NT - 09.02.1985, Page 21
■>
fí X r Laugardagur 9. febrúar 1985 21 1
ÍL 1 Útlönd
Kim barinn við heim-
komuna í Suður-Kóreu
Bandaríkjamenn senda harðorð mótmæli
Washington-Reuter
■ Kóreskir öryggisverðir fóru
ómjúkum höndum um Kim Dae
Jung stjórnarandstöðuleiðtoga
í gær þegar hann kom aftur til
Suður-Kóreu eftir tveggja ára
útlegð. Þeir börðu hann og
drógu hann inn í lyftu við flug-
völlinn í Seoul svo að hann gæti
ekki heilsað stuðningsmönnum
sínum sem höfðu fjölmennt við
flugvöllinn.
Tuttugu Bandaríkjamenn.
sem voru í fylgd með Kim Dae
Jung, urðu vitni að barsmíðun-
um. Fjórir þeirra, þar af tveir
öldungadeildarþingmenn, segj-
ast einnig hafa orðið fyrir bar-
smíðum þegar þeir reyndu að
hjálpa Kim Dae Jung.
Áður en Kim Dae Jung sneri
aftur heim til Kóreu höfðu suð-
ur-kóresk yfirvöld fullvissað
Bandaríkjamenn um að honum
yrði ekki gert mein. Eftir at-
burðina í gær sendu Banda-
ríkjamenn þegar í stað harðorð
mótmæli til stjórnvalda í Suður-
Kóreu. Blöð og fjölmiðlar í
Suður-Kóreu hafa hins vegar
neitað því að Kim hafi verið
barinn.
Kim Dae Jung er nú á heimili
sínu þar sem hann segir að sér
sé haldið í hálfgerðu stofufang-
elsi eins og mörgum öðrum
stjórnarandstæðingum.
Ekki er enn ljóst hvaða áhrif
þessar móttökur öryggisvarða á
Kim Dae Jung hafa á tengsl
Suður-Kóreu og Bandaríkjanna
á næstunni. Bandaríkjamenn
hafa 40.000 manna setulið í
Suður-Kóreu og bæði bandarísk
og suður-kóresk yfirvöld telja
náið samstarf á sviði hermála
mikilvægt. Forseti Suður-Kór-
eu, Chun Doo Hwan, er vænt-
anlegur í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna í apríl næstkom-
andi.
■ Kim Dae Jung á blaðamannafundi heima hjá sér skömmu
eftir komuna til Suður-Kóreu í gær. Á fundinum skýrði hann
meðal annars frá því hvernig öruggisverðir hefðu slegið hann og
sparkað í hann og dregið hann með sér á flugvellinum.
Símamynd-POLFOTO
Fengu kókaín hjá
forsætisráðherra
Fredericton, Nyja Brunsuick, Kanada-Reut-
er
■ Grzegorz Piotrowski (t.h.) var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir morðið á föður Popieluszko. Svo
virðist sem það hafi komið honum á óvart að hann skyldi sleppa við dauðarefsinguna. Neðst til vinstri
á myndinni er Adam Pietruszka ofursti sem einnig var dæmdur í 25 ára fangelsi. Tveir aðrir
leyniþjónustumenn voru dæmdir í 14 og 15 ára fangelsi. Símamyod-POLFOTO
Pólland:
Walesa gagnrýnir
andkirkjuáróður
Varsjá-Reuter
■ Tveir fyrrverandi háskóla-
nemendur segja að forsætisráð-
herrann í Nýju Brunswick-fylki
í Kanada hafi boðið þeim kóka-
ín og marijúana á heimili sínu
árið 1981.
Richard Hatfield, forsætis-
ráðherra í Nýja-Brunswick, hef-
ur verið lengur forsætisráðherra
í fylki sínu en nokkur annar
kanadískur fylkisráðherra.
Ráðherrann, sem nú er 53 ára,
var sýknaður í seinustu viku af.
ákæru 'pess efnis að hann hefði
haft marijúana í fórum sínum
þegar hann fylgdi Elísabetu
Bretadrottningu á ferð hennar
um Kanada á síðasta ári.
Hatfield neitaði því stöðugt
að hann hefði átt fíkniefnið sem
fannst í útvasa á farangri hans.
Hann hélt því fram að hver sem
væri hefði getað komið efninu
fyrir þar. En þótt hann hafi
verið sýknaður af þessu máli er
forsætisráðherrann ekki slopp-
inn undan ásökunum ennþá.
Tveir fyrrverandi háskóla-
stúdentar lýstu því í sjónvarps-
viðtali í Kanada í fyrrakvöld
hvernig Hatfield hefði boðið
þeim og tveim öðrum stúdent-
um heim til sín eftir að hafa hitt
þá á veitingastað árið 1981.
Hann hefði síðan dregið fram
marijúan;, og boðið þeim er
Iíða tók á kvöldið og enn síðar
hefði hann boðið þeim kókaín.
Hatfield hefur neitað að svara
þessum ásökunum en blöð í
Nýju- Brunswick hafa þegar
krafist afsagnar hans.
■ Pólski verkalýðsleiðtoginn
Lech Walesa fordæmdi í gær
harðlega gagnrýnina sem kom
fram á föður Jersy Popieluszko
við réttarhöldin yfir morðingj-
um hans.
Walesa sagði að þótt nú væri
þörf á að sýna sáttfýsi þá mætti
ekki hætta baráttunni gegn hinu
illa. Hann ásakaði saksóknara
fyrir að reyna að gefa fólki þá
hugmynd að faðir Popieluszko
hefði verið öfgasinni.
Walesa gagnrýndi einnig
pólska fjölmiðla fyrir að birta
ekki fréttir af ræðum lögfræð-
inga kirkjunnar. En hann lagði
samt áherslu á að hann liti á
réttarhöldin sem merki um
sáttavilja stjórnvalda.
Pólskir biskupar hafa boðað
tveggja daga ráðstefnu í næstu
viku til að ræða samskipti kirkju
og ríkis frá því að faðir Popiel-
uszko var myrtur.
Launin hækkuð
í Nicaragua
■ Þjóðþingið í Nicaragua hef-
ur samþykkt 47 til 60 prósenta
launahækkanir eftir að ríkis-
stjórnin tilkynnti verðhækkanir
á matvælum um allt að 110
prósent.
Launahækkanirnar eiga að
draga úr áhrifum verðhækkan-
anna á afkomu fólks en margir
eru efins um að þær hrökkvi til
þar sem kjöt og mjólkurvörur
hafa t.d. verið hækkaðar urn
100%, egg um 110% og kjúkl-
ingar um 50%.
Faðir
Jagúar-
bílanna
látinn
■ William Lyons lávarð-
ur. sem stofnaði Jaguar-
bílaverksmiðjurnar, lést í
gær 84 ára að aldri.
Lyons hóf afskipti sín af
bílaframleiðslu þegar á
þriðja áratugnum. Fyrsti
Jagúar-bíllinn, sem hann
teiknaði og var framleidd-
ur í hans eigin fyrirtæki
kom á göturnar árið 1935.
Lyons dróg sig í hlé árið,
1972 skömmu áður en
mikill samdráttur varð í
sölu á Jagúar.
Nýlega hafa Jagúar-bíl-
ar samt aftur náð miklum
vinsældum og eru Jagúar-
bílaverksmiðjurnar taldar
einhverjar gróðavænleg-
ustu bílaverksmiðjurnar á
Bretlandi um þessar
mundir.
S-afrísk stjórnvöld
bjóða Mandela frelsi
- ef hann afneiti öllu ofbeldi
Pretoria-Reuter
■ P.W. Botha, forseti
Suður-Afríku, helur
formlega boðið skæruliða-
foringjanum Nelson
Mandela og öðrum
leiðtogum svartra þjóð-
ernissinna frelsi ef þeir
gefi út yfirlýsingu um að
þeir afneiti ofbeldi í frels-
isbaráttu blökkumanna í
Suður-Afríku.
Mandela er leiðtogi
Afríska þjóðarráðsins,
sem berst fyrir fullum rétt-
indum blökkumanna í
Suður-Afríku. Hann hef-
ur nú verið í fangelsi í
meira en tuttugu ár. Ann-
ar leiðtogi Afríska þjóðar-
ráðsins, Oliver Tambo,
sem nú er í Lusaka, segir
að Mandela muni ekki
þyggja frelsi með þessum
skilmálum. En ekki var
enn vitað um svar Mand-
ela þegar boð suður-afr-
ísku stjórnarinnar var gert
opinbert í gær.
Bandarískir hermenn dæmdir:
T óku sovéska riff la heim
Washington-Reuter
■ Fimm bandarískir hermenn
hafa verið dæmdir í fangelsi
fyrir að reyna að smygla sovésk-
um rifflum heim til Bandaríkj-
anna eftir innrásina í Grenada.
Bandarískur aðmíráll, sem
gerði sig sekan um sama glæp,
slapp hins vegar með aðvörun.
Hermennirnir fimm tóku með
sér AK-47 riffla heim í herbúðir
sínar í Norður-Karólínu. Þegar
það komst upp voru þeir dregnir
fyrir herdómstól og dæmdir í
allt að tveggja ára fangelsi.
Joseph Metcalf. varaaðmíráll,
slapp hins vegar með áminningu
eftir að 24 AK-47 rifflar fundust
í flugvél hans við komuna til
Bandaríkjanna. Metcalf var
yfirmaður innrásarliðs Banda-
ríkjamanna í Grenada árið
1983.
Vestur-Þýskaland:
Finnskt olíuskip
mengaði
IHamborg-Reuter
■ Vestur-þýska lögregl-
an segir að finnskt olíuskip
hafi dælt um 142 rúmmetr-
um af hráolíu í Norðursjó
skammt undan ströndum
Vestur-Pýskalands síðast-
liðið sumar.
Vestur-Þjóðverjar hafa
nú lýst eftir áhöfninni sem
er sögð hafa dælt olíunni í
sjóinn einhvern tímann á
strendur
tímabilinu 10. til 13. julí á
síðasta ári eftir að hafa
landað 40.085 tonnurn af
olíu í Wilhelmshaven. Olí-
an barst síðan á land í
Vestur-Þýskalandi og olli
miklum skemmdum.
Hámarksrefsing í Vest-
ur-Þýskalandi fyrir meng-
un á hafi er fimm ára
fangelsi auk skaðabóta.