NT - 10.09.1984, Blaðsíða 16
rrsr rtfánudagur 10. september 1984 16
uJJ
Sprengju-
mennirnir
í Rangoon:
Refsað
á laun?
Tokyo-Reuter
■ Japanska fréttastofan
Kyodo skýrði frá því í gær
að heiinildir í Peking
hermdu að Norður-Kóreu-
mönnum, sem viðriðnir voru
sprengjuárásina í Rangoon
á Burma í október í fyrra,
hefði verið refsað á laun í
Norður-Kóreu. Sautján
suður-kóreskir embættis- og
stjórnmálamenn létu lífið í
árásinni.
I fréttinni er það haft eftir
áreiðanlegum heimildum í
Peking að „norður-koresk
yfirvöld hefðu gefið í skyn
að þau hefðu í kyrrþey í lok
síðasta árs refsað þeim sem
hún taldi viðriðna sprengju-
árásina í Rangoon."
Talsmaður sendiráðs
Norður-Kóreu í Peking vildi
ekkert tjá sig um fréttina.
Eftir sprengjuárásina
handtóku Burmamenn tvo
norður-kóreska liðsforingja
og dæmdu til dauða og rufu
einnig stjórnmálatengsl við
stjórnina í Pyongyang.
Zhivkov aflýsir
- Sambúð stórveldanna aldrei verri?
Ronri-Reuter.
■ Vestur-þýsk stjórnvöld
skýrðu frá því í gær að Todor
Zhivkov, forseti Búlgaríu, hefði
ákveðið að hætta við fyrirhug-
aða heimsókn sína til Vestur-
Þýskalands, sem ráðgerð var
síðar í þessum mánuði. I síðustu
viku hætti Erich Honecher,
leiðtogi í Austur-Þýskalandi,
einnig við heimsókn til Vestur-
Þýskalands, að því talið er
vegna þrýstings frá Sovétríkjun-
um og öðrum aðildarlöndum
Varsjárbandalagsins.
í yfirlýsingu þýskra stjórn-
valda sagði að Búlgarir skýrðu
heímasetu Zhivkovs með því að
heimsóknin sé ekki tímabær nú
þegar verið er að setja upp
meðaldrægar kjarnorkuflaugar
í Vestur-Þýskalandi og NATO
stendur fyrir einhverjum stærstu
heræfingum í sögu sinni. Þýska
stjórnin sagðist harma ákvörð-
un Zhivkovs og að viðræður
milli austurs og vestur væru
ákaflega mikilvægar einmitt nú
á mjög viðkvæmum tímum. Af-
lýsing heimsóknarinnar er talin
nokkuð áfall fyrir utanríkis-
stefnu Kohls kanslara, sem hef-
■ Zhivkov, Búlgaríuforseti,
fer hvergi og gerist nú fátt um
austantjaldsleiðtoga í Vestur-
Þýskalandi.
ur reynt að fara nokkuð aðrar
leiðir í samskiptunum við aust-
urblokkina en Bandaríkja-
menn.
Nicolai Causescu, leiðtogi
Rúmeníu, er væntanlegur í
opinbera heimsókn til Vestur-
Þýskalands í október og er ekki
enn vitað hvort hann muni
standa við þá ákvörðun sína.
Causescu hefur reynt að vera
hvað óháðastur Sovétstjórninni
■ Franskur stuðningshópur
við sjálfstæðisbaráttu Baska til-
kynnti í fyrrakvöld að átta bask-
neskir fangar, sem eru í hungur-
verkfalli í fangelsi í grennd við
París, séu í lífshættu og geti
hvorki talað né heyrt lengur.
Baskarnir eru í hungurverk-
falli til að mótmæla samkomu-
lagi sósíalistastjórnanna í París
og Madrid, þar sem kveðið er á
af leiðtogum austantjaldslanda.
Um svipað leyti og ákvörðun
Zhivkovs var tilkynnt birtist
fréttaskýring frá Tass, opinberu
sovésku fréttastofunni, þar sem
stóð að samskipti stórveldanna
hefðu aldrei verið stirðari,
hvorki fyrr né síðar, og að
vígbúnaðarkapphlaupið væri að
fara úr böndunum.
um að sjálfstæðisbaráttumenn
Baska skuli framseldir frá
Frakklandi til Spánar. Sjö fang-
anna átta bíða þess að vera
fluttir til Spánar, en allir eru
þeir taldir vera meðlimir í ETA,
frelsissamtökum Baska.
Franska stjórnin hefur reynd-
ar ekki enn tekið lokaákvörðun
um það hvort Baskarnir skuli
framseldir, en fátt er talið benda
til þess að hún breyti ákvörðun
sinni.
Baskar í hungurverkfalli:
í lífshættu
París-Reuter.
FLUTTIR
— innan veggja
VARAHLUTAVERSLUN okkar er flutt i glæsilegt húsnæöi
í sömu byggingu og við höfum verið i að
Ármúla 3, inngangur frá Hallarmúla.
Næg bílastæði.
Opiðfrákl. 8.30 til kl. 18.00
alla virka daga frá mánudegi til föstudags.
BÚNADARDEILD
■ Þessi mynd er tekin í gær á flugsýningu í London og sýnir
tvær af nýjustu og fullkomnustu herþotum Bandaríkjamanna,
F-20 að nafni, á reynsluflugi. í baksýn má greinilega sjá
Turnbrúna frægu. s.n»mynd-potfoio.
VISSIR ÞÚ?
Aö Ijósaböð eru ekki bara fyrir þá sem vifja verða brúnir.
Þau gera mikið fyrir vöðvabólgu, gigt, óhreina húð, þurrka ■
bóluro.m.fl.
Fyrir utan að það lyftir sjálfsvirðingunni heilmikið upp.
Láttu sjá þig
Opið frá kl. 7-23.00 virka daga
laugardaga og sunnudaga frá ki. 10-23.00.
KOLBRÚN
SÓLBAÐSSTOFAN
Grettisgötu 57 a, sími: 62 14 40.
Vestur-Berlín:
Nýnasistar
handteknir
Vestur:Berlín-Reuter
■ Áðfaranótt sunnudags
handtók þýska lögreglan þrett-
án ný-nasista í Vestur-Berlín,
sem voru á fundi í leyniklúbbi
hægrí öfgamanna, þar á meðai
þrjá þekkta nasistaforingja.
Talsmaður þýska dómsmála-
ráðuneytisins sagði að ýmis skjöl
hefðu verið gerð upptæk í fundar-
húsinu í úthverfi Vestur-Berlín-
ar, þar á meðal nafnalistar og
ýmiss konar svardagar. Fleiri
skjöl komu upp úr kafinu þegar
lögreglan leitaði í ellefu öðrum
húsum.
Eitt þessara skjala er talið
sérdeilis mikilvægt, en þar er
fjallað um stofnun þjóðlegs evr-
ópsks nasistabandalags í náinni
framfíð. Það skjal var undirritað
af Michael Kúehnen, eftirlýst-
um ný-nastistaforingja, sem
áður var foringi í vestur-þýska
hernum.
Draumaríkið Li
Velmegu
svörtu fjs
■ Síðan 1928 hefur Franz Jósef II
hertogi setið við völd í smáríkim
Liechtenstein í grösugum Alpadal á
mörkum Sviss og Austurríkis. Þegai
hann komst til valda var hann fyrst
hertoginn af Liechtenstein sem yfirgal
Ijósadýrðina og glauminn í Vín o{
settist að í heimalandinu. Á veldis
tíma hans hafa orðið gagngerar um
myndanir á smáríkinu fjöllótta, en nt
hefur elsti sonur hans, Hans Adam.
tekið við forsjá hinna 26.400 þegna i
Liechtenstein - með því fororði af
hann ætli „sem minnstu að breyta“.
Hertogadæmið Liechtenstein á séi
265 ára sögu sem sjálfstætt ríki.lo^
lengst af var það eitt vanþróaðastc
svæði í Evrópu eða allt fram að seinnr
stríði. Þá lifðu flestir íbúarnir í
frumstæðum landbúnaði.
En Franz Jósef setti sér það mark-
mið að mjaka Liechtenstein inn i
nútímann og valdi til þess leið hins
argasta kapítalisma og frjálshyggju.
eða eins og hann segir sjálfur: „Við
vorum að beita „Reaganomics“ meðan
Reagan var ennþá leikari.“ Aðgerðii
hans hafa heppnast svo vel að Liecht-
enstein er nú eins konar evrópskl
Kuwait og getur státað af blómlegasta
efnahag í Evrópu. Iðnaðarframleiðsla
á mannsbarn er tvöfalt meiri en í
V-Þýskalandi, aðalframleiðsluvör-
urnar tæknivarningur og gervitennur.
Samkvæmt síðustu fréttum var aðeins
rúmur tugur Liechtensteinbúa at-
vinnulaus. Gjaldmiðillinn er hinr
stöðugi svissneski franki og eina varn-
arliðið er fjörutíu manna lögreglu-
hópur. MeðorðumFranzJósefs: „Vii
höfum leyst flest okkar vandamál.“
Ríkisbúskapurinn í Liechtensteir
er heldur ekki þurftafrekur. Aðeins
tveir ráðherrar þiggja laun og fimmt-
án meðlimir þjóðþingsins fá ekkert
fyrir sinn snúð umfram kostnað.
TekjuSkattur meðallaunamanns ei
um sex prósent, og þeir stöndugustu
■ Hans Adam, hinn nýi hertogi, Fr