NT - 10.09.1984, Síða 14
ytendasídan
Mánudagur 10. september 1984 14
8Í1SJHÖLD
Er frelsið best í hófi?
10% afsláttur
kallaður 50%!
■ Vörumarkaðurinn seldi ..Mikligarður bauð sínum viðskiptavinum upp á innlent sprotakál fyrir 63 krónur kilóið.
„frjálst" sprotakál frá Hollandi,
fyrir 190 kr. hvert kfló,
meðan...
Frjálst sprotakál þrefalt dýrara en einokað
■ Hvernig getur „fondue" sett sem
kostar 3.211 krónur á venjulegu verði,
kostað 2.900 kr. eftir að búið er að
veita 50% afslátt? Það kann að vefjast
fyrir ýmsum að finna rökrétt svar við
þessari spurningu.
„Fondue“ settið sem hér er um að
ræða rákumst við á í Miklagarði í
Reykjavík, þar sem því hafði verið
komið fyrir í rekka ásamt ýmsum
öðrum vörum. Yfir rekkanum var
stórt spjald þar sem greinilega var
gefið til kynna að vörurnar í rekkan-
um væru seldar með 50% afslætti. Á
settinu var síðan verðmiði sem á stóð
„2.900“. Ekki var á neinn hátt gefið
til kynna að um gallaða vöru væri að
ræða. Þegar farið var að athuga málið
fundust fleiri sett sömu tegundar í
hillu þar skammt frá. Þau sett kostuðu
3.211 kr. stykkið.
Þegar Einar Hermannsson, deildar-
stjóri var spurður um þetta, sagði
hann fyrst að þrátt fyrir merkinguna,
væru ekki allar vörur í rekkanum
seldar með 50% afslætti. Hann féllst
þó á að þetta fyrirkomulag væri
villandi og sagði að „fondue“ settið
„ætti eiginlega ekki að vera þarna“.
Einar kvað þetta sett vera lítils háttar
útlitsgallað og væri slegið nokkuð af
verðinu vegna þess.
í annarri verslun fundum við inn-
lent sprotakál frá Sölufélagi garð-
yrkjumanna sem kostaði 63 kr. kílóið.
ísamkeppni við
innlenda framleiðslu
Eins og menn minnast, var því á
sínum tíma haldið fram af hálfu
fylgismanna frjáls innflutnings, og þá
ekki síst væntanlegra innflytjenda, að
þess yrði vandlega gætt að stofna ekki
til neinnar samkeppni við innlenda
framleiðslu.
Aðalsteinn kvað ekkert sprotakál
hafa verið á markaði þegar þessi 100
kíló voru pöntuð, þótt raunin væri
önnur þegar sendingin kom til
landsins. Annars sagði Aðalsteinn að
hér hefði verið um tilraun að ræða,
menn hefðu viljað sjá þetta kál.
Guðmundur Sigþórsson í landbún-
aðarráðuneytinu kvað sprotakál ekki
hafa verið komið á „bannlista", þegar
innflutningsleyfið var veitt, en viður-
kenndi að ekki væri nægilega vel
fylgst með því í ráðuneytinu hvaða
grænmetistegundir væru til í landinu
á hverjum tíma. Guðmundur sagði
liins vegar að þar á bæ væru menn
náttúrlega alltaf að læra af reynslunni
og vonandi stæði þetta til bóta.
Verðmunurinn þrefaldur
Verðmunurinn í smásölu er sem
sagt þrefaldur og meira að segja einni
krónu betur. í heildsölu er verðmun-
urinn ekki alveg svona mikill. Heild-
söluverð á sprotakáli hjá Sölufélaginu
er núna 50 krónur á kíló en heildsölu-
verð á innflutta sprotakálinu mun
hafa verið um 135 krónur. Álagningin
er því mun hærri á innflutta kálinu,
hvort sem reiknað er í prósentum eða
krónutölu. Þannig fær verslunin í sinn
hlut um 55 krónur fyrir að selja hvert
kíló af frjálsu sprotakáli en aðeins 13
krónur sé um að ræða gömlu, góðu,
innlendu einokunarvöruna.
Því er við að bæta, að þegar við
vorum aftur á ferð í Miklagarði síðar
'sáma dag, var „fondue“ settið enn á
sama stað og með sömu verðmerk-
ingu.
■ 50% afsláttur er greinilega gefinn
til kynna.
■ Langar þig í sprotakál með kvöld-
matnum? Ef svo er geturðu valið um
frjálst sprotakál frá Hollandi fyrir 190
kr. kflóið og venjulegt gamaldags,
íslenskt og undirokað sprotakál frá
Sölufélagi garðyrkjumanna fyrir 60-
70 kr. kflóið.
Ertu hissa? Það er varla hægt að lá
þér það. Frelsið í þessum efnum átti
að færa okkur betri vöru fyrir lægra
verð. Það er Eggert Kristjánsson &
Co sem fékk fyrir skömmu leyfi
landbúnaðarráðuneytisins til að flytja
inn 100 kíló af sprotakáli(broccoli)
Þessu káli hefur nú verið dreift í
verslanir og þegar NT keypti sýnis-
horn af þessari vöru á föstudaginn,
var smásöluverðið 190 kr. kílóið. Yfir
sprotakálinu gnæfði áferðarfallegt
skilti sem á stóð: „Frjálst" grænmeti
frá Hollandi. Ekkert sprotakál frá
Sölufélaginu var á boðstólum í þeirri
verslun, þannig að um valfrelsi var
ekki að ræða á þeim vettvangi.
A U ' L. ' *L.."X •
Aour en þu byrjar að byggja
skaltu kynna þér
JLbyggingalánin og JL vöruúrvalið
Það sem er mikilvægast fyrir þann sem er að
byggja eru auðvitað fjármálin og byggingar-
hraðinn.
J.L. Byggingavörur gerir húsbyggjendum
kleift að byggja með fyrsta flokks vörum á
sérstökum J.L.-lánakjörum.
kolli. Einnig er hægt að semja um sérstök
J.L.-lán, sem miöast t.d.-við útborgun líf-
eyrissjóðslána eða húsnæðismálastjórnar-
lána. Þannig getum við verið með frá byrj-
un.
J.L. Byggingalánin
kvæmd:
Stofnaður er viðskiptareikningur, fyrir tí-
unda hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar
yfirfarin, a.m.k. 20% greidd í peningum, og
allt að 80% sett á skuldabréf til allt að sex
mánaða. Þannig er þetta framkvæmt koll af
Iönaðarmenn sem vinna fyrir viðskiptavini
okkar þurfa ekki aö leita annað í efniskaup-
eru þannig í fram- um. Um leið og búið er að grafa grunninn
geta smiðirnir komið til okkar og fengið
fyrstu spýturnar. Og í framhaldi af því fæst
allt byggingarefniö hjá okkur.
Renndu við vestur í bæ og talaðu við okkur
ef þú ert að byggja.
IBYGGIHCAVÖBUB
HRINGBRAUT 120: