NT - 09.02.1985, Síða 14
„Engin Wham og Duran Duran næturvakt“
■ Fyrir næturvakt Rásar 2 á
laugardag stendur Margrét
Blöndal í þetta skiptið. Nætur-
vaktin hefst kl. 24.45 og stend-
ur til kl. 3.
Margrét er ein á vaktinni og
hyggst hyrja hægt. Á meðan
■ Margrét Böndal sækir
danslög allt aftur til stríösár-
anna á næturvaktina í kvöld.
(NT-mynd: Ari)
hún bíður eftir samtengjngu rás-
anna tveggja, kl. 1, ætlar hún
að leika léttan djass, s.s. Dave
Brubeck, sem ekki þarf að
kynna, Thijs van Lees, en
hann er hollenskur flautuleik-
ari og Chuck Mangione trom-
petleikara.
Að loknum veðurfréttum
hefst hún svo handa fyrir al-
vöru. .Þetta verður engin
Wham og Duran Duran nætur-
vakt,“ segir Margrét. í staðinn
hefur hún hug á því að grafa
upp eldri dansmúsík, allt frá
ástandsárunum og þar um
kring. Fjörug tónlist hefur
völdin fram til kl. 2.30, en þá
ætlar Margrét að slá aðeins af
og hefur þá í huga fólk, sem
skriðið er undir sæng og vill
gjarna fá eitthvað rólegt til að
sofna út frá.
Þetta er fjórða næturvakt
Margrétar á Rás 2, en hún tók
til starfa þar í haust, þegar hún
fluttist suður til Reykjavíkur
til að hefja nám í íslensku við
Háskóla íslands. Hún er þó
síður en svo nokkur ný-
græðingur á öldum ljósvakans.
1 fyrra vetur var hún með
útvarp unga fólksins, sem RÚ-
VAK sendi frá sér annað hvert
sunnudagskvöld. Og í haust,
rétt áður en vcrkfall BSRB
skall á, var hún, ásamt vinkonu
sinni Sigríði Pétursdóttur,
með fjóra þætti í morgunút-
varpi um íslenskarskáldkonur.
„En þeir hafa því miður áreið-
anlega farið fram hjá mörgum,
því að þeir fengu nánast enga
kynningu, vegna prentara-
verkfallsins," segir Margrét.
■ Rætt er við Hauk Gunn-
arsson, leikstjóra Rashomon í
Glugganum.
Sjónvarp laugardag kl. 14.45:
Liverpool -Arsenal
- bein útsending
■ Eins og aðra laugardaga í
febrúar þá verður Bjarni Felix-
son með beina útsendingu frá
ensku knattspyrnunni í sjón-
varpinu í dag. Að þessu sinni
verður það stórleikur. Liver-
pool, Englands-I og Évrópu-
meistararnir taka á móti Ar-
senal á Anfield Road í Liverp-
ool. Bæði liðin eru í hópi efstu
liða í deildinni og þrátt fyrir að
Liverpool hafi átt í erfiðleikum
á þessu tímabili þá eru þeir
enn eitt af stórliðunum og
erfiðir heim að sækja. Arsenal
hefur verið að rífa sig uppúr
smá dal að undanförnu og er
til alls líklegt. Má því búast við
spennandi viðureign á Anfield.
Énska knattspyrnan hefst kl.
14:45 en beina sendingin um
kl. 15:00.
■ Þessar þrjár stjörnur hafa allar veriö í og út úr liði
Arsenal. Mariner, Woodcock og Nicholas. Veröa þeir með í
dag?
9. febrúar 1985
14
Hér stendur greinilega mikið til í grafreit Wilburs. Kannski er himnaför í vændum?
Sjónvarp laugardag kl. 22.40:
Undarlegir útfararsiðir!
■ Seinni laugardagsmynd
sjónvarpsins nefnist Ástvinur-
inn á íslensku (The Loved
One) og er bandarísk bíómynd
frá 1956, gerð eftir skáldsögu
Evélyn Waugh. Sýningin hefst
kl. 22.40.
Söguþráður er allkyndugur,
en hann snýst um fólk, sein
fæst við óvenjulega atvinnu í
augum íslendinga og uppátæki
þess. Enda eru söguslóðir Kali-
fornía.
Dennis Barlow (Robert
Morse) vinnur sem aðstoðar-
maður manns, sem fæst við að
búa lík til greftrunar. I þessu
tilfelli eru það gæludýr, sem
þjónustunnar njóta. Wilbur
Glenworthy (Jonathan
Winters) aftur á móti rekur
kirkjugarð og fær þá hugmynd
að breyta rekstrinum í Borg
eldri borgara. Meðal annarra
áætlana Wilburs í því sam-
bandi er að skjóta ástvinum
hinna látnu út á astralplanið
með viðhöfn undir slagorðinu
„Upprisa nú“!
Hr. Joyboy (Rod Steiger) er
yfirsmyrjari líka við grafreit
Wilburs, en auk þess að vera
sérfræðingur í sínu starfi er
hann ástfanginn af Aimee
Thanatogenos, sem er aðstoð-
armaður hans.
í lokaatriði næst markmið
Wilburs og fyrsta ástvininum
er skutlað út í himinhvolfið til
eilífrar sælu!
Leikstjóri myndarinnar er
Tony Richardson og leikarar
eru ekki af verri endanum. Þar
má nefna í aðalhlutverkum
auk framantaldra John Gielg-
ud, Liberace og Anjanetta
Comer.
Þýðandi er Jóhanna Þráins
Irl 04 A C A O m
Sjónvarp sunnu-
dag kl. 20.55:
Rashomon,
Nickel Mountain
Chet Baker og
Helgi Gíslason
- í Glugganum
■ Gluggi Sveinbjörns I.
Baldvinssonar er á dagskrá
sjónvarps á sunnudagskvöld
kl. 20.55.
Þar kennir að venju ýmissa
grasa. Litið er inn á æfingu í
leikhúsinu á leikritinu Ras-
homon, sem frumsýnt verður
fimmtudaginn 14. febrúar.
Rætt verður við leikstjórann,
Hauk Gunnarsson. Hrafnhild-
ur Schram heimsækir Helga
Gíslason myndhöggvara.
Spjallað verður við Hrafn
Gunnlaugsson kvikmynda-
stjóra og Jakob Magnússon
um kvikmyndina Nickel
Mountain sem íslendingar
vestanhafs gerðu í samvinnu
við Bandaríkjamenn. Loks
flytja Chet Baker og félagar
eitt lag sem var tekið upp á
djasstónleikum í Gamla bíói
2. febrúar sl.
Umsjónarmaður Gluggans
er sem fyrr segir Sveinbjörn I.
Baldvinsson og honum til að-
stoðar er Hrafnhildur
Schram. Stjórn upptöku hef-
ur Tage Ámmendrup með
höndum.
Laugardagur
9. febrúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
'Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorö -
Hrefna Tynes talar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar. 8.55 Daglegt mál. Éndurt.
þáttur Valdimars Gunnarssonar f rá
kvóldinu áöur.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.) Óskalög
sjúklinga, frh.
11.20 Eitthvaö fyrir alla Sigurður
Helgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Hér og nú Fréttaþáttur í viku-
lokin.
15.15 Listapopp - Gunnar Salvars-
son
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 íslenskt mál Guðrún Kvaran
flytur þáttinn
16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður
P. Njarðvik.
17.10 Alban Berg (100 ára minning)
a. Atli Heimir Sveinsson flytur inn-
gangsorð. b. „Siebenfrúhe Lieder"
c. Píanósónata op. 1 d. Fjórir
þættir op. 5 Elísabet Erlingsdóttir
syngur, Kristinn Gestsson leikur á
pianó og Kjartan Óskarsson á
klarinettu.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Úr vöndu að ráða Hlustendur
leita til útvarpsins með vandamál.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón
Sveinsson Gunnar Stefánsson
endar lestur þýðingar Freysteins
Gunnarssonar (23).
20.20 Harmonikuþáttur Umsjón:
Bjarni Marteinsson
20.50 Björn Jónsson ritstjóri og
barátta hans í bindindismálum
Halldór Kristjánsson tók saman
dagskrána. Lesarar með með
honum. Ásgerður Ingimarsdóttir,
Jón F. Hjartar, Gunnar Þorláksson,
Sigurlaug Sævarsdóttir og Sigrún
Gissurardóttir.
21.35 Kvöldtónleikar Þættir úr sí-
gildum tónverkum.
22.00 Lestur Passíusálma (6).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá'
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Þriðji heimurinn Þáttur í umsjá
Jóns Orms Halldórssonar.
23.15 Hljómskálamúsík Guðmund-
ur Gilsson kynnir.
24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón:
Jón Örn Marinósson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Sunnudagur
10. febrúar.
8.00 Morgunandakt Séra Hjálmar
Jónsson flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit
Wal Bergs leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tii-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Þuriður formaður og Kambs-
ránsmenn Fyrsti þáttur.
14.40 Frá tónleikum Kammersveit-
ar Reykjavíkur í Áskirkju 4. des.
15.10 Með bros á vör Svavar Gests
velur og kynnir efni úr gömlum
spurninga- og skemmtiþáttum út-
varpsins.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um vísindi og fræði Laga-
setning til forna. Sigurður Líndal
prófessor flytur sunnudagserindi.
17.00 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskóla-
bíói 7. þ.m. (fyrri hluti).
18.00 Vetrardagar Jónas Guö-
mundsson rithöfundur spjallar við
hlustendur.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Fjölmiðlaþátturinn Viðtals- og
umræðuþáttur um fréttamennsku
og fjölmiðlastörf. Umsjón: Halldór
Halldórsson.
20.50 Um okkur Jón Gústafsson
stjórnar blönduðum þætti fyrir
unglinga.
21.00 íslensk tónlist (frumflutt) a.
„Vetrartré eftir Jónas Tómasson.
Hlíf Sigurjónsdóttir leikur á fiðlu. b.
„Myndhvörf" fyrir málmblásara eft-
ir Áskel Máson.
21.30 Útvarpssagan: „Morgun-
verður meistaranna" eftir Kurt
Vonnegut Þýðinguna gerði Birgir
Svan Símonarson. Gísli Rúnar
Jónsson flytur (12).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kotra Umsjón: Signý Pálsdótt-
ir. (RÚVAK)
23.05 Djassþáttur - Jón Múli Árna-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
áir
Laugardagur
9. febrúar
14:00-16:00 Léttur laugardagur
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
16:00-18:00 Milli mála Stjórnandi:
Helgi Már Barðason.
HLÉ
24:00-24:45 Listapopp Endurtek-
inn þáttur frá rás 1. Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson.
24:45-03:00 Næturvaktin Stjórnandi:
Margrét Blöndal.
Rásimar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1.
Sunnudagur
10. febrúar
13:20-15:00 Krydd í tilveruna
Stjórnandi: Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir.
15:00-16:00 Tónlistarkrossgátan
Hlustendum er gefinn kostur á að
svara einföldum spurningum um
tónlist og tónlistarmenn og ráða
krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón
Gröndal.
16:00-18:00 Vinsældalisti hlust-
enda rásar 2 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas-
son.
Laugardagur
9. febrúar
14.45 Enska knattspyrnan Fyrsta
deild: Llverpool - Arsenal Bein
útsending frá 14.55-16.45.
17.15 (þróttir. Umsjónarmaður
Ingólfur Hannesson.
19.00 Margeir og Agdestein Einvig-
inu lýkur. Jóhann Hjartarson flytur
skákskýringar.
19.25 Ævintýri H.C. Andersens 1.
Tindátinn staðfasti Danskur
brúðumyndaflokkur í þremur
þáttum. Sögurnar eru skreyttar
með teikningum og klippimyndum
eftir H.C. Andersen. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. ÞulurMar-
ia Sigurðardóttir (Nordvision -
Danska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Við feðginin Fjórði þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur i
þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
21.00 Demantsránið (Hot Rock)
Bandarísk bíómynd frá 1972. Leik-
stjóri Peter Yates. Aðalhlutverk:
Robert Redford, George Segal,
Zero Mostel, Paul Sand og Ron
Lebman. Fjórir skálkar taka hönd-
um saman um að komast yfir
demant, sem vart verður metinn til
fjár og varðveittur er á safni i New
York. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.40 Ástvinurinn (The Loved One)
Bandarísk bíómynd frá 1956, gerð
eftir samnefndri skáldsögu eftir
Evelyn Waugh. Leikstjóri Tony
Richardson. Aðalhlutverk: Robert
Morse, John Gelgud, Rod Steiger,
Liberance, Anjanette Comer og
Janathan Winters. Myndin gerist í
Kaliforníu þar sem ungur Breti fer
að fást viö útfararþjónustu sem sér
um greftranir gæludýra. í myndinni.
er gert napurt gys að útfararsiðum
í Bandarikjunum og nær það há-
marki með hugmyndum kunningja
söguhetjunnar um að sjá ástvinun-
um einnig fyrir himnaför. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
00.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
10. febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja Séra
Hjalti Þorkelsson, sóknarprestur
við Kristskirkju, Reykjavík flytur.
16.10 Húsið á sléttunni. 11. Mitt er
þitt. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
17.00 Sinn er siður í landi hverju
Heimildamynd frá BBC. Múríar
nefnist einangraður þjóðflokkur á
Mið-lndlandi. Margt í siðvenjum
múría er ólikt þvi sem annars
tiðkast meðal Indverja, ekki sist
frjálsræði unglinga í ástamálum. Á
endanum eru það þó foreldrarnir
sem ákveða ráðahaginn. Þýðandi
Höskuldur Þráinsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Þrándur Thoroddsen.
19.20 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón:
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
20.55 Glugginn Þáttur um listir,
menningarmál og fleira. Umsjónar-
maður Sveinbjörn I. Baldvinsson.
21.45 Dýrasta djásnið Þrettándi
þáttur. Breskur framhaldsmynda-
flokkur í fjórtán þáttum, gerðureftir
sögum Pauls Scotts frá siðustu
valdaárum Breta á Indlandi. Þýð-
andi Veturliði Guðnason.
22.35 Kvöldtónleikar. Þorsteinn
Gauti Sigurðsson leikur pianó-
konsert nr. 2 i g-moll ópus 16 eftir
S. Prokofjev. Upptakan er frá
norrænni tónlistarhátið i Osló í
október 1984 þar sem saman
komu ungir einleikarar og einsöng-
varar. Útvarpshljómsveitin í Osló
leikur. (Nordvision - Norska sjón-
varpið).
23.20 Dagskrárlok.