NT - 22.12.1984, Side 10
Laugardagur 22. desember 1984
Texti:
Sverrir Alberts-
son blm.
10
■ „Heimskingi, á þessari
nóttu verður sál þín af þér
heimtuð, og hver fær þá
það sem þú hefur aflað.
Svo fer þeim er safnar sér
fé, en er ekki ríkur hjá
Guði.“
Með þessum orðum
bauð séra Sigurður
Haukur Guðjónsson
þingmenn velkomna til
þings 10. okt. sl.
Séra Sigurður vitnaði í
Lúkasarguðspjall, þar sem
sagt er frá ríka bóndanum
er safnaði auði í hlöður
sínar en Guð mælti þessi
orð til hans.
Meðan Sigurður
messaði yfir þingheimi í
dómkirkjunni stóðu
þúsundir BSRB manna á
Austurvelli.
Lögreglumenn neituðu í
fyrstu að standa
heiðursvörð við
Alþingishúsið, en létu
undan þrábeiðni
yfirmanna sinna.
Fréttamaður
„Valhallarútvarpsins“
svonefnda, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson,
stóð við dómkirkjuhornið
og fylgdist með úr fjarska
en blaðamenn NT, þá í
verkbanni, seldu fjölrit
sitt, TNT, á Austurvelli.
107. löggjafarþing
þjóðarinnar var haflð.
Uppskeru-
brestur
Þrátt fyrir óvenjulegt ástand
í landinu er þingið kom saman
skilur liðið haustþing fátt eftir
minnisvert.
Störf þingsins virðast beinast
æ meir inn á braut daglegs
rekstrar þjóðarbúsins og ein-
kennist umræða nokkuð af því.
Strax á öðrum degi þingsins
gaf forsætisráðherra, Stein-
grímur Hermannsson, þinginu
skýrslu um kjaramál. Umræða
um þau stóð þá í tvo daga.
í ræðu sinni sagði Steingrím-
ur m.a. „Til að ná þessum
markmiðum (hjöðnun verð-
bólgu, atvinnuöryggi og stöðv-
un erlendrar skuldasöfnunar
- innskot blm.) hefur ríkis-
stjórnin ákveðið að fylgja á-
fram gengisstefnunni, sem svo
hefur verið nefnd, og gerir ráð
fyrir því aö hámarksbreyting á
gengi á næsta ári verði 5% eins
og verið hefur á þessu ári.
Þessu fylgir að sjálfsögðu að
efnahagslífinu er settur mjög
þröngur rammi. Út frá þessum
forsendum má reikna með að
beinar launahækkanir gætu á
næsta ári orðið að meðaltali
5% eða á milli áranna 1984 og
1985 10%.“
Stjórnarandstaðan tók um-
mælum Steingríms fálega og
gagnrýndi stjórnina harðlega
fyrir aðgerðir ríkisins í deil-
unni við BSRB. Þá urðu um-
mæli Alberts Guðmundssonar,
fjármálaráðherra til að koma
af stað mikilli umræðu um
störf kennara.
Albert sagði m.a. „Ég get
talið upp að það er ekki nema
um það bil helmingur af árinu
sem kennarar vinna... Ef
kennarar í þessu tilfelli gera
áframhaldandi kröfur, sem
þeir eiga fullan rétt á að gera
innan sanngirni, þá verða þeir
að vera fullkomlega viðmiðun-
arhæfir miðað við aðra í þjóð-
félaginu. (Gripið fram í: Eru
þeir það ekki núV) Nei þeir eru
það ekki að mínu mati.“
Ummælin vöktu mikla reiði
meðal kennara og fl. og tók
Albert þau aftur á þingi mánu-
daginn 15. okt.
Umræðunni um kjaramál
lauk Svavar Gestsson með svo-
hljóðandi vísu úr ræðustól al-
þingis:
Mannúðin okkar manna
er mikil og dásamlig.
Við göngum svo langt í
gæðum
að guð má vara sig.
Daglegt
amstur
áfram
En þingmenn voru ekki
hættir umræðu um kjaramálin.
18. okt. kvaddi Svavar Gests-
son sér hljóðs utan dagskrár
vegna yfirlýsingar forsætisráð-
herra í útvarpsfréttum þann
sama dag, en þar sagði m.a. að
ríkisstjórnin sé enn þeirrar
skoðunar að leggja ætti meiri
áherslu á skattalækkanir en
minni peningalaunahækkanir
„enda sé það Ijóst að eina
leiðin til að koma í veg fyrir
verðbólgu á nýjan leik með
víxlhækkunum verðlags og
launa“.
Svavar sagði m.a. „Ég tel að
óhjákvæmilegt sé að yfirlýsing
forsætisráðherra sé skoðuð
Umræðan barst vítt
og breitt og var
meðal annars fjall-
að um hrossahald í
Engey og súlnadráp
V íSúlnaskeri. /
sem framhald af hótun for-
manns Sjálfstæðisflokksins um
að svipta launafólk þeim ár-
angri sem hugsanlega verður í
kjarasamningum.“
Síðar í umræðunni endurtók
Steingrímur þá skoðun sína að
eina færa leiðin í stöðunni sé
að ríki og sveitarfélög taki á sig
verulegar og „jafnvel miklar
skattalækkanir til að bæta
kaupmáttinn og forða atvinnu-
vegunum frá peningalauna-
hækkunum".
23. okt. urðu enn á ný utan-
dagskrárumræður á þingi.
Kjartan Jóhannsson krafðist
skýrra svara varðandi skatta-
lækkanir, vaxtalækkanir og að-
gerðir í húsnæðismálum, sem
ræddar voru í tengslum við
kjarasamninga.
Steingrímur lýsti því yfir að
ríkisstjórnin væri enn reiðubú-
in til skattalækkana.
Þá varð umræða um þrjú
bréf fjármálaráðherra, sem of
langt mál yrði að rekja hér, en
vísast til ágætrar bókar um
verkfall opinberra starfs-
manna, Verkfallsátök og fjöl-
miðlafár.
Samningar BSRB og ríkisins
voru undirritaðir30. okt. sl. og
lauk þá í aðalatriðum umræð-
um á þingi um þau mál.
Fjölmiðlar og
radío valhöll
Fjölmiðlar voru nokkuð
áberandi, eða réttara sagt setti
fjarvera þeirra nokkuð svip
sinn á haustmánuði. Eftir að
ríkisfjölmiðlarnir hættu út-
sendingum þann 1. okt. sl.
ríkti full fjölmiðlaþögn hér á
landi.
Þá er undanskilið blað okkar
NT manna TNT, er hóf göngu
sína 2. október, og tvær ólög-
legar útvarpsstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu auk einhverra
út um land.
Valhallarútvarpið svokall-
aða varð tilefni heiftúðugra
deilna á þingi.
Eiður Guðnason flutti 24.
október þingsályktunartillögu
í efri deild þingsins, um að
komið yrði á fót þingnefnd til
að kanna afskipti ráðherra og
einstakra embættismanna af
rekstri ólöglegra útvarps-
stöðva.
Eiður var í framsögu sinni
harðorður í garð ráðherra
sjálfstæðismanna og sakaði þá
Albert Guðmundsson. Matthí-
as Bjarnason og Ragnhildi
Helgadóttur um að hafa haft
óeðlileg afskipti af útvarps-
rekstri frjálshyggjumanna, er
ráku útvarpsstöð um tíma úr
húsi Sjálfstæðisflokksins.
Umræðan barst vítt og
breitt og var meðal annars
fjallað um hrossahald í Engey
og súludráp á Súlnaskeri. Mál-
inu var vísað til allsherjar-
nefndar.