NT - 09.02.1985, Page 7
Kristján Hannesson Lambeyri:
Samráðið líkist galdraofsóknum
■ Vegna yfirlýsingar Valdi-
mars Gíslasonar f.h. Búnaðar-
sambands Vestfjarða og Bergs
Torfasonar f.h. Fjárskipta-
nefndar, sé ég ástæðu til að
koma á framfæri nokkrum at-
hugasemdum.
Þeir félagar segja: „Full-
reynt var talið að niðurskurður
einstakra hjarða eins og hann
hafði verið framkvæmdur á
Barðaströnd stöðvaði ekki
veikina." En í bréfi sauðfjár-
veikivarna dagsettu 14.6. 1984
undirrituðu af Sigurði Sigurð-
arsyni segir:"Á fundi Sauðfjár-
sjúkdómanefndar var tekið
undir tillögur Rauðstrendinga
um girðingu milli Rauðasands
og Barðastrandar úr Stálfjalli í
Patreksfjörð við Skápadal;
Heimamönnum var heitið
aðstoð, setji þeir upp girðing-
una. Pessi girðing gæfi kost á
því að fresta eða hlífa við
fjárskipti svæði, sem hvorki
hefir fundist riðuveiki á eða
grunur um hana. Til nokkurs
er að vinna, því á skaganum
sem myndi girðast af eru yfir
tvö þúsund fjár. Haldi girðing-
in vel mætti jafnvel freista þess
að hreinsa þetta hólf, ef riða
fyndist síðar, með því að lóga
fé á einstökum bæjum og það
eftir að ósýkt fé er komið aftur
til Barðastrandar." Væri ekki
rétt að Valdimar. Bergur og Sig-
urður reyndu að jafna þennan
ágreining sinn áður en fram-
kvæmdir verða hafnar við girð-
inguna. Það er fjöldamargt
sem ég sé athugavert við yfir-
lýsinguna en í stuttri blaðagrein
er ekki hægt að sinna því öllu,
nema tilefni gefist til síðar. í
máli þeirra félaga kemur fram,
að ýmis félagasambönd og
sýslunefndir og einnig fundur
fulltrúa sveitarfélaga sem hald-
inn var á Núpi 30. júní 1984
hafi lýst stuðningi við þá stefnu
að skera niður allt sauðfé í
Vestfjarðahólfi.
Er þetta sannleikanum
samkvæmt? Sýslunefnd Vest-
ur-Barðastrandarsýslu hefir
aldrei samþykkt niðurskurð á
sauðfé utan Barðastrandar-
hrepps. Á fundinum á Núpi
var engin tilllaga samþykkt um
niðurskurð. Vegna afgerandi
andstöðu fulltrúa sveitar-
stjórna frá Patreksfirði.
Tálknafirði og Ketildala- og
Suðurfjarðahreppum gegn
niðurskurði kom fram tilllaga
frá Össuri Guðbjartssyni og
Sigurði Sigurðarsyni. Niðurlag
tillögunnar var svohljóðandi:
„Fundurinn felur stjórn Bún-
aðarsambandsins að fá fram
afstöðu allra sveitarstjórna í
hólfinu og að því loknu hlutast
til um skipun fimm manna
nefndar er taki tilllit til sem
flestra sjónarmiða um þetta
mál og verða samningar- og
framkvæmdaaðili fyrir hönd
fjáreigenda."
Nú spyr ég Valdimar Gísla-
son, framkvæmdastjóra Bún-
aðarsambands Vestjarða: Ertu
búinn að fá fram afstöðu allra
sveitarstjórna á svæðinu, og
með hvaða hætti var tekið tillit
til þeirra sjónarmiða sem
komu fram á fundinum. Ein-
hvern veginn hefur þetta starf
Búnaðarsambandsins farið
fram hjá hreppsnefnd og fjár-
eigendum í Tálknafirði.
Það er rétt að bændur bera
fullt traust til starfsfólks til-
raunastöðvarinnarh Keldum.
Hitt er alrangt að það sé
einkamál starfsmanna Sauð-
fjárveikvarna hvernig þeir
skipta með sér verkum. Ég
treysti ekki Kjartani Blöndal
framkvæmdastjóra til þess að
vinna að tilraunum í rannsókn-
arstofunni á Keldum. Það hef-
ur líka sýnt sig að dýralæknir-
inn er allsóhæfur til að sinna
mannlegum samskiptum. Það
er affarasælast að Kjartan sinni
sínu starfi og Sigurður sínu.
Það voru ekki liðnir nema
nokkrir dagar frá því að fund-
urinn á Núpi var haldinn þar til
ég ásamt fjáreigendum í
Patrekshreppi vorum boðaðir
á fund með fulltrúum Sauðfjár-
veikivarna. Fundur var hald-
inn á sýsluskrifstofunni á
Patreksfirði. Reynt var að fá
okkur til að undirrita samning
um niðurskurð á hjörðum
okkar. Tilmælunum var
hafnað, þess í stað var fulltrú-
unum afhent mótmælaskjal
gegn aðförum sauðfjársjúk-
dómanefndar, undirritað af
öllum sauðfjáreigendum frá
Patreksfirði, Raknadal og
Lambeyri.
í yfirslýsingu ykkar segir:
„Starfsmenn sauðfjárveiki-
varna hafa haft fullt samráð
við heimamenn um aðgerðir í
niðurskurðar- og fjárskipta-
málum og rætt þau ítarlega við
einstaka fjáreigendur og aðra
þá er máiið varðar." Þetta er
fallega sagt, ef satt væri. Hvað
okkur fjáreigendur varðar hef-
ur þetta samráð og ítarlegu
umræður líkst meir galdraof-
sóknum, þar sem einskis er
svifist. í stað umræðna um
málið var nú beitt þeirri tækni
að leggja einstaka fjáreigendur
í einelti og beita þá þrýstingi.
Aðferðin var einföld og árang-
ursrík; með fagurgala og lof-
orðum um fjárbætur annars-
vegar, og svo hótunum um
fjárútlát og valdbeitingu hins
vegar. Hefir tilraunamannin-
um frá Keldum tekist að brjóta
niður viljastyrk fjáreigenda á
Patreksfirði svo að þeir hafa
sárnauðugir afhent kindurnar
sínar undir hnífinn. Af þessum
ofsóttu fjáreigendum stend ég
nú einn og þrátt fyrir hertar
aðgerðir gegn hjörð minni lifir
hún enn og mun halda áfram
að lifa.
Fréttatilkynningar frá Sauð-
fjárveikivörnum sem birst hafa
í sjónvarpi, útvarpi og blöðum
um að búið sé að skera niður
hjá mér eru tilhæfulausar.
Mcð vaxandi undrun hefur al-
menningur fylgst með þessum
aðgerðum. Bændur og fjöl-
skyldur þeirra hafa fyllst ótta
og öryggisleysi og réttarvitund
fólks hefur verið alvarlega mis-
boðið. Bóndanum á Ósi í Arn-
arfirði votta ég samúð mína,
en hjörð hans var skorin niður
í haust af litlu tilefni og gegn
mótmælum hans.
Enginn efast um dugnað og
ósérhlífni rannsóknarmanns-
ins frá Keldum, til dæmis má
ncfna að hann lagði það á sig
núna rétt fyrir jólin að fara
vestur á Barðaströnd og í
mesta fárviðri sem gcngið hef-
ur yfir Vestfirði á þessum vetri
braust hann ásamt fríðu föru-
neyti yfir Dynjandisheiði,
meðal annars til að heimsækja
Pétur bónda að Ósi. Þett'a var
hraustlega gcrt og virðingar-
vert ef tilgangur ferðarinnar
hefði verið sá að veita gamla
manninum andlegan styrk
vegna álagsins er hann varð
fyrir er kindur hans voru
skornar niður. En því miður,
það var ekki tilgangur terðar-
innar, heldur fékk Pétur skip-
un frá þessum valdamikla
manni um að jafna fjárhúsin
við jörðu og brenna og jarð-
setja allt heila draslið. Tilfinn-
ingasemi kemur auðvitað ekki
til greina þegar vísindamenn
eru að störfum. Það er vonandi
að tár gamla mannsins hafi
ekki spillt jólagleði vísinda-
mannsins eftir að hann kom
heim úr þessari frægðarför.
Ein spurning að lokum til
ykkar félaga, Valdimars og
Bergs. Gæti hugsast að sextug-
asta og sjöunda grein stjórn-
arskrár lýðveldisins íslands
gildi fyrir umkomulitla og af-
skekkta bændur vestur á
fjörðum? Þið þurfið ekki að
svara; slíkt eróhugsandi! Frið-
helgi eignarréttarins nær ekki
út fyrir Stór-Reykjavíkursvæð-
ið. Að lokum legg ég til, að
málið verði sett í geðrannsókn.
Kristján Hanncsson,
Lainbcyri
460 Tálknafirði.
Það hefur líka sýnt sig að dýralæknirinn er
alls óhæfur til að sinna mannlegum sam-
skiptum
■ Erum við saddir og sælir Vesturlandabúar í nokkuri
stöðu til að gagnrýna presta í Suður-Ameríku sem hvetja til
ofbeldis?
umsvifalaust stjakað þaðan af
sér stærri og heimaríkari
hundum. Hann fer á næsta
horn og þar endurtekur sagan
sig og þannig koll af kolli þar
til að hann er kominn svo langt
frá miðborginni að hann selur
ekkert.
Peyinn fór vissulega hina
sérkristnu leið, segir Niebuhr,
hann svaraði ekki ofbeldi með
ofbeldi heldur vék sér undan
(ef þú ferð til hægri þá fer ég
til vinstri, en ef þú ferð til
vinstri þá fer ég til hægri
o.s.frv.j.En hann gerði rangt
segir Niebuhr. Með þessu móti
sveltur fjölskylda hans í hel.
Það er á þennan hátt sem hið
vonda, stóra, sterka rúllar yfir
hið góða litla, veika. Peyinn
átti að berjast, það var skylda
hans gagnvart sér og sínum.
Og þannig hlýtur kristinn mað-
ur að haga sér. Hann á að veita
hinu illa viðnám. Það var líka
það sem Jesú Kristur gerði.
Hann lagði til atlögu gegn illu
öflunum í heimi hér. Eitthvað
á þessa leið rökræðir sá guð-
fræðingur, sem mest áhrif hef-
ur haft á Vesturlöndum á þess-
ari öld, og við högum okkur
samkvæmt þessari siðfræði.
Saddir og kristnir
Því hugleiði ég á þessum
nótum að mig langar til að
spyrja hvort nokkurt okkar
hefur efni á því að álasa kristn-
um prestum í rómönsku Ame-
ríku vaðandi blóðelg harð-
stjóra og kúgara, þó að þeir
hvetji til vopnaðrar baráttu
gegn þessum ósköpum; þó að
þeir hvetji til byltingar. Eða
má ekki líta á hermenn Pino-
cliets sem ryðjast inn á heimili
og drepa heimilisföðurinn og
nauðga móðurinni til dauðs
frammi fyrir barnaskaranum,
sömu augum og við lítum ó-
týndan glæpamann sem brýst
inn á heimili vor með rán og
ofbeldi í huga. Við saddir og
kristnir ráðumst.að mótstöðu-
manninum og drepum hann
frekar en að láta hann drepa
okkur. Erum við að ætlast til
þess að meðbræður okkar í
Suður-Ameríku séu fullkomn-
ari en við.
Vífilengjur
Vatíkanið hefur gagnrýnt
frelsunarguðfræðina og bent á
að kirkjan sé annað og meira
en félagsleg endurbóta- og
byltingarhreyfing. Það er mik-
ið rétt. En það er einnig rétt að
allar vífilengjur af þessu tagi
eru bara vatn á myllu þeirra
harðstjóra sem í nafni hers og
lögreglu kúga og myrða mill-
jónir.
Baldur Kristjánsson
Verft í lausasölu 30 kr.
og 35 kr. um helgar.
Áskrift 330 kr.
Málsvari frjálslyndis,
samvinnu og félagshyggju
Útgefandi: Núliminn h.f.
Ritstj.: Magnús Ólafsson (ábm).
Markaðsstj.: Haukur Haraldsson
Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason
Innblaftsstj.: Oddur Ólafsson
Tæknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson
Skrilstofur: Siðumúli 15, Reykjavík.
Simi: 686300. Auglýsingasimi: 18300
Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn
686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild
686538.
Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Kvöldsímar: 686387 og 686306
Efnahagstillögur
■ í gær kynntu forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra tillögur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Um er að ræða margþættar aðgerðir sem miða að
því að ná jafnvægi í efnahagsmálum á ný.
Alvarlegustu málin sem steðja nú að íslensku
efnahagslífi eru vaxandi erlendar skuldir ásamt
viðskiptahalla og hættu á þenslu innanlands.
Þessu verður nú reynt að mæta með aðhaldi á
öllum sviðum fjármála og peningamála.
Fyrst skal nefna það að áætlað er að fjármagna
verkefni ríkisins í auknum mæli innanlands. I því
skyni er fyrirhugað að minnka erlendar lántökur í ár
um 1000 milljónir. Pað verður gert með því að draga
úr lántökuáætlunum opinberra aðila m.a. Lands-
virkjunar.
Þá tekur ríkisstjórnin mið af ábendingum
stjórnarandstöðunnar og leggur áherslu á að herða
eftirlit með skattframtölum og innheimtu opinberra
gjalda. í þeim efnum er nt.a. ákveðið að lágmarks-
virðurlög við skattsvikum verði þrefölduð greiðsla
þess sem svikið er undan.
Vonandi næst til Stigahlíðarþjóðarinnar nteð þess-
um hætti.
Þá er enn á blað fest að virðisaukaskattur komi í
stað söluskatts um næstu áramót og lofað er ráð-
stöfunum til að draga úr þeim áhrifum sem tilkoma
hans hefur í þá veru að hækka framfærslukostnað.
í tillögunum er gert ráð fyrir sérstökum ráðstöfun-
um til þess að auka sparnað vegna fyrirhugaðra
íbúðakaupa. í því skyni verða veittar skattaívilnanir
vegna sparnaðar á bundnum reikningum, hliðstætt
þeim frádrætti, sem nú er heimilaður til hlutabréfa-
kaupa.
Pá hafa reglur um húsnæðislán verið teknar til
gagngerðrar endurskoðunar. Lánin verða bundin við
ákveðnar stærðir íbúða og þeir sem byggja í fyrsta eða
annað sinn fá forgang. Þetta er gott og sjálfsagt.
Þá hefur verið ákveðið að taka 150 milljónir af 700
milljóna króna nýbyggingarlánafé til þess að lána
þeim sem hafa byggt eða keypt frá 1980 og eru nú á
hausnum.
Þá hefur Húsnæðisstofnun verið falið að koma nú
þegar á fót ráðgjafaþjónustu, sent leiðbeini og
aðstoði þá sem komnir eru í greiðsluerfiðleika.
Þá er í tillögunum gert ráð fyrir frumvörpum um
stjórnkerfið, nýsköpun atvinnulífs og sjóða, land-
búnaðarmál, bankamál og sveitarstjórnarmál.
Það er margt gott í þessum tillögum og það besta
við þær er að ekki eru sett grjóthörð markmið um
kauphækkanir, gengi og verðbólgustig eins og tilfell-
ið var í síðustu aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þannig
gengur ríkisstjórnin til viðræðna við aðila
vinnumarkaðins með miklu mýkri ásjónu en hún
hafði á haustdögum.
Hún býður nú upp á viðræður um breytingar á
tekjuöflun ríkissjóðs, bótum almannatrygginga,
fyrirgreiðslu í húsnæðismálum og atvinnustefnu til
næstu ára í stað peningalaunahækkana.
Vonandi tekst bærilegt samkomulag með þessum
aðilum og vonandi tekst okkur að sigla friðsamlega
upp úr þeim öldudal sem við höfum verið í og
vonandi missum við ekki velferðarsamfélagið úr
höndum okkar á leiðinni upp.