NT - 09.02.1985, Qupperneq 5
Laugardagur 9. febrúar 1985 5
Erum þreyttir á
að vera stimplað-
ir glæpamenn
- segja myndbandaleigumenn og ætla að ráða sér talsmann
■ Stjórnarmenn úr samtökum myndbandaleiga fvrir framan umdcildustu verslunarvöru á Islandi.
NT-mynd: Sverrir
■ Félagar í samtökum mynd-
bandaleiga eru orðnir þreyttir á
því að vera sífellt stimplaðir
glæpamenn í fjölmiðlum og
annars staðar og hyggjast nú
snúa vörn í sókn. Samtökin ætla
að velja sér sérstakan fram-
kvæmdastjóra á næsta aðal-
fundi, sem verður haldinn eftir
hálfan mánuð; mann, sem á að
vera talsmaður þeirra.
Þetta kom fram á blaða-
mannafundi, sem samtök mynd-
bandaleiga héldu í fyrradag
vegna þeirra ummæla Péturs
Sigurðssonar, alþingismanns, í
vikunni, að á myndbandaleigum
mörgum hverjum væru stunduð
stórfelld söluskattssvik og önn-
ur lögbrot. Þessu mótmæla
myndbandaleigusalar og segja
að viðskipti þeirra hafi alltaf
verið söluskattsskyld, og sýna
því til sönnunar fulla möppu af
útleigunótum.
„Við töldum okkur knúða til
,að gera eitthvað í málinu núna“
sögðu þeir. „Við erum ekki að
lýsa stríði á hendur rétthöfum,
heldur að fara fram á samstarf. “
En þeir hafa ýmislegt að klaga
upp á samtök rétthafa. Þeir
segja, að rétthafar selji þeirn
gatslitnar myndir, sem komi
hingað eftir tveggja ára notkun
á dönskum myndbandaleigum,
og þeir segja rétthafa rífa mynd-
bönd úr hillum hjá þeim án þess
að sýna nokkra pappíra, sem
sanni að þeir eigi réttinn á
viðkomandi myndum. Þá segja
myndbandaleigumenn, að stór
hluti þeirra mynda, sem þeir
kaupi frá rétthöfum, séu myndir
sem ekki nýtist í leigu og séu
eingöngu keyptar til þess eins
að „kaupa frið," eins og þeir
kalla það, til þess „að styggja
ekki rétthafana". Stórar fjárhæð-
ir hafi jafnvel verið greiddar til
samtaka rétthafa og öll fyrri
deilumál þá verið látin niður
falla.
„Það vantar reglugerð um
þessi viðskipti, og vegna gagn-
rýni á okkur í blöðum, er al-
menningur hættur að bera virð-
ingu fyrir myndbandaleigun-
um,“ segja myndbandaleigu-
menn.
Námskeið
um vinnu-
hagræðingu
■ Kvenréttindafélag ís-
lands hefur ákveðið að
endurtaka námskeið um
vinnuhagræðingu, sem
haldið var í síðustu viku.
Sigríður Snævarr, sendi-
ráðunautur, kynnti þar
ýmsar aðferðir til þess að
skipuleggja vinnu og
stjórna tíma, og benti á
ýmsar einfaldar og ódýrar
leiðir til að sinna hinum
hversdagslegustu verkefn-
um á heimili og vinnustað.
Námskeiðið var full-
skipað og vegna fjölda
áskorana verður það
endurtekið þriðjudaginn
12. febrúar kl. 17.00 í
húsnæði félagsins að Hall-
veigarstöðum, Túngötu
14.
Þátttaka er öllum opin
og tilkynnist í síma 18156.
Frá
fyrri
árum
- sýning Valtýs
í Gallerí
islensk list
■ „Þetta eru 30 oh'umálverk
og 3 vatnslitamyndir og aðeins
þrjár myndir hafa sést á sýning-
um í Reykjavík áður,“ sagði
Valtýr Pétursson, listmálari, er
við litum inn til hans á Gallerí
■ Valtýr við eina mynda sinna á sýningunni. NT-mynd: Róbert
íslensk list á Vesturgötunni, en
þar hefst sýning á myndum eftir
Valtý í dag.
„Sýningin ber yfirskriftina
„Frá fyrri árum“ og kannast
maður fljótt við flest mótífin.
Þau eru úr vesturbænum og frá
gömlu höfninni og slippnum.
„Ég hef mína vinnustofu vestast
á Vesturgötunni og ég þarf varla
að gera annað en að snúa stóln-
um mínum við til að sjá mynd-
efni; athafnalífið við höfnina og
litadýrðina í vesturbænum. Ég
fer sjaldan út til að mála. Ég fer
frekar út til að drekka í mig
umhverfið og vinn svo úr áhrif-
unum á vinnustofunni."
Vélflugfélag Islands:
Flugöryggisár1985
hófstformlegaígær
■ I gær hófst formlega
flugöryggisár 1985. Sigur-
jón Asbjörnsson formað-
ur Vélflugfélags íslands
flutti ræðu við það tæki-
færi. Vélflugfélag
íslands í samstarfi við flug-
málastjórn hyggst á
þessu ári stuðla að auknu
flugöryggi einkaflug-
manna.
Við sama tækifæri, í
gær, var veitt viðurkenn-
ing til fyrstu flugmann-
anna sem tóku þátt í flug-
öryggisnámskeiði á vegum
Vélflugfélagsins. Alls
tóku 26 flugmenn þátt í
námskeiðinu sem haldið
var dagana 2.-3. febrúar.
Á flugárinu verður boð-
ið uppá flugöryggisnám-
skeið fyrir flugmenn úti á
landi, og má þar m.a.
nefna Akureyri, Selfoss og
Egilsstaði. I mars verður
boðið uppá námskeið fyrir
flugkennara til upprifjun-
ar, og verður fenginn
breskur leiðbeinandi. í
þriðja lagi hyggst Vélflugfé-
lagið gefa út handbók fyrir
einkaflugmenn, sem inni-
heldur ýmsar gagnlegar
upplýsingar um flugvelli
hérlendis. Um svipað leyti
kemur út handbók á veg-
um Flugmálastjórnar með
sjónflugskortum af öllum
flugvöllum hér á landi.
Flugöryggisárinu lýkur
með ráðstefnu sern haldin
verður á Hótel Esju þann
5. október næstkomandi,
þar sem einkaflugmenn og
flugvélaeigendur úr öllum
landshlutum munu þinga
urn flugöryggismál.
Biblíudagurinn:
„SæðiðerGuðsorð"
■ Hinn árlegi Biblíudagur íslensku kirkj-
unnar er næstkomandi sunnudag, 10. febrú-
ar.
Aðalfundur HÍB verður haldinn í Góð-
templarahúsinu í Hafnarfirði og hefst með
guðsþjónustu í Þjóðkirkjunni þar kl. 14.00.
Þórhildur Ólafs guðfræðingur predikar, en
hún er stjórnarmaður í Biblíufélaginu.
Sóknarpresturinn, sr. Gunnþór Ingason,
þjónar fyrir altari.
Aðalefni fundarins verður „Æskan og
orðið“. Framsögumaður er Ástráður Sigur-
steindórsson stjórnarmaður HÍB. Fundur-
inn er öllum opinn.
Hið íslenska Biblíufélag er eitt elsta félag
áíslandi stofnað 1815.Þaðhefur aðsetur
í Guðbrandsstofu í Hallgrímskirkju í
Reykjavík.
Samvinnuferðir-Landsýn:
Fjölskyldudagur
■ Samvinnuferðir-Landsýn hyggjast gang-
ast fyrir miklum hátíðahöldum á sunnudag-
inn í tilefni af útkomu sumaráætlunar og
sumarbæklings ’85.
Hefst dagurinn með keiluspilskeppni í
Öskjuhlíðinni, en það er fyrsta opinbera
keiluspilskeppnin sem haldin er hérlendis.
Keppnin hefst kl. 9.30 á sunnudagsmorgun-
inn, og er öllum opin. Þá verður söluskrif-
stofa Samvinnuferða-Landsýnar opnuð í
Austurstræti, kl. 13.00, með ferðakynningu
og ferðagetraun. Loks verður klykkt út með
fjölskylduhátíð í Háskólabíói kl. 15.00 þar
sem áhersla verður lögð á fjölbreytt skemmti-
atriði fyrir alla fjölskylduna.