NT - 01.02.1985, Side 12
Skipt um hlutverk:
Föstudagur 1. febrúar 1985 12
góða eíginkonan í „I SÆLUREIT“ leikur hjákonuna í nýjum sjónvarpsþáttum „The Mistress“
■ „Það kæmi mcr ekki á
óvart þó ég fengi hótanabréf
eða yrði fyrir fúleggjakasti
þegar ég skipti svona algjör-
lega um hlutverk - úr góðu
eiginkonunni í hjákonuna,
scm hedur við giftan mann og
stofnar hjónabandi hans í
liættu."
Þetta sagði Felicity Kendal
nýlega í viðtali við cnskt
kvennablað. Við hérá íslandi
munum cftir henni sem „góðu
eiginkonunni" í sjónvarps-
þáttunum" í sælurcit", sem
voru sýndir hér nýlega á laug-
ardagskvöldum.
Blaðamaðurinn scm átti
viðtalið við Felieity var fljótur
til að benda lcikkonunni á að
hún væri ein sú allravin-
sælasta í Brétlandi. Hún hefði
fcngið alls konar sannanir
fyrir því: Verið kosin „Upp-
áhald karlmanna í Bret-
landi", fengið titilinn „Falleg-
asti afturcndi ársins '81" (!)
og ótal aðdáendabréf hlytu
aö sanna henni að þaö væri
óþarfa hræðsla hjá henni að
óttast óvinsældir.
Leikkonan tók fram - í
sambandi við nýja hlutverkið
- aö hún væri hamingjusam-
lega gift, og gæti ekki fyrir
nokkurn mun hugsað sér að
vera í sömu aðstöðu í raun-
vcrulcikanum og hún leikur í
sjónvarpsþáttunum „HJA-
KONAN" (The Mistress) -
en það aftraði mér ekki frá
því að taka við þessu góða
hlutvcrki þó ég felli mig ekki
við framhjáhaldið. Nú. ég
gæti ekki hugsaö mér að
fremja morð, - cn gæti vel
hugsað mér að leika Lady
Macbeth!
■ Mæðginin Felicity og Charley, 13
ára sonur hennar frá fyrra hjónabandi.
■ Felicity
Kendal er 38
ára gömul, en
sjónvarps-
áhorfcndur í
Bretlandi og
víðar eru sam-
mála um að
hún sé nijög
aðlaðandi og
vinsældir
hennar fara
stöðugt vax-
andi.
■ Seinni
■naður Feli-
city er leik-
stjórinn Mic-
hael Rudman.
Hann á 2
dætur, 14 og
17 ára, frá
fyrra hjóna-
bandi sínu.
Þær koma oft
í heimsók.
Bæði Felicity
og Michael
Kudman
höfðu verið frá
skilin í mörg
ár er þau
kynntust
■ „Þríhyrningurinn" í
nvju sjónvarpsmyndinni
HJÁKONUNNl. Hérsjá-
um við Felicity t.v. (hjá-
konan) Jack Galloway
(eiginmaðurinn) og Jane
Ashcr (eiginkonan).