NT - 01.02.1985, Side 2

NT - 01.02.1985, Side 2
Föstudagur 1. febrúar 1985 Síldarverksmiðjurnar fram- leiða eigið eldsneyti: Brenna eig. ið lýsi í stað svartolíu Frá fréttarítara NT í Skat>afirði, Ö.Þ.: ■ Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði hafa nú á aðra viku eingöngu hrenm lýsi ístaðsvart- olíu og liefur þessi tilraun geng- ið ágætlega í alla staði. Engar hreytingar þurfti að gera á vcla- eöa tækjahúnaði fyrir þessi skipti á eldsneyti. „Ástæðan fyrir því að við fórum að nota lýsi í stað svart- olíunnar er lækkandi verð á lýsi aö undanförnu samfara ört hækkandi verði á svartolíu", sagði Geir Zoega, fram- kvæmdastj. S.R. á Siglufirði. Hann sagði verð á svartolíu nú um l() þús. krönur tonniö. Svip- uð upphæð fcngist fyrir tonnið að lýsinu, þegar frá hefði veriö dreginn flutningskostnaður og tleira. Þegar hrætt er á fullum af- köstum þarf vcrksmiðjan um 60 lonn af cldsncyti á sólarhring. Framlciðsla hennar er hins veg- ar um 140 tonn af lýsi á sama líma. „Ef svartolía heldur áfram að hækka. eins og margt hendirtil, munum við halda áfram að nota lýsiö í stað svartolíunnar- nema að verð á lýsinu lagist til muna. sem ekkert bendir hins vegar til að verði í bráð", sagði Geir. Síldarverksmiðjurnar á Siglu- firði hafa tekiö á móti 20 þús. tonnum af loðnu, það sem af er þessu ári. Afkastagcta verk- smiðjunnar er 1.200 tonn á sól- arhring og vinna þá tills 38 manns á vöktum, auk annarrti fastra starfsmanna. í þessari viku er skipað út 3.500 tonnum af loðnumjöli frá S.R. Alls tók vcrksmiðjan á móti um 80 þús. tonnum af loðnu s.l. ár. ■ Úr nijölhúsi Síldarverk- smiðja ríkisins á Siglutirði, þar sem verið er að sekkja mjöl í 1,5 tonna poká, sem síðan erstaflað í háar stæður með lyltaranum. N T-mynd Orn Þórarínssun. Ný íslensk kvikmynd frumsýnd: „Sjúgðu mig Nína“ í MÍR-salnum við Vatnsstíg í kvöld ■ Framleiðslufyrirtækið Oxsmá frumsýnir í kvöld kl. 21 í MÍR-salnum við Vatnsstíg nýja íslenska kvikmynd sem ber heitið „Sjúgðu mig Nína". Myndin er rúnrlega klukkutíma löng og lýsir lífi sjóara og eiturlyfjaliðs í Reykjavík árið 1973. Einnig verður sýnd fyrri mynd þeirra, Oxsmá-plá- netan sem er 30 mínútna löngframtíðarmynd. Nán- arverður sagt frá nýju mynd- inni og væntanlegu ferða- lagi Oxsmá til Hollands á poppsíðum NT á morgun. Kór áfengisvarna ■ Dropateljarinn okkar er ekkert ógurlega skáldmæltur og treysti sér ekki að botna fyrripart sem kastað var fram hér á blaðinu fyrr í vikunni. 1 staðinn var höfðað til bragvísi lesenda og þeir hafa ekki látið á sér standa. Fyrriparturinn var svohljóðandi: Stcingrímur vill sterkan bjór, stútinn réttir börnum. Sigmar sendir þennan botn: Úr því gæti orðið kór áfengis hjá vörnum. Skellur vill hins vegar venda sínu kvæði í kross og hljómar vísan þá svona: Þá sultarólin Alberts fór alla leið að görnum, Steingrímur vildi sterkan bjór, stútinn rcttir börnum. Þá varð til nokkuð pólitísk- þverstæð vísa á þingi í gær. ÍSTAK býður í verk á Jamaica - lítið hægt að segja fyrr en eftir 1 -2 mánuði segir Olafur Gíslason verkfræðingur ■ „Það cr ákaflega lítið hægt að segja fyrr en eftir 1-2 mánuði hvað kemur út úr þcssu,“ sagði Ólafur Gíslason byggingarverk- fræðingur hjá ISTAK, er NT leitaði frekari frétta af því hversu mikiir mögu- leikar væru á því að fyrir- tækið tæki að sér, ásamt Vegagerö ríkisins vega- og hafnarframkvæmdir á nokkrum eyjum í Kara- bíska liafinu. Ólafur ferðaðist um svæðið fyrir nokkru ásamt Jóni Birgi Jónssyni verk- fræðingi hjá Vegagerð ríkisins til að kanna hvers eðlis verkeínin væru og sagði hann þá hjá ÍSTAK ákveðna í að bjóða í nokk- ur verk. Stærsta verkefnið sem um er að ræða er á Jamaica en eitt þeirra er á vegum Alþjóðabankans og rnun hljóða upp á nokkra tugi milljóna doll- ara. Taldi Ólafur, sem hefur unnið við verkefni af þessu tagi erlendis áður, að það ætti ekki að vera nein vandkvæði á því fyrir ís- lendinga að taka að sér svona verkefni. sem felst í verktakastarfsemi og ráðgjöf, en ómögulegt væri á þessu stigi að segja til um líkurnar á því hvort þeir fengju eitthvert þess- ara verkefna. „En þeir fiska sem róa", sagði Ólaf- ur að lokum. Umræður um leyfisveitingu til kísilgúrverksmiðjunnar ■ Nokkrar umræöur urðu á alþingi í gær eftir að Guðmundur Einarsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og gerði að umtalsefni ákvörðun iðnaðarráð- herra að veita kísilgúr- verksmiðjunni við Mý- vatn vinnsluleyfi til 15 ára. Guðmundur vitnaði til bréfs Náttúruverndarráös frá des- ember s.l. þar sem lagt var til að leyfi yrði veitt til 5 ára, kísiltaka yrði einungis heimil á af- mörkuðum svæðum í vatninu og að ítarlegar rannsóknir færu fram á þessum 5 árum til að finna hvort um hugsanlegan skaða væri að ræða af kísiltök- unni fyrir lífríki í vatninu og við það. Guðmundur gagnrýndi að iðnaðarráðherra minntist ekki á bréf Náttúruverndarráðs í leyf- isbréfi sínu og dró í efa að hann hefði heimild til þess samkvæmt lögum að veita þetta leyfi gegn vilja ráðsins. Hann vitnaði í því sambandi í lög um verndun Laxár og Mývatns frá 1974 en í greinargerð með þeim lögum væri tekið fram að þau væru sett til að taka af allan vafa um forræði Náttúruverndarráðs á svæðinu. Framkvæmdir eða jarðrask væri óleyfilegt nema með heimild ráðsins, að því er segði í 3. grein laganna. Guðmundur sagði í samtali við NT í gærkvöldi að hann skildi hagsmuni þess fólks sem hefði atvinnu af kísilgúrvinnsl- unni, en hins vegar yrðu menn að gera sér Ijósa grein fyrir því að verksmiðjan hefði takmark- að hráefni oggeti ekki starfaðtil eilífðarnóns. Mývatnssvæðið væri einstakt náttúruundur og það yrði að varðveita. Hann sagði að það yrði að sýna fram á það að vinnsla kísilgúrsins ylli ekki tjóni, sönnunarskyldan ætti að vera hjá þeim sem vildu áframhaldandi vinnslu til margra ára. Vigfús Jónsson bóndi á Laxa- mýri, sem situr nú á þingi sem varaþingmaður fyrir Sjálf- stæðisflokkinn sagði í gærkvöldi að hann styddi sjónarmið Nátt- úruverndarráðs þótt hann bæri fullt traust til iðnaðarráðherra, sem hann sagðist telja náttúru- verndarmann. Vigfús sagðist harma þann ágreining sem ríkti um þetta mál. Hann sagðist treysta því að ef valið stæði á milli verksmiðjunnar og lífríkis- ins yrði verksmiðjunni fórnað. í sama streng tók Guðmundur Bjarnason þingmaður Fram- sóknarflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra. Hann benti á hagsmuni þeirra sem hefðu at- vinnu af kísilgúrtökunni, bæði í Mývatnssveit og á Húsavík, en sagði að enginn sá maður væri til sem léti sér til hugar koma að fórna Mývatni fyrir stundar- hagsmuni. Bjórlíkið - svikin vara? Eins og kunnugt er var fyrsta lína fyrripartsins tekin úr fyrir- sögn í DV. og samdi Þórunn Gestsdóttir, þingfréttaritari D V og sjálfstæðiskona þá fyrir- sögn. NT bætti síðan við næstu línu og birti í dropum í gær. Þórunn bætti síðan við einni línu en Helgi Guðmundsson, blaðamaður þjóðviljans rak endhnútinn á kveðskapinn og þverstæðan lítur þá þannig út: Steingrímur vill stcrkan bjór, og rétta stútinn börnum. Heillast þjóð í helgan kór hcila-rúin - kvörnum. Þá boðsendi Ölvir okkur sína útgáfu og hljóðar hún svo: Steingrímur vill stcrkan bjór, og stútinn rétta börnum. við dýrkum ekki daglegt þjór, en drekkum bara í törnuin. En Ölver tók fram í bréfi sínu, að vísuparturinn væri - Þið verðir þá ekki fullir á meðan greyin mín! ekki í samræmi við skoðun hans á bjóröeilunni. Að lokum þakkar dropatelj- ari fyrir undirtektir, og lýkur þannig þessum bragarþætti-í bili. Takk. Árshátíð vekur grunsemdir ■ Það er alkunna að stjórn- málaflokkar leggja mikla áherslu á að laða til sín ungt fólk og tryggja þannig framtíð sína á hinu pólitíska landab- réfi. Eitthvað virðist þessi nauð- synlega endurnýjun ganga treglega hjá Alþýðubandalag- inu á Akureyri um þessar mundir. A.m.k. vakna vissar grunsemdir um það þegar lesin er auglýsing um væntanlega árshátíð félagsins. Hana á nefnilega að halda í húsi aldr- aðra.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.