NT - 22.12.1984, Síða 14
Sigtún, mtömmti dynomaurinn t mkmmmtibrmnmmnum ri&mr tll fmllms
Breytt i Poppmlnjaaafn fram á áramót
yyy/s/j
StuðmmnogOxtm áeru safnverðir
Gleðiverktakinn Stuö-
menn hefur i tilefni aukinna
umsvifa á teppa- og mottu-
markaðinum í landinu reist
sér hurðarás um hæl í formi
Poppminjasafns íslands.
Var það vígt með pompi og
prakt í gærkvöld og verður
siðan jafnað við jörðu á nýj-
an leik aðfaranótt 1. janúar
1985. Vettvangurinn er Sig-
tún við Suðurlandsbraut,
sem breytt verður í teppa-
verslun á nýja árinu, og er
ætlunin að kveðja með
sæmd þetta síðasta vígi lif-
andi tónlistar og eru það
Stuðmenn og Oxsmá, sem
eru tón- og myndlistarmenn,
sem eiga veg og vanda að
hátíðahöldunum.
Vígslan var eins og áður
sagði í gærkvöld. Hófst bali-
ið kl. 23.00 og stóð fram á
nótt. Síðan verður höggvið í
sama knérunn í kvöld, Þor-
láksmessu, 2. í jólum, fimmtu-
dag 27. des., föstudaginn
28. des., laugardaginn 29.
des. og að sjálfsögðu á
gamlárskvöld. Verður þeim
hrunadansi Sigtúns útvarp-
að í gömlu gufunni, landslýð
til ánægju og yndisauka.
Hugmyndinni að Popp-
minjasafni var fyrst hreyft í
ævisögu Stuðmanna,
„Draumur okkar beggja", en
orð eru til alls fyrst. Varla er
þó hægt að tala um nema
vísi að Poppminjasafni, því
Ijóst er að söguleg verðmæti
liggja í kistum og klæða-
skápum í öllum landsfjórð-
ungum. Vísir þeirra Stuð-
manna er því áskorun til allra
þeirra sem eiga eða vita af
hverskonar Poppminjum, að
skýra frá þvi hið fyrsta, svo
forða megi óbætanlegu
menningarsögulegu tjóni,
eins og svo oft hefur átt sér
stað þegar sögulegar minjar
eru annars vegar og strit-
andi alþýðan hins vegar.
Handritin voru etin til forna
og illt væri til þess að vita ef
ryþmagítar Erlings í Hljóm-
um yrði snæddur í gáleysi
eða tehetta saumuð úr
blómajakka Jónasar R.
Jónssonar sem starfaði með
Flowers á ofanverðum 7.
áratug 20. aldarinnar.
Áður var þörf en nú er
brýn þörf og þess má geta
hér í lokin, að G. Rúnar
Júlíusson, ein skærasta
poppstjarna íslands fyrr og
síðar, hefur ánafnað Popp-
dálku"in„
Weller styður námaverkamenn
■ Paul Weller hefur ákveðið að gefa út litla plötu
og á ágóði hennar að renna í verkfallssjóð
námuverkamanna. Lagið heitir „Soul Deep“, en
einhverjar vöblur munu hafa komið á kappann við
dauða leigubílstjórans á dögunum, en nú hefur
hann ákveðið að skipta gróðanum á milli námu-
verkamanna og ekkju bílstjórans.
Fairport Convention aftur á göt-
una
■ Fairport Convention sem lagði upp laupana
árið 1979, en hefur látið í sér heyra annað slagið
síðan, ætlar að leggja upp í langa og stranga
vetrarhljómleikaferð á jóladag og mun ákvörðunin
um að endurvekja þetta gamla folk-rokk band
hafa fæðst eftir verulega velgengni þeirra á hljóm-
leikahátíðum í sumar. Þar verða á ferðinni Dave
Swarbrick, Dave Pegg, Bruce Rowland og Simon
Nicol.
Tom Petty handarbrotinn
■ Tom Petty var að hlusta á upptökuna á lagi
sínu „The Best of Everything" sem væntanlegt er
á nýju plötunni „Sothern Accents" og mun þá hafa
orðið svo uppnuminn af hrifningu að hann sló
vinstri hendinni af alefli í vegginn og braut nokkur
bein. Það tók eina fjóra tíma að tjasla henni saman
á ný og er með öllu óljóst hvort hann getur
nokkurn tímann leikið á gítar á nýjan leik, svo i
eitthvert vit sé í.
M Oxsmá í rokkabillysveiflu
Poppminjasafnsins.