NT - 09.02.1985, Síða 6

NT - 09.02.1985, Síða 6
Rósmundur G. Ingvarsson: Kjölfesta dreifbýlisins ■ Fram á vora daga hefur íslenska þjóðin lifað á því sem landið og hafið umhverfis gáfu með hjálp búfjárins og fiski- skipanna. Og auðvitað lifir þjóðin á þessu enn, þrátt fyrir miklar framfarir og breytingar. Landið og sjórinn hafa farið illa á því 11 alda tímabili sem liðið er frá landnámstíð - því veröur ekki neitað - og mun það að verulegu leyti vera sök mannsins, en umdeilanlegt er að hve miklu leyti það er manninum að kenna og að hve miklu leyti veðráttu og öðrum slíkum þáttum og einnig hvort það hafa verið íslendingar sjálfir eða annarra þjóða menn, sem eiga þá sök er í hlut mannsins kemur. Á síðustu árum hafa ýnisir viljað koma sökinni á sauðkindina, en það er auðvitað jafn fráleitt að kenna henni um eyðingu gróð- urlendis eins og að kenna skip- um og bátum um eyðingu fiski- stofna í hafinu umhverfis landið. Vínfræði og önnur fræði í smágrein í NT nýlega, undirritaðri af Á.G., er fjallað um landbúnaðarmál og cr margt þar vel sagt. Það er ekki ætlan mín að gagnrýna neitt sem þar kemur fram, en það hlýtur að vekja umhugsun. M.a. segir þar að sauðkindin var í gegnum aldir „öflugasta lífsforsenda þjóðarinnar". Þá segir að textahöfundur sem nefnir sig „Dagfara" haldi því fram að „íslensku sauðkind- inni hafi í gegnum aldir leyfst að ganga óhindruð í eyðilegg- ingarherferð sinni um víðerni þessa lands". Ennfremur segir greinarhöfundur „Það er að sjálfsögðu ekki umdeilt mál, að hlutar okkar afréttarlanda eru ofsetnir búfénaði. Það er heldur ekki umdeilt að sauðfé á Islandi er of margt miðað við innanlandsneyslu. Þetta eru staðreyndir, sem bændur og samtök þcirra komu auga á fyrstir manna, hafa fullan skiln- ing á og eru samtaka við aö leysa- án alls atbeina vínfróðra ritstjóra í Reykjavík.“ Eflaust er þetta allt rétt í stórum dráttum, þótt til séu að vísu menn innan bændastéttar- innar sem berja höfðinu við steininn og neita að viður- kenna ofbcit. Og ekki dreg ég í efa að viökomandi textahöf- undur og ritstjórar séu fróðir um áfcnga drykki og geti skrif- að um þá af hófsemd og þekk- ingu, þótt þeim hætti til að láta eitthvað annað en hófsemd og þekkingu ráða pennunt sínum þegar þeir fjalla um landbún- að. Versta synd þessara manna og annarrá slíkra er að þeir skrifa óhróöur og dellu um undirstöðuatvinnugreinar landsmanna - og endurtaka svo oft að fjöldinn fer að trúa - og , það jafnvel menn í bændastétt, fer að taka undir spangóliö og gerast þar með sekir um þátttöku í að rífa stoðirnar undan undirstöðuat- vinnugreinum þjóðarinnar. Ekki er við sauðfé að sakast En þótt hinir „vínfróðu" kenni bændum og sauðkind- inni um hina miklu rýrnun graslendis á landi okkar síðan það var numið af norrænum ntönnum, þá eru ekki allir á sama máli. Það er alveg Ijóst að ekki er viö sauðféð eitt að sakast og þó það komi eitthvaö við sögu, þá eru það mennirnir sem bera ábyrgðina. Frá land- námstíð hafa fleiri búfjárteg- undir verið á beit á landinu og auk þess hafa fuglar ávallt tekið sinn skerf. Sögur herma að mikið liafi verið af nautgrip- um og svínum til forna og voru þær tegundir reknar í afrétti a.m.k. sumstaðar. Þá hafa hross- in einnig verið til staðar allar götur og á sumum tímum í miklum mæli. Þau ganga nær landi en sauðféð og hafa á síðari tímum sumstaðar verið höfð í afrétti, þó flestir séu hættir því í dag. Hinum „vínfróðu" skal einnig bent á þá staðreynd að allir Islendingar eru komnir af bændum og þeir sjálfir líka. Vínfróðir ritstjórar bera því jafna ábyrgð á gróðureyðing- unni og þeir sem nú eru bænd- ur á íslandi, nema hinir síðar- nefndu hafi gerst sekir um landnýðslu í sínum eigin búskap. Að skella skuldinni á sauðféð eða annað búfé er tilraun til að koma eigin sök yfir á aðra. Varlega ættu menn að fara í, að ásaka forfeðurna fyrir illa meðferð á landinu. Þeira.m.k. hafa mikið sér til málsbóta. Núlifandi kynslóð má gjarnan huga vel að hvort hún er nokk- uð betri sjálf og hún hefur sér ekkert til málsbóta fyrir að láta eyðingu gróðurlendis eiga sér stað. Sauðféð gekk ekki nærri afréttum Hvað sauðkindina varðar, þá sýnir reynslan að hún leitar þangað sem hún veit besta beit hverju sinni og „sauður man livar lamb gengur". Meðan lítið var um girðingar þá kom sauðféð sjálft ofan af afréttum á sumrin þegar beit þar fór að rýrna og var gjarnan megnið af fénu komið til sinna heima- haga eða a.m.k. vel áleiðis þangað þegar farið var að smala. Sumt tolldi ekkert í af- rétti. Þannig hlífði sauðféð af- réttunum við ofbeit. Það er því vart hugsanlegt að sauðkindin hafi valdið gróðureyðingu á af- réttum. Hafi verið um ofbeit að ræða af hennar völdum, þá hefur það verið næst bæjum og beitarhúsum. Það er álit sérfræðinga og einnig bænda, að alger friðun gróðurlendis sé ekki það æski- legasta fyrir landið heldur hóf- leg beit. Sérfræðingar segja til um hvað er hófleg beit á hverj- um afrétti og ætti því ekki að þurfa að deilda um það. Með tilkomu girðinga og vega, ásamt vörubílum og ann- arri tækni hefur orðið gífurleg breyting. Sauðféð erekki leng- ur sjálfrátt að því hve lengi það er í afréttum og jafnvel ratar ekki heim eftir að farið var að flytja það á bílum. Þetta er þó breytilegt og kemur sumt af fénu heimleiðis þegar það vill ekki vera lengur í afréttinum, sumt fer í aðrar áttir og jafnvel milli landshluta en margt kem- ur að þeim stað sem það var tekið af bílnum og bíður þar eftir að verða sótt. Með þessum og fleirum breytingum hefur ábyrgð mannsins aukist gífurlega og nývandamál skapast, þvíhefur Alþingi sett lög sem eiga að tryggja, að sveitarstjórnir sjái um að vel sé farið með afréttar- lönd. Og jafnframt hefur Landgræðsla ríkisins verið með lögum gert skylt að fylgj- ast með ástandi afrétta og koma í veg fyrir ofnotkun þeirra. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að fræða bændur um þessi mál, enda hvílir ábyrgðin þyngst á bændunum og öðrum eigendum grasbíta svo og sveitarstjórnunum. Og ábyrgðin er mikil, þar sem mennirnir hafa rofið sjálfstæði sauðfjárins með afréttargirð- ingum og fleiru og tekið í þjónustu sína tækni sem fljót- legt er að valda með óbætan- legum skaða á gróðurlendi og annarri náttúru landsins eða koma af stað uppblæstri sem erfitt er að stöðva. Langtum meiri ábyrgð en áður Svo fráleitt sem það var að kenna sauðkindinni um eyð- ingu gróðurlendis á liðnum öldum, þá er það margfalt fráleitara nú eftir stórbreyting- ar síðustu áratuga. í langflestum tilfellum munu bændur hafa skilning á þessum málum og eiga góða samleið með gróðurverndaraðilum, enda finna þeir manna best til ábyrgðar gagnvart landinu og vilja taka þátt í því jákvæða starfi sem hafið er til að stöðva eyðingu gróðurlendis og snúa vörn í sókn. Hinsvegar er því ekki að neita að til eru þeir menn innan stéttarinnar sem snúast öndverðir og veita um leið vatni á myllu hinna „vín- fróðu ritstjóra í Reykjavík." Það hefur verið sagt, að sauðféð var öflugasta lífsfor- senda þjóðarinnar um aldir. En hver er staða sauðfjárins í dag, eftir allar þær breytingar sem orðið hafa í tíð núlifandi manna? Hinir „vínfróðu rit- stjórar" hafa sagt sitt álit. Þeir leggja meðal annars til að ísl- enskur landbúnaður verði lagður niður og landbúnaðar- vörur keyptar erlendis frá. Þeir hafa klifað á þessu í nokkur ár og fengið hljómgrunn - ekki aðeins hjá textahöfundinum Dagfara, - heldur og eitthvað hjá almenningi - jafnvel í sveit- um. Er nú svo komið að byggð- ir strjálbýlisins, cinkum sveit- anna standa rnjög höllum fæti. Fólkið streymir í kaupstaðina einkum til suðvesturhornsins, en sveitunum blæðir. Jafn- framt er dregið úr útflutnings- bótum vegna landbúnaðarvara og sauðfé og nautgripum hefur verið stórfækkað vegna örðug- lcika með sölu afurðanna. Byggðin stendur og fellur með sauðfénu Við talsverðan vanda er að glíma, en fari þessu fram enn um sinn þá hlýtur byggðin í sveitunum að eyðast að veru- legu leyti á næstu árunt. Við það missa kaupstaðirnir á landsbyggðinni spón úr aski sínum og hugsanlega fara sömu leiðina á eftir. Hér verður að spyrna við fótum og það fljótt. Mælt hefur verið með nýjum búgreinum. Þær hafa gengið misjafnlega, en virðast sumar hverjar geta komið að gagni, en þó því aðeins að aðalbúgreinunum, sauðfé og kúm, sé haldið í horfinu og eigi fækkað meir en orðið er. Einkum er það sauð- féð sem viðhald byggðarinnar byggist á og fæ ég ekki betur sé að að sauðféð sé lífsforsenda byggðar í sveitunum og kjöl- festa dreifbýlisins. Byggðin stendur og fellur með sauðfénu. 24.jan 1985 Rósmundur G. ingvarssun Hinum vínfróðu skal einnig bent á þá staðreynd að allir íslendingar eru komnir af bændum og þeir sjálfir líka. Vínfróðir ritstjórar bera því jafna ábyrgð á gróðureyðingunni og þeir sem nú eru bændur á íslandi. Það er álit sérfræðinga og einnig bænda að alger friðun gróðurlendis sé ekki það æskilegasta fyrir landið heldur hófleg beit. Sérfræðingar segja til um það hvað er hófleg beit á hverjum afrétti og ætti því ekki að þurfa að deila um það._____________ Frelsunarguðfræðin og við saddir/kristnir ■ Torfa Ólafssyni, formanni félags kaþólskra leikmanna, skal þökkuð góð grein um frelsunarguðfræðina í róm- önsku Ameríku sem hann ritar í Mogga í gær. Allt of lítið hefur á íslenska tungu verið fjallað um þessa nýju guðfræði sem á rætur sínar í kúgun og ofbeldi ríkisvalds og harð- stjóra Suður-Ameríku. KJerk- ar þar fundu það einfaldlega á eigin líkama og þjáningum meðbræðra sinna að sú kirkja, sem stæði hjá og horfði upp á þá rangsleitni og kúgun sem ríkir þar væri ekki trú frelsara sínum sem sagði: „Ég er kom- inn til að flytja fátækum gleði- legan boðskap, boða bandingj- unt lausn", o.s.frv. Þeir hafna auðmýkt hins kristna gagnvart vondu ríkisvaldi og hvetja jafnvel til ofbeldis gagnvart ranglátri þjóðfélagsskipan, vegna þess, segja þeir, að sitja hjá og aðhafast ekki er um leið stuðningur við það ofbeldi, sem harðstýrð og kúgandi yfir- völd beita þegna sína. Stuðn- ingur við barnadauða, stuðn- ingur við örbirgð fjöldans, stuðningur við það að feður séu hrifsaðir frá börnum og fjölskyldum vegna þess að þeir voga sér að mótmæla. Það ofbeldi sem felst í þessum stuðningi er miklu verra, miklu andstyggilegra en það ofbeldi sem felst í því að reka fram byssusting fyrir hinn hrjáða og smáða. Þess vegna höfumst við að. Leið friðarins Nú er þess að geta að það er ansi sterkt í boðun Jesú Krists að leið hins kristna manns sé leið friðarins. Svara illu með góðu, hörku með auðmýkt og allt það. Er bent á þá staðreynd að ofbeldi leiði aðeins af sér ofbeldi og því verði ofbeldi ekki útrýmt nema með elsk- unni. Á þessum grundvelli gagnrýna feitir og vellíðandi Vesturlandabúargjarnan frels- unarguðfræðina, a.m.k. þá grein hennar sem hvetur til vopnaðrar baráttu. Það er vissulega mikið til í þessu og spyrja má. Ef þetta er ekki tilfellið, hvað er þá svona sér- stakt við leið Krists? Torfi ritar grein sína í tilefni af því að Jóhannes páfi hefur varað við ofbeldi og vitnar Torfi í Síraks- bók þessari leið til stuðnings, þar sem segir: „Sá er ætlar að gera gott með ofbeldi, líkist geldingi er leggst hjá meyju." Skýrar er ekki hægt að orða að ofbeldi sé vonlaust, en þess ber þó að geta að Síraksbók komst ekki inn í hina helgu bók á sínum tíma og telst því til hinna apokrýfu rita, hliðar- rita kristninnar Vaðandi blóðelginn upp að hnjám Ekki skal þessari túlkun á kristindóminum mótmælt en aðeins á það bent að við hér á Vesturlöndum höfum hafnað þessari sérkristnu friðarleið og '■ situr því síst á okkur að dæma kristna presta í rómönsku Ameríku þó að þeir, vaðandi blóðelg harðstjóranna upp að hnjám, hvetji til byltingar. Við hér svörum líka illu með illu. Ef á okkur er ráðist þá verjum við okkur og yfirleitt gott betur og engin kirkja boðar okkur það, að ef ráðist er á barnið okkar þá kyssum við fætur árásarmannsins. Þvert á móti það er aðal hinnar borgaralegu kristni Vesturlanda að verja sig og sína og eignir sínar með öllum tiltækum ráðum. Þetta er því ákveðnara sjónarmið sem kirkjudeildin er íhalds- samari, en það skondna er, að eftir því sem kirkjudeildir eru íhaldssamari því meira for- dæma þær ofbeldi í nafni Krists. Lítill peyi I New York Reinold Niebuhr, sá guð- fræðingur amerískur sem mest áhrif hefur haft á þessari öld, tekur klassískt dæmi í einni bóka sinna um það hversu gagnlaust sé að svara illu með góðu.(Það er sagt að Banda- ríkjaforsetar sofi með bækur hans undir koddanum enda verða þeir seint sakaðir um það að svara illu með góðu). Niebuhr tekur dæmi af litlum strák í New York (þetta var í kreppunni) sem er sendur út til að selja blöð. Faðir hans er drykkjumaður og móðirin ein heima með þrjú ung börn. Peyinn er því eina von fjöl- skyldunnar. Hann stillir sér upp á besta horninu, en er

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.