NT - 10.09.1984, Blaðsíða 28
Mánudagur 10. september 1984 28
Golf:
Ballesteros
sló í gegn
■ Það verður hreinn úrslitaleikur á milii ÍR og Ármanns í suð-vesturlands riðlinum í úrslitakeppninni í 4. deild. Sá leikur verður
á morgun á Melavelli. IR-ingar sigruðu Létti létt á Melavelli nú um helgina með fímm mörkum gegn tveimur og hafa þeir nú sex
stig en Ármenningar eru efstir hafa sjö stig. Leikur IR og Leiknis var jafn til að byrja með, en í síðari hálfleik þá tóku ÍR-ingar
völdin og komust í fímm eitt eftir að staðan í hléi hafði verið 2-1. Það voru þeir Tryggvi Gunnarsson 2, Hlynur, Vignir og Gústaf
sem gerðu mörk ÍR-inga en Andrés Kristjánsson gerði bæði mörk Léttis. í norð-austur riðlinum þá var einn leikur. Reynir sigraði
Tjörnes með miklum mun. Myndin hér að ofan er úr leik IR og Léttis á Melavelli nú um helgina og má sjá að aðstæður eru ekki tii
fyrirmyndar, pollar og buslugangur mikill. NT-mynd Róbcrt
Frjálsíþróttamót í London:
Cram félll - Aouita vann
- hjón sigruðu í hlaupagreinunum
■ Mikið frjálsíþróttamót fór
fram á Crystal Palace leik-
vangnum í London um helgina.
Hápunktur mótsins var mílu-
hlaup þar sem leiddu saman
hesta sína m.a. Steve Cram,
heimsmeistari í 1500m hlaupi
og ólympíumeistarinn í 5000m
hlaupi Said Aouita frá Mar-
okkó. Hlaupið varð þó ekki
eins spennandi og við var búist
þar sem Cram féll á brautina á
síðasta hring. Aouita skeiðaði í
niark og honum næstur varð
svo „gamli meistarinn“ John
Walker frá Nýja Sjálandi.
Þegar Cram féll þá var hann
að reyna að troðast fram í
röðinni en hljóp þá á bakið á
félaga sínum Graham William-
son og hrökklaðist síðan utan í
Kenýabúann Mike Boit og féll
svo með skell á brautina.
Tími Aouita í hlaupinu var
3:55.43 mín en Walker sem
varð honum næstur kom í mark
á 3:55,97.
Lítið var um stórafrek á
mótinu og greinilegt að kepp-
endurnir eru orðnir þreyttir
eftir Ólympíuleika og fjölda
móta. Grace Jackson frá Jama- <
ica sigraði í 200m hlaupi og
varð rétt á undan Brisco-
Hooks. Brisco-Hooks, þrefald-
ur ólympíumeistari, sigraði svo
í lOOm hlaupinu rétt á undan
Jeanette Bolden.
Breska stúlkan Kathy Cook
sigraði í 400m hlaupi og eigin-
Önnur helstu úrslit; í mótinu
urðu þessi.
Míluhlaup kvenna:
Ruth Wysochi, U.S. 40:21,78
Spjót kvenna:
Mayra Vila, Kúbu 63,60
Fatima Whitbread Bretl 62,38
200m karla:
James Butler, U.S. 20,52
lOOm karla:
Osvaldu Lara, Kúbu 10.28
Stangarstökk:
Earl Bell, U.S. 5,50
Þrístökk:
Willie Banks, U.S. 17,29
llOm grind karla:
Tony Campell, U.S. 13,36
Steve Cram féll í orðsins fyllstu merkingu.
íslandsmótið 17. umferð
NT-lið umferðarinnar
Said Aouita sigraði enda engin keppni.
Baldvin Guðmundsson
Þór (1)
Þorgrímur Þráinsson
Val (3)
Sverrir Kinarsson
Fram (3)
Loftur Olafsson
IJBK (3)
Ómar Rafnsson
UBK (1)
Ásbjörn Bjömsson
KA (2)
Guðmundur Þorbjörnsson
Val (4)
Jón Einarsson
UBK (2)
Kristinn Guðmundsson
Víkingi (3)
Halldór ÁskeLsson
Þór (3)
Hilmar Sighvatsson
Val (t)
Frjálsíþróttamót í Rhede
■ Rétt fyrir helgina fór fram
frjálsíþróttamót í Rhede í V-
Þýskalandi. Nokkrir kunnir
keppendur voru á mótinu en
árangur ekki til að hrópa húrra
fyrir: Hér eru nokkur úrslit:
20.73
45,52
100 m
Mel Lattany, U.S. 10,43
Marian Woronin, Póll. 10,49
200 m
James Butler, U.S.
400 m
Mark McCoy, U.S.
1500 m
Uwe Becker, V-Þ 3:46,16
Hástökk
Dieter Mögnb., V-Þ. 2.34
Jaczek Wszola, Póll. 2,27
Langstökk
Larry Myricks, U.S. 8,59
■ Spænski golfarinn Sever-
iano Ballesteros stal senunni á
Evrópumeistaramótinu í golfi
sem nú stendur yfir á Englandi.
Eftir þrjár umferðir á mótinu
er hann í efsta sæti ásamt
Bretanum Howard Clark báðir
hafa leikið á 203 höggum. Clark
hafði góða forystu þegar komið
var að lokaholunum í þriðja
Bretanum og Ballesteros
skaust upp að hliðinni á hon-
um.
Staða efstu manna er þessi
eftir þrjár umferðir:
Ballesteros og Clark 203 högg
Calero (Spáni)
Gallacher (Bretl.) 205 högg
Ingibjörg
stigahæst
maður hennar Garrv sigraði í
800 m hlaupi karla. I 800m var
meðal þátttakenda Alberto Ju-
antorena frá Kúbu en hann
kom síðastur í mark.
Ungmennafélag Sam-
hygð í Gaulverjabæjarhreppi
sigraði á íþróttamóti félagsins
og Ungmennafélagsins Vöku
úr Villingaholtshreppi, sem
haldið var við Félagslund í
Gaulverjabæ síðastliðinn
sunnudag. Samhygð hlaut 75
stig gegn 55 stigum Vöku. Stiga-
hæsti einstaklingur á mótinu
varð Ingibjörg ívarsdóttir
Samhygð, sem hlaut 16 stig, og
varðveitir hún næsta árið silf-
urskjöld þann sem stigahæsti
keppandi félagsins sem sigrar á
mótinu ævinlega hlýtur.
Á mótinu var keppt í sex
greinum kvenna og sjö greinum
karla. Unnur Stefánsdóttir
Samhygð sigraði í 100 metra
hlaupi á 13,5 sekúndum, og í
langstökki, stökk 5.01 metra.
Ingibjörg ívarsdóttir Samhygð
sigraði í hástökki, stökk 1.55
metra, og Þuríður Einarsdóttir
Vöku sigraði í kúluvarpi, varp-
aði 9.14 metra, og í kringlu-
kasti, kastaði 26.06 metra. Ein-
ar H. Haraldsson Vöku sigraði
í 100 metra halupi, á 12.0
sekúndum, í langstökki með
6.35 metra og í hástökki með
1.70 metra. Pétur Guðmunds-
son Samhygð sigraði í stangar-
stökki, stökk 2.80 metra, í
kúluvarpi, varpaði 15,34
metra, og í spjótkasti, kastaði
52.04 metra. Einar Hermunds-
son Vöku sigraði í 1500 metra
hlaupi á 5:14,2 mín.
Besta afrek mótsins vann
Pétur Guðmundsson í kúlu-
varpi og gefur það 809 stig.
Pétur fékk bikar fyrir, og það
fékk einnig Ingibjörg ívarsdótt-
ir sem vann besta afrek kvenna
í hástökki.
íshokký:
Sovétmenn eru
geysisterkir
■ Nú stendur yfir í Kanada
svokölluð „Canadian Cup“
keppni í íshokký. Keppni þessi
fer fram árlega og til hennar
mæta sex sterkustu íshokký-
landslið í heimi. Kanadamenn,
Rússar, Bandaríkjamenn,
Tékkar, Svíar og V-Þjóðverjar.
Allt eru þetta atvinnumenn í
greininni sem mæta til keppni;
að vísu sumir dulbúnir atvinnu-
menn.
Sovétmenn eru án efa með
eitt sterkasta íshokky lið í
heimi og þeir eru núverandi
Ólympíumeistarar.Sigruðu alla
sína leiki á Ólympíuleikunum
með yfirburðum. Þeir sigruðu
Tékka í úrslitaleik. Kanada-
menn stóðu sig vel á Ólympíu-
leikunum og þeir hafa á að
skipa mjög sterku liði. Önnur
lið í þessari keppni eru einnig
geysisterk. Eftir að fjórir leikir
hafa verið leiknir er staðan á
mótinu þessi:
SovétríkinS 8 stig
Kanada............... 5 stig
Bandaríkin .......... 5 stig
Svíar................ 4 stig
Tékkar .............. 1 stig
V-Þjóðverjar ........ 1 stig
Það er því líklegt að það
verði Sovétmenn sem sigri
þessa keppni en þeir sigruðu
hana einnig á síðasta ári.
Það kemur Kanadamönnum
ekki að neinu gagni gegn sterku
liði Sovétmanna þó þeir hafi
einn besta íshokkýspilara sem
uppi er. Sá heitir Wayne
Gretzky og spilar með Edmont-
on Oilers í atvinnumannadeild-
inni í Ameríku. Hann hefur
slegið nær öll met sem hægt er
að slá í íshokkýinu þarna fyrir
vestan en er samt kornungur.
KSÍ fundur
■ Knattspyrnusainband
íslands boðar til fundar
með þjálfurum yngri
flokka og forráðamönn-
um knattspyrnudeilda,
miðvikudaginn 12. sept-
ember kl. 20.15 (eftir leik
Islands og Wales) í Þrótt-
heimum.
Fundarefni:
Niðurstaða eftir hrað-
mót 5. flokks.
Hugmyndir um breyt-
ingu á aldursskiptingu
yngri flokka.
Onnur mál.