NT - 01.02.1985, Side 8
Föstudagur 1. febrúar 1985
fidur haf;
■ Björn Jónsson.
- Afmæli
■ Björn Jónsson frá
Fossi í Hrútafirði, nú til
heimilis að Tunguvegi 28 í
Reykjavík, verður sjötug-
ur hinn 4. febrúar.
Hann tekur á móti gest-
um sunnudaginn 3. febrú-
ar'kl. 15-19 í Domus Med-
ica.
- Kvennalistinn
■ í Reykjaneskjördæmi
heldur kynningarfundi í
skólanum á Álftanesi laugar-
daginn 2. feb. kl. 14 og í
Kirkjuhvoli í Garðabæ mán-
udaginn 4. feb. kl. 20.30.
Kynnt verður kröftugt
kvennastarf í kjördæminu.
- Flóamarkaður
■ Félags einstæðra foreldra
verður að Skeljanesi 6 í kjall-
ara laugardag 2. og sunnudag
3, febrúar kk 14-17.
Takið leið 5 að endastöð. Á
laugardag kosta allar flíkur 10
krónur en á sunnudag verða
sértilboð á glæsilegum fatnaði
svo sem leðurjökkum, ind-
verskum kjólum o.fl.
- Neskirkja
■ Samverustund aldraðra er
á morgun, laugardag, kl. 15.
Heimsókn í athvarf aldraðra í
Ármúla 32. Kynnt verða rétt-
indi ellilífeyrisþega til afsláttar
á ýmiskonar þjónustu á Stór-
Reykjavíkursvæöinu. Kaffi-
veitingar.
Farið verður frá Neskirkju.
Þátttaka tilkynnist til kirkju-
varðar í síma 16783 milli kl. 17
og 18 í dag, föstudag.
Er strætóvum nauð-
syn að vera hópdýr?
■ Strætóvinn er með merki-
legri dýrategunduni. Gagn-
stætl við önnur húsdýr
mannsins, svo sem köttinn eða
hundinn sem fljótlega verða
húsbónda sínum fylgispök þá
heldurstrætóvinn fast við ken j-
óttan uppruna sinn. Strætóv-
inn er óþekkt hópdýr.
Reyndar er óhlýðni skepn-
unnar ekki með þeim cnd-
emum að hún þori að beygja út
af þeim leiðum sem guðdóm-
legt leiðakerfi býður henni.
Enda nóg samt. En allstaðar
þar sem því er viðkomið æða
þessar furöuverur saman í cin-
um hóp. Hvort sem um er að
ræða Suðurlandsbrautina,
llringbraut eða aðrar götur
þar sem margar leiðir liggja þá
má sjá þessi grænu skrímsí æða
yfir eins og vísundahjörð á
sléttum karlsins hans Buffalos
Bills. Og síðan kemur korters-
stundar langt hlc á undan
næsta stormi.
Maöurinn (veslings maður-
inn) sem ætlar sér nú að ferðast
með þessum þarfasta þjóni
hins bíllausa bjálfa bíður og
norpar einhversstaðar viö Ijót-
an strætóstaur þar sem ung-
dómurinn hefur klæmst á
leiðakortinu. Fað er vetur, -
enda oftast vetur á þessum
útkjálka hins byggilega- og
manninum er kalt. Mínúturnar
silast áfram, ein og ein og eru
loksins að nálgast það að vera
orðnar 15. Þá er manngreyið
líka alveg frosið á tánum og
komið með kuldabólur á
nefið.
En sjá allt í einu birtast þeir;
grillir í þá í kófinu. fyrst einn,
svo annar og sá þriðji. Og á
eftir honum enn einn. Vesalings
vinur okkar sem ætjaði bara að
komast heini til frænku sinnar
í Vesturbænum veit ekki hvað-
an á sig stendur veðrið. Fjórir
grænslykjaðir vagnar í einni
kös æða að honum út úr myrkr-
inu.
Þetta er köldum, þreyttum og
litlum manni ofviða. Hann
sveigir höfuðið frá þegar sá
fyrsti brunar hjá og slettir stór-
um polli upp á. frakka
mannsins. Og næst þegar hann
lítur upp sér hann í afturend-
ann á fjórum vögnum sem æða
allir áfram eins og ekkert hafi
í skorist.
Það mætti kannski hugsa til
þess að ternja þessar borgar-
skepnur ögn betur þannig að í
stað þess aö hafa fjóra eða
fimm vagna á kortersfresti eftir
helstu umferðaræðum bæjar-
ins hefðum við cinn vagn á
þriggja til fimm mínútna fresti
á þessum sömu leiðum. Eða
hvað?
Nói.
Skrifið til:
... eða hringið í
síma 686300
miili kl. 13 og 14
Lesendasíðan
Síðumúia 15
108 Reykjavík
Uppvakningur á ferðinni
■ Er það virkilega rétt að
menn ætli að fara að gera
kratana að einhverslags fjölda-
flokki rétt eina ferðina? Skoð-
anakannir benta til þess. Hve
oft er þessi flokkshörmung
ekki búin að bólgna út við
einar kosningar, til þess að
verða að örlítilli klíku ráðvii-
linga viö þar næstu kosningar,
þ.e. þegar þeir eru búnir að
ganga fram af hverjum manni
með innbyrðis sundurþykkju
og hringsnúningi. Þá lekur
vindurinn úr fylginu, skv.
gamla lögmálinu, eins og úr
útblásinni kýrblöðru.
En alltaf kemur einhver
sjónvherfingamaðurinn á ný
upp og gapir einhver ósköp og
læst allt geta. En þegar á hólm-
inn er komið á það víst enn
einu sinni að þurfa að sannast
að hann kemur fyrir lítið einn
saman talandinn.
Nei, kratarnir leysa engan
vanda, en þrefalda þann sem
fyrir er. Hví lofar fólk greyinu
ekki að liggja áfram í görfinni,
þótt rétt einn særingamaðurinn
sé tekinn að spangóla í skamm-
degismyrkrinu. Látum hann
kara óbermið aðstoðarlaust.
Einn lífsreiður.
■ Það eru ekki allir jafn ánbægðir með velgengni
Alþýðuflokksins.
Vinsælda-
listar og
poppmúsík
■ Áslaug Anna, 12 ára,
skrifar.
Mig langar að koma því á
framfæri, hvort það væri
mögulegt að birta vinsældalista
í blaðinu.
Það gætu verið vinsældalist-
ar frá t.d. Reykjavík (Rás 2),
London, New York og Am-
sterdam
Svo mætti vera agnarlítið
unt poppmúsík.
Sérreglur fyrir
sunnangæðingana
■ Skyldi það vera tilfellið að „sfrætóvar“ séu félagsverur?
■ Hvernig er aldursreglunum framfylgt?
■ Norðanmaður hringdi og
kvaðst furða sig á frétta-
mennsku Ríkisútvarpsins. Nú
tækju þeir sig til og réðust á
veitingastaði á Akureyri fyrir
þær sakir að þar slyppu ungl-
ingar undir lögaldri inn á
fölsuðum pössum. Og síðar
væru vínveitingar inni við.
Þessi frétt var í hádeginu á rnið-
vikudag.
Hvers vegna var aldrei sagt
neitt við því þegar bingöin
voru haldin í Sigtúni? Þá
mættu þar konur með börn sín
allt niður í nokkurra ára
gömul. Og síðan flaut allt í
víni. Eru þetta einhverjar sér-
reglur fyrir gæðinga í höfuð-
borginni? spyr norðanmaður.