NT

Ulloq

NT - 09.02.1985, Qupperneq 11

NT - 09.02.1985, Qupperneq 11
líl' Laugardagur 9. febrúar 1985 11 Bridgehátíð 1985: Erlendir hákarlar á leiðinni á mótið ■ Ef svo fer sem horfir verður Bridgehátíð 1985 vel mönnuð því sveitirfrá Bandaríkjunum, Bretlandi, Póllandi og Danmörku cru í starthol- unum. Mestur fengur verður örugglega að Zia Mahmood frá Pakistan sem hing- að ætlar að koma ásamt Bretunum Martin Hoffman, RobSheehan ásamt fjórða manni. Mahmood er nú af mörgum talinn besti spilari heims, og Martin Hoffman er ekki síðri enda heimsþekktur, bæði fyrir spila- mennsku og ritstörf. Sheehan þarf varla að kynna íslenskum bridge- mönnum því hann hefur komið hing- að áður í tvígang. Frá Bandaríkjunum koma væntan- lega Steve Sion og Alan Cokin sem spiluðu á Bridgehátíð í fyrra, ásamt tveim minna þekktum spilurum. Sion og Cokin hafa verið mikið í sviðsljós- inu í heimalandi sínu undanfarið ár, bæði vegna góðrar frammistöðu á mótum og eins vegna deilna sem þátttaka þeirra í mótum hefur vakið, en þeim var veitt innganga í ameríska bridgesambandið fyrir ári eftir að hafa áður verið vísað úr því fyrir meint svindl. Frá Danmörku eru væntanlegir Möller, Werdelin, Blakset og Auken, sem ekki þurfa frekari kynningar við enda allir spilað áður hér á landi. Þá mun Sævar Þorbjörnsson væntanlega koma í heimsókn ásamt Jon Jonsson, ungum spilara sem oft hefur spilað í yngra liði Dana, og er eins og nafnið bendir til af íslenskum ættum. Síðast en ekki síst hafa pólsku Ólympíumeistararnir sýnt áhuga á þátttöku í Bridgehátíð, en það er þó ekki komið á hreint enn. Bridgehátíð verður haldin dagana 15.-18. mars. Hátíðin skiptist eins og venjulega í tvímenning, með þátttöku 44 para, og sveitakeppni. Skráning er þegar hafin í bæði mótin hjá Bridge- sambandinu og er listhafendum bent á að hafa fyrra fallið á að skrá sig. Suðurlandsmót í sveitakeppni Sveit Suðurgarðs sigraði á Suður- landsmótinu í sveitakeppni sem hald- ið var fyrir skömmu, en í þeirri sveit spiluðu Kristján M. Gunnarsson, Gunnar Þórðarson, Sigfús Þórðarson og Vilhjálmur Pálsson. Alls tóku 15 sveitir þátt í mótinu og þrjár efstu fengu rétt til að spila á íslandsmótinu í sveitakeppni. Röð efstu sveita var þessi: Bridgedeild Breiðfirðinga 18 umferðum er lokið í aðaltví- menning félagsins en staðan eftir 17 umferðir var þessi: Halldór Jóhannesson - Ingvi Guðjónsson 432 Bjarni Jónsson-Sveinn Jónsson 358 Magnús Halldórsson - Baldur Ásgeirsson 319 Gísli Víglundsson - Þórarinn Árnason 263 Ragna Ólafsdóttir - Ólafur Valgeirsson 195 Eggert Benónýsson - Sigurður Ámundason 188 I frétt af úrslitum sveitakeppninnar hjá félaginu misritaðist nafn eins spilara í sigursveitinni. Sá heitir Kristján Sigurðsson en hann spilaði í sveit Hans Nielsen. Bridgedeild Húnvetninga Mjög góð þátttaka hefur verið hjá Bridgedeild Húnvetninga í vetur og í aðalsveitakeppninni, sem nú stendur yfiry taka þátt 14 sveitir. Eftir fimm umferðir er staðan þessi: Halldór Magnússon 93 Jón Oddsson 88 Kári Sigurjónsson 76 Halldóra Kolka 73 Valdemar Jóhannsson 73 Spilað er í húsi Húnvetningafélags- ins Skeifunni 17 á miðvikudagskvöld- Bridgedeiid Rangæinga Eftir fimm umferðir í aðalsveita- keppni félagsins er staðan þessi: Lilja Halldórsdóttir 106 Sigurleifur Guðjónsson 103 Gunnar Helgason 99 Bridgefélag Akureyrar Þegar einu kvöldi er ólokið í tví- menningskeppni félagsins þessi: Stefán Ragnarsson - er staðan Pétur Guðjónsson 543 Frímann Frímannsson - Páll Pálsson 539 Eiríkur Helgason - Jóhannes Jónsson 496 Ármann Helgason - Jóhann Helgason 368 Suðurgarður 292 Gylfi Gíslason 286 Jón Hauksson 271 Valgarð Blöndal 260 Hermann Þ. Erlingsson 254 Hreinn Elliðason - Guðlaugur V. Guðmundss. 323 Bæjarkeppni Húsavíkur og Akur- eyrar var haldin um síðustu helgi og sigruðu Akureyringar með miklum mun. Bridgefélag Reykjavíkur Aðaltvímenningskeppni B.R. var haldið áfram s.l. miðvikudag. Að loknum tveimur kvöldum af sex hafa kunnugleg nöfn hreiðrað um sig við toppinn. Röð efstu para eftir 14 umferðir af Guðmundur Sv. Hermannsson GERIST ÁSKRIFENDUR HJÁ NÆSTA UMBOÐSMANNI 41 er þessi: 1. Júlíus Snorrason - Sigurður Sigurjónsson 188 stig 2. Ásmundur Pálsson - Sigurður Sverrisson 185 stig 3. Hjalti Elíasson - Jón Baldursson lóOstig 4. Aðalsteinn Jörgensen - Valur Sigurðsson 157 stig 5. Stefán Pálsson - Rúnar Magnússon 156 stig 6. Jón Páll Sigurjónsson - Sigfús Örn Árnason 154 stig 7. Ólafur Lárusson - Oddur Hjaltason 153 8. Jón Ásbjörnsson - Símon Símonarson 146 stig Athygli er vakin á því að ekki verður spilað næsta miðvikudag og er næsta spilakvöld 20. febrúar. Vesturlandsmót í sveitakeppni Vesturlandsmót í sveitakeppni verður haldið í Hótel Stykkishólmi helgina 23.-24. febrúar n.k. Gert er ráð fyrir að spilamennskan hefjist kl. 10.30 á laugardag. Áætlað- ur kostnaður er kr. 5.000,- pr. sveit miðað við fjögurra manna sveit og er þá fæði og gisting innifalin. Þátttöku skal tilkynna til Karls vs. 1799, Jóns Ágústs vs. 7317 og Eggerts hs. 8316 fyrir 16. febrúar n.k. íslandsmót kvenna og yngri spilara Eins og fram hefur komið í fréttum áður, hefst íslandsmót kvenna og yngri spilara föstudaginn 22. febrúar n.k. Spilað er í Menningarnriðstöð- inni v/Gerðuberg í Breiðholti og hefst spilamennska kl. 20. Þá helgi verður spiluð undanrás í báðum flokkum og munu 4 efstu sveitirnar úr hvorum flokki spila til úrslita. Skráningu lýkur 15. febrúar n.k. Hægt er að skrá sveitir hjá Bridge- sambandinu s: 91-18350 (Ólafur). Bridgefélag Hafnarfjarðar Næsta mánudag verður byrjað að spila þriggja kvölda hraðsveita- keppni. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir, en skráning fer fram á staðnum. Spilað verður í fundarsal íþróttahússins við Strandgötu og hefst spilamennskan kl. 7.30. Laugardag- inn 9. feb. er ætlunin að keppa við Akurnesinga, en sú keppni hefur verið árlegur viðburður í fjölda ára. Spilað verður á sex boröum urn veglegan farandbikar. Frá Bridgedeild Skagfirðinga Eftir 8 umferðir í sveitakeppni félagsins, er staða efstu sveita þessi: Sveit stig 1. Magnúsar Torfasonar 175 2. Guðrúnar Hinriksdóttur 167 3. Gísla Stefánssonar 164 4. Hjálmars Pálssonar 137 5. Leifs Jóhannessonar 134 Bridgedeild Barðstrendingarfélagsins Staðan í aðalsveitakeppni félags- ins eftir 10. umferðir er nú þannig: Sveit stig 1. Gunnlaugs Þorsteinssonar 170 2. Viðars Guðmundssonar 145 3. Ragnars Þorsteinssonar 133 4. Friðjóns Margeirssonar 128 5. Sigurðar ísakssonar 127 6. Þóris Bjarnasonar 96 7. Sigurðar Kristjánssonar 95 11. og 12. umferð verða spilaðar mánudaginn 11. febrúar og hefst keppni kl. 19:30. Spilað er í Síðumúla 25. Mánudaginn 25. febrúar hefst barometerkeppni félagsins. Þátttaka tilkynnist til Helga Einarssonar sími 71980 og Sigurðar Kristjánssonar sími 81904 fyrir 20. febrúar. Keppnisstjóri verður Hermann Lárusson. Bridgefélag Breiðholts Að loknum átta umferðum af ellefu í aðalsveitakeppni félagsins er röð efstu sveita þessi: 1. Anton Gunnarsson 167 2. Rafn Kristjánsson 160 3. Helgi Skúlason 145 4. Baldur Bjartmarsson 141 5. Stefán Oddsson 135 6. Gunnar Traustason 128 Annan þriöjudag lýkur sveita- keppninni. Þriðjudaginn 26. febr. hefst barometers-tvímenningur. Skráning og upplýsingar hjá Baldri í síma 78055 eða á keppnisstað. Spilað í Gerðubergi kl. 19.30 stundvíslega. Reykjanesmót Reykjanesmót í sveitakeppni, sem jafnframt er undankeppni fyrir ís- landsmót, verður haldið 16. og 17. feb. n.k. í íþróttahúsinu við Strand- götu í Hafnarfirði. Mótið hefst kl. 13.00. Þátttökutilkynningar skulu berast til: Gísla s. 92-3345, Sigurðar s. 40245 eða Einars s. 52941 í síðasta lagi 10. feb. n.k. Sveitum sem ekki skrá sig fyrir þann tíma er ekki tryggð þátttaka. Reykjanes á nú 3 sveitir og 1. varasveit fyrir Islandsmót. VIÐ RÝMUM VEGNA FLUTNINGA TEPPABUMH SlÐUMÚLA 31

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.