NT - 29.01.1985, Blaðsíða 3
ABOT
Þriðjudagur 29. janúar 1985 3 Blað II
Tölvur 09 tækni
Atlantis:
Islenskar tölvur
hafa „meikað það“
■ Islenskar tölvur, hvað er
nú það? Eflaust hafa margir
velt þeirri spurningu fyrir sér
í júlí 1983, þegar fyrirtækið
Atlantis hóf starfsemi.
NT ákvað að forvitnast um
hvernig hefði gengið og hvort
íslenskar tölvur hefðu „meik-
að það". Fyrir svörum varð
Leifur Steinn Elíasson, for-
stjóri hjá fyrirtækinu.
Aðdragandi og
þróun fyrirtækisins
Það var á árinu 1982 að
upp kom sú hugmynd að
hægt væri að framleiða ís-
lenskar tölvur og framleiða
þær fyrir innlendan markað.
Þessi hugmynd kom frá
mönnum sem lengi höfðu
starfað á tölvusviðinu, og
höfðu brennandi áhuga á öllu
sem að tölvum laut. í fyrstu
var um að ræða starfsemi sem
var fyrst og fremst unnin í
sjálfboðavinnu, og fólst sú
vinna í að safna upplýsingum
um hvaða aðlilar innlendir og
erlendir gætu látið í té hráefni
sem þyrfti við framleiðsluna.
Það er svo ekki fyrr en í júlí
1983 eins og áður segir. sem
fyrirtækið tekur formlega til
starfa. Allt fram til ársins
1984 var verið að útfæra tölv-
una. hanna hana og prófa og
gera hana söluhæfa. Það er
svo ekki fyrr en í ársbyrjun
1984 sem fyrstu tölvurnar fara
frá okkur. Árið 1984 seldum
við eitt hundrað tölvur og er
það framar vonum, og við því
sáttir við okkar hlut en ætlum
okkur stærri hluti í framtíð-
inni.
Miklir fordómar
í okkar garð
Það er önnur ástæða fyrir
því að dróst að setja tölvuna
á markað, og hún er sú að við
ætluðum upphaflega að starfa
sem framleiðslufyrirtæki ein-
göngu, og láta aðra sjá um
sölu á tölvunni. Þetta dæmi
gekk ekki upp, og fundum
við það mjög iljótlega þegar
við fórum að þreifa á þessu
máli við þá aðila sem komu
til greina. Söluaðilar, sem við
höfðum í huga, sögðu hreint
út að þeir hefðu ekki trú á
fyrirbærinu, og við ættum et't-
ir að fara fljótlega á hausinn.
Menn trúðu einfaldlega ekki
á íslenska tölvu og framtíðar
möguleika hennar. Þessir
fordómar eru ekki að ástæðu-
lausu, vegna þess hvernig
tölvufyrirtæki hafa sprottið
upp og síðan ekki haft bol-
magn til þess að standa við
fyrirheit sín um þjónustu og
eftirlit. Ég held hinsvcgar að
nú hafi þessar raddir hljóðn-
að að mestu, þar sem fyrir-
tækið hefur sannað getu sína
og kunnáttu á mjög ótvíræð-
an hátt.
Alíslensk tölva
Auðvitað er töl van íslensk, á
því leikur ekki nokkur vafi.
Á hinn bóginn eru uppi raddir
sem telja að hér sé ekki um
að ræða íslenska afurð.
heldur er sagt að við flytjum
inn tölvur í bútum. Við erum
einfaldlega að nýta okkur nú-
tímaíramleiðsluhætti.einsog
mörg önnur fyrirtæki hafa
gert, og er ekkert athugavert
■ „Atlantis er al-íslcnsk tölva" segir Leifur Steinn forstjóri Atlantis
við það. Margar tölvueining-
ar sem notaðar eru í tölvur
frá Bandaríkjunum eru fram-
leiddar í Taiwan og Japan.
Þetta þýðir ekki að um jap-
anskar tölvur sé að ræða.
Annað dæmi sem sýnir þetta
einnig vel. íslensk húsgögn
eru framlcidd úr innfluttu
hráefni. einfaldlega vcgna
þess að hér á landi vaxa ekki
það miklir skógar að hægt sé
að nýta þá til húsgagnasmíða.
Samt sem áður er talað um
íslensk húsgögn.
Gefin loforð og svikin
Það hefur verið yfirlýst
stefna stjórnvalda að versla
við íslensk fyrirtæki, nenia
um óhagkvæm viðskipti sé
bersýnilcga að ræða. Þrátt
fyrir stórar yfirlýsingar til ís-
lensks iðnaðar hefur ckki ver-
ið um að ræða að stjórnvöld,
cða embættismannakerfið
hafi sýnt okkur athygli, og er
það undarlcgt þegar litið er
til þess að við erum fyllilcga
samkeppnisfærir við niörg
stóru tölvufyrirtækin sem
hafa flutt inn vörur hingað.
Það er nægilcgt að líta til
stofnunar cins og Háskóla
Islands til þcss að sjá hvcrnig
litið hefur verið framhjá Atl-
antis tölvunum. Nýlega
keypti háskólinn fimmtíu
einkatölvur frá crlenda fyrjr-
tækinu IBM. Þetta er undar-
leg ráðstöfun þcgar litiö er til
þess að forsætisráðherrar og
aðrir merkir menn eru að tala
um stuðning við íslenskan
iðnað, og það er yfirlýst póli-
tísk stefna að styðja við bakið
á iðnaðinum. Þó er ekki verið
að segja með þessu að gengið
hafi verið algerlega fram hjá
okkur af cmbættiskerfinu, og
við þökkum þaö scm gert
hcfur verið gott. Sem dæmi
má nefna að ríkisskattstjóra-
embættið hefur skipt við Atl-
antis og líkað vel. Grund-
völlurinn fyrir áframhaldandi
starfi cr fyrir hendi, og sést
það cinna best á því að við
erum nú að skipta um hús-
næði, og auglýsa eftir fleiri
starfskröftum.
Allar geröir af
Prerrtsmiðjan
á lager
Eyðublöð á lager
Að auki framleiðum við allar aðrar stærðir
og gerðir tölvueyðublaða samkvæmt pöntun
og prentum í eins mörgum litum og óskað er.
Bónusseðlar
Launaseðlar
Reikningar
Reikningsyfirlit
Límmiðar
Höföabakka 7 - Reykjavík - Sími 83366