NT - 01.02.1985, Side 13

NT - 01.02.1985, Side 13
Föstudagur 1. febrúar 1985 13 . Dóttir meistar ans Frá Halldóri Slgurdssyni, Gautahorg: ■ Eva Bergman, 39 ára dóttir leikstjórans fræga Ing- mars Bergman, er nú sjálf orðin eftirsóttur leikstjóri. En það leið langur tími þar til hún tók þá ákvörðun að feta í fótspor föður síns. „Það var ekki það, að ég væri á nokkurn hátt að mót- mæla starfi föður míns, en ég var bara svo áhugasöm fyrir karlmönnum, að allur minn tími fór í að halda mér til fyrir þeim,“ segir hún í viðtali sem nýlega var haft við hana. En einn dag uppgötvaði hún að lífið var meira en karlmenn og skemmtanir.” „Við hér í fjölskyldunni segjum hvcrt um annað, - að við þroskumst seint. Bróðir minn, Jan, var til dæmis orð- inn 34 ára þegar hann varð leikstjóri." Það eru nú tíu ár síðan Eva söðlaði um og sagði skilið við karlmenn sem sitt aðalvið- fangsefni. áður hafði hún les- ið bókmenntir og hugmynda- fræði og unnið sem skrifstofu- maður við leikhús. í dag er hún vel metinn leikstjóri við Backa-leikhús- Eva Bergman Nú er Eva Ber sjálf leikstjóri ið, sem cr svokallað/skóla- leikhús (leiklistarskóli) á veg- um Borgarleikhússins í Göte- borg. Nýlega fékk hún verð- laun fyrir uppsetningu á vcrki fyrir börn. Eftir verðlauna- veitinguna og allt sem fylgdi því, fékk ég mörg fín tilboð, en ég vil heldur vera hér í Göteborg við Backa-leikhús- ið, segir hún. Eva er dóttir þeirra Ellen og Ingimars Bergman. Öll þeirra börn vinna nú við leikhús. Eva, leikstjóri við Backa-leikhúsið, Jan, 38 ára, leikstjóri við Borás leikhús, Mats, 36 ára, er leikari við Borgarleikhúsið í Stockholm og tvíburastystir lians Anna, lék t.d. hlutverk í Fanny og Alexand- er. Jafnvel Ellen Bergman var leikstjóri. Hún er litríkur persónuleiki, sem lengi rak lítið leikhús í einbýlishúsi sínu hér í Göteborg. „Að vera leikstjóri er geysileg reynsla og upplifun, og eiginlega hef ég verið aö læra það síðan ég var barn,“ segir Eva. Hún vill ekki tala um sinn fræga föður. Allan sinn upp- vöxt leið hún vegna þess sem skrifað var um hann. „En auðvitað þykir mér hann frábær, bæði sem leikstjóri og faðir.“ Eva er lítil og sæt, með slétt Ijóst hár og brún augu og segir sjálf, aö hún líti ekki út eins og leikstjórar eigi að gera, „Jan bróðir minn er miklu líkari leikstjóra," segir hún og brosir. Frá Evu streymir þó svo mikill kraftur og einbeiting, að hún hefur fengið hvort hcldur sem er, lcikara eða gagnrýnendur til að falla á kné fyrir henni. Þegar hún er spurð hvernig hún fari að þessu, segir hún: „Enginn getur komist hjá því að verða fyrir áhrifum af manneskju sem gefur hundr- að prósent. En það fyrirfinnst alltaf sú hætta, aö fólk segi nei, ekki meira af þessu, að því líki alls ekki það sem maður er að gera. Þá er mikið atriði, að gefa sig ekki og vera ákveðin. Mér finnst vinnan afskaplega gefandi, en það hefur tekið langan tíma að ná svo langt. Það versta er, að maður verður að gera öll mistök sjálfur. Það er enginn annar, sem getur gcrt þau fyrir þig. En því eldri sem ég verð, því betur sé ég hve mikilvægt er að vera heiðarlegur í starfi, og þakk- látur fyrir það starf sem mað- ur hefur. Ég er þakklát fyrir hvern þann dag sem ég hef starf að stunda." Eva er, ásamt Ulf Dohlsten, listrænn ráðunaut- ur fyrir Backa-leikhúsið hér í Göteborg samhliða leikstjóra- starfinu. Borgarleikhúsið í Göte- borg er skipt niður á þrjá staði; við Göteplatsen í mið- bænum, í Angered sent er í úthverfi borgarinnar og svo er það Backa-leikhúsið, sem er á Hisingen í norðurhluta borgarinnar.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.