NT - 09.02.1985, Blaðsíða 4
ÍTF Laugardagur 9. febrúar 1985 4
11 Fréttir
Halldór
fundar
á Skaga:
Frá Stefáni Lárusi Pálssyni fréttarita M á
Akranesi:
■ Halldór Ásgrímsson hélt ný-
lega fund á Akranesi þar sem
rædd voru málefni sjávarútvegs
og Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur kynnti niðurstödur
Kvótakerfið verði
framtíðarskipulag
Fyrir hvert fiskiskip mætti loka einum banka og einni bensínstöð
nýjasta loðnuleiðangurs Haf-
rannsóknastofnunar. í erindi
sínu sagði Halldór meðal annars
að hann hefði ekki trú á að
kvótakerfið yrði afnumið í nán-
ustu framtíð.
Rakti Halld(?r helstu þætti
fiskveiðistefnunnar og árangur
af henni. Sagði hann þar að
verulegur sparnaður hefði orðið
að kvótanum allt að 10% við
rekstur togara og jafnvel meira
á bátum. Af þcssum sökum
kvörtuðu veiðarfærasalar sáran
sagði ráðherrann. Fjölmargir
tóku síðan til máls á fundinum
sem var með alfjölmennasta
móti í ekki stærra plássi. Kom
meðal annars fram hörð gagn-
rýni á léleg kjör og atvinnu-
öryggi fiskverkunarfólks.
■ Sparnaður af kvótanum um
10% við rekstur skipanna og
ekki líklegt að það kerfi verði
afnumið í nánustu framtíð, -
sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra á fundi á
Akranesi.
NT-mynd: Stefán Lárus •
Hafnarfjörður:
340 íbúð-
irísmíðum
1984
■ Alls voru 340 íbúðir í
smíðunr í Hafnarfirði á
síðasta ári og var lokið
snríði 112 íbúða.
Stærð iðnaðar og versl-
unarhúsnæðis í smíðum
árið 1984 nam 175.301
rúmmetra og stærð bíla-
geymsla og viðbygginga í
smíðurn það ár í Hafnar-
firði nam 20.286 rúmmetr-
um.
Borgf irskir jeppadellumenn:
Himinlifandi
vegna f ærðar
á fjallvegum
Frá Magnúsi Manmissyni fréltaritara NT í
Borgarfirði.
■ Óvenju góð færð er nú á
fjallvegum landsins sem oftast
eru ófærir á þessum tíina árs.
Hér í Borgarlirði hafa t.d.
jeppaleiðir eins og Arnarvatns-
heiði, Kaldidalur, Uxahryggir
og fleiri verið vel færar flestum
bílum í vctur.
Borgfirskir jeppadellumcnn
hafa óspart notfært sér þessar
óvenjulegu aðstæður. Hafa þcir
m.a. fjölmennt Kaldadalsleið-
ina á Arnarvatsnheiði, upp á
Ok á Eiríksjökli og víðar.
Fréttaritari NT fór í cina
slíka ferð seint í janúar ágætan
sunnudagsbíltúr í blíðskapar-
veðri. Farkostirnir voru:
Willy's, Ford og splunkunýr
Mitsubishi Rocky.
Ferðinni var hcitið í leitar-
mannakofann í Álftárkrók. Lagt
var af stað úr Reykholtsdal um
Ferðalangarnir við bfla sína.
NT mynd: Magnús
hádegi og komið var í skálann
um kaffileytið, þannig að þeir
sem til þekkja geta gert sér í
hugarlund hvað færðin var góð.
Ekið var á harðfenni mikinn
hlutan leiðarinnar en víða voru
vegarslóðar alauðir, cnda snjór
ótrúlega lítill, miðað við hálendi
Arnarvatnsheiðar í janúar.
Norðlingafljót var vcl lagt slétt-
um ís og hefur líklega sjaldan
verið jafn gott yfirfærðar.
Vötnin á Arnarvatnsheiði
voru öll ísilögð og rennislétt.
ísbor og veiðarfæri voru með-
ferðis en ekki náðist að brúka
tækin vegna birtuleysis. Þó var
ísborinn notaður í eitt skipti og
þá í þeim tilgangi að ná í vatn á
einn bílinn sem sauð á.
Ferðin heim gekk vel og var
endað í kaffi hjá Óla á Astu í
Kalmannstungu.
■ Félagsheimili þeirra Selfyssinga hefur lengi verið að rísa en virðist nú vera að komast á lokastig.
Félagsheimili á loka-
stigi eftir ellefu ár
■ Fyrsta skóflustungan að
nýju félagsheimili á Selfossi var
tekin fyrir um ellefu árum.
Framkvæmdir hafa verið stopul-
ar, og heimamenn orðnir lang-
eygir eftir félagsheimilinu. Nú
virðist bjartari tíð framundan,
og á þessu ári ætlar bæjarsjóður
Selfoss að verja 17 milljónum
króna til framkvæmda við fé-
lagsheimilið, og standa vonir til
þess að hægt verði að taka í
notkun hluta af húsinu, snemma
á næsta ári. Sá hluti, sem gert er
ráð fyrir að tekinn verði í
notkun, er samkvæmissalurinn,
eldhúsið og fleira. Félagsheimil-
ið stendur vestarlega í kaup-
staðnum á bökkum Ölfusár.
Nýr bátur
til Hús-
víkinga
■ Nýr bátur bættist í flota
Húsvíkingu fyrir skömmu þegar
Björg Jónsdóttir, áður Gandí
frá Vestmannaeyjum, kom til
heimahafnar. Þetta er 131 tonns
trébátur, smíðaður í Svíþjóð
1964. „Gamla“ Björgin var
seld til Þórshafnar og heitir nú
Fagranes.
Þá var einnig tekinn í notkun
gámalyftari hjá Skipaafgreiðslu
Húsavíkur hf. Lyftarinn hefur
25 tonna lyftigetu og er eina
tækið sinnar tegundar hér á
landi utan Reykjavíkur. Er mik-
il hagræðing að krananum að
sögn eigenda en brýnt væri að
auka rými á hafnargarðinum
þar sem þróunin í gámaflutning-
um er mjög ör og slíkir flutning-
ar eiga eftir að stóraukast.
NT-mynd: Róbert
Guðmundur Björgvins-
son í Norræna húsinu
■ Hinn mikilvirki málari,
Guðmundur Björgvinsson opn-
ar 8. einkasýningu sína í Norr-
æna húsinu í dag. Hann sýnir
117 vaxlitamyndir sem allar eru
málaðar 1984.
Guðmundur, sem er þrítugur
að aldri, stundaði nám í Red-
land háskólanum í Kaliforníu á
árunum 1974-1976 í sálarfræði,
mannfræði og myndlist og síðan
við Háskóla íslands árin 1976-
1978 í sálarfræði, mannfræði og
listasögu.
Dalvík:
Sjö sækja um Dalbæ
Frá Halldori Inga Halldórs.syni, Akur-
e.'ri: _ Umsækjendurnir voru: Arn- maður KEA á Dalvík, Stefán
■ Sjö sóttu um stöðu nýs for- ór Pétursson, Reykjavík, Sigurgeir Þorsteinsson Hafnar-
stöðumanns Dalbæjur, dvalar- Bjarnveig Ingvadóttir Hafnar- firði og Þorgerður Þorgilsdóttir
heimilis aldraðra á Dalvík, en firði, Marinó Viborg Marinós- starfsmaður dvalarheimilis ald-
núverandi forstöðumaður, son skólastjóri í Grímsey, Ólaf- raðra í Borgarnesi.
Gunnar Birgisson, lætur af ur B. Thoroddsen kennari Ákvörðun um veitingu starfs-
störfum 15. maí. Dalvík.SímonEllertssonstarfs- ins verður tekin 13. febrúar.