NT - 01.02.1985, Blaðsíða 5

NT - 01.02.1985, Blaðsíða 5
111 Föstudagur 1. febrúar 1985 5 Fréttir Elsti slökkviliðsbíllinn í Eyjum gerðif upp? „Súkkulaðibíllinn“ kall- aðist hann í eina tíð! Var þá fyrsti sorpbíll í Eyjum og notaður til að tæma tunnur og kamra Frá fréttaritara NT í Vcstmannaeyjum, I.G.: ■ Slökkvilið Vestmannaeyja vill að elsti bfll þess, Chervrolet árgerð 1929, verið gerður upp og notaður sem viðhafnarbíll bílaflota slökkviliðsins. Hefur tilllaga verið lögð fram í bæjar- ráði þar að lútandi og hefur bæjarráð lýst sig fylgjandi henni. Chevroletinn var á sínum tíma fyrsti sorpbíll Vestmanna- eyja og var hann notaður til að tæma tunnur og kamra. Fékk hann fyrir vikið nafnið „Súkku- laðibíllinn“. Ekki mun þurfa mikið til að gera bílinn ökufæran og er það álit slökkviliðsmanna í Eyjum að kostnaður við að koma hon- um í upprunalegt horf sé ekki mikill. Mun þjóðminjavörður hafa haft samband við slökkvi- liðsstjórann í Eyjum, Elías Baldvinsson, til að benda á safn- gildi gamla slökkviliðsbílsins. Hafa einnig komið upp hug- myndir um að hafa hann til sýnis á safni eftir að endurnýjun lýkur. ■ „Súkkulaðibíllinn" hefur átt náðuga daga undanfarið en nú vill slökkviliðið gera upp gripinn og hafa hann sem við- hafnarbfl flotans. Á innfelldu myndinni er Elías Baldvinsson, slökkviliðsstjóri, undir stýri og við hlið hans situr Ragnar Þór, bróðir hans. NT-myndir: Inga. Þjóðleikhúsið ræðurhöfunda ■ Leifur Þórarinsson tónskáld og Ólafur Haukur Símonarson, rithöfundur, hafa ver- ið ráðnir á höfundarsamninga við Þjóð- leikhúsið fyrir árið 1985 og fá þeir sex mánaða samning hvor. Hýggst Leifur semja tónlist við ballett, en Olafur mun semja leikrit. Leifur stundaði tónlistarnám við Tónlist- arskólann í Reykjavík og framhaldsnám m.a. í Vínarborg og New York. Hann hefur samið fjölda tónverka af ýmsum tegundum tónlistar m.a. mikið af leikhústónlist. Ólafur hefur samið Ijóðabækur, smásög- ur, og skáldsögur auk leikrita fyrir leikhús og sjónvarp. Aldrei er friður á Varmalandi ■ Leikklúbbur ungmennafélags Stafholts- tungna frumsýnir leikritið Aldrei er friður eftir Andrés Indriðason í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi í febrúar. Leik- stjóri er Emil Gunnar Guðmundsson en gerð leikmyndar er í höndum leikstjóra og leikhópsins. Leikarar og annað áhugafólk við upp- færslu þessa verks eru nær þrjátíu talsins og er þetta eitt viðamesta verkefni sem leik- klúbburinn hefur ráðist í síðan hann var stofnaður 3. febrúar 1977. Tómstundaskólinn: Nýr kvöldskóli ■ Nýr kvöldskóli, Tómstundaskólinn, er að hefja starfsemi sína í Reykjavík. „Við viljum ná til fólks sem vill nýta tómstundir sínar betur og samræma tómstundir og nám,“ sagði einn forsvarsmanna skólans, sr. Birgir Asgeirsson í samtali við NT í gær. „Námið er annars hugsað fyrir almenning, fyrir leikmenn í hverri grein og sniðið að þörfum byrjenda," sagði Birgir. Boðið er upp á fjölbreytilegar námsgrein- ar í skólanum og má þar nefna hagfræði og bókfærslu, ættfræði, lögfræði, trúfræði, garðrækt, leiklist, tónmennt, vídeótöku og myndbandagerð svo eitthvað sé nefnt. „Takmark okkar er að ná saman fólki með lík áhugamál og við ætlum okkur að sýna að nám, félagslíf og skemmtun geti farið saman,“ sagði sr. Birgir. Skólinn er sjálfseignarstofnun og á að standa undir sér með námskeiðagjöldum, sem verða kr. 1900 fyrir 20 stunda námskeið og kr. 3.800 fyrir 40 stunda námskeið. Auk sr. Birgis standa að skólanum Þórður Vigfússon, hagverk- fræðingur, og Gunnar Rafn, fyrrum skóla- stjóri á Siglufirði og nú fulltrúi í félags- málaráðuneytinu. Þér líður betur með skattframtalið-og samviskuna-í lagi Að telja rétt fram er leið til að komast hjá óþarfa áhyggjum og streitu sem jafnan fylgir óheilindum og óreiðu í fjármálum. Auk fjölmargra breytinga og leiðréttinga sem skattstjórar landsins gera á skattfram- tölum, tekur skattrannsóknarstjóri fjölda félaga og einstaklinga til sérstakrar rannsóknar á ári hverju. Árið 1984 voru 360 mál í athugun. Dæmi eru um að skattaðilar hafi verið rannsakaðir sex ár aftur í tímann og fengið skattahækkanir svo milljónum skiptir. FJARMALARAÐUNEYTIÐ

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.