NT - 01.02.1985, Síða 1

NT - 01.02.1985, Síða 1
Auglýsingar og áskriftir hækka um 10% -óbreytt lausasöluverð ■ Frá og með deginum í dag hækkar áskrift að NT úr 300 krónum á mánuði í 330 krónur eða um 10%. Frá og með sama tíma hækkar auglýsingaverð unr 10% og kostar hver dálksentimctri nú 198 krónur. Þrátt fyrir þessar al- mennu hækkanir mun NT fást í lausasölu á sama verði og áður: 30 kr. á virkum dögum en 35 kr. um helgar. Raforkunotkun 1984: 250GWh minni en sam- kvæmt spánni frá 1981 ■ Raforkunotkun í fyrra var tæpum 250 gígavattstundum minni en orkuspáin frá 1981 gerði ráð fyrir eða 1726 GWh í stað 1972 GWh, og tæpum 200 gígavattstundum minni en í endurreiknaðri spá frá 1983. Þetta kemur fram í frétt. sem orkuspárnefnd sendi frá sér í gær. Þrjú atriði eru talin skýra mismuninn á orkuspánunr og raunverlulegri notkun. í fyrsta lagi hefur gengið hægar að út- rýrna olíukyndingu en spáin frá 1981 gerði ráð fyrir auk þess sem aukning jarðvarma til hús- hitunar hefur veriö mciri en áætlað var. Þessi þáttur skýrir um 60% af mismuni ntilli spár- innar frá 1981 og rauntalna frá 1984. í öðru lagi hefur raforku- notkun heimilanna vaxið hægar en búist var við og skýrir það um 10% af muninum. í þriðja lagi kemur til minni raforku- notkun í atvinnulífinu og skýrir hún 30% af frávikinu. Er talið að samdráttur í efnahagslífinu og betri orkunýting komi hér til. Minnkandi raforkunotkun er ekki bundin við ísland eitt, heldur hefur svipuð þróun átt sér stað hjá flestum þjóðum síðan 1973, þar sem vöxtur notkunar hefur minnkað vcru- lega. Alexander Stefánsson á fundi um húsnæðismál: Tek fé af nýbyggingarlánum fáist tillögur mínar ekki samþykktar til að aðstoða fólk í greiðsluerfiðleikum ■ „Ég lýsi því yfír hér og nú, að fái ég ekki framgengt tillög- um mínum í ríkisstjórninni, um fjármagn í þetta verkefni, þá muni ég taka hiuta af því hús- byggingafé, sem ætlað er til lána á þessu ári til nýbygginga, í því skyni að fjármagna það,“ sagði Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, á fundi um húsnæðismál hjá FUF í gær- kvöldi. Verkefnið sem hann var að tala um er aðstoð við fólk sem lent hefur í greiðsluerfið- leikum á síðustu árum vegna verötryggðra skammtímalána. Alexander sagði að hann hefði hugsað sér að afla fjár til þessara sérstöku verkefna með skyldusparnaði á hæstu tekjur einstaklinga skattársins 1984, svo og skyldusparnaði félaga og stofnana svo sem gert hefði verið á árunum 1977 og 1978 og gefist hefði vel. I ræðu Alexanders kom fram að nefnd er starfandi á vegum félagsmálaráðuneytisins til að gera úttekt á fasteignaviðskipt- um og koma með tillögur til úrbóta og kvaðst hann vænta róttækra tillagna frá nefndinni og minntist á lækkandi útborgun í fasteignakaupum. „Stefna Sjálfstæðisflokksins er óbreytt að því leyti að við viljum komast hjá aukinni skatt- heimtu, en við höfum fullan skilning á vanda húsbyggjenda sem þurfa að standa skil á verð- tryggðum skammtímalánum," sagði Geir Hallgrímsson, utan- ríkisráðherra, í samtali við NT í gærkvöldi, en ekki náðist í Þorstein Pálsson formann Sjálf- stæðisflokksins. Að öðru leyti kvaðst Geir ekki vilja ræða málið í fjölmiðlum á þessu stigi. „Við ráðum þessu vonandi far- sællega til lykta innan ríkis- stjórnarinnar," sagði Geir. Skagaströnd: Bátur sökkí höfninni Frá frctlarítara M á Skacaströnd, Magnúsi Jónssyni ■ 17 tonna bátur sökk í höfninni á Skagaströnd í fyrrinótt. Veður var vont og gerði miklar hryðjur með snjókomu og skafbyl, og hlóðst ísing á aðni lilið bátsins sem lagðist á hlið- ina undan þunganum. Báturinn hét Rúna SF 110, og var nýlega kominn á Skagaströnd. í gær var unnið að því að ná bátnum upp, en líklegt er talið að öll siglingatæki hans séu ónýt. ■ Slasaður maður sem lögreglan hafði flutt á slysadeild eftir bílslys hljóp berfættur út af deildinni eftir að þangað var komið. Hans var enn leitað laust eftir miðnætti. Bílslysið varð með þcim hætti að tveir fólksbílar skullu saman á Sætúninu og slösuðust tveir ungir menn úr öðrum bílnum og voru fluttir á slysadeild. Annar þeirra var í myndatöku þegar hinn tók upp á því að hlaupa út. Talið er að ölvun hafl átt hér hlut að máli. Myndin sýnir bílinn sem mennirnir tveir voru í. nt mynd: Svcrrir Olíuverðs- hækkunin ídag? ■ Verðlagsráð kcmur væntanlega saman kl. 14 í dag til þess að afgreiða 70 ' aura hækkun á verði bens- ínlítrans, vegna ákvörð- urnar fjármálaráðherra að hækka bensíngjaldið. Olafsson, verð- lagsstjóri, sagöi í samtali við NT í gær, að ekki hefði verið ákveðið hvort mál- efni olíufélaganna yrðu rædd að öðru leyti. Verðbólgubrjálæðið byrjað í bönkunum tekið út, lagt inn og tekið út aftur ■ Sparifjáreigcndur og bankastarfsmenn hafa átt ann- ríkt í nóvember s.l. þó upp- skeran hafl ekki alltaf verið í takt við erfíðið. í þeim mánuði hömuðust þeir við að taka út og leggja inn marga milljarða króna, þ.e. taka út af sunium reikningum og leggja inn á aöra. Að lokum stóðu bank- arnir uppi með að innlán voru orðin 300 millj. kr. minni en í upphafí mánaðarins. Skv. Hagtölum Seðlabank- ans kom 1 milljarður kr. inn á nýju óbundnu reikningana- Abót-Kaskó-Kjörbók o.s.frv. Verra var að þessir peningar voru teknir út af öðrum reikn- ingum. Innistæða á alm. spari- sjóðsbókum minnkaði um 600 millj. og annað cins á ýmsum bundnum reikningum. Á 12 mán. reikningum minnkaði innistæða um 1,6 milljarða sem skilaði sér 100 millj. kr. minna inn á 6 mán. reikninga. Þá minnkaði um rúmar 150 millj. á 3 mán. reikningum en 190 millj. bættust á verðtryggða reikninga. Eftir sitja bankarnir með sárt ennið um 300 millj. krón- um fátækari á sparireikningum landsmanna. Bankamaður, sem NT ræddi við í gær, sagði þetta gefa glögga mynd af brjálæði verð- .bólguþjóðfélagsins, en hinn nýi verðbólguskjálfti byrjaði einmitt með nýjum kjarasamn- ingum og gengisfellingu í nóv- ember. I öðru lagi taldi hann þetta, þrátt fyrir allt, sýna glögglega að vextir hafi mikla þýðingu - fólk hafi greinilega ætlað að tryggja fé sitt á þann besta máta sem bauðst. 3000 sóttu um nýbyggingalán ■ Samkvæmt heimildum NT hafa 3000 manns sótt um lán til nýbygginga á þessu ári til Hús- næðisstofnunar og eru það fleiri en nokkru sinni fyrr. Umsókn- arfrestur til lána á þessu ári rann út í gærkvöldi. Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Húsnæðisstofnunar, vildi ekki staðfesta þessa tölu í gær- kvöldi.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.