl. teiknara, Ragnar Guömundsson frá Kaupmannasamtökum
íslands, Siguröur Brynjólfsson frá Myndlista- og handíöaskólanum
og Steinar Haröarson frá Neytendasamtökunum.
Allar umbúöir sem sendar eru til þátttöku á aö afhenda í þremur
eintökum og skulu, ef unnt er, tvö þeirra vera með innihaldi, en eitt
án innihalds. Fyrir sérstakar geröir umbúöa má þó veita undanþágu
frá þessu skilyrði.
Umbúöirnar ásamt upþlýsingum um nafn og heimilisfang þátttak-
anda, umbúöaframleiöanda, umbúöanotanda og þann sem hefur
séö um hönnun umbúðanna, skal senda til Félags íslenskra iönrek-
enda fyrir 15. október nk.
Ritari nefndarinnar er Þórarinn Gunnarsson, skrifstofustjóri FÍI, og
geta þátttakendur snúiö sér til hans meö allar fyrirspurnir í síma
FÉLAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA
Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavík.
r
ÍT1Í7 - Laugardagur 8. september 1984
ul f 1 ■1 *
Fallbaráttan
í algleymingi
- í 1. deild um helgina - hver kemst í 1. deild?
38
■ Fallbaráttan í 1. deild verður í
algleymingi um helgina, hófst reyndar í
gærkvöld. í dag eru þrír leikir í 1. deild,
og allir eru þeir mjög mikilvægir.
í dag keppa Þór og Víkingur á
Akureyri. Bæði lið eru enn á hættu-
svæði, og þurfa að fá stig. Víkingar þó
meira, hafa stigi minna. Keflavík og KR
keppa í Kefla vík, og þar verður áreiðan-
lega hart barist. Keflavík þarf að vinna
til að tryggja annað sætið og sæti í
UEFA-keppninni að ári, en KR-ingar
eru glóðvolgir í fallhitanum, og þurfa
nauðsynlega stig. Loks mætast Þróttur
og Skagamenn á Laugardalsvelli. Þrótt-
arar eru í bullandi fallhættu, en Skaga-
menn eru öruggir.með sigur í íslands-
mótinu. Að meiru er að keppa hjá
Þrótturum, en Skagamenn vilja sjálfsagt
vinna með glans.
í annarri deild er hart barist, þar eru
fjórir leikir í dag. Völsungur og Skalla-
grímur keppa á Húsavík. Bæði liðin
eiga möguleika á 1. deildarsæti enn, og
berjast áreiðanlega hatrammlega. Þrjú
lið eiga þó mesta möguleika á 1. deildar-
sæti, Isfirðingar og Eyjamenn hafa jafn-
mörg stig og góða möguleika, og mætast
á ísafirði í dag; þar má búast við
eldglæringum. Víðir, sem á nú mesta
möguleika, hefur tvö stig á þau næst á
undan nefndu, fer til Vopnafjarðar og
keppir við Einherja. Víðismenn eru
sigurstranglegir, en Einherjar vilja á-
reiðanlega ekki verða neðstir, og ekkert
er öruggt í knattspyrnu. KS á möguleika
og fer á Sauðárkrók, og þar er um
svipaða hluti að ræða og á Vopnafirði.
Allir leikirnir í 1. og 2. deild sem hér eru
nefndir hefjast klukkan 14.00, og að
þeim loknum er aðeins ein umferð eftir
í deildunum báðum, og spennan orðin
hrollvekjandi, væntanlega.
STAÐAN í 1. DEILD:
■ Staðan í 1. deild eftir 1:0 sigur
Breiðabliks gegn KA í gærkvöldi
er sem hér segir:
ÍA.......... 16 11 2 1 29:16 35
ÍBK.......... 16 8 3 5 19:16 27
Valur ....... 17 6 7 4 23:16 25
ÞórA........ 16 6 3 7 24:23 21
Breiðablik . 17 4 8 5 17:17 20
Víkingur..... 16 5 5 6 25:27 20
Þróttur..... 16 4 7 5 17:17 19
Fram......... 17 5 4 8 19:22 19
KR ......... 16 4 7 5 16:24 19
KA .......... 17 4 4 9 23:35 16
Markahæstu
leikmenn
Þrátt fyrir að tiltölulega mörg
mörk hafí verið skoruð í 1. deild-
inni í sumar hafa þau dreifst á
marga leikmenn. Markahæsti leik-
maður deildarinnar hefur aðeins
skorað 9 mörk þegar einungis er
ein umferð eftir og þeir sem næstir
koma eru aðeins með 6 mörk. Til
samanburðar má geta þess að
markametið í 1. deild er 19 mörk
skorað af einum leikmanni. En
einu sinni hefur markakóngstitill-
inn unnist á 10 mörkum.
Öldungamót
í frjálsum
■ Öldungamót í frjálsuni iþróttum verður
haldið á Laugardalsvelli næstkomandi
sunnudag á vegum Frjálsíþrótta.sambands
íslands. Keppnin hefst klukkan 14, og
verður skráning og innheimta þátttöku-
gjalda á staðnum.
Keppt verður í flokkum 35 ára og eldri,
og eru flokkaskipti í heilum og hálfum tug.
Keppt verður í 100 metra, 800 metra og
3.000 metra hlaupum, hástökki, langstökki,
kúluvarpi, kringlukasti, spjótkasti og
sleggjukasti.
Oldungar eru hvattir til að mæta, áhugi
flyrir þcssu móti fer sívaxandi, enda er það
gott innilegg inn í trimm og heilsuiæktar-
andrúmshift nútímans, og sjálfsagt að vera
með þó n.enn séu hættir að keppa.
Siggi Pé vann
■ Sigurður Pétursson GR sigraði á Opna-
OLÍS-mótinu í golfl scm fram fór um
síðustu hclgi. Sigurður lék 36 holur á 153
höggum og það gerði einnig Óskar Sæm-
undsson en Sigurður sigraði i bráðabana.
Ólafur Guðjónsson GR sigraði mcð forgjöf
á 138 högguin.
íþróttir
helgarinnar
Knattspyrna:
Knattspyrnan er aðalmálið um
helgina, fallbaráttan í 1. deild og
toppbaráttan í annarri deild eru í
algleymingi. Um það mál er fjallað
sérstaklega annars staðar hér á
síðunum.
Fyrri úrslitaleikur 3. deildar er í
dag klukkan 14 á Ólafsfirði. Þar
eigast við Leiftur og Fylkir, en þau
leika bæði í 2. deild næsta sumar.
Þá eru leikir í næstsíðustu umferð
toppbaráttu 4. deildar, í SV-riðli
leika ÍR og Léttir á Melavelli, og
Reynir Árskógsströnd og Tjörnes á
Árskógsströnd.
Frjálsar íþróttir:
Öldungamót FRÍ í frjálsum
íþróttum er á morgun á Laugardals-
velli - sjá annars staðar á síðunni.
Þá er fjölþrautarmót UÍA einhvers
staðar á Austurlandi í dag og á
morgun, staðsetning hefur ekki
borist.
Golff:
Tvö opin mót eru um helgina í
golfi. Sveitakeppni Golfsambands-
ins er á Hólmsvelli í Leiru í dag og
á morgun, og Nissan-Datsunkeppn-
in er í Grafarholti hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur.
Handknattleikur:
„Útimót" HSÍ er um helgina; nú
heitir það Sumarmót og er í Hafnar-
firði og Digranesi. Tveir riðlar eru í
meistaraflokki karla, í A-riðli eru
Haukar, ÍR, FH, Fram og Valur B.
en í B-riðli eru Valur A, Stjarnan,
HK, Fylkir og Grótta. Keppni hefst
klukkan 13.00 í dag, í Digranesi
keppa liðin í B-riðli, en liðin í
A-riðli leika í Hafnarfirði.
í kvennaflokki er keppt í tveimur
riðlum, í A-riðli eru Huginn, Vík-
ingur, ÍR og FH, en í B-riðli Valur
Fram, Árniann og Haukar. Keppni
um efstu sætin er sunnudaginn 16.
sept.