NT

Ulloq

NT - 09.02.1985, Qupperneq 22

NT - 09.02.1985, Qupperneq 22
iþróttamaður- og kona Evrópu: Michel Platini og Marja-Liisa fyrir valinu ■ Michel Platini ■ Marja-Liisa Heimsmeistarakeppnin á skíðum: „Feilnóta“ Aðstandendur heimsmeist- arakeppninnar á skíðum slógu svo sannarlega feilnótu er verð- launaafhendingin fyrir stórsvig karla fór fram í Borrnío í fyrradag. V-Þjóðverjinn Markus Wasmaier sigraði í keppninni og stóð hann sperrt- ur og stoltur á verðlaunapallin- um með gullið um hálsinn er byrjað var á þjóðsöngnum. Eitthvað hafði þó skolast til í lagavalinu því að fyrstu nóturn- ar sem spilaöar voru voru úr a- þýska þjóðsöngnum. Snarlega var þó skrúfað fyrir hann og hljómsveit staðarins tók sig til og spilaði réttan þjóðsöng. Was- maier varð fyrst dálítið hissa en brosti svo og allir kímdu með honum. Mistökin voru þau að til var segulbandsspóla með þjóðsöng V-Þjóðverja á annarri hliðinni en A-Þjóðverja á hinni - henni var stungið vitlaust í segulband- ið. Daníel sló Dananum við - náði 32. sæti í svigi á HM á skíðum ■ Daníel Hilmarsson frá Dal- vík náði þeim ágæta árangri á HM á skíðum f fyrradag, að verða . í 32. sæti í stórsvigi. Daníel er eins og NT skýrði frá í gær, eini íslendingurinn sem keppir á þessu móti í alpagrein- um en danski keppandinn sem þá var einnig nefndur varð í 41. sæti. Daníel hélt því heiðri okkar íslendinga uppi gagnvart þeirri láglendisþjóð, Dönum, en þeir eiga tvo keppendur á þessu móti, sem keppa í bruni og svigi. Daníel getur slegið Dönunum enn við á sunnudag, er hann keppir í svigi. Ármannsheimili og Baldurshagi: Meistaramót þeirra yngri ■ í dag og á morgun verður haldið stórnrót í frjálsíþróttum, Meistaramót íslands í flokkum 14 ára og yngri, í Ármanns- heimilinu og Baldurshaga. Bú- ist er við um 140 þátttakendum á mótið, frá 13-14 félögum og samböndum víða um land, og því óhætt að segja að rjóminn af efnum framtíðarinnar í frjálsíþróttum verði þarna samankominn. Mótið hefst í dag klukkan 12.30 í Ármannsheimilinu, og verður fram haldið í Baldurs- haga kl. 17.00. Keppni hefst klukkan 13.30 í Baldurshaga á morgun. Mótið er fyrir 14 ára og yngri, það er flokki pilta og telpna (13-14 ára), og stráka og stelpna (12 ára og yngri). ■ Franski knattspyrnusnill- ingurinn Michel Platini og finnska skíðadrottningin Marja-Liisa Hamalainen-Kir- versniemi voru útnefnd „íþróttamaður og íþróttakona Evrópu“. Það eru samtök íþróttafréttamanna í Evrópu sem standa að kjörinu. Platini þarf ekki að kynna. Hann er einn fremsti knatt- spyrnumaður í heiminum í dag og var kosinn „Knattspyrnu- maður Evrópu“ í annað sinn árið 1984. Þá var hann fyrirliði franska landsliðsins í knatt- spyrnu sem vann Evrópumeist- aratitilinn og hann varð einnig markahæsti leikmaöur Evrópu- keppninnar. Platini spilar með ítölsku meisturunum Juventus og með þeim varð hann einnig Evrópumeistari bikarhafa. Marja-Liisa vann til þriggja gullverðlauna á ÓL í Sarajevo og einna bronsverðlaunaa á leikunum. Hún var valin „(þróttamaður Finnlands" og „íþróttamaður Norðurlanda“ fyrir stuttu. Listinn yfir fimm estu í kjör- inu leit þannig út: Karlar: Michel Platini, Frakklandi ... knattsp. Daley Thompson, Englandi ... frjálsar Michael Gross, V-Þýskal.....sund Uwe Hohn, A-Þýskal......frjálsar Sebastian Coe, Englandi...frjálsar Konur: Marja.Liisa Kirvesniemi, Finnl. . . skídi Ecaterina Szabo, Rúmeniu . . fimleikar Karin Enke-Kania, A-Þýskal. .. skautar Ulrike Meyfarth, V-Þýskal.frjálsar Marita Koch, A-Þýskal...frjálsar Knattspyrna: Leikið gegn Lúxemborgurum ■ Nú er búið að semja um landsleiki við Lúx- emborgara i knattspyrnu. Leikurinn verður í Lúx- emborg þann 24. apríl og er hugsaður sem upphit- unarleikur fyrir lands- leikina í undankcppni heimsmeistarakeppninn- ar gegn Spánverjum og Skotum.'Þeir leikir eru í maílok og júní byrjun. Allir atvinnumenn Is- lands eru á lausu og verð- ur Tony Knapp með hálf- gerðar æfingabúðir í Lúx- emborg í kringum leik- inn. Gross enn á ferð ■ V-Þjóðverjinn Mic- hael Gross náði besta tíma í heiminum í 800 m skriðsundi í stuttri laug á móti í Bonn í gærkvöldi. Tími hans var 38,75. ■ Uruguay sigraði Ból- ivíu í vináttulandsleik í Bólivíu í fyrrakvöld með 1 marki gegn engu. Það var Pereira sem gerði markið á síðustu mínútu leiksins. 9- febrúar 1985 22 Katarina Witt - skautastúlkan fallega Witt sigraði - í einstaklingskeppni ■ A-þýska stúlkan Katarina Witt sigraði í einstaklings- keppni kvenna á Evrópumeist- aramótinu í listhlaupi á skaut- um sem nú fer fram í Gauta- borg í Svíþjóð. Þetta er þriðja árið í röð sem Witt vinnur þennan titil en í þetta sinn var sigurinn naumur. Hún var næstum dottin strax í upphafi atriðis síns en náði að vinna sig upp aftur og það var aðeins að þakka því að helstu keppinaut- ar hennar áttu ekki góðan dag kvenna á EM á ísnum að hún náði sigri. Fyrir lokaatriðið þá hafði sovéska stúlkan, Kira Ivanova. forystu en henni mistókst í sínu atriði og hafnaði í öðru sæti. Þriðja í keppninni varð svo Claudia Leistner frá V-Þýska- landi. Ef sú sovéska hefði sigrað þá hefði það verið í fyrsta sinn sem sovésk stúlka sigrar í ein- staklingskeppni kvenna á Evr- ópumeistaramóti. Deildakeppni BSÍ ■ Um helgjna (9.-10. feb.) fer frani í Laugar- dalshöllinni Deilda- keppni B.S.Í. Hefst keppnin kl. 10.00. í dagjverða spilað- ar 3 umferðir, þ.e. kl. 10.00 kl. 13.00 og kl. 16.00. Á sunnudaginn verða einnig 3 umferðir, kl. 10.00, kl. 13.00 og kl. 15.00. Leikið verður í 1. og 2. deild. í 1. deild eru 6 lið, þar af 4 frá TBR, en í fyrra vann fjórða liðið frá TBR sér þátttökurétt í 1. deild nteð sigri í 2. deild. Liðin eru: TBR a, TBR b, TBR c, TBR d, ÍA a, og KR a. Það lið sem sigr- ar í 1. deild vinnur sér rétt til þátttöku í Evrópu- keppni félagsliða. Neðsta liðið í I. deild fellur í 2. deild. í 2. deild verða Klliðog er þeim skipt í 2 riðla: A-riðill: TBRe Víkingur BH (Hafnarfj.) TBV (Vestm.eyj.) B-riðill: TBRf TBRg TBA (Akureyri) UMFS (Borgarnes) KRb Efstu liðin úr A og B riðli spila síðan um sæti í 1. deild. Fráttatilkynning Sævar í Val ■ Sævar Jónsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu hefur tilkynnt fé- lagaskipti úr belgíska lið- inu CS Brugge yfir í Val. Þarf ekki að fara mörgum orðum um hve mikið þetta styrkir Val í barátt- unni á sumri komanda. Frjálsar: Meistaramótið ■ Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum innan- húss 15-18 ára, verður haldið dagana 16. og 17. febrúar n.k. Mótið verð- ur í Kópavogi og Reykja- vík í umsjón UMSK. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir 14. feb. n.k. á þar til gerð- um þátttökuspjöldum. Upplýsingar í síma 16016 á skrifstofutíma og hjá Baldri Daníelssyni í síma 43679. Handknattleikur: Júgóslavar næstir ■ Það er ekkert lát á lands- leikjum hjá íslenska landslið- inu í handknattleik. Nýkofnnir frá keppni í Frakklandi og rétt búnir að jafna sig og þá koma þrír landsleikir í röð. Mótherj- arnir ekki af verri endanum, sjálfir Ólympíumeistarar Júg- óslava. Leikirnir verða í næstu viku, nánar tiltekið á þriðjudag, mið- vikudag og fimmtudag. Verða leikirnir á þriðjudag, 12. febrú- ar, og á fimmtudag, 14. febrú- ar, haldnir í Laugardalshöll og hefjast þeir kl. 20:30. Leikur- inn á miðvikudagskvöldið verð- ur hinsvegar í Vestmannaeyj- um og hefst hann kl. 19:30. Það er skemmtileg tilbreytni fyrir bæði landsliðsmenn og stuðn- ingsmenn landsliðsins á lands- byggðinni að reynt sé að dreifa leikjunum dálítið utan Reykja- víkursvæðisins. Er ekki að efa að Eyjamenn munu fjölmenna til leiksins. Síðast er við lékum við Júg- óslava þá var jafnt og máttu Júkkarnir þakka fyrir það. Sá leikur var á Olympíuleikunum í Los Angeles síðastliðið sumar. Jafnteflið var eina tapstig Júg- óslava á ÓL.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.