NT - 10.09.1984, Qupperneq 4
■ „Þar sem hjartarými er þar er húsrými“ sannast enn einn ganginn
þegar litið er inn í „kompurnar“ á lotinu hjá henni Laufeyju þar '
sem hún hefur bíðandi uppbúin rúm og flatsængur fyrir þá sem
stundum eiga hvergi annarsstaðar höfði sínu að halla. I
Her1984
Unglingar missa afdrep sitt hjá Laufeyju í Grjótaþorpinu
„Kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti“
■„Hvað á að koma í staðinn ef þið lokið hérna? Ætlið þið
að leggja þetta afdrep niður án þess að neitt komi í staðinn
fyrir þá krakka sem í mestum vandræðum eiga? Haldið
þið að vandamálið hverfi, bara ef þið látið sem það sé ekki
til? Þetta eru spurningar sem ég vil að krafist sé svara við
af ráðamönnum borgarinnar. Sjálf hef ég engin svör
fengið ennþá“, sagði Laufey Jakobsdóttir, umsjónarmaður
(og sálnahirðir) á klósettunum í Grjótagötu, sem ráða-
menn borgarinnar hafa nú ákveðið að láta rífa í vikunni.
kveðnum manni lóðinni undir
hús - frétti það hjá viðkomandi
sjálfum.
Gervimennskan óþolandi
„Ég geri mér auðvitað fulla
grein fyrir því að ég anna þessu
ekki til eilífðar einsömui. En
það sem ég hef verið að berjast
fyrir er að eitthvað verði í
alvöru gert í staðinn. Ég þoli
ekki þessa endalausu gervi-
mennsku og látalæti. Fundir
með tilheyrandi kjaftæði og
pappírsflóði ásamt tilheyrandi
myndatökum af einhverjum
„fínum" mönnum koma þessum
börnum ekki að gagni. Hins
vegar mætti kannski gera eitt-
hvað raunhæft fyrir þá peninga
sem þetta kostar allt saman, t.d.
fjölga fólki hjá Útideild," sagði
Éaufey.
Unglingarnir færri en
vandamálin stærri
Spurð sagði hún vandamálin
hafa breyst en ekki horfið. „Það
eru orðnir miklu færri unglingar
sem leita hingað, en vandamál
þeirra eru samt orðin stærri -
það gera eiturlyfin. Það eru
fleiri komnir í sterkari efni og
svo er það oft alveg hrikaiegt
þegar krakkarnir nota hass ofan
í vín - þau verða svo fárveik.
Hlutirnir vilja stundum verða
ansi erfiðir seinnipart nætur um
helgar".
Laufey lagði land undir fót
með Kvennarútunni í sumar og
notaði þá tækifærið til að vekja
athygli á því sem hent getur
suma nemendur heimavistar-
skólanna úti á landi, sem hún
segir hleypt úr rútum niðri í
bæ í tugatali eftirlitslausum þeg-
ar þau koma í helgarferðir til
höfuðborgarinnar. „Það var
augljóst að konur t.d. á Vest-
fjörðum höfðu ekkert gert sér
grein fyrir því hvað þarna er að
ske. Víða úti á landi verður fólk
að senda krakkana sína eitthvað
í heimavistarskóla strax í 9.
bekk."
Þau vita hvar
égbý
Hafa þá skjólstæðingar
Laufeyjar í engan stað að venda
þegar rifið verður í Grjótagöt-
unni? „Ekki nema að þau komi
leigubíl eða strætó. Éitthvað
þarf maður líka oft að gefa þeim
að borða greyjunum og álagið á
símann getur verið töluvert",
sagði Laufey. Þeir sem vita hver
ellilífeyrir láglaunafólks er -
sem verða einu tekjur Laufeyjar
frá 1. nóv. n.k. - geta giskað á
hvað hann leyfir mikla risnu af
þessu tagi.
■ Klósettín - Unglingaheimil-
ið hennar Laufeyjar ömmu í
Grjótagötunni sem nú á að
ryðja burtu til þess að einhver
geti fengið lóð í miðbænum.
Þótt lítið og lágreist sé hefur
klósettið, og Laufey, á undan-
förnum árum oft verið eina
skjólið sem unglingar þeir sem
erfiðast eiga hafa getað leitað
til, oft nær ósjálfbjarga af notk-
un vímuefna. Sumir þora ekki
heim til sín, aðrir hafa verið
reknir þaðan út, margir eiga
ekki fyrir bíl heim og enn aðrir
eru langt að komnir í skemmti-
ferð og eiga hvergi höfði sínu að
halla í borginni.
Eins og þruma úr
heiðskíru lofti
„Ég var líka búin að gera í
stand tvær kompur uppi á lofti
hjá mér sem ég ætlaði að hafa
til að geta hlynnt betur að þeim
sem verst eru sett og reyna að
hafa þetta svolítið myndarlegt í
vetur. En þá kont þetta eins og
þruma úr heiðskíru lofti", sagði
Laufey. Fréttamaður NT,
leit við hjá Laufeyju, sem býr í
litlu gömlu húsi í Grjótagöt-
unni, eina nóttina um helgina og
kom í þessar vistaverur þar sem
hún hafði af greinilegri alúð
búið um svefnbekki og flatsæng-
ur til að hafa til reiðu. Og rúmin
þurftu ekki lengi að bíða. Á 3.
tímanum um nóttina bönkuðu
þrír unglingar upp á, þar af tveir
utan af landi. Víst var amma og
eitthvað annað skyldulið í borg-
inni. En getum við láð 13-15 ára
krökkum þótt þau veigri sér við
að vekja ömmu upp um þetta
leyti sólarhringsins - jaínvel þó
þau séu ekki nema „pínulítið
íðí“.
Bara uppsagnarbréf -
engar skýringar
Þótt Laufey hafi nú sinnt
þessu starfi sínu hjá borginni
okkar í 10 ár af eindæma sam-
viskusemi virðist sem borgaryfir-
völdum hafi ekki þótt taka því
að láta hana vita af því að leggja
ætti starfsemina niður. Henni
barst bara uppsagnarbréf fyrir
stuttu. ' Yfirmann sinn hjá
hreinsunardeild borgarinnar
kvað hún einnig hafa komið af
fjöllum þegar hún leitaði skýr-
inga, borgarfulltrúar Kvenna-
framboðs vissu ekki um málið.
Síðan hefur Laufey komist að
því að búið er að úthluta á-
■ „Borgarsjóður sparar sér
kaupið mitt þegar þeir rífa
hérna - og svo er ldósettpappír
víst voðalega dýr“, sagði Laufey
með tvíræðu brosi. Hún sagði
aðdáanlegt hve unglingarnir
ganga vel um hjá henni.
til mín - þau vita hvar ég bý.
Fyrst eftir að ég frétti þetta var
ég raunar að spá í hvort ég gæti
haft þetta hér í kjallaranum hjá
mér. En ég er búin að sjá að það
er alveg vonlaust - sérstaklega
núna, því maðurinn minn hefur
verið svoddan sjúklingur að
undanförnu. Ef ég get verið hér
niðurfrá, þá er hins vegar allt í
ró og spekt hér heima á meðan.“
Raunar kom fram í samtalinu
við Laufeyju að hún kvíðir því
að þurfa jafnvel að flytja af
heimili sínu vegna aðsóknar þar
eftir að klósettunum verður
lokað. Hún hefur reynslu fyrir
því að þá er bankað uppá hjá
henni hvenær sem er. „Það er
líka svo margt sem fylgir þessu
- kostnaður t.d. þegar maður
er að láta krakkana fá pening í
iÆ 1*11 „c
Vaxandi átökogum- / A-Vi6,9andi
brot í Alþýduf lokknum
fíokksþi
'ogi í haust
formann
a
■ Eftir sumarleyfístímann
hafa farið í gang miklar um-
ræður í Alþýðuflokknum um
nauðsyn þess að stokka upp
forystuna á flokksþingi sem
haldið verður í lok október.
Heimildarmenn blaðsins
telja nauðsynlegt að Kjartan
Jóhannsson láti af for-
mennsku og róttækar breyt-
ingar verði gerðar í stefnu-
mótun. Annars geti flokkur-
inn alveg látið það vera að
bjóða fram í næstu kosning-
um.
Hópur hverfisstjóra
flokksins í Reykjavík kom
saman nýlega undir forsæti
Vilhelms Júlíussonar. Þar
töldu menn óhjákvæmilegt
að skipta, ekki bara um
formann, heldur alla foryst-
una. Þá var umræðufundur í
Iðnó í fyrri viku, þar sem
margir komu inn á þennan
vanda óbeint, en aðeins
einn, Jón Ármann Héðins-
son, sagði það hreint út að
skipta yrði um formann. Því
andmælti Geir Gunnlaugs-
son úr Hafnarfirði, en for-
ystumenn flokksins í Hafnar-
firði standa einhuga að baki
Kjartani. Meðal þeirra má
nefna Hauk Helgason skóla-
stjóra, Hörð Zóphaníasson
skólastjóra og Hrafnkel Ás-
geirsson lögfræðing.
Þá komu saman nýlega
margir fyrrverandi og núver-
andi forystumanna flokksins.
Þar létu menn uppi, að sögn
eins viðstaddra, þungar
áhyggjur af stöðu mála og
töldu algert skilyrði að brevt-
ing yrði á forystu, og stefnu-
mörkun gerð skýrari á
næsta flokksþingi.
Vandi Alþýðuflokksins er
m.a. sá að engin samstaða er
um arftaka Kjartans. Einna
mest fylgis nú um stundir
nýtur Jón Baldvin Hanni-
balsson, ekki síst vegna þess
að hann er sá eini sem hugs-
anlega væri tilleiðanlegur að
fara fram á móti Kjartani, en
Kjartan hefur eins og kunn-
ugt er lýst því yfir að hann
hyggi á áframhaldandi for-
mennsku. Aðrir sem menn
nefndu eru Árni Gunnars-
son, Sighvatur Björgvinsson,
Eiður Guðnason og Jóhanna
Sigurðardóttir, en menn telja
að enginn af þessum muni
fara fram gegn Kjartani,
enda þótt Kjartan hafi á
sínum tíma farið fram á móti
Benedikt.
Þá hafa menn rætt það í
alvöru að dusta rykið af ein-
hverjum gömlum forystu-
manni t.d. Gylfa Þ. Gísla-
syni, eða að finna einhvern
ungan og hressan mann,
hæfilega sögulausan í pólitík.
Meðal þeirra sem vilja
róttækar breytingar á flokks-
þinginu eru samkvæmt heim-
ildum blaðsins, varaformað-
urinn MagnúsH. Magnússon
og ritarinn Karl Steinar
Guðnason. Ekkert skal þó
fullyrt um að þeir vilji Kjart-
an burt.
Um 240 manns hafa setu-
rétt á flokksþingi Alþýðu-
flokksins.