NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 21.01.1985, Qupperneq 1

NT - 21.01.1985, Qupperneq 1
10þúsund hringja daglega í núil þrjá - sjá bls. 5 Búseti fæ r lái i sjá bls. 3 Vetur konunqur tekur völdin * * ■ ■ ■ Eftir eindæma veöur- blídu og hlýindi undanfarið hefur Vetur konungur á ný tekið völdin. Færð hefur spillst á fjall- vegum norðan lands og aust- an og frosthörkur gengið f garð um allt land. Veðurguðirnir skörtuðu sinu fegursta í Reykjavík og og skautasvell er á ný komið á Tjörnina. Móðir, barn og huiidur voru þar á ferð i vetrarsólinni þegar Ara, Ijósmyndara NT bar þar að, og siiiellti hann af þcssari mynd í síðdegissólinni. Ölvaðir ökumenn: 0kua2 staura ■ Tveir ölvaöir ökumenn óku á staura á götum Reykjavíkur aðfaranótt laugardagsins. í öðru tilvikinu var bíl stolið frá liúsi við Laufásveginn og rakst hann á staur þar skammt frá. Öku- maður hélt þó áfrant feröinni og fannst híllinn við Happdrætti Háskóla íslands í Tjarnargötu og í honum voru tveirgóðkunn- ingjar lögrcglunnar, vel við skál. Hinn bíllinn lenti á staur viö Eskitorg og eyðilagðist híll-1 inn í árekstrinum. Haraldur Olafsson: 4-5 mál gætu gefið til efni til stjórnarslita Haraldur Ólafsson þing maður Framsóknarflokksins sagði á almennum stjórnmála- fundi í Reykjavík í gær að það væru 4-5 mál sem gætu nú valdið stjórnarslitum. Stjórnarslit væru hins vegar ekkert sjálfgef- in þar sem menn teldu stjórnina ekki hafa lokið meginverkefni sínu að stöðva verðbólguna og koma atvinnumálum á fastan grunn. Málin sern Haraldur nefndi voru húsnæðismál, utanríkis- mál. útvarpslögin, vaxta- og verðbólgumál og kjaramál. „Ef ekki næst samstaða um þau mál sem Framsóknarflokkurinn lcggur frant á næstu vikum þá gæti þaö orðið Framsóknar- flokkurinn en ekki Sjálfstæðis- flokkurinn sem Itcfði frumkvæði að stjórnarslitum, sagði þing- maöurinn. Sjá frétt bls. 3. NT viðtal við Arnar Jensson nýjan yfirmann fíkniefnalögreglunnar - sjá bls. 4 Þingvellir: Maður tekinn í sumarbústað ■ Lögreglan á Selfossi hand- tók í gær mann, sem hafði komið sér fyrir í sumarbústað á Þingvöllum. Maðurinn, sem er gamall kunningi lögreglunn- ar, var færður til Reykjavíkur, þar sem hann verður yfir- heyrður af Rannsóknarlög- reglu ríkisins í dag. Þetta er í þriöja sinn. sem lögreglan handtekur óboðinn ge*st í sumarbústöðum í Þing- vallasveitinni. Á föstudagfóru menn frá RLR og Selfosslög- reglunni austur með mann, sem var handtekinn fyrr í vik- unni og var hann látinn benda á bústaði, þar sem útigangs- menn höfðu viðhafst. Maður- inn var síðan úrskurðaður f gæsluvarðhald á föstudag. ■ Nýr Kvndill kom til landsins í gær og þegar í gærkvöldi fór hann með fyrsta olíuskammtinn austur á firði, þar sem loðnubræðslur eru á síðustu dropunum. NT-mynd ah. ■íXVX n Nýtt olíuflutningaskip kemur til landsins: „Gerir allaolíu- dreifingu öruggari“ - segir Þórður Ásgeirsson forstjóri Olís ■ Nýtt olíuflutningaskip, Kyndill, í eigu olíufélaganna Olís og Skeljungs, kom í fyrsta sinn til hafnar í Reykjavík um hádegisbilið í gær. Skipiö verð- ur fyrst og fremst notað til olíu- og bensíndreifingar á innanlandshafnir og leysir það gamla Kyndil af hólmi í þeim verkefnum. Nýja skipið liélt í fyrstu ferð sína í gærkvöldi og var haldið austur á land með gasolíu, svartolíu og bensín, en þar eru loðnubræðslur á síðustu olíudropunum. Kynd- ill hinn nýi er einnig búinn út til lýsisflutninga. Nýi Kyndill tekur tvö þús- und tonn af olíu, sem er helm- ingi meira en eldra skipið gat flutt, og hann er geysilega fullkominn. „Þetta gerir alla olíudreif- ingu öruggari og það á ekki þess vegna að verða olíulaust neins staðar, eins og hefur gerst á loðnuvertíðinni fyrir austan, þar sem við höfðum ekki undan með gamla skip- inu," sagði Þórður Ásgeirsson forstjóri Olís í samtali við NT í gær. Kyndill var keyptur frá Nor- egi og þar var hann einnig smíðaður, árið 1982. Kaup- verðið var 122-23 milljónir króna. Allt um íþróttaatburði helgarinnar bls. 19-24

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.